Fréttablaðið - 22.12.2011, Side 10

Fréttablaðið - 22.12.2011, Side 10
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR10 FRÉTTASKÝRING Hvað felst í nýrri verðbólgumælingu Hagstofu Íslands? Verðbólga í desember jókst um 0,36 prósent frá fyrra mánuði sam- kvæmt nýrri mælingu Hagstofu Íslands. Verðbólga miðað við síð- ustu 12 mánuði er því 5,3 prósent, en var í nóvember 5,2 prósent. Á vef Hagstofunnar kemur fram að verð á mat og drykkjarvöru hafi hækkað um 1,7 prósent milli mán- aða og flugfargjöld til útlanda um 12,1 prósent. Sá liður sem þyngst vegur í hækkun vísitölu neysluverðs að þessu sinni er matur og drykkur „og er ljóst að hér gætir áhrifa af veikingu krónunnar frá nóvember- byrjun,“ segir í umfjöllun Grein- ingar Íslandsbanka. Um leið er bent á að innlend mat- vara hafi ekki síður hækkað en innflutt. Þannig hafi verð á kjöti hækkað um tvö prósent milli mán- aða og verð á fiski um 1,9 prósent. „Verðbólgan á fjórða ársfjórð- ungi er því […] nokkuð undir þeim 5,6 prósentum sem Seðla- bankamenn spáðu í Peningamál- um í byrjun síðasta mánaðar,“ segir Greining Íslandsbanka og telur þróunina styðja við spá sína um óbreytta stýrivexti við næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans. Í umfjöllun greiningar deildar Arion banka segir að erfitt sé að gera sér fyllilega grein fyrir því hvað valdi svo mikilli hækk- un á mat og drykkjarvörum nú. „En væntanlega eru kaupmenn að nýta jólamánuðinn til að velta kostnaðar hækkunum fyrr á árinu yfir á neytendur.“ Þá er að mati greiningar deildar Arion banka enn útlit fyrir að árs- verðbólga fari lækkandi þrátt fyrir að umtalsverð verðbólga sé í pípunum í febrúar og mars. Spáir greiningardeild bank- ans því að 12 mánaða verðbólga eigi eftir að hækka í 5,6 prósent í janúar og muni ekki lækka á ný fyrr en eftir fyrstu þrjá mánuði ársins. Á móti útsöluáhrifum í byrj- un árs komi skatta- og gjaldskrár- hækkanir á vegum hins opinbera. Þá muni hækkun á áfengisgjaldi og eldsneyti auka við verðbólgu. Í umfjöllun IFS greiningar segir að búast megi við lækkandi 12 mán- aða verðbólgu yfir næsta ár, gangi fyrri hluti ársins áfallalaust fyrir sig. „Eins og við sjáum á árinu sem er að ljúka geta óútreiknanlegir atburðir eins og skyndileg stríðs- átök eða náttúruhamfarir hoggið í framboð og valdið jákvæðum verð- þrýstingi. Sterkari króna gæti einn- ig dregið úr innfluttri verðbólgu á næsta ári.“ olikr@frettabladid.is Verðbólga ársins 2011 0,8 0,4 0 -0,4 -0,8 5% 4% 3% 2% 1% 0% 385 380 375 370 365 360 Janúar Feb rúar Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst Sept-ember Október Nóv- ember Des- ember Breyting frá fyrra mánuði (%) -0,90 1,20 1 0,80 0,90 0,50 0,10 0,30 0,60 0,30 0 0,40 1,80 1,90 2,30 2,80 3,40 4,20 5 5 5,70 5,30 5,20 5,30 ■ Verðbólga (vinstri ás) ■ Vísitala (hægri ás) SKÝRINGARMYND Hér að ofan má sjá hvernig verðbólga hefur þróast yfir árið sem er að líða. Efra súluritið sýnir mælda 12 mánaða verðbólgu í hverjum mánuði ásamt vísitölu neysluverðs og sú neðri verðlagsbreytingu milli mánaða. Verðhjöðnun varð ekki nema í janúar. Jólin nýtt til að velta kostnaði á neytendur Tólf mánaða verðbólga stendur í 5,3 prósentum. Niðurstaðan er undir spám Seðlabankans og styður við óbreytta stýrivexti. Verðbólga gæti haldið áfram að aukast næstu þrjá mánuði, þrátt fyrir útsöluáhrif í byrjun næsta árs. Hækkun á verði mat- og drykkjarvöru vegur einna þyngst í verðbólgu aukningunni í desember. GREINING ÍSLANDSBANKA 1,7% SÝRLAND, AP Sýrlenskir stjórnarandstæðingar hvetja öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til að koma saman til neyðarfundar vegna blóðbaðsins í Sýrlandi, sem sagt er hafa náð nýjum hæðum á allra síðustu dögum. Stjórnarherinn er sagður hafa myrt yfir hundrað manns í gær og álíka marga daginn áður í þorpinu Kfar Owaid, sem er í fjallahéruðunum skammt frá landamærum Tyrklands. „Þetta voru skipulögð fjöldamorð,“ sagði Rami Abdul-Rahman, yfirmaður sýrlenskra mannrétt- indasamtaka í Bretlandi. „Hermennirnir umkringdu fólk og drápu það.“ Árásir á þorpið hófust á laugardag, en töluvert hefur verið um átök stjórnarliða og uppreisnar- manna á þessum slóðum undanfarið. Átökin í land- inu hafa harðnað mjög síðustu vikur og meðal ann- ars hafa fjölmargir hermenn gerst liðhlaupar og gengið til liðs við uppreisnarmenn. Á mánudag féllst Bashir al-Assad Sýrlandsforseti á kröfur Arababandalagsins um að fá að senda eftir- litsmenn til landsins. - gb Stjórnarliðar sagðir hafa drepið hundruð manna síðustu daga í einu þorpi: Hvatt til neyðarfundar hjá SÞ SÝNA STUÐNING VIÐ ASSAD Meðan stjórnarandstæðingar eiga í átökum við liðsmenn Assads forseta koma stuðningsmenn hans saman í Damaskus. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Hálfsextugur maður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að fróa sér fyrir framan hóp stúlkna á 14. og 15. aldursári í Elliðaárdal. Fimmtudaginn 15. júlí 2010, barst lögreglu tilkynning um að karlmaður væri að fróa sér fyrir framan hóp stúlkna í Elliðaárdal. Er lögreglumenn komu á vettvang sáu þeir mann, sem svaraði til lýs- ingar þess er hringdi í lögreglu, sitjandi á bekk á svæðinu. Lög- reglumenn ræddu við þrjú ung- menni, sem sátu á grasbala við fossinn, sem sögðust hafa orðið vör við að eldri karlmaður, sem lá í grasinu skammt frá þeim, hefði farið með hendur undir buxur sínar og farið að fróa sér, en gengið svo á brott. Bentu þau öll á ákærða, þar sem hann sat á bekknum, og sögðu hann vera manninn sem þetta gerði. Þrjár stúlkur til við- bótar höfðu séð þetta til mannsins. Maðurinn kvaðst við yfir- heyrslur hafa verið að nudda á sér fæturna þar sem hann væri með fótaóeirð. Þá kvaðst hann líka þjást af ristilkrampa og hefði hann verið frekar slæmur þennan dag. Hann hefði því farið með hönd undir bol sem hann var í og hnoðað eða hrist magann til að mýkja ristilinn. Þetta þótti dóminum harla ósennilegt. - jss Sá dæmdi sagðist hafa verið með óvenjuslæman ristilkrampa þennan dag: Fróaði sér fyrir framan stúlknahóp HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Þótti fram- burður mannsins ótrúverðugur. LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í fyrirtækin Fagform og Prentverk sem eru við Gagnheiði 74 á Sel- fossi aðfaranótt þriðjudags á tíma- bilinu frá klukkan 00.30 til 07.30. Stolið var tveimur fartölvum, stórri Mac-borðtölvu og nýlegri borðtölvu. Þjófurinn hafði farið um og rótað í skúffum en ekki annað tekið en tölvurnar sem geyma mikilvæg vinnugögn. Lög- reglan á Selfossi biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um inn- brotið að hafa samband í síma 480 1010. - jss Leitað til almennings: Mikilvægum gögnum stolið SKEMMTI ÁHORFENDUM Kermit froskur skemmti fólki á frumsýningu nýrrar myndar um Prúðuleikarana í Sydney í Ástralíu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.