Fréttablaðið - 22.12.2011, Síða 18

Fréttablaðið - 22.12.2011, Síða 18
22. desember 2011 FIMMTUDAGUR18 Óvissa um raforku og raf- orkuverð er helsti óvissu- þátturinn varðandi álver í Helguvík. Orka fyrir fyrsta áfanga álvers er tryggð, en óvíst er hvernig staðið verður að því sem þarf fyrir álverið allt. HS orka hefur stefnt deilu við Norðurál um orkumagn fyrir gerðardóm í Svíþjóð. Tveir dagar eru síðan sænskur gerðardómur úrskurðaði í annarri deilu fyrirtækjanna. Álver í Helguvík átti að verða vítamínsprauta inn í atvinnu- lífið suður með sjó. Ekki veitti af, lengi hefur atvinnuleysi verið mest þar á landinu. Bjartsýni ríkti hjá heimamönnum og stjórnmála- menn kepptust við að lýsa því yfir að nú hillti undir betri tíma. Rúm sex ár eru síðan verkefnið fór af stað, en, líkt og Frétta blaðið greindi frá í gær, eru menn að miklu leyti til enn á upphafsreit varðandi veigamikla þætti þess. En hvað er það sem stendur út af? 600 megavött af orku Fyrirhugað álver Norðuráls verð- ur í fjórum áföngum. 150 mega- vött af orku þarf í hvern áfanga og Norðurál hefur lýst því yfir að fyrirtækið hefji ekki fram- kvæmdir nema tryggð sé orka fyrir að minnsta kosti tvo áfanga. Það þýðir að 300 megavött af þeim 600 sem álverið þarf verða að vera trygg áður en farið verður af stað með verkefnið. HS orka er með virkjana- leyfi fyrir 70 til 80 MW af orku á Reykjanesi, sem felst í stækkun núverandi 100 MW virkjunar. Orkuveita Reykjavíkur hefur afhent 50 MW til Norðuráls úr Sleggjunni svokölluðu, einum áfanga Hverahlíðavirkjunar. Eins og rakið er hér til hliðar gæti sú afhending dregið dilk á eftir sér. Samkvæmt samningum fara önnur 50 MW úr Hverahlíðar- virkjun til álversins. Allt í allt hefur því verið samið um 170 til 180 MW af orku. Það dugar fyrir fyrsta áfanga álvers- ins, en ekki þeim tveimur sem Norðurál hefur sett sem skilyrði fyrir því að í framkvæmdirn- ar verði farið. Þá er langt í land með að tryggja orku fyrir ál verið allt, eigi það að verða af þeirri stærðar gráðu sem ráð var fyrir gert í upphafi. Sala forsenda framkvæmda HS orka hefur leyfi til borunar á tveimur til þremur rannsóknar- borholum frá einum borteig á Sveifluhálsi. Áður en í þær fram- kvæmdir verður ráðist þarf að semja við Hafnarfjarðarbæ sem er eigandi landsins og auð- lindarinnar og fer að auki með skipulags vald á svæðinu. Þær við ræður eru í gangi. Væntingar standa til þess að hægt verði að reisa þar 50 til 100 MW. Sótt verð- ur um leyfi fyrir henni og farið í umhverfismat gangi það eftir og samningar nást um orkusöluna. Þá hyggur HS orka á rannsóknar boranir í Eldvörp- um í landi Grindavíkur. Róbert Ragnars son, bæjarstjóri Grinda- víkur, segir að samkvæmt aðal- skipulagi bæjarfélagsins sé gert ráð fyrir framkvæmdasvæði í Eld- vörpum. Það skipulag er í auglýs- ingu og fer svo til staðfestingar. Í þessa virkjanakosti verður ekki ráðist ef ekki liggja fyrir samningar um sölu orkunnar. Júl- íus J. Jónsson, forstjóri HS orku, segir að fyrir verði að liggja að framkvæmdir séu arðbærar áður en farið sé í fjármögnun þeirra. Lánsfé fáist einfaldlega ekki ef óvissa sé um arðbærni fram- kvæmdarinnar. Auk þessara framkvæmda hefur verið horft til virkjana Landsvirkj- unar í neðri hluta Þjórsár. Þær eru á nýtingarlista samkvæmt tillögu um rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða, en það gæti breyst í meðförum þingsins. Óvissa með sölusamninga Eiríkur Hjálmarsson, hjá Orku- veitu Reykjavíkur, segir einn- ig að samningur um sölu orku sé forsenda orkuöflunarinnar. Fjár- mögnun sé í óvissu varðandi Hverahlíðarvirkjun. „Það virðist ljóst að fjár mögnun verði ekki með hefðbundnum hætti, það er út á efnahagsreikn- ing OR með ábyrgðum eigenda.“ Hlé hefur verið á könnunar- viðræðum við lífeyrissjóði um aðkomu þeirra að verkefninu vegna óvissu um sölusamninginn. Norðurál deildi við HS orku og OR um sölusamningana og var máli fyrrnefnda fyrirtækisins vísað til gerðardóms. Hann úrskurðaði á dögunum og hafa Norðurálsmenn lýst því yfir að þeir hafi haft sigur í því máli. Á það ber þó að líta að skaðabætur vegna tjóns sem Norður ál taldi sig hafa orðið fyrir voru ekki samþykktar. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins samþykkir dómurinn umsamið orkuverð. Þeir fyrir varar eru þó gerðir að fram kvæmdir verði að vera arðbærar. Þar stendur hnífurinn í kúnni; orku- fyrirtækin segja einfaldlega að miðað við núverandi samninga sé ekki um arðbærar fram kvæmdir að ræða. Lóðir og leyfi tilbúin Reykjanesbær hefur úthlutað lóð fyrir álver í Helguvík. Árni Sig- fússon bæjarstjóri segir ýmislegt hafa verið gert til undirbúnings álverinu. Hafnaraðstaða sé tilbúin sam- kvæmt samningum, en brygg- jukantur og frágangur verði unn- inn þegar mál liggja skýrar fyrir. Þá hafi akstursleið verið gerð frá svæðinu að álverinu, en aðeins yfirborðsfrágangur sé eftir. Þá lauk umhverfismati álvers- ins í október 2007 og umhverfis- mati suðvesturlínu í september 2009. Fyrirhugaðar virkjana- framkvæmdir, verði í þær ráðist vegna álversins, eru þó skemur á veg komnar. Jónas Ketilsson, verkefnastjóri jarðhitanýtingar hjá Orkustofnun segir að engin virkjanaleyfi séu á borði stofnunarinnar frá HS orku eða Orkuveitunni. Landsnet sér um dreifingu orku og er undirbúningi suðvestur- línu að mestu lokið. Með henni á að flytja orku frá Suðurlandi á Reykjanes. Orka frá Hellisheiði og Reykjanesvirkjun fer einnig inn á línuna. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, segir umhverfismat framkvæmdarinnar liggja fyrir, engin mál standi út af borðinu sem hamli verkefninu. Afstaða sveitarstjórnar Voga á Vatnsleysuströnd gæti þó sett strik í reikninginn, en hún krefst þess að línur fari í jörð í sveitar- félaginu. Þórður segir að kostn- aður fyrir loftlínu sé 45 milljón- ir króna per kílómetra. Leiðin í gegnum Voga sé 17 kílómetrar og það að leggja línuna í jörð sexfaldi þann kostnað. Slíkt muni þýða átta prósenta gjaldskrárhækkun til almennings og 16 prósenta til stórnotenda. Sveitarfélagið styður hins vegar framkvæmd álversins. „Af hálfu Sveitarfélagsins Voga stendur ekkert í veginum fyrir því að hefja byggingu álvers í Helgu- vík. Sveitarfélagið Vogar styður þessa uppbyggingu sem og aðra uppbyggingu atvinnulífs á svæð- inu.“ Stendur ekki upp á ríkið Samkvæmt upplýsingum frá umhverfisráðuneytinu eru engin leyfi vegna fyrirhugaðra fram- kvæmda á borði ráðuneytisins. Hið sama má segja um iðnaðar- ráðuneytið. „Við gerðum fjárfestingarsamn- ing við Norðurál árið 2009 og það er það sem heyrir beint að okkur. Annað hefur ekki komið inn á borð ráðuneytisins, en það er Orku- stofnun sem veitir virkjanaleyfi,“ segir Kolbeinn Marteinsson, aðstoðarmaður iðnaðarráðherra. Iðnaðarráðherra hefur staðið fyrir tveimur stórum samráðs- fundum með deiluaðilum um málið. Ágúst F. Hafberg, hjá Norðuráli, segir að fyrirtækinu sé ekkert að vanbúnaði varðandi álverið, þegar því sem úti stendur varðandi orku- samninga hefur verið leyst. „Norðurál hefur fengið öll til- skilin leyfi fyrir álveri í Helgu- vík. Mati á umhverfisáhrifum er lokið. Starfsleyfi, byggingarleyfi, útblástursleyfi og öll önnur leyfi liggja fyrir. Fjármögnun verkefn- isins verður ekki fyrirstaða. Bæði Norðurál Helguvík og Norðurál á Grundartanga eru skuldlaus við lánastofnanir. Samkvæmt síðasta uppgjöri Century Aluminum átti félagið yfir 26 milljarða í sjóði.“ FRÉTTASKÝRING: Álver í Helguvík Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Reykjanesvirkjun Sveifl uháls Straumsvík Helguvík Geitháls Kolviðarhóll Hellis- heiði Svartsengi Suðvesturlína Fyrirhuguð lega Suðvesturlínu Raforkan er enn þá óvissuþáttur HELGUVÍK Framkvæmdir við hafnarmannvirki og álver í Helguvík eru hafnar þrátt fyrir að ekki hafi verið tryggð næg orka fyrir verksmiðjuna í samningum. Þá ríkir óvissa um orkuverð sem hamlar frekari virkjanaframkvæmdum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HS orka hefur stefnt deilu við Norðurál vegna orkuafhendingar fyrir gerðardóm. Nýfallinn er úrskurður gerðardóms í annarri deilu fyrirtækjanna. Málið snýst um að Norðurál nýtti sér ákvæði í samningum um að taka ekki til fulls við þeirri orku sem kveður á um í samningum. Það átti við um öll orkufyrirtækin þrjú; HS orku, OR og Landsvirkjun. Mismunandi er hve við- tökuhlutfallið lækkaði mikið, í sumum tilfellum tekur fyrirtækið aðeins við 85 prósentum af þeirri orku sem um var samið. Orkufyrirtækin telja þetta ákvæði aðeins eiga við um stóráföll og ekki það ástand sem nú er uppi. HS orka krefst aðildar OR að málinu þar sem um sameiginlegan orkusölu- samning er að ræða. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort Landsvirkjun fari sömu leið. Júlíus J. Jónsson, forstjóri HS orku, segir að málið muni ekki liðka fyrir samningum við Norðurál um aðra þætti. Menn muni þó reyna að ná sem bestum árangri úr samningum. Aðalatriði varðandi frekari framkvæmdir sé hins vegar að þær verði að vera arðbærar. Hann hefur ekki trú á því að fyrirtækið muni fara í frekari framkvæmdir vegna virkjana fyrir álverið áður en gerðardómur kveður upp úrskurð sinn. Mögulega verði ein eða tvær hola boraðar, en byggingar ekki reistar eða unnið frekar að virkjununum. Fyrra málið fór fyrir gerðardóm í júlílok 2010 og lauk nú í desember 2011. Deilan fyrir gerðardóm á ný Fjármögnun verk- efnisins verður ekki fyrirstaða. Bæði Norður- ál Helguvík og Norðurál á Grundartanga eru skuldlaus við lánastofnanir. ÁGÚST F. HAFBERG NORÐURÁLI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.