Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010
Víða erlendis tóku menn eftir þvíhve einkennilegur málflutn-
ingur Össurar Skarphéðinssonar,
utanríkisráðherra, var á blaða-
mannafundi í Brussel á dögunum.
Vefurinn Evrópuvaktin.is sagði tilað mynda í gær frá frétt í þýska
dagblaðinu Stuttgarter Zeitung þar
sem fjallað er um fundinn og aug-
ljóst er að þýska
blaðamanninum
fannst Össur
hlægilegur.
Annars vegarþótti lof-
söngur Össurar
um Evrópusam-
bandið ganga út
yfir öll eðlileg
mörk og hins
vegar komu ranghugmyndir hans
um evruna blaðamönnum sem við-
staddir voru í opna skjöldu.
Annað er ekki síður umhugs-unarvert í umfjöllun þýska
blaðsins. Þar er vikið að því að Ís-
lendingar, ólíkt utanríkisráðherra
landsins, hafi ekki verið spenntir
fyrir aðild. Svo segir:
Brussel vill hjálpa til við að teljaþeim hughvarf, því að fram-
kvæmdastjórn ESB og hinn belgíski
Vanackere vonast til að aðild Ís-
lands hleypi nýjum krafti í stækk-
unarferlið – líka gagnvart Tyrk-
landi.“
Þýski blaðamaðurinn velkist ekk-ert í vafa um að Evrópusam-
bandið ætlar sér ekki að gæta hlut-
leysis í upplýsingagjöf ef og þegar
baráttan hefst um hug og hjörtu Ís-
lendinga.
Ætlun ESB er að „telja þeim hug-hvarf“ því að sambandið telur
mikið í húfi. Áróðurinn verður
kyrjaður samtímis frá Brussel og
úr utanríkisráðuneytinu íslenska.
Össur
Skarphéðinsson
Össur í augum útlendinga
Veður víða um heim 5.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 15 léttskýjað
Akureyri 14 skýjað
Egilsstaðir 13 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 14 rigning
Nuuk 12 léttskýjað
Þórshöfn 11 alskýjað
Ósló 16 þrumuveður
Kaupmannahöfn 22 heiðskírt
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 21 léttskýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 18 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 20 heiðskírt
París 21 heiðskírt
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 skúrir
Berlín 25 skýjað
Vín 24 skýjað
Moskva 35 heiðskírt
Algarve 32 heiðskírt
Madríd 31 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 25 léttskýjað
Aþena 30 léttskýjað
Winnipeg 18 skúrir
Montreal 27 skýjað
New York 32 heiðskírt
Chicago 27 léttskýjað
Orlando 30 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
6. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:52 22:17
ÍSAFJÖRÐUR 4:38 22:40
SIGLUFJÖRÐUR 4:20 22:24
DJÚPIVOGUR 4:16 21:51
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Skortur á kjúklingakjöti í mat-
vöruverslunum virðist ekki ætla að
verða langvarandi vandamál. Greina
mátti skort í kjölfar þess að Matfugl
innkallaði vörur sínar úr verslunum í
síðustu viku eftir að upp komst um
salmonellusmit í fjórða sinn í ár. Nú
er hins vegar ljóst að hinn sívaxandi
hópur kjúklinganeytenda þarf ekki
að örvænta.
„Framleiðslan er komin á fullt og
samkvæmt niðurstöðum okkar í dag
er okkar fugl í lagi,“ segir Jósep
Svanur Jóhannesson, sölu- og mark-
aðsstjóri Matfugls. Full afgreiðsla
hafi farið í búðir í gær og í dag.
Rót vandans er þó ekki bara salm-
onellusýking hjá Matfugli. Einnig
hefur greinst salmonella hjá Reykja-
garði, sem sér um 40% markaðarins
fyrir kjúklinga. Þar greindist salmon-
ellan áður en smitaði kjúklingurinn
var seldur til verslana. Engu að síður
hafði það sömu áhrif og innköllunin –
minna var af kjúklingi í verslunum en
áður.
Nokkrir verslunarstjórar mat-
vöruverslana segjast hafa fundið fyrir
skortinum nú eftir helgina. Sveinn
Sigurbergsson, verslunarstjóri
Fjarðarkaupa, komst þannig að orði,
að tómlegt væri í hillunum. Flestir
verslunarstjórar eru þó bjartsýnir á
að vandamálið sé liðið hjá.
Enginn langvarandi kjúklingaskortur
Salmonellusmit hefur greinst hjá
báðum stærstu kjúklingabúunum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kjúklingar Eftirsótt neytendavara.
Hinn 28. júlí var gjaldþrotaskiptum
Björgunarmiðstöðvar Árborgar lok-
ið en Íslandsbanki leysti til sín hús-
næðið. Í byggingunni átti að vera að-
staða fyrir björgunarfélag,
sjúkraflutninga og slökkvilið. Að
sögn Ármanns Inga Sigurðssonar,
formanns björgunarfélagsins, kom
hrunið sér illa fyrir björgunarfélagið
og framkvæmdirnar stóðu þannig
ekki undir kostnaði. Hinn 7. október
2009 var björgunarmiðstöðin því
tekin til skipta með héraðsdómi.
Sveitarfélagið Árborg stendur nú í
viðræðum við Íslandsbanka um kaup
á eigninni til að halda úti þjónustu
þar.
Eyþór Arnalds bæjarfulltrúi segir
það markmið sveitarfélagsins að
starfseminni verði haldið áfram í
húsnæðinu. Hann áréttar þó að hún
muni sjálf standa undir öllum rekstr-
arkostnaði.
jonasmargeir@mbl.is
Björgunarmiðstöð
í eigu Árborgar
Ætlað að halda uppi starfseminni
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Björgunarmiðstöðin Krafan í þrotabúið nam tæpum 400 milljónum króna.
Elliðaárdalur –
Gvendar-
brunnar
Laugardaginn 7. ágúst kl. 10:00
efnir Orkuveita Reykjavíkur til
fræðslugöngu frá Minjasafni
Orkuveitunnar í Elliðaárdal,
upp dalinn að Gvendarbrunnum.
Meðal annars verður hugað að
ánni, örnefnum, jarðfræði, gróðri
og dýralífi. Fjölmargir fræðimenn koma til leiðsagnar. Gengnir verða
um 12 km en boðið verður upp á akstur til baka um kl. 16:00.
Þátttakendur þurfa ekki að koma nestaðir.
• Orkuveita Reykjavíkur rekur
stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
50
28
1
08
/1
0
Athugið að efni dagsins getur riðlast af
ýmsum ástæðum og er því bent á að nánari
upplýsingar er að finna á vef Orkuveitunnar.