Morgunblaðið - 25.09.2010, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
Tilvísanir Hæstaréttar til fordæma
Mannréttindadómstóls Evrópu eru
mjög sérkennilegar, að mati Jakobs
R. Möller, verjanda Tryggva Jóns-
sonar, eins sakborninga í skattahluta
Baugsmálsins svonefnda. Rétturinn
lagði í vikunni fyrir héraðsdóm að
taka til efnismeðferðar mál um meint
skattalagabrot Tryggva, Jóns Ás-
geirs Jóhannessonar, Kristínar Jó-
hannesdóttur og félagsins Gaums.
„Í máli Zolotukhin gegn Rússlandi,
sem kveðinn var upp af því sem kallað
hefur verið yfirdeild mannréttinda-
dómstóls segir að skilgreiningin á því
hvað sé sama brot í skilningi 1. mgr.
4. gr. 7. viðauka mannréttinda-
sáttmálans hafi verið á reiki og eru
rakin dæmi um það á undanförnum
20 árum. Þess vegna hafi verið kom-
inn tími til að kveða upp dóm í yfir-
deildinni,“ segir Jakob og bætir við að
í dómnum segi að ef um sé að ræða
sömu málsatvik sé um sama brot að
ræða í skilningi mannréttinda-
sáttamálans.
Jakob bendir á að fordæmin sem
Hæstiréttur vísi til í dómi sínum séu
eldri en dómur
yfirdeildarinnar.
„Þau hafa þar með
verið afnumin og
hafa ekkert gildi.“
Í dómi Hæsta-
réttar segir m.a.:
„Svo að til greina
komi að slá því
föstu að þessi
skipan skattamála
hér á landi fái ekki staðist vegna
ákvæða Mannréttindasáttmála Evr-
ópu verður að minnsta kosti að liggja
skýrt fyrir að íslensk lög fari í bága
við þau, eftir atvikum í ljósi dóma
mannréttindadómstólsins.“
Jakob segir að með því sé Hæsti-
réttur að segja að ef sakborningar
sætti sig ekki við niðurstöðuna verði
þeir að fara með málið til mannrétt-
indadómstóls. Það sé undarlegt þar
sem rétturinn hafi einnig sagt að þeir
dómar séu ekki formlega bindandi.
Ákvörðun um það hvort farið verður
með málið til dómstólsins verður að
öllum líkindum tekin eftir að loka-
dómur fellur í málinu.
Segir vísað til
ógildra fordæma
Jakob R. Möller ósáttur við Hæstarétt
Jakob R. Möller
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stoðtækjasmiðirnir þrír frá ís-
lenska fyrirtækinu O.K. Prosthetics
bíða í Jerúsalem eftir því að fá far-
angur sinn afhentan; verkfæri og
efni til að útbúa gervifætur fyrir 25
manns. Þeir komu til Ísraels sl. mið-
vikudag og eru á leið á Gazasvæðið
þar sem þeir hyggjast setja gervi-
fætur á íbúa á svæðinu.
Trúarhátíð
Efnið í gervifæturna var í sex
íþróttatöskum og var tekið af þeim
eftir komuna til Ísraels. Þeir fengu
skriflega staðfestingu á því að það
væri í vörslu, ásamt símanúmeri
sem þeim var sagt að hringja í á
morgun. „Við getum ekkert
annað gert en beðið og erum í
ágætis yfirlæti,“ segir Óskar
Lárusson, skósmiðurinn í hópn-
um. „Einu svörin sem fást héð-
an er að það sé verið að skoða
þetta.“ Yom Kippur, trúarhátíð
gyðinga, stendur nú yfir og því er
stjórnkerfið víða lamað vegna
lokana opinberra skrifstofa, en
þær verða opnar á sunnudag.
Hugmyndin var að ferðin
tæki níu daga og heimferð
áætluð 30. september. Hóp-
urinn getur hins vegar ekkert gert
án efnanna og Óskar segir að því
geti þeir ekki annað gert en beðið.
Fái þeir farangurinn á morgun eiga
þeir eftir að komast inn á Gaza og
segist Óskar ekki vita hvernig það
gangi, því landamærastöðin sé ekki
opin nema á ákveðnum tíma.
Auk þess að setja gervifætur
undir um 20 manns stendur til að
kenna heimamönnum handtökin
þannig að þeir geti sinnt starfinu
einir og óstuddir í framtíðinni. „Við
gætum þá komið efni til þeirra og
þeir bjargað sér með það,“ segir
Óskar. „Þetta er allt í uppnámi,“
heldur hann áfram og bætir við að
möguleiki sé á að framlengja dvöl-
ina en ekkert hafi verið ákveðið í
því efni. Það fari eftir því hvort og
hvenær þeir fái farangurinn af-
hentan. „Við höngum í Jerúsalem
og höfum meðal annars heimsótt
Grátmúrinn,“ segir hann.
Við Grátmúrinn Frá hægri: Óskar Þór Lárusson skósmiður, Anton Jóhannsson stoðtækjafræðingur og Johann
Snyders, stoðtækjafræðingur frá Suður-Afríku, nota tímann til þess að skoða sig um í Jerúsalem.
Bíða eftir gervifótum
við Grátmúrinn
Stoðtækjasmiðirnir fá tól og efni hugsanlega á morgun
Vorið 2009 fóru íslensku stoðtækjasmiðirnir í fyrsta sinn til Gaza og
segir Óskar Lárusson að þá hafi þeir ekki lent í teljandi vandræðum,
hvorki á flugvellinum né á landamærastöðinni. Við brottför frá Ísrael
hafi þeir reyndar verið teknir fyrir. Þá eins og nú var félagið Ísland-
Palestína þeim innanhandar. Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og for-
maður félagsins, fór ásamt syni sínum Hauki á undan þremenningunum
og haft var eftir honum í Morgunblaðinu í fyrradag að það hefði tekið
átta mánuði að afla tilskilinna leyfa til þess að fá að flytja tól og tæki inn
á Gaza-svæðið. Óskar segir að ekki hafi verið hægt að sækja um
leyfi til að fara með búnaðinn inn í Ísrael, því annars hefði það ver-
ið gert. Össur Kristinsson á O.K. Prosthetics. Óskar áréttar
að fyrirtækið sé óskylt Össuri hf. en þaðan fái það vörur og
fyrirtækin séu í samstarfi um þróun og fleira.
Í annað sinn á svæðinu
STOÐTÆKJASMIÐIR FRÁ O.K. PROSTHETICS
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir
ingibjorgrosa@mbl.is
Allsherjarnefnd Alþingis skilaði í gær
umsögn sinni um ráðherraábyrgð,
landsdóm og skýrleika sakargifta í
málefnum ráðherranna fyrrverandi
sem þingmannanefnd leggur til að
verði ákærðir. Þar kemur fram að
meirihluti nefndarinnar telur lögin
um ráðherraábyrgð og landsdóm
standast 70. grein stjórnarskrárinn-
ar. „Við fengum mjög ákveðin atriði
til að taka afstöðu til og höfum skilað
henni,“ segir Róbert Marshall, for-
maður allsherjarnefndar. Hann segir
þessa umsögn þó ekki breyta sinni
persónulegu afstöðu. „Ég byggi hana
á öðrum, efnislegum atriðum í þings-
ályktunartillögum frá þingmanna-
nefndinni og því sem kom fram í rann-
sóknarskýrslunni sjálfri.“
Skila séráliti í dag
Róbert segir samt til bóta að alls-
herjarnefndin sé búin að fjalla um
þessi efnisatriði málsins. „Nú geta
þingmenn tekið afstöðu til þeirra en
eyða ekki of miklum tíma í formið því
ég held að það sé búið að leiða það
með fullnægjandi hætti í ljós að það
stenst.“ Birgir Ármannsson og Ólöf
Nordal, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
í nefndinni, munu skila séráliti fyrir
fund þingmannanefndarinnar í dag,
en hann hefst klukkan 10.30. „Það er
okkar viðhorf að nauðsynlegt sé að
horfa á samspil laganna um ráðherra-
ábyrgð og landsdóm annars vegar, og
70. greinar stjórnarskrárinnar og
mannréttindaákvæða hins vegar,“
segir Birgir um innihald sérálitsins.
Fleiri álitamál
„Í ljósi framkvæmdarinnar í þeim
málum sem eru nú til umfjöllunar á
Alþingi er niðurstaða okkar að sú
réttarvernd sem ráðherrunum fyrr-
verandi á að vera veitt, samkvæmt
stjórnarskránni og Mannréttinda-
sáttmála Evrópu, hafi í veigamiklum
atriðum verið fyrir borð borin í þessu
máli. Ég get hins vegar tekið undir
með Róberti að álitamálin um það
hvort Alþingi eigi að ákæra í þessu
máli eru mun fleiri en nákvæmlega þau
sem snúa að stjórnarskránni. Þar þarf
m.a. að horfa til þess hvort skilyrði um
ásetning eða stórfellt gáleysi ráð-
herranna fyrrverandi hafi verið upp-
fyllt. Einnig hvort refsiheimildirnar,
sem ákærutillögurnar byggjast á, eru
nægilega skýrar til að forsvaranlegt sé
að ákæra. Og hvort hægt sé að heim-
færa hin meintu athafnaleysisbrot til
viðkomandi refsiákvæða.“
Telja lögin standast stjórnarskrá
Réttarvernd ráðherranna fyrrverandi fyrir borð borin, segja fulltrúar Sjálfstæðisflokks í allsherjar-
nefnd Álitamálin um hvort ákæra eigi í málinu talin mun fleiri en þau sem snúa að stjórnarskránni
„Álitamálin um
það hvort Alþingi
eigi að ákæra í
þessu máli eru
mun fleiri“
Birgir Ármannsson