Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.08.2010, Blaðsíða 24
24 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2010 ✝ Ingólfur Hjart-arson fæddist 7. september 1942 á Eyri við Ingólfsfjörð. Hann lést þann 29. júlí 2010. Foreldrar hans voru Hjörtur Hafliða- son, húsasmíðameist- ari í Reykjavík, f. 13.7. 1913, d. 28.4. 2010 og Guðbjörg Hólmfríður Ein- arsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 8.12. 1916, d. 21.4. 1998. Bræður Ingólfs eru: 1) Hafliði, húsasmíðameistari, kvæntur Jón- ínu B. Sigurðardóttur, skrif- stofustjóra. 2) Hjörtur, kerfisfræð- ingur, kvæntur Steinunni Káradóttur, leiðbeinanda. 3) Gunnar Ingi, viðskiptafræðingur, kvæntur Ragnheiði Torfadóttur, kennara. Eftirlifandi eiginkona Ingólfs er Lára Björnsdóttir, fé- lagsráðgjafi MA og fyrrverandi fé- lagsmálastjóri Reykjavík- urborgar, f. 25.10. 1943 á Stöðvarfirði. Foreldrar hennar voru Björn Stefánsson, kaup- félagsstjóri, f. 7.4. 1910, d. 5.8. 1997 og Þorbjörg Einarsdóttir, f. 1975. Ingólfur stundaði einnig nám í félaga- og vátryggingarrétti við Leeds University í Englandi 1985-1986. Ingólfur varð hdl. 1970 og hrl. 1991. Hann var formaður Orators 1967-1968 og í stjórn Lögmanna- félagsins 1993-1995. Ingólfur var hótelstjóri á Hótel Garði sumrin 1967 og 1968. Skrifstofustjóri hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur- borgar frá 1.12.1969 og fram- kvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta frá 1973 til 1976. Ing- ólfur kenndi félagsfræði við Fóstruskóla Sumargjafar frá 1970 til 1974. Hann kenndi einnig við Kvennaskólann í Reykjavík 1973- 1974 og við félagsvísindadeild Há- skóla Íslands (félagsráðgjafarsvið) 1981-1983. Hann rak lögmanns- stofu í Reykjavík frá 1976 og stofnaði Lögheimtuna hf. með Ás- geiri Thoroddsen hrl. 1981 og Lögfræðiþjónustuna hf. 1987 ásamt William Thomas Möller hdl., Kristjáni Ólafssyni hdl., Láru Hansdóttur hdl. og Ingibjörgu Bjarnardóttur hdl. Ingólfur var aðaleigandi hugbúnaðarfyrirtæk- isins Outcome frá árinu 2004 og rak lögmannsstofu til loka ársins 2009. Útför Ingólfs fer fram frá Guð- ríðarkirkju í Grafarholti föstudag- inn 6. ágúst 2010 og hefst athöfnin kl. 11. 16.8. 1915, d. 11.6. 2005. Börn Ingólfs og Láru eru: 1) Jón, tölvunarfræðingur, f. 6.12. 1967, kvæntur Fjólu Gunnarsdóttur, nema, f. 5.2.19 68. Börn þeirra eru Hall- dór Rúnar Jónsson, f. 1991, Iðunn Andr- ésdóttir, f. 1997 og Elísabet Jónsdóttir, f. 2007. 2) Hildur Björg, læknir, f. 5.8. 1973. Dóttir hennar er Rebekka Lára Rósantsdóttir, f. 2003. 3) Björn Freyr, viðskiptafræðingur, f. 5.12. 1977, kvæntur Birnu Hlín Kára- dóttur, lögfræðingi, f. 30.4. 1978. Synir þeirra eru Húni Ingólfur Björnsson, f. 2005 og Birnir Kári Björnsson, f. 2008. Ingólfur ólst upp í Reykjavík og var átta sumur frá sex ára aldri í sveit á Helgastöðum í Hítardal á Mýrum. Hann varð stúdent frá Verzlunarskóla Íslands 1963 og cand. juris frá Háskóla Íslands 1969. Ingólfur kynnti sér sveit- arstjórnarlöggjöf Norðmanna í Osló 1971 og lagði stund á fé- lagarétt við Oslóarháskóla 1974- Ég get ekki lýst pabba. Hvað hann var mér. Hvað hann hefur gert fyrir mig. Stoltur, lífsglaður, atorkusamur, bjartsýnn, réttsýnn, heiðarlegur, dug- legur, praktískur, veiðifélagi, náttúru- barn, fjölskyldumaður, traustur, traustastur. Hann hafði ástríðu fyrir veiðiflugum og bindum. Hann skrifaði lista. Hann sagði sögur. Hann elskaði Mólæk. Hann var allt þetta. Hann var miklu meira. Það er ekki möguleiki á að vera föðurbetrungur með pabba eins og hann. Óteljandi sögur. Ótelj- andi minningar. En samt ekki nógu margar. Ekki nógu margar fyrir strákana mína. Ég hélt alltaf að pabbi yrði hundrað ára. Við erum staddir í Norðurá, byrjun júní. Vorveiði. Þrír dagar. Áin er mikil og laxinn vantar. Það er norðangarri en þó sól. Við lemj- um ána. Farnir út fyrir sjö. Komnir inn eftir tíu. Sjáum ekki lax. Ég er byrjaður að örvænta. Vil fara inn í hús að horfa á HM. Sofa kannski smá út. Pabbi heldur áfram með bros á vör. Hann er sannfærður um að sá silfraði taki í næsta kasti. Björn Freyr Ingólfsson. Ingólfur tengdafaðir minn var af- burðamaður bæði í leik og starfi. Það á ekki við um alla en það átti svo sann- arlega við um hann. Ég er þakklát fyr- ir að hafa fengið að kynnast honum og njóta samvista með honum síðastliðin 8 ár. Ég á jafnframt erfitt með að sætta mig við fráfall hans sem bar að allt of snemma. Það er sorglegt að hugsa til þess að nú hafa synir mínir og hin barnabörnin misst besta afa sem hægt er að hugsa sér. Aldrei hef ég kynnst fullorðnum manni sem er jafn þolinmóður, skemmtilegur og góður við barna- börnin sín. Hann var alltaf tilbúinn í leik með krökkunum, hvort sem það var feluleikur eða bara að liggja á gólf- inu með kubba eða púsl. Húni Ingólfur sá ekki sólina fyrir afa sínum og bað ósjaldan um að fá einfaldlega að búa hjá honum. Það var heldur ekkert meira spennandi en þegar afi Ingólfur kom að sækja hann í leikskólann og ekki var verra ef förinni var heitið í sumarbústaðinn. Birnir Kári var að sama skapi búinn að uppgötva þennan góða afa og orðinn hændur að honum eins og bróðirinn. Þeir tveir fengu góðar stundir saman í síðustu sum- arbústaðarferð Ingólfs nú í sumar þar sem Ingólfur kubbaði og púslaði með þeim stutta með þessari yndislegu þol- inmæði og ástúð sem var svo einstök. Erfið veikindi höfðu þar engin áhrif. Þrátt fyrir að drengirnir eigi marga góða að þá er vandséð að fyllt verði í það skarð sem afi Ingólfur hefur skilið eftir. Fyrir mína hönd og sona minna vil ég þakka Ingólfi fyrir ógleymanlegar stundir og stuðning í einu sem öllu. Hvíl í friði, elsku Ingólfur. Birna Hlín. Myrkrið hrekur hann á braut, hjálpar vel í sorg og þraut. Hvert sem leiðin liggur þín lýsir hann þér heim til sín. (Kristján Valur Ingólfsson) Elsku afi. Takk fyrir að vera afi minn og vera svona góður afi. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Takk fyrir að vilja alltaf leika við mig. Takk fyrir að byggja sumarbústaðinn. Takk fyrir að fara svona oft með mér upp í sumarbústað og fara með mér niður að læk og vaða með mér og fara með mér í pottinn. Takk fyrir að kenna mér að smíða. Viltu vera engillinn minn og passa mig? Þín Rebekka Lára. Mágur minn, Ingólfur Hjartarson er látinn. Eftir að Lára, systir mín og Ingólfur felldu hugi saman voru þau alltaf nefnd í sama orðinu í fjölskyld- unni. Í nærri fjóra áratugi hafa þau, ásamt börnum og barnabörnum, verið fastur punktur í tilverunni. Samgang- ur var mikill milli fjölskyldna okkar, enda við Lára náin frá fyrstu tíð. Þau hjón voru afar gestrisin og nutum við Anna þess ríkulega, ásamt börnum okkar og barnabörnum. Ógleyman- legar eru allar heimsóknirnar á fal- legu heimilin þeirra, hvort sem var í Laugarásnum, á Meðalbrautinni, Æg- isíðunni eða Ólafsgeislanum. Alltaf var jafn vel á móti okkur tekið hvernig sem á stóð og voru þau Ingólfur og Lára boðin og búin að veita alla þá hjálp sem stóð í þeirra valdi ef vandi steðjaði að. Ég vil nú að leiðarlokum þakka Ing- ólfi, mági mínum innilega alla þá vin- semd og hjálpsemi sem hann og fjöl- skylda hans auðsýndu okkur Önnu og börnum okkar alla tíð. Ingólfur Hjartarson var vandaður maður til orðs og æðis. Rólegur í fasi og kastaði ekki höndunum til neins. Hafði tamið sér stillingu og varfærni í tali og framkomu. Slíkir eiginleikar eru dýrmætir og skipta oft sköpum í mannlegum samskiptum. Aldrei lét hann styggðaryrði falla í minn garð eða neins úr fjölskyldu minni, né reyndar nokkurs manns svo ég heyrði. Handgenginn íslenskri náttúru frá unga aldri og veiðimaður svo af bar. Áttum við það sameiginlegt að byrja snemma í skammdeginu að bolla- leggja útivist, veiðiferðir og náttúru- skoðun, hlökkuðum báðir alltaf jafn mikið til vorsins. Mér þótti mikil reisn yfir því hvern- ig Ingólfur lifði síðasta árið sitt. Vissi þó vel að hverju fór. Æðrulaus, já- kvæður og brosandi til hinstu stundar gaf hann fjölskyldu sinni allt sem hann gat. Betri viðskilnaðar gætum við dauðlegir menn ekki óskað okkur. Elsku Lára, orð eru lítils megnug á stund sem þessari, ég get aðeins þakk- að í auðmýkt allt hið góða sem þið Ing- ólfur létuð mér og mínum í té. Þér, elsku systir mín, votta ég mína dýpstu samúð, svo og börnum ykkar og barnabörnum. Eysteinn Björnsson. Það er með söknuði og trega að ég kveð mág minn, Ingólf Hjartarson. Í huga mínum er einnig þakklæti og gleði yfir að hafa kynnst honum og átt hann að. Hann skilur eftir sig fallegar minningar, sem mig langar að þakka fyrir. Fjölskylda mín og ég minnumst hlýju hans við okkur frá fyrstu tíð. Hann tók okkur alltaf opnum örmum þegar við komum til Íslands og ekki ósjaldan gistum við á heimili hans og Láru systur minnar. Þar fór traustur og góður maður sem ég dáðist að. Ing- ólfur hafði fallega framkomu og um- gekkst alla með ró, virðingu og hlýju og það var gott að vera í nærveru hans. Hann hlustaði með eftirtekt á börn og fullorðna og sýndi mönnum og málefnum þeirra áhuga og virðingu. Ég er mjög þakklát fyrir allt sem Ing- ólfur gerði fyrir mig og fjölskyldu mína og margt væri hægt upp að telja. Það er mynd, sem ég hef varðveitt af Ingólfi í hjarta mínu, sem lýsir honum svo vel. Ég hafði sótt um starf við Staf- holtsprestakall í Borgarfirði vorið 2008 og viðtalið átti að vera að Bifröst. Ingólfur og Lára voru að fara í sum- arbústað sinn í Borgarfirði og buðu mér að koma með sér og að keyra mig að Bifröst næsta dag. Samveran með þeim þessa helgi reyndist mér hin mesta gjöf og ég skildi eftir á hvað hafði verið aðalatriði erindis míns. Hvílík fegurð var í landinu þeirra í Borgarfirði, loftið var tært, ilmur úr jörðu, himinninn fagur og blár, kyrrð- in var heilög og aðeins fuglarnir kvök- uðu. Ég sá að Ingólfi leið vel á þessum stað. Hann var glaður og einstakur friður var yfir honum. Það fyrsta sem hann gerði var að taka fram íslenska fánann og gekk út til að reisa hann við hún. Ég fylgdi honum eftir og stóð við hlið hans. Ég sá í svip hans kærleik- ann til þessa fagra lands og þá virð- ingu og þökk sem fáninn bar merki um. Þegar við gengum til baka sýndi hann mér hvar maríuerlan hafði byggt hreiður við húsið og síðan benti hann mér á litlu hagamúsina, sem trítlaði um og sinnti búi sínu. Ingólfur brosti mildu og fallegu brosi og það var greinilegt að þessir litlu vinir hans fundu sig örugga í nærveru hans. Ég naut mikils kærleika, stuðnings þeirra og gleði í þessu óspillta og undurfagra umhverfi. Ég hafði sett mig í stelling- ar fyrir viðtalið. Við þrjú keyrðum af stað í áttina að Bifröst. Ingólfur sat við stýrið og réð ferðinni. Ég sat og hugs- aði um hvaða spurningar yrðu lagðar fyrir mig að Bifröst. Ingólfur stöðvaði bílinn. Við vorum komin að Stafholts- kirkju. Að hans mati hlaut það að skipta meginmáli að við færum fyrst í kirkjuna. Við gengum upp tröppurnar og ég reyndi að opna dyrnar en tókst það ekki. Ingólfi voru þó allir hlutir færir. Með ró sinni og handlagni opn- aði hann og leiddi síðan okkur systur inn í helgidóminn. Ég fann að Ingólfur var trúaður maður og hafði til að bera andlegan styrk. Ég fann líka hve inni- lega mér þótti vænt um hann og Láru og hversu mjög ég naut þess að vera með þeim. Takk, elsku Ingólfur, fyrir að þú komst inn í fjölskyldu okkar! Guðs blessun fylgir þér inn í fyr- irheitna landið, þar sem okkur öllum er búinn staður gleði og kærleika. Guðbjörg Ólöf Björnsdóttir. Ingólfur mágur og svili okkar er lát- inn um aldur fram. Hans verður sárt saknað úr laufabrauðsbakstri, jóla- boðum og afmælum þar sem gaman var að spjalla við hann um hvaðeina. Hann hafði gott skopskyn og sagði skemmtilega frá en var einnig góður hlustandi. Ingólfur starfaði síðustu áratugina sem lögmaður og stofnaði fyrst Lögheimtuna og síðar Lögfræði- þjónustuna þar sem undirrituð vann með honum um margra ára skeið. Ing- ólfur hafði mikið vinnuþrek, vann langan vinnudag og naut þess að vinna. Alltaf gaf hann sér þó tíma til að ræða lögfræðileg álitamál við sam- starfsmenn sína. Laxveiðin var Ingólfi mikil ástríða en jafnframt kærkomin hvíld frá lög- mannsstörfunum. Hann var einn af þessum laxveiðimönnum sem var fyrstur á árbakkann og síðastur í veiðihús. Bjartsýni hans á veiði var hreint óbilandi og þó að áin væri talin fisklaus og allir búnir að gefast upp þá hélt Ingólfur áfram að reyna. Hann komst á bragðið við laxveiðar með föð- ur sínum í Laxá í Kjós og í áratugi fóru þeir feðgar saman á hverju ári í Elliða- árnar. Hjörtur var andstæða Ingólfs í veiðiskap, alltaf sannfærður um í upp- hafi hverrar veiðiferðar að þeir fengju ekkert. Oftar en ekki hafði bjartsýnin betur og þeir náðu að landa einum góðum og þannig bjarga veiðiferðinni. Vorið 2009 fann Ingólfur fyrir þrekleysi og þegar hann fékk blóðtappa í fót var hann sendur í rannsóknir. Við glödd- umst með fjölskyldunni þegar ekkert óeðlilegt fannst en síðar um sumarið fengum við þá hörmulegu fregn að hann hefði greinst með krabbamein. Ingólfur tók þessari frétt eins og hetja og gerði grín að öllu saman. Sagði að hann væri feginn að þetta þrekleysi væri ekki bara elli. Hann svaraði með- ferðinni ágætlega til að byrja með og átti marga góða mánuði sem hann not- aði vel, gekk frá óloknum málum á Lögfræðiþjónustunni, kom gömlum kvikmyndum sem hann hafði tekið af fjölskyldunni yfir á stafrænt form, las mikið, veiddi mikið, fór í badmínton og sund eins og hann var vanur og naut þess að vera með fjölskyldunni. Þá heyrði Ingólfur dótturdóttur sína segja við frænda sinn: „Hann afi er ekkert veikur, hann er bara með krabbamein og fer meira segja í Kola- portið að kaupa harðfisk.“ Ingólfur var góður eiginmaður sem bjó við ástríkt hjónaband þó að þau hjónin gætu rökrætt ýmis málefni af ákefð og festu. Þau upplifðu margt skemmtilegt saman, eignuðust þrjú mannvænleg börn og sex barnabörn. Þau lifðu við góð efni en voru jafn- framt einstaklega gestrisin og gjaf- mild. Ingólfur var mikill fjölskyldu- maður sem kaus að verja frítímanum að miklu leyti í faðmi fjölskyldunnar annaðhvort heima í þeirra glæsilega húsi í Grafarholti, í sumarbústaðnum eða í utanlandsferðum. Við munum sakna þess að heyra ekki svarað í sím- ann: „Ingólfur“ eða að finna þétt handtak/faðmlag og sjá brosið sem fylgdi með. Minningar um góðan dreng lifa. Megi Lára og börnin öðlast þann styrk sem þarf til að takast á við sorgina. Björn Björnsson og Lára G. Hansdóttir. Það er alltaf ánægjulegt þegar vinnufélagar og samstarfsmenn á stórum vinnustöðum bindast vináttu- og tryggðaböndum. Og enn skemmti- legra verður það þegar makarnir blandast í hópinn. Þannig varð það með okkur sem þá vorum fram- kvæmdastjórar hinna svonefndu „mjúku mála“ hjá Reykjavíkurborg. Við vorum ekki einungis samstarfs- félagar, heldur urðum vinir í starfi og leik. Í gríni var hópurinn síðan kall- aður „fimm fræknu“. Þrátt fyrir að nokkrir úr hópnum hafi látið af störf- um hjá borginni fyrir allnokkru hitt- umst við reglulega nokkrum sinnum á ári, eigum samverustundir, göngum saman og höfum í leiðinni kynnst nýj- um hverfum og stöðum í borgarland- inu. Einnig höfum við ferðast saman innanlands sem erlendis. Ingólfur varð einn af þessari kjarnafjölskyldu. Frásagnargleði hans, þekking á fólki og mannlífi olli oftar en ekki hlátri og jafnvel gráti. Það skipti ekki máli hvort gengið var um miðborgina, Þingholtin, Vesturbæinn, Ægisíðuna, Grafarholtið, umhverfis Elliðavatn, um kirkjugarðinn við Suðurgötu, bakka Rangár eða stræti stórborga, Ingólfi varð aldrei orða vant. Hann hafði alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja sem tengdist mannlífi og fólki á þeim svæðum sem gengið var um – með sinn notalega glettnissvip. Ingólf- ur fylgdist af áhuga með störfum okk- ar hjá borginni. Hann var í okkar huga mikill „séntilmaður“ sem bar virðingu fyrir fólki og vildi öllum vel. Heimsókn okkar á síðasta sumri í sælureit Láru og Ingólfs að Mólæk og í sveitina hans Ingólfs var ein af þess- um unaðsstundum sem við höfum átt saman og líður okkur seint úr minni. Skömmu eftir þessa sæludaga fréttist af veikindum Ingólfs, sem hann hefur barist við síðan af krafti og reisn, en varð á endanum að játa sig sigraðan. „Um vinsamlegt viðmót eða gott skap er því svo farið, að því meira sem við notum af því, þeim mun meira er eftir“ (Emerson). Við erum sannfærð um að eftir þessum jákvæðu spakmælum hafi Ingólfur lifað. Í minningunni eigum við öll myndir af Ingólfi í góðra vina hópi þar sem sögur hans af mönnum og málefnum eru ljóslifandi. Láru og fjölskyldu sendum við sam- úðarkveðjur um leið og við kveðjum einstakan félaga og vin sem verður sárt saknað í hópnum. Bergur og Inga, Gerður, Signý og Árni, Ómar og Guðný. Ég ætla að minnast vinar míns Ing- ólfs Hjartarsonar með nokkrum orð- um. Við kynntumst í Versló á sjötta ára- tug síðustu aldar ásamt fleiri góðum vinum. Við vorum öll unglingar og bundust með okkur sterk vinabönd. Við, sem vorum í skólanum öll skólaárin 6 og lukum honum með stúdentsprófi, vor- um ekki mörg en stóðum því þéttar saman. Fræ vináttunnar voru lífseig og þróuðust út í sterk vinatengsl, sem aldrei hefur borið skugga á. Það er því sárt að sjá nú á eftir góðum vini, þeim fyrsta í okkar litla hópi. Mig langar til að rifja það upp þegar ég sá mig knúinn til að hætta námi í 5. bekk vegna krefjandi aðstæðna. Eftir umhusun ákvað ég þó að halda áfram náminu og fór þess á leit við skóla- stjórann að fá að sækja tíma eftir hengtugleikum. Hann sá á því öll tor- merki þar sem það stríddi gegn prin- sippum skólans. Fyrir þrýsting skóla- systkina minna varð þó úr að Doktorinn gaf eftir og heimilaði mér að sækja tíma að vild. Þetta skipti sköpum með það að ég náði að ljúka námi með bekknum mínum. Ég veit með vissu að skólasystkini mín stóðu að þessu einhuga, enda hefði það aldr- ei tekist án þess. Ég tel þó ekki á neinn hallað þó ég segi, að þar hafi Ingólfur verið fremstur meðal jafningja. Fyrir þetta er ég ævinlega þakklátur. Við Ninný þökkum góða vináttu og vottum Láru og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Blessu sé minning hans. Böðvar Valgeirsson. Góður og kær vinur er nú fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Ingólfi kynntist ég árið 1969 þegar Félags- málastofnun Reykjavíkurborgar tók til starfa í Vonarstræti 4, þar sem hann var skrifstofustjóri og við fé- lagsráðgjafarnir Lára Björnsdóttir, síðar eiginkona hans, vorum deildar- Ingólfur Hjartarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.