Fréttablaðið - 22.12.2011, Page 12
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR12
VERSLANIR Í MIÐBORGINNI
VERÐA OPNAR TIL 22 Í KVÖLD
MEIRA Á MIÐBORGIN.IS
og Á FACEBOOK.COM/MIDBORGIN
MUNIÐ JÓLALEIK
MIÐBORGARINNAR
VEIÐI Veiðiþjónustan Strengir hefur
gengið frá tíu ára leigusamningi
um veiðirétt í Breiðdalsá. Áin fór
ekki í útboð og því fæst ekki upp-
gefið hvað greitt var fyrir réttinn.
Samningurinn er með þeim
lengri sem gerðir hafa verið hér-
lendis og sem dæmi er hann tvö-
falt lengri en samningarnir um
Þverá og Kjarrá og Laxá á Ásum
sem gerðir voru fyrir skömmu.
Þeir voru til fimm ára.
Þröstur Elliðason, eigandi
Strengja, segir ekki hægt að líkja
þessum samningum saman.
„Þetta er allt annars eðlis í
Breiðdalsá. Síðan árið 2003 höfum
við verið að byggja ána upp sem
laxveiðiá. Það hefur verið mikið
ræktunarátak í gangi og svo
höfum við byggt glæsilegt veiði-
hús. Ætli við séum ekki búin að
leggja 200 milljónir króna í þetta
verkefni, þá meina ég fyrir utan
það sem við borgum fyrir veiði-
réttinn. Þetta er langtímafjárfest-
ing fyrir okkur og það er eitthvað
sem veiðiréttarhafinn, Veiðifélag
Breiðdæla, gerir sér grein fyrir.
Þess vegna er hann tilbúinn að
semja til eins langs tíma og raun
ber vitni. Svona langur samningur
er algjör forsenda þess að hægt sé
að byggja upp laxveiðiá með þess-
um hætti.“
Þröstur segir að að staðan sé
önnur í þeim ám sem ekki séu í
ræktun. Þar þurfi ekki að leggja í
mikinn stofnkostnað vegna seiða-
sleppinga.
„Þegar maður er að byrja með á
í ræktun þá eru fyrstu tvö til þrjú
árin erfiðust. Í raun skila slíkar ár
ekki hagnaði fyrr en eftir mörg ár.
Seiði eru dýr og á síðustu þremur
árum höfum við sleppt ríflega 100
þúsund seiðum á ári í Breiðdalsá.
Síðasta vor slepptum við 125 þús-
und seiðum. Það ánægjulega er
að nú er þetta allt saman að skila
árangri. Veiðin í Breiðdalsá hefur
verið frábær síðustu tvö ár. Í fyrra
veiddust 1.178 laxar í ánni sem
var met en það var slegið síðasta
sumar þegar það veiddust 1.430
laxar.“
Auk þess að rækta upp Breið-
dalsá hafa Strengir einnig stað-
ið í miklu ræktunarstarfi með
Jökulsá á Fjöllum og hliðarár
hennar. Þröstur segir að vegna
lakra endur heimta seiða sé erfitt
að rækta upp laxveiðiár á Austur-
og Norðurlandi.
„Endurheimtur af seiðaslepp-
ingum eru á bilinu 1,5 prósent
upp í 3 til 4 prósent á Suður- og
Vestur landi. Staðan er hins vegar
allt önnur fyrir austan og norðan.
Þar eru lífsskilyrði gönguseiða í
sjó miklu lakari. Sjávarhitinn er
til dæmis lægri. Þá er laxinn sem
gengur úr ám og út í sjó á Austur-
landi og Norðurlandi líka oft tvö ár
í sjónum. Allt þetta þýðir að endur-
heimtur seiða á þessum lands-
svæðum eru allt að þrisvar sinnum
lakari en fyrir sunnan og vestan.
Það getur komið fyrir að endur-
heimtur séu undir einu prósenti.“
Þröstur segir að næsta sumar
verði kvóti á veiðinni. Leyfilegt
verði að taka tvo laxa á stöng en
sleppa verði öllum löxum sem eru
stærri en 70 sentímetrar. Bannað
verður að veiða á maðk en leyfilegt
að veiða á spón í september.
trausti@frettabladid.is
Fjárfest fyrir 200 milljónir í
Breiðdalsá á nokkrum árum
Strengir hafa gert tíu ára leigusamning um veiðiréttinn í Breiðdalsá. Þröstur Elliðason segir erfitt að rækta
upp laxveiðiár á Austur- og Norðurlandi. Endurheimtur laxaseiða séu lakar. 125 þúsund seiðum sleppt í vor.
VEIÐIHÚSIÐ EYJAR Glæsilegt veiðihús
var byggt við Breiðdalsá árið 2003.
Þar eru átta tveggja manna herbergi,
gervihnattasjónvarp og internettenging.
MYND/PÁLMI EINARSSON
EFRI-BELJANDI Í BREIÐDALSÁ Metveiði hefur verið í Breiðdalsá síðustu tvö ár. Laxveiðitímabilið er frá 1. júlí til 30. september og mun
dagurinn kosta frá tæpum 40 þúsund krónum upp í tæpar 140 þúsund. Silungsveiðin hefst 1. maí og stendur til 30. september og
kostar stöngin frá 15 þúsund upp í 25 þúsund. Frá og með júlí er nokkur laxavon á silungasvæðinu. MYND/MAGNÚS JÓNASSON
Svona langur samn-
ingur er algjör for-
senda þess að hægt sé að
byggja upp laxveiðiá.
ÞRÖSTUR ELLIÐASON
EIGANDI VEIÐIÞJÓNUSTUNNAR STRENGIR
LISTAVERK ÚR LAUFI OG GRASI
Brasilíski listamaðurinn Vik Muniz
gerði þessa eftirmynd Sjálfsmyndar
Vincents van Gogh úr greinum, laufi
og þurrkuðum blómum á kirkjugólf
fyrir sýningu í Avignon í sunnanverðu
Frakklandi. NORDICPHOTOS/AFP
ÞJÓÐKIRKJAN Prestar og sóknar-
prestur Selfosskirkju eru ekki
á einu máli um hvort heimilt sé
öðrum en biskupi að meina prest-
um sem uppvísir hafa orðið að kyn-
ferðisbrotum að þjóna í kirkjunni.
Biskup sendi í byrjun mánaðar-
ins prestum kirkjunnar og fleir-
um tölvupóst þar sem hann gerir
athugasemd við nýjar starfsreglur
Selfosskirkju og telur vafa undir-
orpið hvort sóknarnefnd og prestar
geti meinað ákveðnum prestum að
annast athafnir í kirkju.
„En saga yrði það til næsta
bæjar ef nota ætti starfsreglur
kirkjunnar til að opna leið þeirra
í kirkju sem uppvísir hafa orðið að
kynferðisbrotum til að annast þar
athafnir og mæta jafnvel fórnar-
lömbum sínum,“ segir í grein sem
birtist í Fréttablaðinu í gær, en
hana rita tveir prestar Selfoss-
kirkju, Óskar Hafsteinn Óskars-
son og Nanna Sif Svavarsdóttir,
ásamt sóknarnefndarmanninum
Grími Hergeirssyni lögmanni.
„Ekki verður efast um heimild
sóknarnefndar […] til að setja sér
vinnureglur og marka stefnu gegn
kynferðisbrotum í samráði við
prestana.“
Saga til næsta bæjar ef reglur kirkjunnar greiddu leið kynferðisbrotamanna að kirkjustarfinu:
Sóknarnefndar og presta að marka stefnu
Sóknarnefndin og prestarn-
ir tveir sömdu nýju reglurnar án
aðkomu sóknarprestsins, Kristins
Ágústs Friðfinnssonar. Hann hefur
sagst þeirrar skoðunar að breyta
þurfi nýju starfsreglunum, agavald
kirkjunnar sé hjá biskupi einum.
- óká
Ekki hefur reynt á nýju starfsreglurnar
Ekki hefur enn reynt á hvort nýjar reglur Selfosskirkju
meini séra Gunnari Björnssyni aðgang að kirkjunni.
Hann lét af embætti sóknarprests þar eftir ásakanir
um kynferðisbrot árið 2008. Séra Gunnar er búsettur
á Selfossi og hefur framkvæmt stöku athafnir
eftir að hann lét af embætti.
LANDBÚNAÐUR Lokadagur vertíð-
ar sauðfjársæðingastöðva var í
gær, að því er fram kemur á vef
Landssambands sauðfjárbænda.
Fram kemur að á yfirstandandi
vertíð hafi alls verið sendir út
sæðisskammtar í 44.000 ær sem
þýði rúmlega 30.000 ær sæddar.
„Mest sæði var sent úr Grábotna
06-833, eða tæplega 2.600
skammtar. Á þeim þremur árum
sem Grábotni hefur verið á stöð
er því búið að senda út úr honum
7.500 sæðisskammta.“
Undanfarin ár eru um 800
bændur sagðir hafa nýtt sér sauð-
fjársæðingar að einhverju leyti.
- óká
Skammtarnir nærri 2.600:
Mest sæði sent
úr Grábotna
SMALAÐ Í RÉTTIR Eitthvað gæti Grábotni
átt þarna, svona miðað við afköst.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AKUREYRI Sigurveig Bergsteins-
dóttir hefur sagt af sér sem for-
maður skólanefndar Akureyrar
og einnig sagt sig úr L-listanum.
Sigurveig hefur starfað lengi með
flokknum en hún sagðist ósátt
við að fyrirhugaðar breytingar
á morgunverði leikskólabarna
verði endurskoðaðar. Frá þessu
er greint í Vikudegi.
Halda átti fund um málið en
honum var aflýst án vitundar
Sigur veigar og að hennar sögn
var ekkert rætt um málið við
hana. Hún sagðist ekki hafa átt
von á því að upplifa slík vinnu-
brögð eftir áralangt starf í L-list-
anum. - sv
Formaður segir af sér:
Hættir vegna
leikskólamála
DÓMSMÁL Tvítugur piltur hefur verið dæmdur í
tveggja ára fangelsi fyrir fjölmörg þjófnaðarbrot.
Sakaferill hans er orðinn æði langur þótt hann sé
ungur að aldri.
Í janúar á þessu ári var pilturinn ákærður fyrir
það meðal annars að hafa svikið út páfagaukinn
Húgó, búr og fóður fyrir rúmlega hálfa milljón króna
úr Furðufuglum. Þá var hann dæmdur í tuttugu mán-
aða fangelsi, þar af sautján mánuði skilorðsbundna.
Brotin sem pilturinn er dæmdur fyrir nú eru all-
mörg. Í mars braust hann inn í íbúðarhúsnæði og
stal þar tækjum og búnaði fyrir rúmlega 1,3 millj-
óna króna. Þá braust hann inn í fyrirtæki, lét þar
greipar sópa og stal loks bíl. Nokkrum dögum síðar
braust hann inn í tvö sumarhús. Í maí héldu hann
áfram með þjófnaði á sígarettum úr söluturni. Í júlí
fór hann inn í fjóra ólæsta bíla í Kópavogi og stal svo
þeim fimmta.
Í félagi við tvo aðra stal hann veski með
pólskum seðlum og allt að þrjátíu vodkaflöskum í
starfsmanna aðstöðu í Hörpu. Í október braust hann
þrisvar inn, þar á meðal í Hafið bláa, þar sem hann
og félagi hans stálu fjörutíu flöskum af sterku áfengi,
fjörutíu af léttvíni og 120 bjórflöskum. - jss
Tvítugur síbrotamaður heldur uppteknum hætti og fær tveggja ára fangelsisdóm:
Páfagaukspiltur stal pólskum seðlum
HARPA Pilturinn kom meðal annars við í starfsmanna aðstöðu
í kjallaranum í Hörpu í þessari brotahrinu sem hann hefur
nú verið dæmdur fyrir. Þar stal hann, ásamt tveimur félögum
sínum, áfengi og veski með pólskum seðlum.