Fréttablaðið - 22.12.2011, Síða 4

Fréttablaðið - 22.12.2011, Síða 4
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR4 STJÓRNSÝSLA Dagur B. Eggerts- son, forseti borgarstjórnar, segir að þeir sem átt hafi hæsta tilboð í Perluna hafi aðeins gert fyrir- vara um arðsemi kaupanna. Allir sem tekið hafi þátt í útboðinu hafi verið með einhverja fyrirvara. Eins og fram hefur komið áttu aðilar á sviði ferðaþjónustu og húsbygginga hæsta tilboðið og er Garðar Vilhjálmsson lög maður í fyrirsvari fyrir þá. Þeir hafa frest til 31. mars til að meta arð- semi kaupanna. Þeir hafa hug á að breyta nýtingarmöguleikum á lóð- inni og reisa þar hótel. „Það má alveg velta því fyrir sér hvort það þýddi nýtt sölu- ferli ef þarna ætti að selja Perluna ásamt hótellóð, það er bara allt annað mál. Orkuveitan var að auglýsa Perluna til sölu,“ segir Dagur. Dagur segir að í þessu fel- ist ekkert loforð af hendi Orku- veitunnar um að beita sér fyrir breyttu skipulagi á svæðinu. Hann segir því ekki verða rumpað af að breyta skipulagi, verði slíkt ákveð- ið. Engin ákvörðun hafi verið tekin um það og sjálfur vill hann leyfa málinu að klárast áður en hann getur í eyður. Málið sé ekki komið inn á borð borgarráðs eða borgar- stjórnar. Aðili úti í bæ hafi fengið tíma til að skila inn fullgildu til- boði. „Orkuveitan er ekki búin að taka við tilboðinu vegna þess að það er með fyrirvörum. Orkuveitan segir ekki meira en það að við skulum gefa ykkur tíma til að vita hvort þið viljið standa við tilboðið án fyrirvara. Í því felst samkvæmt mínum skilningi ekkert loforð or hvorki um að beita sér fyrir breyt- ingum á skipulagi né neinu öðru. Hvað þá að selja þetta með ein- hverjum byggingarrétti.“ - kóp Forseti borgarstjórnar segir engar skipulagskvaðir fylgja tilboði í Perluna: Nýtt tilboð fylgi hótellóð með Perlunni DAGUR B. EGGERTSSON Orkuveitan er ekki búin að taka við til- boðinu vegna þess að það er með fyrirvörum. DAGUR B. EGGERTSSON FORSETI BORGARSTJÓRNAR LÖGREGLUMÁL Fjórir í vímuakstri Fjórir ökumenn voru teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur í Reykjavík í fyrradag. Þetta voru allt karlar, en þeir eru á aldrinum 20 til 50 ára. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi. GENGIÐ 21.12.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 218,7225 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 121,62 122,20 191,50 192,44 159,74 160,64 21,485 21,611 20,692 20,814 17,824 17,928 1,5624 1,5716 187,93 189,05 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512- 5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is ÍRAK Nouri al-Maliki, forsætis- ráðherra Íraks, krefst þess nú að yfirvöld sjálfstjórnarhéraðs kúrda í norðurhluta landsins, láti af hendi Tarik al-Hashemi aðstoðar- forsætisráðherra, sem sakaður er um alvarlega glæpi. Hashemi, sem er súnní-múslimi, flúði norður í kúrdahéröðin á sunnudag, daginn áður en hand- tökuskipun var gefin út á hendur honum. Hann er sakaður um að hafa verið með morðsveitir á sínum snærum, sem sendar voru til höf- uðs embættismönnum stjórnar- innar. Hashemi segir þessar ásakanir uppspuna einan og runnar undan rifjum pólitískra andstæðinga sinna, einkum forsætisráðherrans sjálfs, sem er sjía-múslimi. Hann segir að þetta mál muni splundra viðkvæmu sáttaferli milli sjía og súnnía, nú þegar Banda- ríkjaher er nýfarinn frá landinu. Al-Maliki svarar því til að Hashemi muni fá sanngjörn réttar- höld, rétt eins og Saddam Hussein fékk á sínum tíma. Hann minnir kúrda á að Írak sé eitt og óskipt land. Yfirvöld í kúrda- héruðunum eigi því að afhenta Has- hemi til íraskra stjórnvalda. „Ef þeir afhenda hann ekki eða leyfa honum að flýja eða komast undan, þá mun það leiða af sér vandamál,“ sagði Maliki. Sá möguleiki er fyrir hendi að Hashemi flýi yfir til kúrdahérað- anna í Tyrklandi, handan landa- mæranna. Meðan Saddam Hússein var við völd í Írak nutu súnní-múslimar þess, þótt í minnihluta væru, enda var hann súnníi sjálfur. Vegur sjía-meirihlutans hefur hins vegar vaxið eftir fall Saddams og deila nú þessir tveir hópar með sér völdum. Ásakanirnar á hendur varafor- setanum vöktu upp vangaveltur um að Maliki forsætisráðherra ætli með þessu fyrst og fremst að treysta eigin völd á kostnað sjía- múslima. „Ég leyfi mér ekki að prútta um blóð Íraka,“ sagði Maliki og stend- ur fast á því að Hashemi fái ekki að komast upp með svo alvarlega glæpi. Síðustu bandarísku hermennirn- ir hafa undanfarna yfirgefið Írak eftir nærri níu ára stríð, sem hófst í mars árið 2003. gudsteinn@frettabladid.is Íraksstjórn vill fá Hashemi afhentan Spenna milli þjóðernishópanna þriggja í Írak magnast á ný, strax og Banda- ríkjaher yfirgefur landið. Forsætisráðherrann, sem er sjía-múslimi, krefst þess að kúrdar láti af hendi aðstoðarforsætisráðherrann, sem er súnní-múslimi. TARIK AL-HASHIMI Aðstoðarforsætis- ráðherra Íraks er sakaður um að hafa sent morðsveitir til höfuðs embættis- mönnum. NORDICPHOTOS/AFP HASHEMI EFTIRLÝSTUR Fréttir af flótta og handtökuskipun á hendur aðstoðar- forsætisráðherra landsins hafa vakið mikla eftirtekt. NORDICPHOTOS/AFP UTANRÍKISMÁL Hlutur Íslands í fjárveitingum sem framkvæmda- stjórn Evrópusambandsins (ESB) hefur heimilað til stuðnings umbótum í ríkjum sem sótt hafa um aðild nemur 1,2 prósentum. Mest er hlutdeild Tyrklands í framlögunum sem nema nálægt milljarði evra, eða tæpur fjórð- ungur, 24,1 prósent. Framkvæmdastjórnin hefur sett á fjárlög þessa árs 12 millj- ónir evra í svonefnda IPA styrki til Íslands, eða sem nemur rúmum 1,9 milljörðum króna. Á vef stækkunarstjóra ESB má svo sjá að gert sé ráð fyrir sömu upphæð á næsta ári, en tæpum milljarði árið 2013, sex milljónum evra. - óká IPA styrkir samþykktir hjá ESB: Hlutur Íslands er 1,2 prósent Samþykktir styrkir ESB Land Milljónir evra Albanía 82,0 Bosnía og Hersegóvína 91,3 Króatía 39,2 Makedónía 28,9 Ísland 12,0 Kósóvó 62,9 Svartfjallaland 26,5 Serbía 178,6 Tyrkland 233,0 Margvíslegar þróunaráætlanir 210,4 Alls 965,8 Heimild: Fréttavefur framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins LÖGREGLUMÁL Karlmaður um sextugt sofnaði við stýrið á bíl sínum þegar hann var staddur á gatnamótum Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar í síð- degisumferðinni í fyrradag. Bíll mannsins var á rauðu ljósi þegar þetta gerðist. Svo heppi- lega vildi til að lögreglan var við eftirlit á gatnamótunum á sama tíma og náðu lögreglumenn að vekja ökumanninn. Í kjöl- farið var bíl mannsins komið fyrir á bílastæði við Kringluna en honum gert að hætta akstri tafarlaust. Hann sagðist ekkert hafa sofið síðustu nótt. Honum var skipað að hvílast vel áður en hann settist aftur undir stýri. - jss Örþreyttur ökumaður: Maður sofnaði undir stýri bíls á rauðu ljósi LÖGREGLUMÁL Ólíklegt er að lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu muni ljúka rannsókn sinni á máli þar sem átján ára stúlka hefur kært Egil Einarsson og unnustu hans fyrir nauðgun fyrir jól, að sögn Björgvins Björgvinssonar, yfirmanns kynferðisbrotadeild- ar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Hin meinta nauðgun er sögð hafa átt sér stað á heimili Egils aðfaranótt föstudagsins 25. nóvember, eftir gleðskap sem fólkið hafði sótt. Málið var kært til lögreglu 1. desember. Hin kærðu og stúlkan hafa gefið skýrslur hjá lögreglu, auk þess sem vitni hafa verið yfirheyrð, þar á meðal leigubílstjóri sem ók fólkinu að heimili Egils þetta kvöld. - jss Rannsókn stendur enn: Rannsókn lýk- ur varla fyrir jól VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 19° 4° 3° 6° 5° 3° 5° 5° 22° 12° 18° 12° 27° -3° 11° 13° 2°Á MORGUN 8-15 m/s, en 13-20 austast. LAUGARDAGUR 10-20 m/s. -1 -2 -3 -4 -5 2 -1 3 0 0 -6 7 7 4 2 3 15 6 6 4 13 5 -1 -1 -1 1 2 -3 0 -2 -5 -6 UMHLEYPINGAR Hitinn verður yfi r- leitt um og undir frostmarki fram á morgundaginn með éljum um sunnan og vestan- vert landið. Annað kvöld hlýnar með úrkomu syðra en síðdegis á aðfanga- dag kólnar líklega á ný með éljum. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.