Morgunblaðið - 18.08.2010, Blaðsíða 9
FRÉTTASKÝRING
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
er haldið í 27. sinn nk. laugardag.
Nokkrar nýjungar verða í hlaupinu á
borð við boðhlaup og örlitla breytingu
á hlaupaleið. Einnig stefnir í metþátt-
töku í ár en í gær höfðu 5.155 manns
skráð sig sem er fjölgun um tæp 9%
frá því á sama tíma í fyrra. Hins veg-
ar hefur það sýnt sig að flestar skrán-
ingar koma síðustu daga fyrir hlaup
og er búist við að um 8.000 manns
skrái sig í hlaupið næstu daga en
skráning fer fram á www.mar-
athon.is. Svava Oddný Ásgeirsdóttir,
hlaupstjóri Reykjavíkurmaraþons,
segir hlaupið fara sívaxandi með ári
hverju og njóti gríðarlegra vinsælda
meðal Íslendinga sem og annarra.
„Hlauparar í Reykjavíkurmara-
þoni Íslandsbanka geta eins og fyrri
ár hlaupið til góðs með því að safna
áheitum fyrir ýmis góðgerðarfélög,“
segir Svava Oddný en Íslandsbanki
stendur fyrir nýjum áheitavef,
www.hlaupastyrkur.is, þar sem
hlauparar maraþonsins geta safnað
áheitum fyrir ýmis góðgerðarfélög.
Nýjungar í hlaupinu
Nokkrar breytingar hafa verið
gerðar á hlaupinu í ár. Hlaupaleiðinni
í heilu og hálfu maraþoni hefur verið
breytt og munu hlauparar nú ekki
hlaupa um gámastöðvarnar í Sunda-
höfn heldur fara aðra leið.
Einnig hefur boðhlaup bæst við
þær vegalengdir sem í boði eru en
þá taka tveir til fjórir hlauparar þátt
og geta skipt á milli sín heilu mara-
þoni sem er sama leið og aðrir
maraþonhlauparar fara. Þá hefur
Latabæjarhlaupið verið lagað að-
eins til og bætt við fleiri aldurs-
hópum en í fyrra var yngsti hóp-
urinn of fjölmennur og erfitt fyrir
alla að njóta þess að hlaupa og að
sjálfsögðu geta foreldrar hlaupið
með börnunum.
Konur fengu ekki að taka þátt
Það var ekki fyrr en 1972 að kon-
ur fengu að taka þátt í maraþoni og
ekki fyrr en 1984 að konur fengu að
keppa í maraþoni á Ólympíuleikum.
Árið 1967 skráði Kathrine Switzer,
ung háskólastúlka, sig í Boston-
maraþonið undir nafninu K.V. Swit-
zer. Enginn spurði hana að kyni,
enda þótti þess ekki þurfa. Stjórn-
andi hlaupsins tók eftir henni inni á
brautinni eftir að hlaupið var hafið,
veittist að henni og
reyndi að þvinga út úr
hlaupinu.
Vinir Switzer komu
henni til bjargar og gat
hún fyrir vikið náð að
klára maraþonið. Með
þessu móti var athygli
vakin á jafnrétti
kynjanna og fóru reglur
að breytast sem í kjölfar-
ið gáfu konum réttindi
til að hlaupa maraþon.
Ótrúlegt, en satt.
Breytt hlaupaleið
í maraþoninu
Hlaupa til að safna áheitum og styrktarsjóðir stofnaðir
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölmennt Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur notið gríðarlegra vinsælda og fer sívaxandi með árunum.
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2010
Vinir íþróttamannsins Hrafnkels
Kristjánssonar heitins hafa
stofnað íþrótta- og afrekssjóð
Hrafnkels og eru þeir að leggja
drög að stofnun sjóðs sem styð-
ur við bakið á börnum hans en
vilja jafnframt að þetta verði
sjóður sem getur veitt stóra og
smáa styrki til barna sem vilja
stunda íþróttir.
Þeir hafa sett upp Facebook-
síðu þar sem nánari upplýsingar
um málefnið er að finna ásamt
upplýsingum um reikningsnúmer
styrktarsjóðsins.
Hrafnkell lést í hræðilegu bíl-
slysi í desember í fyrra. Á Face-
book-síðunni kemur fram
að hann hafi verið mikill
íþróttaáhugamaður og
æft knattspyrnu, hand-
knattleik og fleiri
íþróttir frá unga aldri.
Með þessu móti
vilja vinir Hrafnkels
styðja börn hans og
næstu kynslóð ungra
íþróttamanna og
hvetja því sem
flesta til þess að
hlaupa.
Styrktarsjóð-
ur Hrafnkels
ÁHEITUM SAFNAÐ
Kathrine Switzer
Björgvin Björgvinsson, yfirmaður
kynferðisbrotadeildar lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, hefur óskað
eftir því að vera færður úr starfi yf-
irmanns. Lögreglustjóri hefur fallist
á þá beiðni. Kemur beiðnin í kjölfar
ummæla hans sem birtust í DV á
mánudag. Björgvin hefur beðist af-
sökunar á ummælum sínum. Hann
hefur starfað við þennan málaflokk
um árabil.
Harmar ummælin
„Í DV birtust í gær ummæli höfð
eftir yfirmanni kynferðisbrotadeild-
ar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Þau ummæli endurspegla á eng-
an hátt afstöðu eða viðhorf emb-
ættisins til kynferðisbrota eða
fórnarlamba slíkra brota. Harmar
embættið þessi ummæli og biðst
jafnframt afsökunar á þeim,“ að því
er segir í tilkynningu frá lögreglunni
í gær.
„Það er jafnframt mat yfirmanns
kynferðisbrotadeildarinnar að um-
mælin séu til þess fallin að skaða trú-
verðugleika rannsókna lögreglunnar
á þessu við-
kvæma og mik-
ilvæga sviði og
það harmi hann,“
segir ennfremur.
Rannsóknir kyn-
ferðisbrota hjá
lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu
munu framvegis
heyra beint undir
yfirmann rann-
sóknardeilda LRH, Friðrik Smára
Björgvinsson yfirlögregluþjón.
Í DV var fjallað um nauðganir og
fjölgun þeirra á síðustu misserum.
Var m.a. haft eftir Björgvin, að oftar
en ekki væru þessi mál tengd mikilli
áfengisdrykkju og ekki á ábyrgð
neins nema viðkomandi sem væri út-
settur fyrir að því að lenda í ein-
hverjum vandræðum.
„Það er erfitt hvað það er algengt
að fólk bendir alltaf á einhverja aðra
og reynir að koma ábyrgðinni yfir á
þá. Fólk ætti kannski að líta oftar í
eigin barm og bera ábyrgð á sjálfu
sér,“ hafði blaðið eftir Björgvin.
Yfirmaður lætur af
störfum að eigin ósk
Björgvin
Björgvinsson
„Það verða engar
uppsagnir vegna
fyrirhugaðs nið-
urskurðar,“ sagði
Páll Magnússon,
útvarpsstjóri Rík-
isútvarpsins, á
fundi með starfs-
fólki í gær. Tekjur
RÚV verða enn
skertar um 9% á
þessu ári en þær voru skornar niður
um 10% í fyrra. Um 290 manns starfa
nú hjá stofnuninni en voru hátt í 350
fyrir tveim árum.
„Við höfum gengið mjög hart fram í
niðurskurði síðustu tvö árin, m.a.
fækkað starfsfólki um nálægt 50
manns,“ segir Páll. „Þær aðgerðir
sem við höfum gripið til á síðustu 18
mánuðum hafa skilað sér mjög vel og
reksturinn er réttum megin við strik-
ið, hefur verið það í alllangan tíma.
Við þurfum því ekki að sækja inn í
reksturinn allan þann 9% niðurskurð
á tekjum sem gert er ráð fyrir.
En við gerum ýmislegt. Það hefur
svo sem ekki farið fram hjá neinum að
við vorum m.a. að leggja af Spaug-
stofuna. Það eru ýmsar almennar að-
haldsaðgerðir í farvatninu en þar sem
rekstrarstaðan er góð þurfum við í
þessari lotu ekki að grípa til uppsagna
vegna niðurskurðarins.“
Páll segir að hver þáttur Spaug-
stofunnar hafi kostað um þrjár millj-
ónir króna í framleiðslu en þá þarf að
vísu að hafa í huga að þættirnir höl-
uðu inn mikið af auglýsingatekjum.
Árlegar tekjur RÚV af auglýsingum
eru um 1200-1400 milljónir á ári en
framlag ríkisins nær þrír milljarðar.
Þurfa ekki að segja
upp neinu fólki
Páll Magnússon
Rekstur RÚV réttum megin við strikið
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Verðhrun
60-80% afsláttur af öllum vörum
www.gardheimar.is
allt í garðinn á einum stað!
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
GARÐLJÓSIN KOMIN!