Morgunblaðið - 06.08.2010, Side 16

Morgunblaðið - 06.08.2010, Side 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Laxveiðimenn í ám á vestanverðu landinu hafa margir hverjir átt erf- itt á síðustu vikum sökum þurrka, eins og vitað er. Það er þó ekki al- gilt, þótt ástandi margra ánna megi lýsa þannig að þær renni varla sök- um þess hve þurrar þær eru. Einn veiðimaður sem rætt var við reyndi að sjá jákvæða hlið á ástandinu. „Veiðistaðirnir héldu engum fiskum og þeir tóku ekki en ég notaði þá bara tækifærið til að vaða í öllum pollunum til að skilja betur hvar laxinn lægi, næst þegar ég kæmi í góðu vatni,“ sagði hann. Ekki þurfti þó mikla úrkomu á sunnanverðu Snæfellsnesi til að hleypa lífi í Hafralónsá í vikunni, en það var fyrsta rigningin þar í fimm vikur. Veiðimenn settu þá strax í marga laxa og suma verulega stóra, að sögn Einars Sigfússonar, annars eiganda árinnar. „Þá veiddist einn hnausþykkur við Gömlu brú sem mældist 105 cm, 23 punda lax samkvæmt kvarð- anum,“ sagði hann. „Daginn eftir veiddist síðan metralangur fiskur, tuttugu pundari. Það er gríðarlega mikið af laxi í ánni og mikið af stórum fiski. Við erum lukkuleg með þessa úr- komu, þótt hún hafi ekki verið mik- il.“ Nálægt 1300 löxum hafa nú veiðst í Haffjarðará, en það er um 300 löx- um meira en á sama tíma í fyrra. Ævintýri í Hnausastreng Það er sama sagan að þar sem eitthvað hefur rignt eftir viðvarandi þurrka í júlímánuði hefur veiðin tekið kipp. Svo mun vera í Vatns- dalsá þar sem fleiri tugir laxa hafa veiðst á þremur síðustu dögum og þar á meðal allnokkrir 18, 19 og 20 punda nýgengnir laxar. Blaðamaður ræddi við hina kunnu bresku veiði- konu Lillu Rowcliffe sem var í Vatnsdalsá í vikunni og sagðist hún hafa lent í einstöku ævintýri í Hnausastreng síðasta morguninn, þar sem hún var við veiðar ásamt Sigurði Árna Sigurðssyni. „Ég var að veiða á litla hits-túpu og þá kom þetta risastóra bak upp þegar laxinn tók flugunna. Þetta var þung og hljóð taka og laxinn sigldi hægt og rólega niður allan strenginn. Það skipti engu máli hvað hert var á bremsunni, ég vissi að ég myndi aldrei ráða við þessa skepnu, enda fór svo að lokum að hann sleit úr sér. En þetta var ógn- arstór fiskur og mikið ævintýri,“ sagði Rowcliffe sem er komin hátt á níræðisaldur en veiðir engu að síður í tvær vikur hér á landi í sumar. Hún hefur glímt við marga metlaxa, eins og greint hefur verið frá í bók- um, en sagði að Vatnsdalsártröllið hefði án efa verið einn þeirra stærstu. Frábær veiði í Þverá og Kjarrá Athyglisvert er að rýna í veiðitöl- ur aflahæstu laxveiðiánna, sem sjá má hér til hliðar. Tölurnar úr Blöndu eru vikugamlar en þar er engu að síður þegar komin metveiði, um eða yfir 2.500 laxar. Blanda er hinsvegar að fara á yfirfall og dreg- ur því eflaust úr veiði núna. Frábær veiði hefur áfram verið í Þverá og Kjarrá, árnar sitja efstar á listanum og gaf síðasta vika þar efst í Borg- arfirðinum um 200 laxa. Hörkuveiði er í Rangánum, hátt í 100 laxar veiðast á dag í hvorri ánni. Að sögn Einars Lúðvíkssonar um- sjónarmanns Eystri-Rangár hefur áin oft verið skoluð á morgnana undanfarið, vegna ösku sem skolast niður ána. Hún er orðin tærari þeg- ar líður á daginn og þá er takan oft ævintýraleg. Einn veiðimaður sem blaðamaður frétti af fékk þannig ell- efu laxa á seinni vaktinni í vikunni og setti í fleiri. Hann sagði mikið af laxi vera á öllum veiðistöðum. „Ógnarstór fiskur og mik- ið ævintýri“  Laxveiðin glæddist um leið og rigndi Stórlaxar Bubbi Morthens lyftir gríðarþykkri hrygnu við Knútsstaði í Laxá í Aðaldal. Vó laxinn tæp 22 pund. Aflahæstu árnar Heimild: www.angling.is 1.345 1.767 2.593 1.242 1.661 1.445 1.020 727 1.039 1.045 620 486 793 430 485 Staðan 4. ágúst 2010 2.445 2.453 1.536 1.281 1.652 1.327 1.108 1.123 865 939 808 615 545 530 545 Þverá + Kjarará (14) Blanda (12) Ytri-Rangá & Hólsá (18) Eystri-Rangá (18) Norðurá (14) Miðfjarðará (10) Haffjarðará (6) Grímsá og Tunguá (8) Selá í Vopnafirði (7) Langá (12) Elliðaárnar (6) Laxá í Aðaldal (18) Víðidalsá (6) Laxá í Leirársveit (6) Laxá í Kjós (10) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði 2.641 2.453 2.111 1.726 1.724 1.606 1.262 1.233 1.105 998 897 765 650 638 590 Á sama tíma í fyrra Veiðin 28. júlí Vinnumálastofnun, Háskólann á Bif- röst og Keili, svonefnda miðstöð vís- inda, fræða og atvinnulífs. Hann var metinn hæfastur um- sækjenda um embætti skuldara. Fór félags- og tryggingamálaráðherra eftir hæfismatinu og birti í fyrradag rökstuðning fyrir ákvörðuninni að beiðni Ástu. Hún var metin næsthæfust um- sækjenda en vildi ekki tjá sig um matið eða rökstuðning ráðherra en hvort tveggja hefur verið birt. Hún hefur áður sagt að hún hafi efast um að faglega hafi verið staðið að ráðn- ingu Runólfs. Ásta stýrði Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna frá árinu 2003 þar til embætti umboðsmanns skuld- ara tók við verkefnum hennar. Er embætti umboðsmanns skuldara ætl- að að taka yfir öll verkefni stofunnar og að auki að sinna öðrum verkefnum í þágu skuldara. Í niðurstöðunni er hún sögð hafa staðgóða þekkingu og reynslu sem nýst geti í starfi emb- ættisins en fleira er ekki talið til. Sama orðalag er notað um reynslu Runólfs. Fram kemur að viðtal við Ástu hafi ekki bætt neinu við umsókn eða und- irstrikað burði hennar til að gegna embætti umboðsmanns skuldara. Viðtal við Runólf er hinsvegar sagt hafa undirstrikað burði hans til starf- ans og bætt við umsókn hans. Run- ólfur fékk 23 stig í matinu en Ásta 21. Enginn biðlaunaréttur Samkvæmt upplýsingum frá félagsmálaráðuneytinu nýtur Runólfur hvorki réttar til bið- launa né launa á uppsagnar- fresti samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins. Hann mun þó fá laun fyrir þá þrjá daga sem hann gegndi starfinu, 1.-3. ágúst. Þar af var einn virkur dagur. Umboðsmaður eftir jaml og fuður  Ásta metin næsthæfust og hefur störf 9. ágúst  Þriðji umboðsmaður skuldara á jafnmörgum dögum  Viðtal Runólfs undirstrikaði burði hans, viðtal Ástu bætti engu við  Runólfur fær þriggja daga laun Morgunblaðið/Kristinn Umboðsmaður Ásta Sigrún Helgadóttir var í gær skipuð í embætti umboðs- manns skuldara en hún stýrði áður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Stiklað á stóru » Félagsmálaráðherra fór eftir hæfismati ráðningarskrifstofu þegar hann skipaði Runólf. » Að sögn ráðherra sagði Run- ólfur sig frá embættinu eftir að ráðherra tjáði honum að hon- um væri ekki stætt á að gegna því hefði hann notið skuldafyr- irgreiðslu sem almenningi byð- ist ekki. » Hlutverk umboðsmanns skuldara er að veita fólki í verulegum greiðsluerfiðleikum endurgjaldslausa aðstoð og ráðgjöf. Trausti Fannar Valsson, lektor í stjórnsýslurétti við HÍ, segir að í ljósi eðlis og hlutverks umboðs- manns skuldara sé ekki útilokað að það teljist málefnalegt að líta til fjárhags- og skuldastöðu um- sækjanda. Matið um þetta sé ekki svarthvítt og erfitt að slá því föstu. Þegar skilyrðum laga sleppir tekur málefnalegt mat stjórnvalda við. Þar sem tiltekin fjárhagsstaða geti rýrt traust umsækjanda í starfi og heimild sé í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins til að víkja mönnum úr embættum fyrir athafnir sem til þess eru fallnar telur Trausti að þessi sjónarmið geti komið til greina við mat á umsækjendum. Ekki er öðrum lagaákvæðum fyr- ir að fara um þetta. Trausti segir þó óskýrt, í ljósi þess hvernig starfslok Runólfs bar að, hvort hægt sé að líta svo á að fjárhagsstaða hans hafi komið inn í mál- ið sem sjónarmið í sam- bandi við matið. Getur talist málefnalegt MATIÐ OG SKULDASTAÐAN Runólfur Ágústsson FRÉTTASKÝRING Skúli Á. Sigurðsson skulias@mbl.is „Ég er bara mjög sátt,“ segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara, um skipan hennar í emb- ættið. Hún vill ekki tjá sig um að- draganda ráðningarinnar og kveðst vilja horfa til framtíðar; segist hún hlakka til að takast á við starfið og verkefni sem fyrir liggja. Hún telur að sviptingar í aðdrag- anda ráðningar hennar muni ekki hafa neikvæð áhrif á embætti eða rýra traust fólks til þess. Þá kveður hún engan kala á milli sín og Árna Páls Árnasonar, félags- og trygg- ingamálaráðherra, vegna málsins. Milli þeirra ríki traust og trúnaður. Árni Páll skipaði Ástu í embætti umboðsmanns skuldara í gær eftir miklar sviptingar í aðdraganda ráðn- ingarinnar. Hún er þriðji umboðs- maður skuldara á jafnmörgum dög- um en hún hefur störf hinn 9. ágúst. Gegndi Runólfur Ágústsson embætt- inu í einn virkan dag en sagði sig frá því á þriðjudag. Daginn eftir tók Ingi Valur Jóhannsson, deildarstjóri í fé- lagsmálaráðuneyti, við þar til skipað væri í stöðuna til frambúðar. Runólfur 23, Ásta 21 Í niðurstöðu hæfnismats ráðning- arstofunnar STRÁ MRI er töluvert lagt upp úr reynslu Runólfs af upp- byggingu stofnanastarfsemi og er um það vísað til starfa hans fyrir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.