Fréttablaðið - 22.12.2011, Page 43

Fréttablaðið - 22.12.2011, Page 43
FIMMTUDAGUR 22. desember 2011 3 Opið til kl 22 til jóla Fleiri myndir á Facebook St. 36-48 Opið til kl 22 Jólakjólar – ótrúlegt úrval Tösku og hanskabúðin Skólavörðustíg 7 101 Reykjavík Sími 551 5814 www.th.is Gæða hanskar frá okkur er sígild jólagjöf www.belladonna.is Flott föt fyrir flottar konur, Jólatilboð 40-50% afsláttur af völdum vörum (Kjólar, tunicur, ermar og fl.) Stærðir 40-60 Flott jólaföt fyrir flottar konur Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is 35% afsláttur af öllum Jólarúm föt Jóladú kar Jólasv untur Jólapú ðar jólavörum Upphaflega keypti ég silkiprent- græjurnar til að prenta grafík- verk,“ segir Sæþór Örn Ásmunds- son sem ásamt eiginkonu sinni, Þorbjörgu Helgu Ólafsdóttur, framleiðir boli, púða, jólapapp- ír og fleira með áprentuðu silki- þrykki undir vörumerkinu Farvi. Nýjasta afurðin eru bolir fyrir börn með mynd af hreindýrs- hornum og eldrauðu nefi og bera þeir að sjálfsögðu nafnið Rúd- ólfur. Auk þess selja þau boli fyrir eldri börn og fullorðna með Rúdólfs mótífinu á barmmerki sem fylgir. „Áprentuðu bolirn- ir eru fyrir 2-10 ára börn,“ segir Sæþór. „Okkur fannst ekki ráðlegt að vera með mikið af nálum og slíku á barnabolunum. Við erum umhverfismeðvituð og höfum að leiðarljósi að nota vönduð og helst umhverfis væn efni, skiptum við Svansvottaðar prentsmiðjur og handþrykkjum allt textílefni.“ Jólapappírinn er líka með Rúdólfsmótífi, er hann í sérstöku uppáhaldi? „Nei, eiginlega ekki. Konan mín gerði jólamerkimiða með þessu mótífi og það þróaðist bara þannig að við notuðum það á barmmerki og boli. Rúdólfur hefur breitt úr sér og er orðinn eins konar einkennismerki fram- leiðslunnar. Kannski við ættum að breyta nafninu úr Farva í Rúdólf,“ segir Sæþór Örn og hlær. Sæþór vinnur við auglýsinga- gerð en auk þess málar hann og gerir videóverk. Þorbjörg Helga er grafískur hönnuður. Saman eiga þau tvær dætur. Sæþór segir fyrirtækið hafa þróast smátt og smátt í samstarfi þeirra hjóna og þau hafi ákveðið að láta reyna á það að hafa vinnustofuna á ann- arri hæð á Laugavegi 13 opna nú fyrir jólin. „En þetta er ekkert bundið við jólavertíðina hjá okkur. Það verður vonandi langt og far- sælt framhald á starfseminni enda eru hugmyndirnar óþrjót- andi og í undirbúningi er opnun netverslunar á slóðinni www. farvi.is.” fridrikab@frettabladid.is Rúdólfur breiðir úr sér á Laugaveginum fyrir jólin Á annarri hæð við Laugaveg 13 er lítil vinnustofa. Þar vinna hjónin Sæþór Örn og Þorbjörg Helga að framleiðslu alls konar hluta með silkiþrykki. Fyrir jólin er tekið úr lás og gestir boðnir velkomnir. Sæþór Örn og Þorbjörg Helga eru samhent hjón og vinna saman að þróun og fram- leiðslu varanna frá Farva. Dæturnar skarta Rúdólfsbolum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Fréttamaður CNN í íslenskri peysu FRÉTTARITARI CNN Í ÍRAK, MICHAEL HOLMES, KOM Á SKJÁINN Í JAKKA FRÁ 66°NORÐUR. Brottflutningur síðustu bandarísku hersveit- anna frá Írak var þónokkurt fréttaefni enda markaði það ákveðin kaflaskil í sögunni. Einn af fréttariturum bandarísku sjónvarps- stöðvarinnar CNN, Michael Holmes, lýsti brottflutningnum í beinni útsendingu. Þó að fatnaður fréttamanna sé sjaldnast fréttaefnið sjálft er það áhugavert fyrir Íslend- inga að Holmes klæddist jakka frá 66°Norður. Jakkinn er af gerðinni Glymur Softshell og tók fréttamaðurinn sig vel út í flíkinni.Michael Holmes í jakkanum góða í beinni útsendingu á CNN.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.