Fréttablaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 8
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR8
Verslunin Arna KoKo Stíll Belladonna Skóbúð Selfoss – Austurvegi 13–15
Eyjavík Mössubúð Skóbúð Húsavíkur Ozone – Kirkjubraut 12, Akranesi
LEÐURSKÓR
1. Hvað seldi Mugison mörg eintök
af plötu sinni Hagléli á einni viku?
2. Hvar er rannsóknarstofan sem
þróaði stökkbreytta fuglaflensu?
3. Hvað þarf margar nýjar
leiguíbúðir í landinu til að anna
eftirspurn?
SVÖR
1. 3.500. 2. Í Hollandi. 3. 16 þúsund.
HÚSNÆÐISMÁL Leiga þarf að vera
30% hærri en þátttakendur í
leiguíbúðakönnun Capacent
gerðu ráð fyrir að greiða til
þess að fjárfestar í leigufélagi
sem myndað yrði utan um bygg-
ingu nýrra leiguíbúða myndu fá
sæmilega ávöxtun. Er þar miðað
við að fjárfestar sem eignast í
félaginu myndu ekki hagnast
á því að virði eignanna myndi
hækka á næstu fimm árum. Þetta
er meðal þess sem kemur fram
í skýrslu sem Capacent vann
fyrir Reykjavíkurborg og ber
nafnið „Staða, horfur og mögu-
leikar á húsnæðisleigumarkaði
árið 2011“. Skýrslan var kynnt í
borgarráði í síðustu viku.
Meginmarkmið skýrslunnar
var að „sýna hvernig Reykja-
víkurborg getur átt aðkomu að
leigufélagi/félögum“. Skoðuð
var aðkoma borgarinnar sem lán-
veitanda, eiganda og hugsanlega
rekstraraðila og hver arðsemi
verkefnisins fyrir Reykjavíkur-
borg gæti verið.
Capacent framkvæmdi könn-
un á ýmsum þáttum sem tengj-
ast þörf fyrir íbúðarhúsnæði
við gerð skýrslunnar. Úrtakið í
henni var 1.396, fjöldi svarenda
811 og svarhlutfall því 58,1%. Úr-
takið var vegið til að endurspegla
betur þýðið, sem eru Íslendingar
18 ára og eldri.
Í skýrslu Capacent kemur
fram að þeir sem telja líklegt
eða öruggt að þeir leigi næstu
íbúð sem þeir búa í geri ráð
fyrir að greiða um 1.300 krónur
á fermetra í leigu. Samkvæmt
bygginga lykli Hannarrs, upp-
lýsingariti um byggingarmál, er
byggingarkostnaður á fermetra
hins vegar 247 þúsund krónur á
fermetra fyrir 3-4 hæða fjölbýli.
Kaupverð á fermetra síðan um
240 þúsund á fermetra í fjölbýli
á höfuðborgarsvæðinu. Því þurfi
kaupverð íbúða að hækka til að
jafnvægi náist við byggingar-
kostnað, nema að hann lækki á
móti.
Samkvæmt útreikningum
Capacent þarf „leiguverð að vera
um 1.695 krónur á fermetra til
þess að standa undir kaupverði
á 240.000 króna fermetra […].
Af þessu leiðir að ójafnvægi er á
húsnæðismarkaðinum. Markað-
urinn gerir ráð fyrir að þurfa að
greiða 1.300 kr/m² í húsaleigu á
mánuði. Um 1.695 kr/m² þarf til
að fjárfestir fái sæmilega ávöxt-
un“. Til lengri tíma litið má gera
ráð fyrr að kaupverð húsnæðis og
byggingarkostnaðar séu í sæmi-
legu jafnvægi.
Í skýrslunni segir að frá síð-
ustu aldamótum og fram til árs-
ins 2008 voru fullbyggðar íbúð-
ir talsvert umfram áætlaða
þörf. því megi gera „ráð fyrir að
nokkur forði íbúða sé til staðar
á markaðnum. Staðsetning þess-
ara íbúða er hins vegar ekki endi-
lega í samræmi við óskir markað-
arins. Samkvæmt áætlaðri þörf
fyrir nýbyggingar og ef miðað
er við óbreytt magn nýbygginga
verður skortur á íbúðum árið
2014“. thordur@frettabladid.is
Leiga þarf að hækka og
ójafnvægi ríkir á markaði
Leiga þarf að vera þriðjungi hærri em markaðurinn vill borga til að standa undir ávöxtun fjárfesta sem
myndu standa að leigufélagi. Kaupverð íbúða þarf líka að hækka til að jafnvægi náist við byggingarkostnað.
Fréttablaðið greindi frá því í gær að í skýrslu Capacent hafi komið fram að
leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu þarf að fjölga um tæplega níu þúsund
á næstu þremur árum til að mæta eftirspurn. Til lengri tíma þarf þeim að
fjölga um 13 þúsund á svæðinu og 16 þúsund á landinu öllu. Um 94%
fjölgunarinnar þurfa að verða í Reykjavík þar sem langflestir framtíðarleigj-
endur vilja búa. Um 70% fleiri Íslendingar vilja leigja sér íbúð en gera það í
dag.
Í atvinnustefnu Reykjavíkurborgar, sem lögð var fyrir borgarráð í lok
nóvember, er fjallað um húsnæðismál. Þar segir að Reykjavíkurborg eigi
að stuðla „að fjölgun leiguíbúða og búseturéttaríbúða, hvort sem er í eigu
húsnæðissamvinnufélaga, félagasamtaka og/eða einkaaðila, einkum á
miðlægum svæðum sem auðvelt er að þjóna með almenningssamgöngum.
Liður í framfylgd stefnunnar er að kortleggja möguleikana á því að Reykja-
víkurborg komi að uppbyggingu langtímaleigumarkaðar.“
16 þúsund leiguíbúðir vantar
REYKJAVÍK Í atvinnustefnu borgarinnar, sem lögð var fyrir borgarráð í lok nóvember, kemur fram að hún stefni „að fjölgun
leiguíbúða og búseturéttaríbúða“. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞÝSKALAND, AP Seðlabanki Evrópu-
sambandsins skrúfaði í gær frá
lánakrönum sínum og útvegaði 523
evrópskum bönkum lán upp á sam-
tals 489,2 milljarða evra, í von um
að geta með þessu liðkað verulega
fyrir viðskiptum á evrusvæðinu.
Þessi fjárhæð samsvarar 78.000
milljörðum króna.
Með þessu vonast bankinn til að
rífa efnahagslíf evruríkjanna upp
úr lamandi kreppunni, sem ann-
ars virðist ætla að stefna framtíð
myntbandalags Evrópusambands-
ins í voða.
Lánin eru á lágum vöxtum og
ekki þarf að endurgreiða þau fyrr
en í byrjun árs 2015. Búist er við
að bankinn bjóði sambærileg lán
til þriggja ára aftur áður en langt
um líður. Heildarfjárhæðin var þó
mun meiri en reiknað hafði verið
með, því talið var að seðlabankinn
hygðist leggja fram 300 milljarða
evra að þessu sinni.
Bankarnir geta nú notað þetta fé
til að lána áfram til framkvæmda
og viðskipta af ýmsu tagi og þann-
ig ýtt undir hagvöxt á evrusvæð-
inu, sem annars virðist stefna í að
minnsta kosti vægan samdrátt á
næstunni. - gb
Seðlabanki Evrópusambandsins dælir peningum í taugaveiklaða banka:
Á að vinna gegn kreppunni
MARIO DRAGHI Seðlabankastjóri
Evrópusambandsins sagður taka áhættu
með nýja útspilinu. NORDIC PHOTOS/AFP
SJÁVARÚTVEGUR Afli erlendra ríkja
við Ísland var tæplega 31 þúsund
tonn árið 2010 miðað við rúm ell-
efu þúsund tonn árið 2009. Fær-
eyingar stunduðu aðallega veiðar
hér við land á síðasta ári og mest
var veitt af loðnu eða tæp nítján
þúsund tonn, samkvæmt frétt frá
Hagstofu Íslands.
Heimsaflinn var tæpar 90
milljónir tonna árið 2009 og
dróst saman um 809 þúsund tonn
frá árinu 2008. Kyrrahafið gaf
mestan afla og stærsta einstaka
fisktegundin var Perú-ansjósa.
Kínverjar veiddu mest allra þjóða
árið 2009 en Íslendingar voru í
19. sæti heimslistans. - shá
Afli erlendra ríkja:
Veiða mest af
loðnu við landið
HOLLAND, AP Evrópudómstóllinn
hefur hafnað rökum bandarískra
og kanadískra flugfélaga, sem
kærðu evrópsk stjórnvöld fyrir
að leggja kolefnisgjald á flug til
Evrópu.
Flugfélögin töldu þetta vera
brot á alþjóðlegum samningum
um millilandaflug og jafnframt
brot gegn fullveldi ríkjanna.
Þau segjast ósátt við niðurstöð-
una og ætla ekki að láta staðar
numið með málið. Með þessu ein-
angri Evrópusambandið sig enn
frekar á alþjóðavettvangi. - gb
Bandarísk flugfélög tapa máli:
Evrópuríki
mega rukka
Á FLUGI Deilan snýst um kolefnisgjald á
flug til Evrópu. NORDICPHOTOS/AFP
AKUREYRI Umhverfisnefnd Eyja-
fjarðarsveitar hefur ákveðið að
leggja sérstakt gjald á búfjár-
eigendur í sveitarfélaginu vegna
kostnaðar við förgun dýrahræja.
Dýraleifar, sem áður voru urð-
aðar í Glerárdal, eru nú sendar til
Húsavíkur. Frá þessu er greint í
Vikudegi. Þar segir að áætlaður
kostnaður kostnaður sveitar-
félagsins vegna þessa nemi um
5,3 milljónum króna á næsta ári.
Búfjáreigendur munu bera tæp-
lega helming kostnaðar við förg-
un hræjanna. - sv
Kostnaðasamar farganir:
Gjald á bændur
vegna hræja
VEISTU SVARIÐ?