Fréttablaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 58
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR42
BAKÞANKAR
sr. Sigurðar
Árna
Þórðarsonar
Bryndís, Sóley og Bryndís
Rithöfundurinn Bryndís Björgvinsdóttir og
tónlistarkonurnar Sóley Stefánsdóttir og Bryndís
Jakobsdóttir segja frá nýjustu sköpunarverkum
sínum og spjalla um jólin.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Var ykkur
enn og aftur
hent út af fína
staðnum?
Með
bravúr!
Af hverju viljið þið
eiginlega fara þangað?
Borga aðgangseyri og
okurverð fyrir bjórinn bara
til að vera hafnað af ...
fágaðra kvenfólki?!
Hér getið þið
fengið höfnun
alveg ókeypis!
Jú, en þessar
anorexíu-
tískuskvísur
lemja ekki
eins fast!
Það má
næstum túlka
þessi „högg“
þeirra eins og
ástaratlot!
Ég held að ég hafi
aldrei verið
hamingjusamari
á lífsleiðinni.
Ég held að
þetta sé fínn tími
til að hætta með
Palla.
Ég get
haldið
niðri í mér
andanum
lengur en
þú!
Jú, víst.
Krakkar. Prófið
að keppa.
Byrja!
Glæt-
an!
Ónei!
Hver
vann?
Ahhaah Í svona hálfa
mínútu var
það ég.
Aðeins fyrir
fólk með
geislabaug
Almátt-
ugur!
Ahhaah
LÁRÉTT
2. hæfileika, 6. persónufornafn, 8.
geymsla, 9. gogg, 11. íþróttafélag, 12.
sljóvga, 14. yfirstéttar, 16. ólæti, 17.
gagn, 18. flott, 20. búsmali, 21. spyr.
LÓÐRÉTT
1. umdæmis, 3. í röð, 4. sýklalyf, 5.
dýrahljóð, 7. matarlím, 10. fálæti,
13. vöntun, 15. bakhluti, 16. ái, 19.
ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gáfu, 6. ég, 8. búr, 9. nef,
11. kr, 12. slæva, 14. aðals, 16. at, 17.
nyt, 18. fín, 20. fé, 21. inni.
LÓÐRÉTT: 1. léns, 3. áb, 4. fúkalyf, 5.
urr, 7. gelatín, 10. fæð, 13. van, 15.
stél, 16. afi, 19. nn.
Hver bekkurinn á fætur öðrum gekk frá Melaskóla yfir í Neskirkju á
mánudaginn var. Yngstu börnin settust á
fremstu bekkina í kirkjunni. Stærri börnin
voru í miðjunni og efstu bekkingarnir sátu
aftast. Allir gátu því séð. Svo komu mörg
leikskólabörn líka og fengu heiðurssæti
svo þau gætu notið sem best. Hvað var í
uppsiglingu? Af hverju þessi spennti skari
og brosandi foreldrar og ástvinir?
MELASKÓLI pantar aðstöðu í kirkjunni
á hverju ári til að sýna helgileik barna í
fjórða bekk. Allir bekkir í þeim árgangi,
þrír þetta árið, æfa og sýna jólasöguna.
Alltaf hlakka ég til því Melaskólafólkið
hefur metnað og dug. Æfingarnar skil-
uðu eðlilegu flæði og fumlausum
sýningum. Allir kunnu sína rullu
og söngva. Hljóðneminn gekk á
milli og framsögnin var skýr.
Hirðarnir komu fyrstir og síðan
englahópur. Æfingarnar tókust
svo vel að það var sem fagur-
vængjaðir Melaskólaenglarnir
flygju.
BUMBAN á Maríu stóð út
í loftið og draumamaðurinn
Jósep var mannalegur þegar
þau gengu inn kirkjuganginn.
Parið stoppaði við myndarlega
jötu nærri altarinu. Fæðingin
gekk svo hratt fyrir sig og sárs-
aukalaust að það var sem kraftaverk. Ljúf-
legir vitringar færðu stórgjafir. Og einn
leikskólakúturinn var viss um að barnið
sem fæddist hefði verið strákur.
ÞAÐ ER flott hjá Melaskóla að vilja
almennilega umgjörð um helgileik sinn.
Skólinn vill í kirkju! Hátt í átta hundruð
manns komu þennan dag. Pabbar, mömm-
ur, forráðafólk, afar og ömmur gátu komið
vegna þess að plássið er nóg. Þegar leikur-
inn hófst kom í ljós að þetta var græjaður
ástvinahópur. Tugir myndavéla og síma birt-
ust, blossuðu og mynduðu undrið í kirkjunni.
ÞÚSUNDIR sem hafa alist upp í vesturbæ
Reykjavíkur hafa leikið þennan helgileik.
Þau hafa lært að koma fram, unnið innri
sigra, sungið söngvana, íklæðst búningun-
um, upplifað stemminguna, lært leikögun
og mælt fram leiktextann. Þau hafa lært að
skilja djúpt, að jól kalla á að við helgum líf
okkar því sem máli skiptir.
SUMT verður maður að skilja með öðru
en heilanum. Í sögunni Litli prinsinn segir
refurinn: „Hér er leyndarmálið. Það er mjög
einfalt: maður sér ekki vel nema með hjart-
anu. Það mikilvægasta er ósýnilegt augun-
um.“ Fjórðu bekkingarnir túlkuðu helgisög-
una svo vel að við gátum skilið með hjartanu
– að þetta er frumsaga, sem tjáir baráttu og
þrá fólks á öllum öldum, en líka að himinn
kyssir heim. Þá verða gleðileg jól.
Jólasaga sem virkar