Morgunblaðið - 25.09.2010, Page 10
PRUFUTÍMINN
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Karlmenn eru í meirihlutaþeirra sem stunda flugu-hnýtingar og eftir aðhafa farið með harm-
kvælum í gegnum einn slíkan
prufutíma er það mér hulin ráðgáta
hvernig karlmenn geta yfirhöfuð
gert þetta, með sínar stóru hendur
og breiðu putta. Mér finnst líka
merkilegt að karlmenn, sem margir
hverjir stunda afar sjaldan fínlegar
hannyrðir, skuli leggja slíkan
metnað í þetta dund og fínerí. En
það kemur vitanlega til af því að
hnýtingar eru hluti af veiði-
mennsku.
Veiðiklóin Árni Ragnar Stef-
ánsson hefur stundað fluguhnýt-
ingar í tíu ár og tók að sér með mik-
illi þolinmæði að leiðbeina mér í
fyrstu flugunni. Hann byrjaði á að
sýna mér nýlega bók um þessi
fræði, Silungaflugur eftir Kristján
Benediktsson, og þar blöstu þær
við á stórum litmyndum, allar þess-
ar flugur sem menn hafa skapað á
síðkvöldum. Vel hnýtt fluga er ekk-
ert annað en listaverk. Formfögur
og litrík geymir hún í sér hönnun,
vandvirkni og natni.
Þumalfingur á
hverjum fingri
Þegar Árni sagði mér að nú
fengi ég að búa til svokallaðan pea-
cock eða páfugl, og rétti mér í
framhaldinu örsmáan öngul og
tvinnakefli, féll mér allur ketill í
eld. Þetta leit úr fyrir að vera
ómögulegt. Allt of smágert. Samt
fékk ég öngul númer tíu, af ein-
skærri tillitssemi, sá minnsti var
nánast ósýnilegur. Mér leið eins og
ég væri með tíu þumalfingur þegar
ég þurfti að snúa tvinna eftir kúnst-
arinnar reglum utan um þrjár ofur-
fínar fanir úr páfuglsfjöðrum. Þeg-
ar ég væri komin inn á miðja bugt á
önglinum átti ég að hægja á snún-
ingnum. Þetta átti að vera þéttur
snúningur en samt ekki of fast …
æ, ég gerði samt of fast … og tvinn-
inn slitnaði.
Síðan þurfti ég að klippa til
það sem stóð út af, vefja appels-
Fluguhnýtingar ekki
fyrir óþolinmóða
Alvöruveiðimenn leggja metnað sinn í að veiða á sínar eigin flugur og margir ala
með sér draum um að hanna flugu sem slær í gegn. Blaðamaður fékk að prófa að
hnýta eina flugu en náði ekki afburðaárangri í fyrstu tilraun.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fegurð Mikið var spáð og spekúlerað í ólíkum flugum í bókinni góðu.
Afrakstur Svona leit litla flugan út að lokum. Ekki mikið um húrrahróp.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
Áhugamenn um arkitektúr og þeir
sem hafa gaman af því að skoða
furðulega byggingarlist og klikkaðar
hugmyndir ættu að kíkja inn á vefsíð-
una Hi-architecture.blogspot.com.
Síðuhaldarar setja inn fjölbreyttar
færslur og skemmtilegar um arki-
tektúr og aðra hönnun. Það má t.d.
sjá færslu með mörgum myndum af
húsum sem hafa verið máluð mjög
óvenjulega og aðrar um óvenjulegar
styttur og skúlptúra. Fjallað er um
nýjar byggingar og fá skýjakljúfar
sinn skerf, byggðir sem óbyggðir, nóg
virðist líka vera af hótelum og öðrum
byggingum, sem tilheyra oftast efna-
fólki, sem geta ekki talist annað en
allsérstakar. Tekið er til umfjöllunar
hvernig byggingar falla inn í lands-
lagið og borgarskipulag. Það virðist
vera í tísku að hanna óvenjulega veit-
ingastaði og eru flestir þeirra mjög
flottir, ekki er annað hægt en að láta
sig dreyma um að borða á þeim, t.d.
er einn mjög flottur í Boston og ann-
ar nýr við rætur fjallsins Fuji í Japan
sem lítur út eins og snjóhús. Það er
svo fjallað almennt um skemmtilegan
arkitektúr, t.d. er færsla um nýja lík-
amsræktastöð í Slóvakíu og önnur
um arkitektakeppni um nýja stúd-
entagarða í París.
Vefsíðan www.hi-architecture.blogspot.com
Reuters
Háir Skýjakljúfarnir í Dubai hafa fengið sína umfjöllun á síðunni.
Áhugaverður arkitektúr
Það er spáð rigningu í dag og hvað er
betra að gera á rigningardegi en að
taka til inni hjá sér?
Oft er erfitt að koma sér af stað í til-
tektina en þegar af stað er farið getur
verið gaman að taka til svo ekki sé tal-
að um hvað líðanin er góð á eftir. Það
er dásamlegt að kúra fyrir framan sjón-
varpið um kvöldið eða lesa bók uppi í
rúmi þegar allt gljáir af hreinleika.
Málið er að byrja á því að setja góða
tónlist á, þurrka svo vel af öllu, raða
draslinu í hillur og skápa, fara í end-
urvinnsluna, þrífa baðherbergið, ryk-
suga og enda á að skúra. Ekkert mál
þegar af stað er farið og kannski verð-
ur hætt að rigna þegar tiltektinni er
lokið.
Endilega …
… takið til
Gaman Skúra, skrúbba, bóna.
Sp
ör
eh
f.
s: 570 2790www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Gerlos í Austurríki
12. - 19. febrúar 2011
SVIGSKÍÐAFERÐ
Hinn sjarmerandi bær Gerlos er þekktur skíðabær í austurrísku Ölpunum, sem býður skíðafólki
á öllum aldri upp á frábærar aðstæður og líflega fjallastemningu. Gerlos liggur í 1.300 m hæð
og er einn hluti af fjórum skíðasvæðum í Zillertal Arena. Skíðasvæðið í Zillertal Arena liggur í allt
að 2.500 m hæð yfir sjávarmáli og er því talið einstaklega snjóöruggt svæði. Snjóhvítar
skíðabrekkurnar eru um 166 km í öllum erfiðleikastigum og eiga eflaust eftir að koma vönu
skíðafólki skemmtilega á óvart. Flogið er með Icelandair til München og haldið sem leið liggur til
Gerlos, en rútan fer að sjálfsögðu beint á hótelið okkar. Gist er á góðu 3* fjölskyldureknu hóteli í
austurrískum stíl. Morgunverðarhlaðborð og fjögurra rétta kvöldverður með salathlaðborði er
innifalinn og eins býður hótelið upp á nýlega heilsulind. Rétt hjá hótelinu stoppar skíðarútan, en
með henni er farin stutt ferð á öll helstu skíðasvæðin. Fararstjórar eru með hópnum alla
ferðina, gista á sama hóteli og sjá um að skipuleggja skíðaferðir fyrir þá sem það vilja.
Fararstjórar: Sævar Skaptason og Guðmundur K. Einarsson
Verð: 168.800 kr. á mann í tvíbýli.
Innifalið: Flug, skattar, hótelgisting, morgunverðarhlaðborð,
kvöldverður, aðgangur að heilsulind hótelsins, ferðir til og frá München
flugvelli og íslensk fararstjórn.
Transfer
oghálftfæði
innifalið
NÝ VERSLUN
NÝSENDING
SKIPHOLTI 29b • SÍMI 551 0770
Fyrsti þáttur af útvarpsþættinum
Orð skulu standa var sýndur á
Litla sviði Borgarleikhússins síð-
astliðið þriðjudagskvöld. Þátturinn
var tekinn af dagskrá Rík-
isútvarpsins nýverið og hefur nú
gengið í endurnýjun lífdaga á
sviði.
Stjórnandi „þáttarins“ er sem
fyrr Karl Th. Birgisson og með
honum liðsstjórarnir Davíð Þór
Jónsson og Hlín Agnarsdóttir.
Hlín var fjarri góðu gamni fyrsta
kvöldið en í hennar stað var leik-
konan Sólveig Arnarsdóttir, hún
fékk til sín gest, Ilmi Kristjáns-
dóttur leikkonu. Gestur Davíðs
var söngvarinn og leikarinn Egill
Ólafsson. Tónlistarstjórinn Pálmi
Sigurhjartarson var svo við píanó-
ið.
Þátturinn verður á dagskrá
Borgarleikhússins vikulega í
haust, á hverju þriðjudagskvöldi.
Orð skulu standa
frumsýnd á sviði
Morgunblaðið/Eggert
Sviðsmyndin Útvarpsþáttur á sviði er nýjung.
Karlaliðið Egill Ólafsson stóð sig
vel og flutti svör sín af innlifun.