Fréttablaðið - 22.12.2011, Blaðsíða 77
FIMMTUDAGUR 22. desember 2011 61
Opið laugard. kl. 10-14
the d i v e r ’ s w a t c h
No other watch is engineered quite like a Rolex. The Submariner, introduced in
1953, was the fi rst watch to be water resistant up to 100 metres. It was later
strengthened by its patented triple-seal Triplock winding crown, making it capable
of withstanding depths of up to 300 metres. The new 40 mm Submariner is
presented here in 904L steel with a black Cerachrom disc.
the submariner
Jon Bon Jovi lenti í því óskemmti-
lega atviki á dögunum að orð-
rómur fór af stað á internetinu
um ótímabæran dauðdaga söngv-
arans. Það var lítill vefmiðill sem
bjó til fréttina, sem dreifðist á
internetið á örskammri stundu og
grætti marga aðdáendur hinnar
goðsagnakenndu sveitar, Bon
Jovi.
Söngvarinn virðist vera með
húmorinn í lagi því hann brást
snöggt við og birti á mánudag
mynd af sér fyrir framan jólatré
með blað í hendinni sem var dag-
sett 19. desember. Á blaðið stóð
skrifað: Himnaríki líkist New
Jersey mjög mikið.
Sannaði að
hann er á lífi
SPRELLLIFANDI Jon Bon Jovi fæddist
í New Jersey og þykir afar vænt um
heimaríkið sitt.
Hljómsveitirnar Of Monsters and
Men og Apparat Organ Quartet
eru á lista National Public Radio í
Bandaríkjunum, NPR.org, yfir þá
fimm flytjendur ársins 2011 sem
fólk má ekki missa af.
„Á plötunni My Head Is an
Animal er heillandi epískt þjóð-
lagapopp,“ segir blaðamaður
KEXP sem tekur upp tónleika
fyrir NPR, og líkir Of Monsters
and Men við Seattle-sveitina The
Head and the Heart og hina kanad-
ísku Arcade Fire. Bætir hann við
að platan hafi verið sú besta sem
kom út á þessu ári.
Um nýjustu plötu Apparat Organ
Quartet, segir hann: „Ef Kraft-
werk hefði gefið út plötu árið 2011
hefði hún líklega hljómað eins og
Pólýfónía. Fín til að hlusta á þegar
maður keyrir eftir hraðbrautinni
eða þegar maður flakkar um á net-
inu.“
Íslenskt á topp fimm
OF MONSTERS AND MEN My Head Is
an Animal er plata ársins 2011 að mati
blaðamannsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óskarsverðlaunastyttan sem leik-
stjórinn Orson Welles fékk fyrir
handrit kvikmyndarinnar Citizen
Kane var seld á uppboði í Kaliforníu
fyrir rúmar eitt hundrað milljónir
króna. Citizien Kane kom út árið
1941 og hefur löngum verið talin ein
besta mynd sögunnar. Welles samdi
handrit myndarinnar, leikstýrði
henni og lék aðalhlutverkið. Hún var
tilnefnd til níu Óskarsverðlauna en
fékk aðeins ein fyrir handritið. Ekki
hefur verið gefið upp hver keypti
styttuna en töframaðurinn David
Copperfield átti næsthæsta boðið.
Seld á 100 milljónir
CITIZEN KANE Citizen Kane hefur
löngum verið talin ein besta
kvikmynd sögunnar.
Kanye West sá til þess að tón-
leikagestur, sem henti litlum aug-
lýsingaspjöldum upp á svið á tón-
leikum hans og Jay-Z var rekinn
út úr húsinu. Gesturinn var í hópi
með fleira fólki og fyrst hótaði
West fokillur að fleygja öllum
hópnum út úr húsinu. Eftir að
hafa beðið hinn seka um að gefa
sig fram gerði hann það á endan-
um og fékk reisupassann að laun-
um. „Ef enginn réttir upp hendi
og játar þetta á sig verður allur
þessi hópur að yfirgefa salinn,“
kallaði West. Eftir uppákomuna
héldu tónleikarnir áfram eins og
ekkert hefði í skorist.
Brjálaðist á
tónleikum
ÓSÁTTUR Rapparinn Kanye West vill ekki
að drasli sé hent upp á svið til sín.