Fréttablaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 82
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR66
Það verður stuð í kvikmyndahúsum á næsta ári. Christian Bale klæðist
búningi Leðurblökumannsins í síðasta sinn og allar Avengers-hetjurnar
koma saman í fyrsta sinn. Rykið verður dustað af James Bond og sígild
Schwarzenegger-mynd verður endurgerð. Freyr Gígja Gunnarsson rýndi í
komandi kvikmyndár.
OFURHETJUSTUÐ
OG GEIMVERUSTRÍÐ
DJANGO UNCHAINED
Leikstjóri: Quentin Tarantino
Stjörnum prýdd kvikmynd sem
verður vonandi á pari við það
besta frá leikstjóranum sérvitra.
Leikarahópurinn er óvenju þéttur
og lofar góðu með Leonardo
DiCaprio og Jamie Foxx í burðar-
hlutverkunum.
THE GREAT GATSBY
Leikstjóri: Baz Luhrman
Ástralski leikstjórinn gerði síðast
hina skelfilegu Australia og vill
eflaust gleyma þeim fjáraustri
sem fyrst. Hann snýr aftur með
kvikmyndaútfærslu af The Great
Gatsby með DiCaprio og Carey
Muligan í aðalhlutverkum.
BRAVE
Leikstjóri: Mark Andrews
Nýjasta þrekvirki Pixar og Disney
er hulið miklum ævintýrablæ
og segir frá prinsessu sem ögrar
hefðum og siðum í litla konungs-
ríkinu sínu. Smáfólkið er hins
vegar kröfuhart og lætur vita ef
því líkar ekki hlutirnir.
ÞESSAR GÆTU SLEGIÐ Í GEGN
DARK KNIGHT RISES
Leikstjóri: Christopher Nolan
Aðalhlutverk: Christian Bale, Tom
Hardy og Anne Hathaway
Söguþráður: Fyrsta stikla myndar-
innar, sem var frumsýnd á netinu í
vikunni, lofar mjög góðu. Kvikmyndin
tekur upp þráðinn átta árum eftir að
Leðurblökumaðurinn hrakti Jókerinn á
brott. Þrátt fyrir að aldurinn sé farinn
að færast yfir hetjuna og kraftarnir
farnir að þverra verður hann enn á ný
að taka fram búninginn til að kljást við
sinn mesta óvin.
Frumsýnd: 20. júlí
THE AMAZING SPIDERMAN
Leikstjóri: Marc Webb
Aðalhlutverk: Emma Stone, Rhys Ifans og Andrew
Garfield.
Söguþráður: Eftir að Sony tilkynnti að fyrirtækið
hygðist ekki gera fjórðu Spiderman-myndina með
Sam Raimi var fljótlega ákveðið að gera ekki fram-
hald með nýjum manni í brúnni heldur hverfa aftur
til upprunans. The Amazing Spiderman fjallar því
um unglingsár Peters Parker og hvernig hann nær
að þróa ofurkrafta sína.
Frumsýnd: 3. júlí
THE DICTATOR
Leikstjóri: Larry Charles
Aðalhlutverk: Sacha Baron Cohen, Anna Faris og
John C. Reilly.
Söguþráður: Ólíkindatólið Sacha Baron Cohen
getur brugðið sér í líki hvaða kvikindis sem er og að
þessu sinni leikur hann einræðisherra í Mið-Austur-
löndum sem heimsækir New York. Myndin skartar
Megan Fox í bráðskemmtilegu aukahlutverki.
Frumsýnd: 11. maí
THE AVENGERS
Leikstjóri: Joss Whedon
Aðalhlutverk: Robert Downey Jr., Chris Evans og Scarlett Johansson
Söguþráður: S.H.I.E.L.D-stofnunin ákveður að kalla til helstu ofur-
manneskjur heims til að verjast innrás geimvera. Og þar koma meðal
annars við sögu Iron Man, Hulk, Þór, Captain America og fleiri góðir.
Frumsýnd: 4. maí
PROMETHEUS
Leikstjóri: Ridley Scott
Aðalhlutverk: Michael Fassbender, Noomi Rapace
og Charlize Theron
Söguþráður: Myndarinnar hefur verið beðið með
mikilli eftirvæntingu enda hugsuð sem forleikur
að Alien-myndaflokknum vinsæla. Hópur vísinda-
manna finnur vísbendingar um uppruna mannsins
og rekst í kjölfarið á svörtustu afkima alheimsins.
Frumsýnd: 8. júní
SKYFALL
Leikstjóri: Sam Mendes
Aðalhlutverk: Daniel
Craig, Javier Bardem,
Naomie Harris og Judi
Dench
Söguþráður: Lítið er
vitað um söguþráð Bond-
myndarinnar sem á að
marka hálfrar aldar afmæli
kvikmyndabálksins. Hins
vegar er vitað að Quantum-
glæpaflokkurinn verður
víðsfjarri og að Craig er
sannfærður um að myndin
eigi eftir að verða betri en
síðasta mynd.
Frumsýnd: 26. október
THE HOBBIT: AN UNEXPECTED
JOURNEY
Leikstjóri: Peter Jackson
Aðalhlutverk: Martin Freeman, Ian McKellen og
Evangeline Lilly
Söguþráður: Bilbo Baggins, þá ungur að árum,
fer í ferðalag að Einmana fjallinu ásamt nokkrum
dvergum til endurheimta fjársjóð úr höndunum á
drekanum Smeyginn. Fyrsta stikla myndarinnar kom
á netið í gær.
Frumsýnd: 14. desember.
BATTLESHIP
Leikstjóri: Peter Berg
Aðalhlutverk: Liam Neeson, Alexander Skarsgård og Rihanna
Söguþráður: Eins og nafnið gefur til kynna eru orrustuskip í aðal-
hlutverki í þessari rándýru hasarmynd sem er byggð á samnefndum
tölvuleik frá Hasbro. Orrustuskipin eru ógnarstór en þurfa á öllu sínu
að halda til að kljást við óþekktar verur sem eru ekkert sérstaklega
vinveittar jarðarbúum.
Frumsýning: 18. maí
MEN IN BLACK III
Leikstjóri: Barry Sonnenfeld
Aðalhlutverk: Will Smith, Tommy Lee Jones og
Josh Brolin
Söguþráður: Will Smith snýr aftur sem hroka-
gikkurinn J hjá MIB-stofnuninni. Að þessu sinni þarf
hann að fara aftur til ársins 1960 og koma í veg
fyrir að geimvera brjóti sér leið inn í samtökin og
ógni þar með tilveru jarðarbúa.
Frumsýning: 25. maí
TOTAL RECALL
Leikstjóri: Len Wiseman
Aðalhlutverk: Kate Beckinsale, Colin Farrell og
Jessica Biel.
Söguþráður: Löndin Euromerica og New Shanghai
kljást um yfirráðin í náinni framtíð. Verksmiðju-
starfsmaðurinn Doug er ekki viss um að hann sé
á réttum stað og fer að gruna að hugsanlega sé
hann njósnari. Hann veit hins vegar ekki fyrir hvorn
aðilann hann starfar.
Frumsýning: 3. ágúst
THE HUNGER GAMES
Leikstjóri: Gary Ross
Aðalhlutverk: Jennifer Lawrence og Josh
Hutcherson
Söguþráður: Myndin gerist í náinni framtíð og
segir frá framtíðarríkinu Capitol. Einn strákur og ein
stelpa úr hverju fylki eru valin til að berjast upp á líf
og dauða í raunveruleikasjónvarpi.
Frumsýning: 23. mars
THE TWILIGHT SAGA: BREAKING DAWN 2
Leikstjóri: Bill Condon
Aðalhlutverk: Kristen Stewart, Robert Pattinson og Taylor Lautner
Sögurþráður: Eftir fæðingu Renesmee safnar Cullen-fjölskyldan
saman öðrum vampíruættbálkum til að verja barnið gegn fölskum
ásökunum. Þetta er síðasti hlutinn í Twilight-seríunni og á valda brjál-
æðislega miklu miðasöluæði í Bandaríkjunum og víðar.
THE EXPENDABLES II
Leikstjóri: Simon West
Aðalhlutverk: Sylvester Stallone, Bruce Willis og
Arnold Schwarzenegger
Söguþráður: Mr. Church snýr aftur til The
Expendables og fær þá til að taka þátt í auðveldu
verkefni. En þegar einn liðsmanna flokksins er
myrtur ákveða félagarnir að hefna sín. Og þá verður
bæði sprengt og skotið.