Fréttablaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 2
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR2
Við heyrum stundum
hringingar en það er
aldrei hægt að svara.
FRIÐBJÖRN H. GUÐMUNDSSON
BÓNDI Á HAUKSSTÖÐUM
Guðbrandur Óli Albertsson,
íbúi á Finnbogastöðum á
Stöndum, segir það ekki hrjá
sig alvarlega að ekkert farsíma-
samband náist inni á heimili
sínu.
„Ef fólk þarf eitthvað
virkilega að ná okkur hringir
það bara í heimasímann,“ segir
hann. Hægt er að ná örlitlu
sambandi standi maður úti
við einn glugga og segir Guð-
brandur það geta verið heldur
hvimleitt að þurfa að hlaupa
um húsið til að reyna
að senda skilaboð.
Netsambandið sé að
hans sögn sömuleiðis
afar lélegt. „Það er
ægilegur dagamunur á
því,“ segir hann en bætir
við að það sé þó mun
betra eftir að 3G sendir var
settur upp á svæðinu fyrir um
tveimur árum. „Áður var þetta
bara flöskuskeytanet. Þetta er
þó töluvert skárra en það.“
Fólk hringir þá bara í
heimasímann „Við heyrum stundum hringingar en það er aldrei hægt
að svara,“ segir Friðbjörn H. Guðmundsson, bóndi á
Hauksstöðum í Vopnafirði. „Okkur var bent á að
við ættum að fá okkur sterkari síma en það virkar ekki
heldur.“
Farsímasamband næst á stöku stað utanhúss við
bæinn, standi maður á vissum punktum. „Þetta er okkur
til vandræða; auðvitað væri mun betra að geta notað
gemsann. Það fólk sem hringir í okkur reiknar með því
að hér sé samband,“ segir Friðbjörn. „Það hefur verið
rætt um að fá fleiri senda hér í kring, en það hefur enn
ekki gerst.“
Skapar vandræði fyrir íbúa
„Þetta hrjáir mig ekki neitt og að sumu
leyti er ég bara ánægður með þetta,“
segir Andrés Hjaltason, bóndi á bænum
Njarðvík á Austurlandi. „Maður hefur
helst áhyggjur af þessu öryggisins vegna,
því það næst ekkert samband hér í
Njarðvíkinni, á veginum eða í skriðunum.
Það er eini gallinn.“
Andrés hefur ekki reynt að fá fleiri
möstur upp á svæðinu og segist sjálfur
ekki spá mikið í því, að undanskildum
öryggismálunum.
„Það kemur oft og tíðum fyrir að bílar
lenda hérna út af í hálkunni. Þeir geta
þá ekki komið skilaboðum áleiðis,“ segir
hann. „En aftur á móti þýðir þetta líka bara
ódýrari símreikningar.“
Vont öryggisins vegna en þó
ódýrara
TÆKNI Ekkert GSM-samband er
innanhúss á 64 sveitabæjum hér
á landi, eða um 1,3 prósentum af
þeim 5.039 bæjum sem eru á land-
inu öllu. Á sumum þeirra er þó
hægt að ná einhverju sambandi
utanhúss í námunda við bæinn.
Þetta kemur fram í svari innan-
ríkisráðherra við fyrirspurn Sig-
mundar Ernis Rúnarssonar, þing-
manns Samfylkingar.
Á langflestum sveitabæjum, eða
93,4 prósentum, er gott GSM-sam-
band innanhúss. Á 5,3 prósentum
bæja er tæpt samband.
Í svari ráðherra kemur einnig
fram að á um 85 prósentum af
landinu er gott GSM-samband,
en á um 15 prósentum af landinu
næst lélegt eða ekkert samband.
Þar eru Strandirnar á Vestfjörðum
og einstaka staðir á hálendinu þau
svæði sem ekkert eða lélegt sam-
band er á.
Áætlað er að á 99,27 prósentum
af þjóðvegi 1 sé gott GSM-sam-
band inni í bíl. Á 0,69 prósentum
af veginum er samband tæpt inni í
bíl og á 0,04 prósentum af þjóðvegi
1 næst ekkert samband, eða á um
500 m kafla samtals.
Sigmundur spurði einnig hvar
á landinu væru stærstu svæðin
nálægt byggð án GSM-sambands.
Í svarinu kemur fram að lélegt eða
ekkert samband sé á 11,8 prósent-
um af öllu landi sem er neðan við
400 m yfir sjávarmáli, þar með eru
taldir eyðisandar, afskekktir dalir
og hásléttur. sunna@frettabladid.is
Ekkert símsamband
á 64 sveitabæjum
Ekkert GSM-samband er innanhúss á 64 sveitabæjum hér á landi. Bæirnir eru
flestir við sjávarsíðuna og dreifðir um land allt. Ekkert samband næst á um það
bil fimmtán prósent landsins, er fram kemur í svari innanríkisráðherra.
Finnbogastaðir
Hauksstaðir
Njarðvík
VINNUMARKAÐUR Vinnueftirlitið
hefur vísað til lögreglu málum
fjögurra fiskvinnslufyrirtækja,
meðal annars vegna brota á reglu-
gerð um vinnu barna og unglinga.
Brotin áttu sér stað í fyrrasum-
ar, en þrjú fyrirtækjanna eru á
landsbyggðinni og eitt á höfuðborg-
arsvæðinu. Hin meintu brot felast
meðal annars í því að fyrirtækin
hafi „skipulagt eða látið það við-
gangast“ að börn undir 18 ára aldri
hafi unnið næturvinnu, unnið leng-
ur en þeim var heimilt og að þau
hafi ekki notið lögbundins hvíldar-
tíma, segir á vef stofnunarinnar.
Samkvæmt nánari upplýsingum
frá Vinnueftirlitinu voru ungmenn-
in allt niður í 14 ára.
Að mati Vinnueftirlitsins er um
„umfangsmikil brot“ á lögum og
reglum að ræða.
Í þremur fyrirtækjanna komu
málin upp á yfirborðið í tengslum
við vinnuslys hjá börnum og ung-
lingum sem unnu þar, en í fjórða
tilvikinu var grunur um brot og
því var kallað eftir nánari upplýs-
ingum.
Við brotum sem þessum liggja
sektir sem renna í ríkissjóð.
- þj
Vinnueftirlitið kærir fiskvinnslufyrirtæki fyrir að láta ungmenni vinna of mikið:
Þau yngstu einungis fjórtán ára
FISKVINNSLA Vinnueftirlitið hefur vísað
til lögreglu fjórum fyrirtækjum sem
létu ungmenni vinna of mikið. Myndin
tengist fréttinni ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FINNLAND Tollverðir í Finnlandi
fundu 69 Patriot-flugskeyti og
150 tonn af sprengiefni í flutn-
ingaskipinu M/S Thor Liberty
sem kom til hafnarborgarinnar
Kotka í síðustu viku.
Skipið, sem siglir undir fána
eyjunnar Manar, var stöðvað
vegna þess að sprengiefnið var
ekki í gámum. Við frekari leit í
skipinu fundust flugskeytin, sem
einnig innihalda sprengiefni.
Skipið hafði ekki leyfi til þess
að flytja hergögn um Finnland.
Farmurinn var settur um borð í
Þýskalandi og til stóð að sækja
timbur til Kotka. Síðan átti að
sigla til Suður-Kóreu og Shanghai
í Kína. Áhöfnin er frá Úkraínu.
- ibs
Vopnafundur í finnskri höfn:
69 flugskeyti í
flutningaskipi
Skúli, varstu ekki á léttu
nótunum?
„Jújú, þær voru svo léttar að þær
flugu af nótnaborðinu.“
Nótur þeyttust af píanóinu í Vídalíns-
kirkju á dögunum þegar Skúli Z. Getsson,
meðlimur hljómsveitarinnar Diktu, spilaði
lagið Hátíð í bæ á tónleikum.
SAMGÖNGUR Talsverðar seinkanir urðu í gær í inn-
anlandsflugi. Að sögn Árna Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands, var erfiðum
brautarskilyrðum í Reykjavík um að kenna.
„Í þessari hláku er erfitt að halda bremsuskil-
yrðum þannig að þau séu viðunandi. Við þurftum
meðal annars að fella niður flug á Ísafjörð,“ segir
Árni og útskýrir að á meðan unnið hafi verið að
því að koma brautarskilyrðum í lag í Reykjavík
hafi dagsbirtan fjarað út á Ísafirði þannig að
birtuskilyrðin þar hafi gert útslagið.
Reynt var fram á kvöld í gær að vinda ofan
af miklum töfum á komum og brottförum milli
Reykjavíkur annars vegar og Akureyrar og Egils-
staða hins vegar. Seinkanir námu þá í sumum til-
vikum þremur klukkustundum.
Árni segir Flugfélag Íslands munu halda far-
þegum sínum upplýstum með smáskilaboðum ef
eitthvað beri frekar út af og hvetur þá til að fylgj-
ast vel með öllum breytingum.
Fljúga á samkvæmt áætlun fram á hádegisbil
á aðfangadag. Flug liggur síðan niðri á jóladag
en Árni segir það munuhefjast að nýju á annan í
jólum. Aðspurður segir hann bókanir nú á svipuðu
róli og í fyrra, þó ívið fleiri en þá.
- gar
Hlákan í Reykjavík setti talsvert strik í reikninginn í innanlandsfluginu í gær:
Umhleypingar tefja farþegaflug
REYKJAVÍKURFLUGÖLLUR Vél frá Akureyri lýsti upp snjóskafla
við Reykjavíkurflugvöll þegar hún lenti langt á eftir áætlun á
níunda tímanum gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
VEÐUR Útlit er fyrir fremur leiðin-
legt veður á aðfangadag sam-
kvæmt spá Veðurstofu Íslands.
Þann dag er gert ráð fyrir suð-
vestan 15 til 20 metrum á sekúndu
og slyddu eða rigningu en norð-
vestan 13 til 18 og snjókomu norð-
vestan til. Síðdegis á aðfangadag
hægir þó heldur á vindi og er spáð
éljum suðvestan lands og snjó-
komu norðanlands um kvöldið
með vægu frosti.
Á morgun, Þorláksmessu, er
spáð slyddu eða snjókomu syðst
seint um kvöldið og frosti. - gar
Hryssingslegt veður um jólin:
Vindasamt á
aðfangadag
DANMÖRK Tæplega fimmtug kona
lést í Danmörku í síðasta mánuði
af völdum illvígs krabbameins
eftir að hafa gengist undir lungna-
ígræðslu á Ríkis spítalanum.
Stuttu síðar lést annar sjúklingur
sem fengið hafði lifur frá sama
líffæragjafa. Þriðji sjúklingur-
inn fékk nýra sem krabbamein
hefur greinst í. Alls fengu fimm
sjúklingar líffæri frá líffæra-
gjafanum, sem var með alvarlegt
og sjaldgæft krabbamein.
Líffæragjafinn hafði fengið
heilablæðingu og var úrskurðaður
heiladauður. Engin merki voru um
að hann væri með nokkurn sjúk-
dóm, samkvæmt upplýsingum frá
Rigshospitalet. - ibs
Létust eftir ígræðslu:
Krabbamein í
gjafalíffærum
Bílvelta við Fljótshlíðarveg
Ökumaður missti stjórn á jeppa með
þeim afleiðingum að hann hafnaði
úti í skurði við Fljótshlíðarveg í gær.
Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum,
slapp ómeiddur.
LÖGREGLUFRÉTTIR
NOREGUR Liv Signe Navarsete,
ráðherra sveitarstjórnarmála í
Noregi, vill að stjórnmálaflokkar
ræði möguleikann á að setja fram
þá kröfu að fjöldi kvenna og karla
á framboðslistum fyrir sveitar-
stjórnarkosningar verði jafn.
Aðeins 38 prósent sveitarstjórnar-
fulltrúa í Noregi eru konur.
Sylvi Listhaug, fyrrverandi
borgarfulltrúi í Ósló, segir þving-
un ekki réttu leiðina. Hún segir
nauðsynlegt að stjórnmálin verði
þannig að konur vilji halda áfram
eftir að kjörtímabili ljúki. Algengt
sé að konur hætti eftir fyrsta kjör-
tímabil. - ibs
Norskur ráðherra:
Vill þvinga kon-
ur í pólitíkina
VÍSINDI Vísindamenn í Bandaríkj-
unum hafa fundið tvær reiki-
stjörnur utan okkar sólkerfis sem
eru svipaðar jörðinni að stærð.
Þetta er í fyrsta sinn sem plánetur
af slíkri stærð finnast og gefa þær
von um að líf sé að finna á fjar-
lægum hnöttum.
Keplerssjónauki NASA kom
auga á pláneturnar tvær, sem eru
í um 1.000 ljósára fjarlægð og
virðast vera úr bergi, en ekki gas-
tegundum eða vökva. Þær eru of
heitar til að líf geti þrifist þar, eða
um 400 gráður og 750 gráður, en
gefa hins vegar góðar vonir um
áframhaldandi uppgötvanir. - þj
Tvær reikistjörnur fundnar:
Gefa von um líf
úti í geimnum
SVIPAÐAR AÐ STÆRÐ Vísindamenn
hafa uppgötvað tvær reikistjörnur að
svipaðri stærð og jörðin. Þær sjást hér
í samanburði við jörðina og Venus.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS