Fréttablaðið - 22.12.2011, Qupperneq 36
36 22. desember 2011 FIMMTUDAGUR
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
BYLTING Í
ÞÆGINDUM
Nú getur þú horft á Stöð 2 hvar og hvenær sem er.
Stöð 2 Netfrelsi gerir þér kleift að horfa á eftirlætis
þættina þína í tölvunni, farsímanum eða spjald-
tölvunni – þegar þér hentar.
TÖLVASNJALLSÍMI SPJALDTÖLVA
Nýjung fyrir áskrifendur Stöðvar 2
Allt uppáhaldsefnið þitt, innlent og erlent er aðgengilegt í tvær
vikur eftir frumsýningu. Farðu inn á stöð2.is, veldu Netfrelsi,
skráðu þig og byrjaðu að horfa - en hver þáttur kostar aðeins
30 Stöðvar 2 punkta fyrstu tvo mánuðina. Nýttu þér Stöð 2
Netfrelsi – hvar og hvenær sem er!
Eitt af því sem Landlæknis-embættið (sóttvarnalæknir) á
að fylgjast með og gefa upplýsing-
ar um til almennings er allt í sam-
bandi við eiturefni. Ekki er hægt
að segja að sóttvarnalæknir hafi
nokkurn tíma farið eftir þessum
lögum hvað varðar innihaldsefni
bóluefna, þar sem embættið hefur
svo vitað sé aldrei prentað eitt
eða neitt í því sambandi handa
almenningi.
Af einhverjum ástæðum virð-
ist sem að embættið leggi í raun
mikið á sig til að halda upplýs-
ingum frá almenningi en ekki að
upplýsa, þá vaknar sú spurning;
hvers vegna svo sé? Hvað þarf
eiginlega að eiga sér stað til þess
að farið sé eftir þessum lögum
og upplýsingar um innihaldsefni
bóluefna gefnar út, þurfa ein-
staklingar að veikjast alvarlega,
enda á spítala eða látast af völd-
um bólusetninga til þess að farið
verði að veita upplýsingar og gefa
út á prenti handa almenningi?
Það má vel vera að einhverj-
ir myndu kippa sér upp við það
ef þetta embætti eða hluti af
því yrði lagt niður í núverandi
mynd, þessi stofnun ef spurð er
um öryggi bóluefna bendir allt-
af á aðrar stofnanir. Það hefur
reyndar hvarflað að fólki að þetta
embætti sé eins og sérhagsmuna
þrýstihópur (Lobby), er hvorki
athugar reynslusögu bóluefna og
klínískar rannsóknir, en bendir
þess í stað eins og þrýstihópur
á aðrar stofnanir, haldin þessari
blindu stofnanatrú. Þrátt fyrir að
til séu niðurstöður er sýna fram
á töluverðan mun á bólusettum og
óbólusettum, eða þar sem:
Bólusett börn höfðu 120% meiri
líkur á astma.
Bólusettir drengir höfðu 317%
meiri líkur á ADHD.
Bólusettir drengir höfðu 185%
meiri líkur á taugasjúkdómum.
Bólusettir drengir höfðu 146%
meiri líkur á einhverfu (genera-
tionrescue.org/pdf/survey.pdf),
óbólusett börn með betri heilsu
(vaccineinjury.info/images/stor-
ies/ias1992study.pdf), og bólu-
sett börn með 2-5 sinnum fleiri
sjúkdóma en óbólusett börn
(healthfreedoms.org/2011/10/14/
big-study-vaccinated-kids-2-5-
more-diseases-than-unvaccina-
ted/).
Þarf hér samt sem áður að
troða inn fleiri umdeildum
bóluefnum, eins og núna þessu
umdeilda Synflorix-bóluefni
gegn pneumókokkum. Í öllum
áróðrinum til stjórnmálamanna
og almennings hefur sérstak-
lega verið passað upp á að minn-
ast ekkert á tengsl bóluefnis-
ins við 12 dauðsföll ungbarna í
Argent ínu, og tvö í Panama og
Síle er komu upp í klínískum
rannsóknum (mercola.com/sites/
articles/archive/2008/09/06/arg-
entina-investigates-deaths-of-
vaccinated-children.aspx) eða
neitt varðandi það að bóluefnið
sé orðið þekkt erlendis fyrir að
vera bæði hættulegt og umdeilt.
Hvað þá á aukningu á alvarlegri
lungnabólgu er gæti verið eftir
bólusetningu (independent.co.uk/
life-style/health-and-families/
health-news/increase-in-severe-
pneumonia-in-children-may-be-
caused-by-vaccine-808633.html).
Það er kannski rétt lýsing hjá
henni dr. Sherri Tenpenny að
lýsa svona löguðu sem gráðugri
atlögu að almenningi. Því að hvað
er þetta annað þegar heilbrigðis-
yfirvöld taka upp svona einhliða
áróður fyrir lyfja- og bóluefna-
risann og það með tiltölulega
nýtt bóluefni án þess að minn-
ast á einhvern af þeim mörgu
vanköntum bóluefnisins með
þessum innihaldsefnum, eins
og t.d. aluminium phosphate
er getur valdið taugaofnæmis-
röskunum. Ofnæmis röskunum
allt frá svæðis bundnum lömun-
um, algjörum lömunum (mænu-
sótt, lömunarveiki, heila- og/eða
mænubólga= polio, poliomyelit-
is o.s.frv.) og allt að því skyndi-
legum ungbarna dauða (SIDS),
vöggudauða og hrylli legum
krampadauðdaga sem lýsir sér
sem Shaken Baby Syndrome (no-
vaccine.com/vaccine-ingredients/
results.asp?s=2&sc=44&scienti-
fic=-&p=1).
Ál er einnig tengt við sjúkdóm-
inn Alzheimer, það mælist t.d.
mikið meira álmagn í heila sjúk-
linganna en þeirra sem ekki hafa
sjúkdóminn, auk þess sem eitur-
efnið ál er þekkt fyrir að valda
hrörnun á beinum, beinmerg og
heila.
Menn ættu ekki heldur að
reyna að segja að þetta bólu-
efni sé öruggt, þar sem vitað er
um alvarlegar aukaverkanir.
Markaðs leyfið var veitt þann 30.
maí 2008 og langtímaniðurstöð-
ur því ekki til, og efast ég um að
þessir embættismenn hér séu til-
búnir að taka á sig persónulegar
fjárhagslegar ábyrgðir fyrir því
að öll bóluefnin sem í notkun eru
séu örugg. Það má kannski benda
á það hér að lokum, að við búum
ekki við það sama og aðrar þjóðir,
hér hafa svo vitað sé yfirvöld (eða
Landlæknisembættið) ekki komið
fram og viðurkennt mistök eins
og yfirvöld í Svíþjóð og Finnlandi
gerðu, er þau viðurkenndu að
tengsl væru á milli bóluefnisins
gegn svínaflensu og svefnsýki/
drómasýki (narcolepsy) og buð-
ust reyndar til að greiða fórnar-
lömbum lyfja- og læknis kostnað
eða skaðabætur (thelocal.se/tag/
pandemrix#, og naturalnews.
com/033816_swine_flu_vaccines_
neurological_disorders.html).
En hér á landi heyrist ekkert
frá yfirvöldum þess efnis, hvað
þá um að til standi að greiða þess-
um fórnarlömbum hér eitthvað,
sennilega vegna þess að menn eru
haldnir þessari blindu stofnana-
trú að öll bóluefni sem hafa feng-
ið markaðsleyfi séu örugg.
Bólusetningaræðið með eiturefnum
Heilbrigðismál
Þorsteinn Scheving
Thorsteinsson
margmiðlunar-
fræðingur og meðlimur
í félagi áhugamanna
um bóluefni
Hvað þarf eiginlega að eiga sér stað til
þess að farið sé eftir þessum lögum og
upplýsingar um innihaldsefni bóluefna
gefnar út, þurfa einstaklingar að veikjast alvarlega...
AF NETINU
Besta hugmyndin
Perlan var að mínum dómi
besta hugmyndin sem hrint var
í framkvæmd í borgarstjóratíð
Davíðs Oddssonar og enda þótt
vel megi hugsa sér að utan í
hlíðinni rísi lágreistar byggingar
sem auka notagildi svæðisins,
verður að huga vel að því að
skemma í engu það, hvernig
Perlan lítur út tilsýndar frá
öllum hliðum.
Vel mætti nýta þann kost að
slíkar byggingar yrðu grafnar
niður að hluta til eða jarðvegur
fjarlægður þannig að hlíðin
verði brattari þar sem þær rísi.
Athyglisvert er að fylgjast með
því hvernig Hallgrímskirkja
hefur smám saman fengið
uppreisn æru ef svo má að orði
komast eftir hinar hatrömmu
deilur sem um hana urðu í
upphafi og stóðu lengi.
http://omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson
Ónýt leiguíbúðaskýrsla
Það er algerlega ljóst að
Reykjavíkurborg getur ekki
tekið afstöðu um stefnu í
húsnæðismálum á grundvelli
skýrslu Capacent. Reykjavík
verður að skoða ítarlega
búseturéttarformið og hús-
næðissamvinnufélagsformið
áður en næstu skref eru tekin.
Það sama á við ríkisstjórnina,
enda eru fjölmargir kostir við
búseturéttarformið auk þess
sem það getur á einfaldan hátt
leyst vanda ríkisstjórnarinnar
með stöðu lána Íbúðalánasjóðs
gagnvart Eftirlitsstofnun EFTA.
http://blog.eyjan.is/hallurm/
Hallur Magnússon