Morgunblaðið - 10.07.2010, Side 31
Messur 31Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í
dag, laugardag kl. 11, hefst með biblíu-
fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á
ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Eric Guð-
mundsson prédikar.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Sam-
koma í dag, laugardag kl. 11. Boðið
upp á biblíufræðslu fyrir börn og full-
orðna. Guðsþjónusta kl. 12. Bein út-
sending frá kirkju aðventista í Reykjavík.
Þóra Jónsdóttir prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Sam-
koma í dag, laugardag kl. 11 í Reykja-
nesbæ, hefst með biblíufræðslu. Guðs-
þjónusta kl. 12. Jóhann Þorvaldsson
prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á
Selfossi í dag, laugardag kl. 10, hefst
með biblíufræðslu fyrir börn og full-
orðna. Guðsþjónusta kl. 11. Jeffery
Bogans prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Sam-
koma í Loftsalnum í dag, laugardag,
hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11.
Stefán Rafn Stefánsson prédikar. Biblíu-
fræðsla fyrir börn, unglinga og fullorðna
kl. 11.50. Boðið upp á biblíufræðslu á
ensku.
Samfélag aðventista Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag,
hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir börn
og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 12. Man-
fred Lemke prédikar.
ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Sögur, söngur, bænir. Mar-
grét Ólöf djákni og sr. Sigrún leiða
stundina, Hafdís leikur á píanó. Boðið
upp á grillaðar pylsur að stundinni lok-
inni. Foreldrar, afar og ömmur hvött til
að mæta með börnunum.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Kór Bústaðakirkju syngur, organisti
er Arnhildur Valgarðsdóttir, prestur sr.
Pálmi Matthíasson. Messuþjónar að-
stoða. Kaffi eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Magnús Björn Björnsson, fé-
lagar úr kór Digraneskirkju leiða söng.
Sjá www.digraneskirkja.is.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr.
Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari, organisti er Reynir Jónasson. Há-
degisbænir á þriðjudögum, kvöldkirkja á
fimmtudögum.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta í
Selskógi (útileikhús) kl. 11 (í kirkjunni
ef veður hindrar). Tónlistarstund í kirkj-
unni sama dag kl. 20. Kyrrðarstund í
safnaðarheimili kl. 18 á mánudag.
GARÐAKIRKJA | Ljóðamessa og kyrrð-
arstund kl. 20. Sr. Jóna Hrönn Bolla-
dóttir þjónar fyrir altari, Jón Ólafur Sig-
urðsson organisti leiðir tónlistina.
Íhugun, kyrrð og fyrirbæn. Boðið upp á
akstur frá Vídalínskirkju kl. 19.30, frá
Jónshúsi kl. 19.40 og Hleinum kl.
19.45. Sjá gardasokn.is.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Lena Rós Matthías-
dóttir, Klarup stúlknakór frá Danmörku
flytur lög og sálma. Í kórnum eru 35
stúlkur á aldrinum 14-25 ára og er hann
meðal bestu stúlknakóra í Danmörku.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11.
Altarisganga og samskot til Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Messuhópur þjónar.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur og org-
anisti er Árni Arinbjarnarson, prestur er
sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir
messu.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sum-
armessa kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhann-
esdóttir þjónar, organisti er Lára Bryndís
Eggertsdóttir og forsöngvari Þóra Björns-
dóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt rev. Leonard Ashford,
messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngja, Sólbjörg
Björnsdóttir syngur einsöng og organisti
er Björn Steinar Sólbergsson. Sögu-
stund fyrir börnin. Dame Gillian Weir
leikur eftirspil. Alþjóðlegt orgelsumar:
Tónleikar laugardag kl. 12 og sunnudag
kl. 17. Dame Gillian Weir leikur.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón hefur Harold Rein-
holdtsen og Trond Are Schelander pré-
dikar.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er sr. Sveinbjörn R. Einarsson á
Blönduósi, organisti er Sólveig Einars-
dóttir, söngfólk úr kór Blönduóskirkju
leiðir kirkjusöng. Tónleikar kl. 14. 3
flautur og selló. Flautuleikararnir Berg-
lind Stefánsdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir
og Magnea Árnadóttir ásamt sellóleik-
aranum Sigurgeiri Agnarssyni leika sam-
an tríó og kvartetta eftir Haydn, Tele-
mann, Quantz og Boismortier. Ókeypis
aðgangur.
HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Sveinn Valgeirsson, organisti
Gróa Hreinsdóttir. Félag fyrrum þjónandi
presta.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma kl. 11. Sheila Fitzgerald prédikar.
Verslunin Jata er lokuð eftir samkomur í
júlí. Alþjóða kirkjan kl. 14. Samkoma á
ensku.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20. Lofgjörð, fyrirbænir og predikun. Sjá
www.kristskirkjan.is.
KAÞÓLSKA Kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11
og laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl.
11 og 19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl.
14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er
messa kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. |
Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30.
Laugardaga er messa á ensku kl.
18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 14 í
samstarfi þjóðkirkjusafnaðanna í Kópa-
vogi. Almennur safnaðarsöngur. Sjá
www.kopavogskirkja.is.
LANGHOLTSKIRKJA | Kirkjan verður lok-
uð til 27. júlí vegna sumarleyfa sóknar-
prests og starfsfólks. Sr. Pálmi Matt-
híasson sóknarprestur í Bústaðakirkju
þjónar Langholtsprestakalli ofan-
greindan tíma. Vísað er á messur í Bú-
staðakirkju.
LAUGARNESKIRKJA | Gleðistund heim-
ilisfólks í Hátúni 12 verður haldin í mat-
salnum kl. 13. Tindatríóið skemmtir og
sr. Bjarni Karlsson spjallar. Tríóið skipa
feðgarnir Atli Guðlaugsson og synir
hans Bjarni og Guðlaugur. Ljóðamessa
og kyrrðarstund kl. 20 í kirkjunni. Sr.
Bjarni flytur íhuganir út frá völdum ljóð-
um íslenskra skálda en Árni Heiðar
Karlsson organisti leikur á flygilinn. Í
lokin verður sameiginleg bænastund við
altarið og kaffispjall í safnaðarheimilinu
á eftir. Sjá laugarneskirkja.is.
LÁGAFELLSKIRKJA | Kyrrðar- og bæna-
stund kl. 20. Altarisganga. Sr. Skírnir
Garðarsson og Guðm. Ómar Óskarsson
organisti annast stundina.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Helgistund
kl. 14. Samstarf þjóðkirkjusafnaða í
Kópavogi.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Fulltrúar á
Norrænu þjóðdansamóti lesa ritningar-
lestra og flytja söng. Félagar úr Kór
Neskirkju leiða safnaðarsöng, organisti
er Sigrún Steingrímsdóttir og sr. Örn
Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Samfélag og kaffisopi á eftir á
Torginu.
SAFNKIRKJAN Árbæjarsafni | Guðsþjón-
usta kl. 14. Almennur safnaðarsöngur
undir stjórn Sigrúnar Steingrímsdóttur
organista, prestur er sr. Kristinn Ágúst
Friðfinnsson.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl.
17. Ræðumaður er Haraldur Jóhanns-
son.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 20.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar
og þjónar fyrir altari, félagar úr Kór
Seljakirkju leiða safnaðarsönginn, org-
anisti er Tómas Guðni Eggertsson.
Altarisganga.
SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund
kl. 11, í umsjón sr. Hans Markúsar Haf-
steinssonar héraðsprests.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl.
17. Prestur er sr. Egill Hallgrímsson.
Hljómeyki frumflytur verk eftir Óliver
Kentish og Steingrím Þórhallsson, sem
jafnframt frumflytur orgelverk eftir Atla
Heimi Sveinsson.
SLEÐBRJÓTSKIRKJA í Jökulsárhlíð |
Messa kl. 20.30. Prestur er sr. Jó-
hanna I. Sigmarsdóttir, organisti Krist-
ján Gissurarson og kór Kirkjubæjar- og
Sleðbrjótssókna syngur.
ÞINGEYRAKIRKJA
Húnavatnsprófastsdæmi | Guðsþjón-
usta kl. 14. Sr. Magnús Magnússon,
sóknarprestur á Hvammstanga, þjónar,
félagar úr Kirkjukór Hvammstanga leiða
sálmasöng undir stjórn Pálínu Fanneyjar
Skúladóttur organista.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Sr.
Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar
fyrir altari, meðhjálparar annast lestra
og bænir og organisti er Guðmundur Vil-
hjálmsson.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Sleðbrjótskirkja í Jökulsárhlíð.
Orð dagsins:
Sjá, ég er með yður.
(Matt. 28)
Bækur
Vestfirðingar - Ferðafólk
Við höfum opnað lagersölu á
Þingeyri. Þar eru Bækurnar að vestan
á Perluverði! Komið og gerið góð
kaup. Sjón er sögu ríkari. Vestfirska
forlagið. 456 8181.
Húsnæði óskast
4 herb. íbúð óskast í Reykjavík
Þrír stúdentar óska eftir 4 hb. íbúð til
leigu í nágrenni Háskóla Íslands.
Erum reglusamir, ábyrgir og reyklaus-
ir. Uppl. ibud2010oskast@gmail.com
eða 867 7971.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss
Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma: 894-0431.
Til leigu nýinnréttuð skrifstofu-
herbergi í 104 Rvk. Securitas-
öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð
samnýting. Uppl. í síma 896 9629.
Fyrirtæki
Óska eftir bakaríi eða kaffihúsi
Óska eftir að kaupa eða leigja
fullbúið bakarí eða kaffihús með
framleiðsluaðstöðu, á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Upplýsingar sendist á
bakarameistari@gmail.com.
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
an. Hún var listakona í höndunum,
jafnvíg á útsaum, prjónaskap,
saumaskap og hvers konar hand-
verk. Var hún dugleg að tileinka sér
nýjungar, fara á námskeið t.d. í leir-
mótun, postulínsmálun og hverju því
sem bauðst.
Börnin mín fengu að njóta hennar
leiðsagnar og góðu verka á margan
hátt. Hún hafði ætíð áhuga á því sem
afkomendur hennar voru að gera og
hvað þeir ætluðust fyrir. Hún var
okkur öllum góð fyrirmynd.
Hún verður lögð til hinstu hvílu í
sveitinni sem hún unni, Fljótshlíð-
inni.
Fljótshlíðin
Ég lít þig í anda
mín ljósgræna hlíð
með lífsangan blóma,
hve þín kvöld voru blíð
og í faðmi þér friðsælt að sofa.
Og vakna svo alsæll
við yljandi sól
allt sem að syngur
var komið á ról
og blómin með fagnandi faðma.
Þá lífið var fagurt
hver laut var mér kær,
hver laufkrónu þytur
og hásumars blær
faðmandi fósturlands lendur.
(Guðjón Helgason)
Ágústa Guðjónsdóttir.
Við fráfall Sigurlaugar Guðjóns-
dóttur hvarflar hugurinn aftur til
miðrar síðustu aldar þegar ég varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að dvelja
þrjú sumur á heimili hennar og
manns hennar, Guðmundar Guðna-
sonar, í Fögruhlíð í Fljótshlíð.
Ég minnist með mikilli hlýju og
væntumþykju kynna af þeim sæmd-
arhjónum. Sigurlaug var einstaklega
hlý og ljúf manneskja. Lundgóð var
hún með afbrigðum og var mikill
ræktandi jafnt mannlífs sem gróð-
urs. Heill ævintýraheimur opnaðist
borgarbarninu að komast á sveita-
heimili og kynnast öllum þeim störf-
um sem þar þurfti að vinna. Þegar
ég kom fyrst í Fögruhlíð var raf-
magn enn ekki komið í sveitina.
Kolaeldavél og Aladdín-lampar voru
undanfari þægindanna og straubolt-
ar hitaðir á eldavélinni. Þvotturinn
var klappaður í bæjarlæknum og ull-
in þvegin upp úr keytu. Heyskap-
urinn var unninn með hestum og
höndum og starfaði Sigurlaug jafnan
við heyskap og sá um fjósstörfin auk
þess að sinna stóru heimili. Hún var
vinnusöm og féll aldrei verk úr
hendi. Handavinna var henni hug-
leikin og þá einkum prjónaskapur.
Hún var dugleg húsmóðir í bestu
merkingu þess orðs. Auk fjögurra
barna þeirra hjóna voru þau iðulega
með liðléttinga sem kúasmala og
hlaupastráka. Glóðvolgar flatkök-
urnar hennar Sigurlaugar voru það
besta sem ég komst í á þessum tíma.
Við Theódór hámuðum þær í okkur
með heimastrokkuðu smjörinu og
mátti Sigurlaug hafa sig alla við að
baka ofan í okkur. Sigurlaug var
mikil matargerðarkona og að sveita-
sið átti hún ávallt mikið til með
kaffinu. Gestir gerðu ekki endilega
boð á undan sér í þá daga. Hún tók
einstaklega vel á móti öllum sem að
garði bar og hugsaði hlýtt til sam-
ferðafólks síns. Algengt viðkvæði
hennar þegar hún spurði frétta af
fólki var „ja, það var nú mikið gott“.
Sigurlaug hafði mikla ánægju af
trjá- og blómarækt og garðurinn
hennar framan við húsið bar vott um
mikla natni. Grænmeti ræktaði hún
af mikilli framtakssemi. Bæði hjónin
tóku virkan þátt í kórastarfi sveit-
arinnar. Guðmundur hafði ágæta
bassarödd og var löngum formaður
kirkjukórsins og forsöngvari á þrett-
ándabrennum sveitarinnar. Dæturn-
ar, Inga og Ninna, erfðu söngraddir
foreldranna og spiluðu gjarnan á gít-
ar og sungu með.
Sigurlaug og Guðmundur voru
mér sem góðir foreldrar þessi þrjú
sumur sem ég var í sveit hjá þeim og
jókst kunnátta mín og þroski um-
talsvert. Eftir að þau hjónin brugðu
búi árið 1990 eftir 54 ára búskap í
Fögruhlíð fluttu þau í vistlega íbúð á
dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á Hvols-
velli. Guðmundur lést árið 1998, 89
ára að aldri. Sigurlaug lifði mann
sinn í 12 ár. Mikið langlífi er í ætt
hennar, móðir hennar varð tæplega
105 ára og hún og systkini hennar,
Guðrún, Þórunn og Oddgeir, urðu öll
fjörgömul.
Ég kveð Sigurlaugu og minnist
hennar með þakklæti fyrir kærleik
hennar og umhyggju. Við Erla send-
um börnum hennar, tengdabörnum
og afkomendum samúðarkveðjur.
Ingvar Pálsson.
Látin er háöldruð heiðurskona,
Sigurlaug Guðjónsdóttir, fyrrver-
andi húsfreyja í Fögruhlíð í Fljóts-
hlíð. Hún er ein af systkinunum frá
Tungu í Fljótshlíð sem öll hafa náð
mjög háum aldri og unnið sveit og
samfélagi drjúgt til heilla um langa
ævi. Sigurlaug reisti ásamt manni
sínum, Guðmundi Guðnasyni sem
lést árið 1998, nýbýlið Fögruhlíð árið
1936 og bjuggu þau þar snyrtilegu
og gagnsömu búi í meira en hálfa
öld. Þótt jörðin væri ekki stór bún-
aðist þeim vel og settu svip á sveit-
arbrag með ræktun jarðar og bú-
stofns – og ekki síður með framlagi
sínu til félagsmála í sveitinni, í kven-
félagi, búnaðarfélagi, kirkjustarfi og
hverju því þjónustu- og menningar-
starfi sem á kraftana kallaði. Sæmd
hafa þau af börnum sínum fjórum
sem þau komu til manns og bera for-
eldrum sínum fagurt vitni.
Sigurlaug og systkini hennar
bjuggu að gjöfulum menningararfi
sagna og kveðskapar og hvers konar
þjóðlegum fróðleik frá foreldrahús-
um í Tungu.
Og ekki síður að hæfileikum og
kunnáttu í listrænu handverki og
hannyrðum sem margir hafa fengið
af að njóta til gagns og augnayndis.
Ótaldir eru þeir sem með þakklátum
huga minnast gestrisni, góðra veit-
inga og glaðra stunda í litlu stofunni
eða eldhúsinu í Fögruhlíð.
Óljósa minningu á ég úr bernsku
um Siggu í Fögruhlíð þegar hún
vann hjá foreldrum mínum á Breiða-
bólstað. En staðfestingu þess á ég á
ljósmynd þar sem hún, um tvítugs-
aldur, hampar mér eins til tveggja
ára gömlum á hægri handlegg sér,
hlýleg á svipinn. Mér hefur alla tíð
síðan fundist ég kenna þessarar
hlýju frá heiðurskonunni Sigurlaugu
í Fögruhlíð.
Síðustu ár sinnar löngu ævi var
hún á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli á
Hvolsvelli og naut þar alúðar og um-
hyggju ættmenna, starfsfólks og
sambýlinga.
Á kveðjustund votta ég hinni látnu
virðingu og þakklæti fyrir mína
hönd, konu minnar og barna – og bið
góðan Guð að styrkja börn hennar
og ástvini alla í söknuði þeirra.
Blessuð sé minning góðrar konu
sem gengin er.
Sváfnir Sveinbjarnarson.