Morgunblaðið - 18.08.2010, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2010
Jóhanna og Steingrímur hafastimplað framgöngu Gylfa Magn-
ússonar. Þau telja hana falla vel að
verklagi ríkisstjórnarinnar. Ekki er
hægt að neita því að þar hafa þau
mikið til síns máls.
Úrslitin 3:0. Þrjú fyrir þau þrjú.
Núll fyrir sannleikann, gegnsæið og
virðingu þingsins.
Þá hefur Seðla-bankinn
svarað því hvers
vegna hann sendi
ekki Jóhönnu for-
sætis lögfræðiá-
litið, sem öll
ósannindin sner-
ust um. Seðla-
bankinn lítur
ekki þannig á
lengur að hann sé
sjálfstæð stofnun, þótt lög standi
enn til þess. Er hann í góðri sátt við
stjórnvöld í því.
Tvö atriði standa upp úr í svaribankans. Lögfræðiálitið kom
fyrir ári og þá þegar var orðið á
allra vitorði að gengisbundin lán
væru sennilega ólögleg! Svo? Ekki
kom það fram í svari Gylfa á Al-
þingi. Hann segist nú ekki hafa log-
ið að þinginu heldur svarað annarri
spurningu en spurt var um. Og hann
hefur sagt að álitið hafi verið svo
eldfimt að það hafi verið algjört
leyniskjal í ráðuneytinu að kröfu
S.Í.
Þegar dómur Hæstaréttar féll árisíðar stóðu allir landsmenn á
öndinni, svo fleiri komust ekki fyrir
þar og þó enginn jafn furðu lostinn
og ríkisstjórnin, Seðlabankinn og
FME sem sendu út neyðartilmælin
frægu. Og nú segir S.Í. í bréfi til for-
sætis að allir hafi vitað fyrir ári um
lögleysuna!
Hitt atriðið er að S.Í. segir að enguhefði breytt þótt Jóhanna hefði
fengið álitið. Það er rétt hjá bank-
anum. Hún hefði vísast ekki lesið
það frekar en Icesave-samninginn.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Sátt við ósannindin
Veður víða um heim 17.8., kl. 18.00
Reykjavík 18 skýjað
Bolungarvík 13 skýjað
Akureyri 10 rigning
Egilsstaðir 11 rigning
Kirkjubæjarkl. 16 skýjað
Nuuk 12 léttskýjað
Þórshöfn 10 súld
Ósló 17 skýjað
Kaupmannahöfn 16 skúrir
Stokkhólmur 17 skúrir
Helsinki 21 heiðskírt
Lúxemborg 16 skýjað
Brussel 16 skýjað
Dublin 17 skýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 18 skýjað
París 18 skýjað
Amsterdam 16 súld
Hamborg 20 skýjað
Berlín 18 skýjað
Vín 17 skýjað
Moskva 27 þoka
Algarve 25 skýjað
Madríd 27 léttskýjað
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 33 heiðskírt
Winnipeg 12 skúrir
Montreal 23 léttskýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 25 skýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:29 21:35
ÍSAFJÖRÐUR 5:21 21:53
SIGLUFJÖRÐUR 5:04 21:36
DJÚPIVOGUR 4:55 21:08
„Það þarf að gera stórátak í öryggismálum í ferða-
þjónustu og kynningarátak samhliða því. Þetta ferða-
sumar hefur tekið allt of stóran toll,“ segir Hrefna
Hilmisdóttir, sem sendi Morgunblaðinu myndina hér
að ofan.
„Við hjónin vorum á ferðalagi um helgina og kom-
um við m.a. að Dettifossi,“ skrifar Hrefna. „Við geng-
um niður að fossinum hvort með sína myndavél. Það
skemmdi hins vegar fyrir okkur áhugann á mynda-
töku að erlendur (franskur) fjölskyldufaðir var alger-
lega fram á blábrúninni með myndavél. Konan hans
stóð nokkrum metrum neðar og á að giska 50 cm
fjær brúninni með sína myndavél og voru börnin tvö
nær henni. Ég skil ekki frönsku en ég skildi að börn-
in voru að biðja föður sinn að gæta sín. Hann sinnti
því engu en það kom hik á móðurina. Börnin gripu
fyrir andlit sér og sneru frá og fóru enn fjær brún-
inni, dauðhrædd um foreldra sína. Maðurinn var bara
óður, ég þorði ekki að skipta mér af því, hann hefði
einfaldlega getað horfið.“
Ljósmynd/Hrefna Hilmisdóttir
Á ystu nöf Franski ferðamaðurinn var ansi glannalegur við myndatökur á blábrúninni við Dettifoss.
Stórhættulegt athæfi við Dettifoss
Morgunblaðið birtir á ný töfl-
ur um flóð og fjöru. Er þetta
gert að eindreginni beiðni les-
enda. Töflurnar munu birtast
á dagbókarsíðum og í dag er
þær að finna á bls. 25.
Flóðatöflur
Röng dagsetning
Ranghermt var í frétt í blaðinu í gær
að næsta verkfall slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna yrði næst-
komandi föstudag. Hið rétta er að
verkfallið verður föstudaginn 27.
ágúst, ef ekki semst fyrir þann tíma.
Ásthildur bæjarstjóri
Vesturbyggða
Rangt var farið með nafn nýs bæj-
arstjóra í Vesturbyggð í frétt un
laun bæjarstjóra í blaðinu í gær.
Rétt nafn bæjarstjórans er Ásthild-
ur Sturludóttir. Hún er beðin vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Stefnt er að því að útboð vegna
bólusetningar allra ungbarna
gegn pneumókokkasýkingum
verði auglýst ekki síðar en 29.
ágúst næstkomandi. Heilbrigð-
isráðuneytið áformar að hefja
bólusetningarnar 1. apríl á næsta
ári og að öll börn, sem fæðast ár-
ið 2011, verði bólusett.
Álfheiður Ingadóttir heil-
brigðisráðherra kynnti áformin
um bólusetninguna á ríkisstjórn-
arfundi í gær. Að sögn heilbrigð-
isráðuneytisins er áætlaður
kostnaður vegna bólusetninganna
á bilinu 100-140 milljónir króna á
ári.
Álfheiður segir á vef ráðuneyt-
isins að þótt þetta hafi í för með
sér útgjöld sé ávinningurinn gríð-
arlegur. Bólusetningin dragi
strax úr eyrnabólgum og notkun
sýklalyfja minnki en helmingur af
sýklalyfjanotkun á Íslandi sé af
völdum eyrnabólgu og lungna-
bólgu. Þá dragi úr fjölónæmum
bakteríum með bólusetningu.
Ætlar að bjóða út
bólusetningu