Morgunblaðið - 10.07.2010, Síða 35
Menning 35FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010
Sverrir Kristinsson,
framkvæmdastjóri,
lögg. fasteignasali
Guðmundur
Sigurjónsson,
lögfræðingur,
lögg. fasteignasali
Þorleifur St.
Guðmundsson,
lögg. fasteignasali
Kjartan Hallgeirsson,
lögg. fasteignasali
Geir Sigurðsson,
lögg. fasteignasali
Hilmar Þór
Hafsteinsson,
lögg. leigumiðlari,
lögg. fasteignasali
Magnús Geir
Pálsson,
sölumaður
Þórarinn M.
Friðgeirsson,
lögg. fasteignasali
Jóhanna
Valdimarsdóttir,
gjaldkeri
Elín Þorleifsdóttir,
ritari
Reykjavík
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k w w w. e i g n a m i d l u n . i s
HÚSNÆÐI ÓSKAST
Litlikriki - Flott hús
Glæsilegt 252,2 fm einbýli á mjög góðum stað
og er með ca 45 fm bílskúr. Fullbúið hús að
innan sem utan á mjög vandaðan hátt en lóð á
eftir að klára. Vandaðar innréttingar og einstak-
lega falleg lýsing sérhönnuð af Lúmex er í öllu
húsinu. Parket og flísar eru á gólfum. Tvö bað-
herbergi þar af annað sér innaf hjónaherb. Stór
timburverönd í suður. V. 55,0 m. 5826
Grænlandsleið 25-50 fm sérverönd
Sérlega falleg 3ja herbergja 117, 4 fm neðri sér-
hæð, í tvíbýlishúsi, með ca 50 fm afgirtri sólríkri
timburverönd og miklu útsýni. Sérinngangur.
Íbúðin skiptist í forstofu, þvottaher-
bergi/geymslu, hol, stofu/borðstofu, eldhús og
tvö rúmgóð svefnherbergi. V. 26,9 m. 5719
Kirkjusandur - stór og rúmgóð
Vönduð og vel skipulögð 156,5 fm íbúð á 4.
hæð í þessu vinsæla fjölbýli ásamt 8,2 fm
geymslu og stæði í bílakj. Húsvörður sér um
daglegan rekstur húsa nr. 1-5 og er húsvarðar-
íbúð í eigu húsfélags ásamt öðrum rýmum sem
leigð eru út ásamt sameiginlegri heilsuræktar-
aðstöðu. Saml. þvottahús fyrir þessar íbúðir á
millipalli. V. 49,8 m. 5804
Bárugrandi -með stæði í bílageymslu
Falleg 3ja herbergja 87 fm íbúð á 3.hæð (efstu)
ásamt bílastæði í bílgeymslu. Íbúðin skiptist í
forstofugang, baðherbergi, tvö rúmgóð her-
bergi, stofu, eldhús og borðkrók.
Parket. Stórar sólarsvalir. Fallegt hús. V. 22,5
m. 5861
Einbýlis- eða raðhús í Fossvogi
Höfum kaupanda að einbýlis- eða raðhúsi í Fossvogi. Góðar greiðslur í
boði. Allar nánari uppl. veitir Kjartan Hallgeirsson í síma 824 9093.
Einbýlishús í Smáíbúðahverfi eða Gerðunum óskast.
Óskum eftir góðu einbýlishúsi á ofangreindum svæðum. Æskileg stærð
250-300 fm, a.m.k. 5 herbergi og stofur.
Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson í síma 861 8514.
Einbýlishús í Þingholtunum óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 300-400 fm einbýli í Þingholtunum. Verð mætti vera á bilinu
80-150 milljónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Einbýlishús í Vesturborginni óskast - staðgreiðsla
Óskum eftir 250-350 fm einbýli í Vesturborginni. Verð mætti vera á bil-
inu 90-150 milljónir. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson.
Sumarbústaður við Þingvallavatn óskast
Óskum eftir sumarbústað við Þingvallavatn (við vatnið). Bústaðurinn má
kosta á bilinu 30-70 milljónir. Staðgreiðsla í boði. Allar nánari upplýsing-
ar veitir Sverrir Kristinsson.
Einstaklega vandað og glæsilegt 306 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Húsið er innst í
botnlangagötu. Ekkert var til sparað í innréttingar og tæki. Mikið útsýni er frá báðum hæð-
um til vesturs yfir borgina. 2,8 metra lofthæð er á neðri hæð og 3,3 metrar á efri hæð. Eign
í algjörum sérflokki. V. 146,0 m. 5832
GNITAKÓR - EINBÝLI Í SÉRFLOKKI
Glæsileg íbúð á tveimur hæðum með sérinngang og stæði í lokaðri bílageymslu. Úr íbúð-
inni er einstaklega fallegt útsýni til vesturs út á sjó og til austurs yfir Elliðavatn. Mikið er lagt
í innréttingar og tæki. Einstaklega vönduð og góð sérhæð sem vert er að skoða
V. 45,5 m. 5802
OPIÐ HÚS (MÁNUDAG) FRÁ KL. 17:00 - 18:00
KLETTAKÓR 1B - GLÆSILEG SÉRHÆÐ
Mjög góð 84 fm neðri sérhæð
við Dragaveg. Íbúðin er mjög vel
skipulögð með allt á einni hæð.
Gengið er beint úr stofu út á fal-
legan skjólgarð. Íbúðin er tölu-
vert endurnýjuð. Um er að ræða
einstaklega vel skipulagða á
góðum stað í Reykjavík. V. 19,9
m. 5864
OPIÐ HÚS MÁNUDAG
FRÁ KL. 17-18
DRAGAVEGUR 5 - FALLEG SÉRHÆÐ
Nýkomið í sölu fallegt 59,1 fm sumarhús í Landi Nesja við Þingvallavatn. Húsið skiptist í
forstofu, baðherbergi, þrjú herbergi, svefnloft, stofur og eldhús. Verandir, heitur nuddpottur
og glæsilegt útsýni. Eignarland. V. 35,0 m. 5865
SUMARHÚS VIÐ ÞINGVALLAVATN
Fallegt og mikið endurnýjað rað-
hús sem skiptist í kjallara, hæð
og efri hæð. 1.hæð: Forstofa,
gangur, eldhús, borðstofa og
stofa. 2.hæð: 3 herbergi og
bað. Kjallari: sjónvarpsherbergi
og þvottahús. Afgirt timburver-
önd og garður eru til suðurs. V.
27,5 m. 5206
OPIÐ HÚS MÁNUDAG
FRÁ KL. 17-18.
ÁSGARÐUR 41 - ENDURNÝJAÐ RAÐHÚS
Falleg 126,4 fm neðri sérhæð í
nýlegu húsi efst í Ásahverfinu í
Garðabæ ásamt stæði í
bílageymslu. Sér lóð og
sérinngangur. Íbúðin er til
afhendingar við kaupsamning. V.
32,0 m. 5845
OPIÐ HÚS MÁNUDAG
FRÁ KL. 17-18.
BJARKARÁS 19 - NEÐRI SÉRHÆÐ
154,1 fm 7 herbergja þakíbúð á
tveimur efstu hæðum í góðu
lyftuhúsi ásamt 25,6 fm bílskúr,
samtals 179,7 fm. Nýlega er búið
að klæða austurgafl og skipta
um glugga og gler á austur, suð-
ur og vesturhlið. V. 32,0 m.
5844
KRUMMAHÓLAR - PENTHOUSE
OPIÐ HÚ
S
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS
OPIÐ HÚS
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Karen Bit Vejle, einn kunnasti klippilista-
maður Norðurlanda, er komin hingað til
lands að hengja upp sýningu á klippiverk-
um sínum í Norræna húsinu og ber hún
yfirskriftina Málað með skærum.
Vejle hefur stundað klippilist frá 16 ára
aldri en listina sá hún fyrst í Tívolí í Kaup-
mannahöfn og heillaðist af henni, hefur
vart sleppt skærunum frá þeirri stund.
Hún stundaði þessa list í ein 35 ár án þess
að sýna afraksturinn, en breyting varð á
því þegar samstarfsmaður hennar kom
auga á verkin og hvatti hana til að sýna
þau. Hún setti þá upp sýninguna Málað
með skærum í Noregi og er sú sýning nú
komin í Norræna húsið og verður opnuð í
dag kl. 16. Vejle mun einnig leiðbeina
gestum í klippilist. Verk Vejle eru býsna
stór, það stærsta fimm metrar á breidd.
Listin að klippa pappír
Blaðamaður sló á þráðinn til Vejle í gær
og spurði hana fyrst út í heitið á listgrein-
inni, psaligrafi. „Þetta er latína og þýðir
listin að klippa út í pappír,“ svaraði Vejle.
-Hversu gömul er þessi listgrein?
„Kínverjar byrjuðu að klippa út áður en
þeir fóru að skrifa þannig að þetta er mjög
gömul hefð. Á Norðurlöndunum er þetta
um 250 ára gömul grein.“
-Hvernig pappír notarðu í verkin?
„Þegar þú kaupir þér djúpsteiktan kjúk-
ling þá er pappír innan í ílátunum sem þú
færð kjúklinginn í, hvítur pappír. Það er
pappírinn sem ég klippi út í,“ segir Vejle og
hlær. Hún klippi ýmist í hvítan eða svart-
an pappír og stundum setji hún gegnsæj-
an pappír bakvið verkin. Lýsing skiptir
miklu máli þegar verkin eru sýnd því
skugganum af þeim er varpað á veggina
og eru þau því hengd upp örlítið frá
veggjunum. „Þetta er eins og að koma inn
í skóg, pappírsverk hangandi niður úr
loftinu alls staðar,“ segir Vejle. Þá hljómi
undir sýningunni verk norska tónlistar-
mannsins Jon Pål Indeberg, verk sem
hann samdi sérstakleg fyrir sýninguna,
flutt með saxófóni og skærum. „Tónlist
veitir mér mikinn innblástur. Ég hef dag-
inn með rokki og í eftirmiðdaginn er það
klassík og á kvöldin djass. Sum verkanna
eru óhlutbundin en önnur alls ekki. Ég er
hrifin af smáatriðum og skrauti. Þú verð-
ur bara að koma og sjá þetta,“ segir Vejle
og hlær.
Vejle greindist með króníska síþreytu
fyrir fjórum árum og segir hún klippi-
listina hafa reynst sér vel í mestu veikind-
unum. „Ég gat ekkert gert nema klippt,“
segir Vejle. Listin hafi vissulega lækning-
armátt.
Heillaðist af klippilist í
Tívolí í Kaupmannahöfn
Danska klippilistakonan Karen Bit Vejle sýnir 75 klippiverk í
Norræna húsinu Vejle sýndi ekki klippiverk sín í 35 ár
Klippt Vejle við vandasama listsköpun.