Fréttablaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 24
Umsjón: nánar á visir.is
Meira í leiðinni
6020 LET40T900
HAIER 40” LED SJÓNVARP
Almennt verð 139.900 kr.
Verð til N1 korthafa 129.900 kr.
Almennt verð 94.900 kr.
Verð til N1 korthafa 84.900 kr.
LET40T900
Full HD: Upplausn 1920 x 1080
USB Time shift: Þú getur gert hlé á dagskrá,
spólað tilbaka eða hlaupið áfram í því efni
sem horft er á með því að tengja USB tæki.
USB tengi: Gerir kleift að horfa á mynd-
bönd skoða ljósmyndir eða hlusta á tónlist
beint af USB tæki.
Móttakari: DVB - T/C
(Háskerpu Stafrænn Móttakari)
Tengimöguleikar: 3 HDMI tengi, Composite,
Scart, 15 Pin D-sub(VGA/PC),PC Audio Input,
Digital audio Out (SPDIF), PCMCIA, 2 USB tengi
Þykkt: Aðeins 3,7cm
LET32T900
HD Ready: Upplausn 1366 x 768
USB Time shift: Þú getur gert hlé á dagskrá,
spólað tilbaka eða hlaupið áfram í því efni
sem horft er á með því að tengja USB tæki.
USB tengi: Gerir kleift að horfa á myndbönd
skoða ljósmyndir eða hlusta á tónlist
beint af USB tæki.
Móttakari: DVB - T/C
(Háskerpu Stafrænn Móttakari)
Tengimöguleikar: 3 HDMI tengi, Composite,
Scart, 15 Pin D-sub(VGA/PC),PC Audio Input,
Digital audio Out (SPDIF), PCMCIA, 2 USB tengi
Þykkt: Aðeins 4cm
6020 LET32T900
HAIER 32" LED SJÓNVARP
Verð 23.900 kr.
snúningsfótur og bílfesting.
896 M-965
MUSE DVD FERÐASPILARI 9”
Verð 18.900 kr.
snúningsfótur og bílfesting.
896 M-745
MUSE DVD FERÐASPILARI 7”
N1 STÓRVERSLUN BÍLDSHÖFÐA
HAFNARFIRÐI | KEFLAVÍK | AKRANESI | AKUREYRI
EGILSSTÖÐUM | HÖFN | SELFOSS
N1
ATH.
ATH.
GÓÐAR GJAFIR
Á GÓÐU VERÐI
GÓÐA
VIÐSKIPTI Rannsóknir slitastjórn-
ar Kaupþings á fjölmörgum
málum eru á lokastígi. Þegar
hafa verið sendar út allmargar
riftunar tilkynningar og þess er
að vænta að fyrstu riftunarmálin
verði höfðuð mjög fljótlega. Slita-
stjórnin vinnur auk þess að rann-
sóknum og undirbúningi máls-
höfðana gagnvart ýmsum aðilum.
Þar er um að ræða skaðabótamál
og í einhverjum tilfellum inn-
heimtumál. Þetta kemur fram í
kynningu sem slitastjórn bank-
ans hélt fyrir kröfuhafa hans 14.
desember síðastliðinn.
Endurskoðunarfyrirtækin
Price waterhouseCoopers og Grant
Thornton í Bretlandi voru ráðin til
þess að rannsaka ráðstafanir sem
áttu sér stað í bankanum síðustu
mánuðina áður en bankinn féll. Í
kynningunni kemur fram að slit-
astjórnin hafi nú „að mestu lokið
skýrslutökum af fyrrverandi
starfsmönnum og yfirmönnum
Kaupþings. Þó kann, í einstökum
tilvikum, að reynast nauðsyn-
legt að boða fleiri einstaklinga til
skýrslutöku“.
Á meðal þess sem verið er að
rannsaka eru hugsanlegar niður-
fellingar á lánum og/eða ábyrgð-
um, skuldskeytingar, breytingar á
tryggingum, lánstíma eða öðrum
skilmálum lána, uppgreiðsla fyrir
efndatíma, viðskipti helstu hlut-
hafa og tengdra fyrirtækja við
bankann og meðferð eigin hluta-
bréfa, og fjármögnun bankans.
Feldís L. Óskarsdóttir, sem situr
í slitastjórn Kaupþings, segir að
ekki sé enn búið að höfða riftunar-
málin. „Við höfum sent út riftun-
artilkynningar. Sumir hafa þegar
svarað og vilja fara í samnings-
umleitanir. Það liggur því ekki
alveg fyrir hvenær stefnur fara út.
Þetta eru 20 til 30 mál. Þetta eru
umtalsverðar upphæðir í heildina.“
Auk riftanamálanna vinnur slita-
stjórnin að því að höfða skaðabóta-
og innheimtumál gagnvart ýmsum
aðilum. Að sögn Feldísar munu þau
bæði beinast að aðilum sem störf-
uðu innan bankans og utan hans.
Í kynningunni kom fram að þess
væri að vænta að fyrstu málinu
yrðu höfðuð á fyrstu mánuðum árs-
ins 2012. thordur@frettabladid.is
Kaupþing fer
að höfða mál
Rannsóknum sérfræðinga slitastjórnar Kaupþings
nánast lokið. Búið að yfirheyra fyrrverandi yfirmenn
bankans. Fyrsta skaðabótamálið höfðað á næsta ári.
KAUPÞING Slitastjórnin hefur að mestu lokið skýrslutökum af fyrrverandi starfs-
mönnum og yfirmönnum bankans. Hreiðar Már Sigurðsson var forstjóri Kaupþings
fyrir bankahrun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Slitastjórnin hafði áður rift ákvörðun stjórnar Kaupþings frá 25. september
2008 sem heimilaði Hreiðari Má Sigurðssyni, þáverandi forstjóra, að fella
niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna á lánum sem þeir höfðu tekið til
að kaupa hlutabréf í bankanum.
Alls hafa sex dómar fallið í héraði í þeim riftunarmálum, sá síðasti í
fyrradag þegar Magnúsi Guðmundssyni, fyrrum forstjóra Kaupþings í Lúxem-
borg, var gert að greiða þrotabúinu 717 milljónir króna. Mest hefur Ingvar
Vilhjálmsson, fyrrum framkvæmdastjóri markaðsviðskipta, verið dæmdur
að greiða til baka, eða 2,6 milljarða króna. Í ágúst síðastliðnum hafði mikill
meirihluti þeirra starfsmanna sem riftunin beindist gegn þegar samið við
slitastjórnina um greiðslu á kröfum sem beint var gegn þeim og um 50
aðilar höfðu þegar gengið frá greiðslu og/eða samningi við slitastjórn. Inn-
heimtuaðgerðir hófust síðasta sumar gagnvart þeim sem vildu ekki semja
og eignir þeirra kyrrsettar.
Hafði áður rift ákvörðun Hreiðars