Morgunblaðið - 18.08.2010, Page 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VARÚÐ!
HUNDUR
FRÁBÆR
SKEMMTUN
ÞÚ ÞARFT
AÐ VERA
SVONA HÁR
TIL AÐ
VERÐA
BITINN
MÉR FINNST FRÁBÆRT AÐ
ÞIÐ SÉUÐ HÉRNA AÐ TALA
OG HLÆJA SAMAN
AF HVERJU SEGIRÐU OKKUR
EKKI BARA AÐ EINBEITA
OKKUR AÐ ÆFINGUNUM EINS
OG VIÐ ÆTTUM AÐ GERA?
ÉG ER
ROSALEGA
ÁNÆGÐUR
MEÐ
LIÐSANDANN
HJÁ YKKUR!
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ
VERA SVONA KURTEIS
KANNSKI ÆTTUM VIÐ
BARA AÐ SLEPPA ÞESSU
NÚ?
AF
HVERJU?
ÞAU TÓKU
DYRAMOTTUNA
INN. NÚNA GETUM
VIÐ EKKI ÞURRKAÐ
AF OKKUR
ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ ÞÚ
HAFIR SETT ÞÚSUNDIR
GARÐÁLFA Í GARÐANA
HJÁ FÓLKI SVO ÞÚ GETIR
FYLGST MEÐ ÞVÍ SEM
GERIST Í HVERFINU!
FÓLK HEFUR
HRINGT HINGAÐ
BRJÁLAÐ Í
ALLAN DAG!
ALLT Í
LAGI! ALLT
Í LAGI!
ÉG SKAL
FJARLÆGJA
GARÐ-
ÁLFANA!
ENGIR
GARÐÁLFAR!
AHHH!
ER
ÞAÐ?
ÉG EYÐI
NÆSTUM
ÖLLUM
MÍNUM
TÍMA Í AÐ
LÆRA. ÉG Á
EKKI MJÖG
MARGA VINI
ERTU EKKI ALLTAF
Á FACEBOOK? HVAÐ
ÁTTU EIGINLEGA
MARGA VINI ÞAR?
NOKKUR
ÞÚSUND
MAMMA HANS LALLA LEIGIR
MEÐ HÁSKÓLANEMA...
ÞAÐ ER GÓÐ
BYRJUN
ÞÚ GETUR EKKI
LEYFT HÁSKÓLANUM
AÐ HÆKKA GJÖLDIN!
ÞÚ VERÐUR AÐ BERJ-
AST GEGN ÞESSU!
JÁ,
SAFNAÐU
SAMAN
VINUM
ÞÍNUM
MAX DILLON MINNIST
ÞESS HVERNIG HANN
VARÐ ELECTRO...
HA? ÞAÐ FER STRAUMUR UM LÍKAMA
MINN OG Í GEGNUM HERÐATRÉN!
ÞAÐ KOMA
NEISTAR ÚR
FINGRUNUMHVERNIGFESTUST
ÞESSI
HERÐATRÉ
VIÐ HAND-
LEGGINN Á
MÉR?
ELDINGIN SEM ÉG VARÐ FYRIR
Í GÆR HEFUR FYLLT LÍKAMA
MINN AF RAFMAGNI
Hugleiðingar
Það fer ekki hjá því að
ýmislegt fer í taugarnar
á manni eins og gengur,
en fátt hefur truflað
mig eins mikið á und-
angengnum vikum eins
og þessi aðferðafræði
sem notuð hefur verið á
fólkið í Reykjadal þar
sem á að svipta það
möguleikum að fá notið
sín um helgar að vetr-
inum. Ég veit ekki hvað
er að íslenskri þjóð.
Hvernig vogar fólk sér
að leggjast á garðinn
þar sem hann er lægst-
ur og ætla sér að loka að hluta til vist-
heimili sem er fyrst og fremst hannað
til að styðja og gleðja þá sem minna
mega sín í þessu þjóðfélagi? Ég neita
því alfarið að þetta fólk, þótt duglegt
sé, sé látið ganga sig upp fyrir haus
að safna 15 milljónum. Ég krefst þess
sem Íslendingur með vott af siðferð-
iskennd og sómatilfinningu að við för-
um í vasa þeirra sem mest mega sín,
ekki síst þeirra sem hafa átt þátt í því
að setja heila þjóð á hausinn.
Síðan að öðru, ég veit ekki hvort
það er almennt heyrnarleysi ofan á
annað sem plagar mig, en ég álít mig
hafa séð í fjölmiðlum frétt af því að í
einu aðalfangelsi landsins væru út-
lendingar búnir að koma sér upp til-
tekinni aðferðafræði til að ná sér
niðri á þeim sem yfir þeim eru. Hvað í
þremlinum fær fólk til þess að bæta
utan á sig kylfum og
ýmsu öryggisdóti til að
kljást við þessa útlend-
inga? Við eigum bara að
senda þetta fólk úr
landi. Við eigum alveg
nóg með að kljást við
okkar eigin landa og
þeirra axarsköft þó við
séum ekki að halda uppi
í fæði, klæði og jafnvel
skemmtun innfluttum
glæpamönnum. Ég vil
líka benda á að 80% af
þeim útlendingum sem
búa á Íslandi eru frá-
bært fólk en alltaf eru
einstaklingar sem eru
að hella yfir þjóðina við-
líka glæpum að vart á sér hliðstæðu
nema í mjög illa stöddum þjóð-
félögum.
Eins og flestir vita þá hef ég verið
neydd til að sitja á stól í töluverðan
tíma og sjónvarpsgláp er hluti af
minni afþreyingu. Mér finnst fyndið
að sjá kokka landsins. Þeir eldri eru
að mínu skapi, dálítið íturvaxnir og
þreknir. En yngra liðið er þveng-
mjótt, svo mjótt að það kæmist í ermi
á kjól. Hvet ég Íslendinga til að
kynna sér þennan mismun og gera
athugasemdir ef þurfa þykir. En upp
með fallegu karlmennina sem eru
með svona 10-15 auka.
Jóna Rúna Kvaran.
Ást er…
… þegar hversdagurinn
verður sérstakur.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.
Árskógar 4 | Handavinna, smíði/
útskurður kl. 9, heilsugæsla kl. 10-11.30.
Dalbraut 18-20 | Félagsmiðstöðin er op-
in kl. 9-16.45, kl. 9 verður vinnustofan
hjá Halldóru opnuð aftur eftir sum-
arleyfi, verslunarferð í Bónus kl. 14.40.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10.
Farþegar ferðar í Langasjó 20.-22. ágúst:
fundur á morgun, fimmtudag 19. ágúst,
kl. 11. Eigum enn laus sæti í ferðina. Far-
ið verður að Langasjó, Eldgjá, Lakagíg-
um, ekið um Þjórsárdal til Hrauneyja um
Fjallabak nyrðra til Landmannalauga,
komið að Eldgjá, Klaustri o.fl. Gist í Geir-
landi, uppl. s. 588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin; leiðb. við kl. 10-17, fé-
lagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15-16.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinnustofan opin. Hádegisverður kl.
11.40. Kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Brids og bútasaumur kl. 13. Sala á mið-
um í ferð FEBG í Landmannalaugar 31.
ágúst fer fram á skrifstofu félagsins kl.
13-15 í dag og næsta miðvikudag, verð
kr. 9.000, ekki er tekið við greiðslukort-
um. Opið í Jónshúsi kl. 9.30-16.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ
| Farið verður til Vestmannaeyja mið-
vikud. 25. ágúst nk. Lagt verður af stað
frá Hlaðhömrum kl. 9 f.h. Skráning til
20. ágúst í síma 586-8014 e.h.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, m.a. tréútskurður og
fjölbreytt handavinna. Leikfimi kl. 10.
Spilasalur opinn frá hádegi. Mánud. 23.
ágúst kl. 13.30 verður lagt af stað í
fræðslu- og kynnisferð um Reykjavík,
leiðsögn Magnús Sædal byggingafulltr.,
skrán. hafin á staðnum og í síma 575-
7720.
Háteigskirkja | Kaffi kl. 10 og fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 11, súpa/brauð,
brids kl. 13.
Hraunbær 105 | Félagsmiðstöðin opin
kl. 9-16. Handavinna kl. 9. Panta þarf
mat fyrir kl. 9.30.
Hraunsel | Opið virka daga kl. 9-16.30.
Morgunrabb kl. 9, billjard í kjallara, gler-
bræðsla kl. 13, bingó kl. 13.30. Uppl. s.
555-0142.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Kaffi kl.
14.30.
Norðurbrún 1 | Félagsvist kl. 14.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaað-
gerðir kl. 9-16, aðstoð v/böðun kl. 9-12,
sund kl. 10-12, hádegisverður kl. 11.30,
verslunarferð í Bónus Holtagörðum kl.
12.10-14, kaffiveitingar kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgun-
stund, handavinnustofan opin, framh.-
sagan kl. 12.30, verslunarferð kl. 12.15,
dönsum kl. 14 með Vitatorgsbandinu.
Byrjað er að skrá í námskeið vetrarins,
uppl. og skráning í síma 411-9450.
Leikar eru farnir að æsast fyrirBragaþingið, landsmót hagyrð-
inga, sem haldið verður 28. ágúst.
Þar verður Þórarinn Eldjárn
heiðursgestur, kveðnar verða rímur,
fluttar stökur og snæddir dýrindis
réttir á Grand hóteli. Þessa vísu orti
kerling á Skólavörðuholtinu, sem
varð á vegi Sigrúnar Haraldsdóttur:
Gulli á mig og glingri hleð,
gjörð um belginn spenni kring,
geiflunum í túlann treð
og tölti kát á Bragaþing.
Karlfauski í Skuggahverfinu líst
reyndar ekkert á einn dagskrárlið-
inn, nefnilega einvígi milli Húnvetn-
inga og Þingeyinga. Hann sagði Jóni
Ingvari Jónssyni í óspurðum fréttum
að lið úr póstnúmeri 105 hefði verið
nær:
Alltaf verð ég voða súr
á vorum Bragaþingum
er ég heyri hneggið úr
Húnaþingeyingum.
Og spennan magnast dag frá degi.
Sigrún rakst aftur á kerlinguna á
Skólavörðuholtinu, sem hló eins og
fífl og tautaði:
Spennt ég hlæ af þrótti því
þrusu verður gaman
er karlfauskana kveð ég í
kútinn alla saman.
Flýgur fiskisagan. Karlfausk-
urinn í Skuggahverfinu hefur enga
trú á kerlingu úr Skólavörðuholtinu
og gaukaði þessari vísu að Jóni Ingv-
ari:
Fyrir hátíð Braga brátt
bursta ég nú skóna
þar sem karlar kveða hátt
en kerlingarnar prjóna.
Ekki er ólíklegt að framhald verði
á yrkingum karls og kerlingar.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af karli og kerlingu