Morgunblaðið - 10.07.2010, Page 36
36 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2010
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar.
☎ 564 1500
30 ára
EIGNABORG
Fasteignasala
www.eignaborg.is
Vesturbrún 26 - Reykjavík
Opið hús mánudag frá kl 17.00-18.00
Húsið er alls 450 m2 sem
skiptist þannig: Jarðhæð
er 180,9 m2, miðhæð er
148,1 m2 og efsta hæð er
76,5 m2, að auki eru 18
m2 geymslur innan húss
og bílskúr er 26,5 m2. Á
jarðhæð eru stofur, tvö
herbergi, parket á her-
bergjum, teppi á stofu og
gangi, flísalagt baðher-
bergi. Á miðhæð er eldhús, herbergi, gestasnyrting, forstofu hefur nýlega verið endurnýjuð, stórt flísalagt baðher-
bergi, tvær stórar stofur, arinn er í stofu, herbergi á gangi innaf eldhúsi. Á efstu hæð er flísalagt baðherbergi og
stórt parketlagt herbergi og sólstofa og útgengi á svalir, mikið útsýni. Um 100 m2 trépallur er við húsið.
Út er komin göngubókin In the
Footsteps of a Storyteller: A
Literary Walk with Þórbergur
Þórðarson. Mál og menning
gefur út bókina en í henni er
lesendum boðið að feta í fót-
spor Þórbergs Þórðarsonar frá
Hala í Suðursveit og kynnast
bernskuslóðum hans. Bókin er
á ensku og þýsku og rúmar 60
síður að lengd. Í tilkynningu
segir um bókina að í henni
megi finna brot úr bók Þórbergs, Í Suðursveit,
þar sem hann lýsir náttúrufari og umhverfi æsku-
slóðanna sem á þeim tíma voru ein afskekktasta
byggð á Íslandi. Þá prýða bókina ljósmyndir af
helstu kennileitum svæðisins.
Bókmenntir
Fetað í fótspor Þór-
bergs Þórðarsonar
Þórbergur
Þórðarson
Heimilisiðnaðarfélag Íslands
opnaði í gær sýningu á íslensk-
um þjóðbúningum í húsnæði
félagsins að Nethyl 2e. Á sýn-
ingunni eru þjóðbúningar
kvenna, telpna, drengja og
karla. Um sýninguna segir að
ekki gefist mörg tækifæri til að
skoða íslenska þjóðbúninga og
því séu allir áhugasamir hvattir
til að líta inn. Heimilisiðnaðar-
félag Íslands var stofnað 12.
júlí 1913 en það vinnur að því að viðhalda þjóð-
legum, íslenskum heimilisiðnaði, auka hann og
efla og stuðla að vöndun hans og fegurð. Sýningin
stendur til og með 30. júlí og verður opin á virkum
dögum frá kl. 13 til 18. Aðgangur er ókeypis.
Menning
Íslenskir þjóðbún-
ingar til sýnis
Konur í íslenskum
þjóðbúningum.
Þýski konsertorganistinn Ul-
rike Northoff kemur fram á
öðrum tónleikum tónleikarað-
arinnar Sumartónleikar í Ak-
ureyrarkirkju á morgun kl. 17.
Northoff nam kirkjutónlist í
kirkjutónlistarháskólanum í
Esslingen, í nágrenni Stutt-
gart, en að námi loknu sér-
hæfði hún sig í orgelleik við
kirkjutónlistarháskólann í
Heidelberg. Hún hefur bæði leikið á gömul og
sögufræg orgel sem og nútímahljóðfæri á helstu
tónleikastöðum Evrópu. Á efnisskránni á tónleik-
unum í Akureyrarkirkju eru verk eftir Buxte-
hude, Bach, Merkel, Gigout og Dubois. Aðgangur
að tónleikunum er ókeypis.
Tónleikar
Northoff leikur í
Akureyrarkirkju
Ulrike Northoff
Myndlistarmaðurinn Arnfinnur
Amazeen opnar í dag kl. 18 sýningu
í galleríinu Kling & Bang sem ber
yfirskriftina Myrkrið borið inn (á
ný). Sýningin er hluti af listviðburð-
inum Villa Reykjavík sem hófst í
gær.
Arnfinnur segir verk sín ein-
hvers konar útúrsnúning á fundnu
efni, að því er fram kemur í tilkynn-
ingu um sýninguna. „Stundum hef-
ur verið sagt um þessa gerð mynd-
listar að þar sé listamaðurinn í
hlutverki sjónræns plötusnúðar
sem tekur inn efni alls staðar að og
blandar á þann hátt sem þykir hæfa
hverju sinni. Þá skiptir samheng-
isleysið ekki síður máli en það sam-
hengi sem kann að leynast í blönd-
uninni, eins og hugmyndafræðing-
ar afbyggingarinnar sýndu fram á
á sjöunda áratugnum. Vikið er frá
hugmyndinni um afmarkað inntak
og heild með áherslu á gildi fjöl-
breyttrar túlkunar,“ segir m.a. um
sýninguna. Arnfinnur leiki sér
gjarnan í þessum anda að samsetn-
ingu myndar, grafíkur og texta en
iðulega séu grunnþættir verkanna
úr gjörólíkum áttum og gildi hvers
um sig brenglist í ferlinu án þess þó
að niðurstaðan verði kaótísk. Verk
Arnfinns virki oft gildishlaðin og
taki jafnvel á sig áróðursblæ þó
húmorinn sé sjaldan langt undan.
Frekari upplýsingar um sýn-
inguna og listamanninn má finna á
vefsíðu Kling & Bang: this.is/
klingogbang.
Peysa Arnfinnur í peysu sem hann
hannaði. Á henni stendur: Hið hefð-
bundna er hin nýja framúrstefna.
Samhengis-
leysið skipt-
ir máli
Myrkrið borið inn (á
ný) í Kling & Bang
Ingunn Eyþórsdóttir
ingunn@mbl.is
Breska tónlistarundrið Gillian Weir
mun heiðra íslenska orgelunnendur
með tvennum tónleikum í Hallgríms-
kirkju um helgina. Þetta er í þriðja
sinn sem hún leikur á Alþjóðlega
orgelsumrinu en hátíðin hefur verið
haldin árlega allt frá því að Klais-
orgel kirkjunnar var vígt árið 1992.
„Núorðið er ekki neitt sem flokk-
ast undir venjulegan dag í mínu lífi,
ég ferðast yfir 300 daga á ári. Þegar
ég er heima reyni ég að nýta tímann
og setja í þvottavél,“ segir Gillian. Á
tónleikaferðalögum eyðir hún drjúg-
um tíma í að komast í kynni við nýtt
hljóðfæri. „Vanalega æfi ég minnst
átta klukkutíma á nýju orgeli til þess
að finna rétta litrófið og viðeigandi
hljóm. Svo hef ég ætíð haft það fyrir
sið að taka smáblund fyrir tónleika.“
Weir segir starfið hafa tekið mikl-
um breytingum í gegnum árin. „Áð-
ur fyrr störfuðu orgelleikarar annað-
hvort í kirkju eða sem kennarar. Í
dag eru orgelleikararnir orðnir fleiri
og einleikstónleikar eru orðnir al-
gengari.“
Lék fyrst á orgel 16 ára gömul
Frá unga aldri hefur Gillian haft
ástríðu fyrir músík. „Ég man eftir
mér 5-6 ára dansandi í eldhúsinu. Í
minningunni er hljómurinn úr út-
varpinu gæddur miklum töfrum.
Áhugi minn á tónlist varð til þess að
móðir mín festi kaup á píanói.“
Hún komst fyrst í kynni við org-
elið 16 ára gömul þegar skyndilega
vantaði kirkjuorganista í afleysingar
í heimabæ hennar. Þar með var
grunnurinn að ævistarfinu lagður.
Eftir að hafa fengið skólastyrk sótti
hún menntun sína í hinn virta Royal
School of Music í London sem hefur í
gegnum tíðina útskrifað stórsnill-
inga á borð við Clifford Curzon og
Elton John. Þar var hún í læri hjá
Cyril Smith og Ralph Downes. Á
námsárunum þreytti hún frumraun
sína í Royal Albert Hall, yngst allra
orgelleikara sem þar hafa komið
fram.
Góður andi í Hallgrímskirkju
„Ég var ein af þeim fyrstu sem
vígðu þetta orgel á sínum tíma og ég
hef mikla unun af því að leika á það.
Andinn í Hallgrímskirkju er góður
og byggingin er guðdómleg,“ segir
þessi einstaka kona sem nýtur virð-
ingar jafnt áheyrenda sem gagnrýn-
enda um heim allan fyrir vandað
verkefnaval, innsæi í túlkun og ótrú-
lega snilli. Frægðarsól hennar hefur
verið ungum orgelleikurum mikil
hvatning. Fyrri tónleikar Gillian
Weir hefjast kl. 12 í dag og verða
m.a. leikin verk eftir landa hennar
Stanford, Howells og Parry. Kunn-
ugleg nöfn tónskálda á borð við
Händel, Messiaen, Liszt og Vierne
eru á dagskrá morgundagsins og
hefjast tónleikarnir kl. 17.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Ferðalög Lafði Gillian Weir ferðast yfir 300 daga á ári.
Einn færasti
orgelleikarin
Lafði Gillian Weir í sinni þriðju heim-
sókn hér á landi Klais-orgelið í Hall-
grímskirkju hefur mikið aðdráttarafl
Sumarsýningar Gerðarsafns í Kópa-
vogi standa nú yfir og á morgun
verður boðið upp á leiðsögn um þær
kl. 15. Á neðri hæð safnsins er sýn-
ing sem ber yfirskriftina Gerður og
Gurdjieff en á hana voru valin verk
Gerðar Helgadóttir sem þykja sýna
tengsl hennar við armenska dul-
spekinginn G.I. Gurdjieff. Þá er
einnig til sýnis verk Jóhannesar
Kjarvals, Lífshlaupið, sem er fyrsta
heildstæða rýmisverkið í íslenskri
myndlistarsögu en það málaði Kjar-
val beint á veggi vinnustofu sinnar. Í
Austursal gefur að líta nokkur úr-
valsverk eftir þjóðþekkta listmálara.
Sýningarnar standa til 29. ágúst.
Gerður, Kjarval
og úrvalsverk
Leiðsögn um sýningar Gerðarsafns
Listakona Gerður Helgadóttir, sú
sem safnið er nefnt eftir.
Hún vildi að ég læsi
hann aftur og aftur.
Svo benti hún á Möllu Maga-
pínu og sagði: „Ég er með
hana“ 37
»
Gillian Weir á að baki stórbrot-
inn feril sem konsertorganisti
og hefur verið á meðal fremstu
tónlistarmanna heims síðan
hún sigraði í alþjóðlegu orgel-
keppninni í St. Albans árið
1964. Síðan þá hefur hún hlotið
ótal viðurkenningar og var hún
m.a. öðluð af Englandsdrottn-
ingu árið 1996.
Ferillinn
MIKIL VELGENGNI