Morgunblaðið - 25.09.2010, Side 11
Kennsla Stefán Atli, yngsti sonur Árna fylgist dolfallinn með þegar pabbi hans leiðbeinir klaufskum blaðamanni.
ínugula rönd upp við hausinn með
enn fínni tvinna og að lokum þurfti
ég að lakka, með einum litlum
dropa, svo ekki rakni upp flugan.
Hvernig nenna menn að
standa í þessu?
Þetta er semsagt ekki fyrir
óþolinmóða.
Ég reyndi ekki einu sinni að ná
tökum á lokahnútnum, þau hand-
brögð Árna voru eins og sjónhverf-
ingar.
Leynimakk með flugur
Árni segir segir að fjöldafram-
leiddar flugur trosni frekar upp en
þær sem menn búa til sjálfir, þær
endist miklu betur. Sjálfur hnýtir
hann um 200 flugur yfir veturinn.
Hann þarf að endurnýja vissar
flugur sem hann notar mikið en
hann reynir líka að búa til ein-
hverjar nýjar.
„Við veiðimenn notum
veturinn til hnýtinga og
það er gaman að hitta fé-
lagana og hnýta saman,
skiptast á veiðisögum og
leggja drög að næsta veiðisumri.
Synir mínir hafa líka náð ágætum
tökum á hnýtingum og við feðgar-
nir hnýtum mikið saman og þeir
veiða að sjálfsögðu líka mikið með
mér.“
Árni segir suma halda flugu-
uppskrift leyndri ef flugan reynist
vel, þeir gefi kannski besta vininum
hana í miklum trúnaði og taka af
honum loforð um að sýna engum
hana. Aðrir deili flugunum sínum
með sem flestum.
Verður að sjá fisk
Árna finnst skemmtilegast að
veiða á flugu en neitar því ekki að
útivistin sé stór hluti af veiðiánægj-
unni, það sé ekki aðalatriðið að fá
fisk. „En auðvitað er leiðinlegt að
kasta á dautt vatn, maður verður
allavegana að sjá fisk, þá þarf að
lesa í vatnið og prófa flugurnar,
finna út hver þeirra virkar,“ segir
Árni sem veiðir mikið í apríl, maí og
fram í júní, því það er besti tíminn í
silungnum, þá er hann svo svangur
og meira fjör í veiðinni.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
„Ég vakna líklega um kl. 10 og fæ mér morgunmat. Fyrir há-
degi verð ég heima að læra og fljótlega eftir hádegi stefni
ég á að fara í ræktina. Klukkan fjögur opna ég mína fyrstu
ljósmyndasýningu í Gallerí Tukt í Hinu Húsinu. Þemað á
þessari sýningu er „Gamalt“ og eru myndirnar aðallega af
gömlum byggingum og tækjum og öðru, þó ekki af gömlu
fólki. Ég þarf ekkert að stressa mig fyrir opnunina enda öll
sýningin komin upp og ég þarf bara að mæta á staðinn.
Opnuninni lýkur kl. 18 og þá fer ég heim og hitti svo vini
mína um kvöldið. Það getur verið að við förum í bíó eða
gerum eitthvað annað skemmtilegt. Ég býst við að skríða í
bólið einhvern tímann eftir miðnætti.“
Sveinn Heiðar Kristjánsson, 16 ára nemi í flugtækni við Tækniskólann
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Gamalt Ljósmynd eftir Svein Heiðar sem verður á sýningunni í Gallerí Tukt.
Með fyrstu ljósmyndasýninguna
Sveinn Heiðar
Uppskrift að flugu (nema þú
sért fluguskáld).
Öngla.
Þvingu (til að skorða öngul-
inn).
Tvinna (sérstakan hnýtingar-
tvinna í mörgum litum og mis-
munandi grannan).
Græju til að halda um keflið.
Fjaðrir, hár eða garn.
Fjaðrirnar og hárin eru
af hinum ýmsu
skepnum, ýmist
fjaðrir af allskonar
fuglum, m.a. fas-
hönum, störrum og
hænum, eða hérahár,
kálfshár, refahár
o.s.frv. Hárin og fjaðr-
irnar eru oft lituð með
skærum litum.
Hvað þarf til?
FJAÐRIR OG KÁLFSHÁR
Komið er út fyrsta tölublað vefrits
Knitting Iceland þar sem birtar eru
uppskriftir frá sjálfstætt starfandi
hönnuðum og höfundum ásamt við-
tölum og greinum. Fyrsta tölublaðið
er helgað prjónahefðinni sem birtist
þó með sterku nútímalegu ívafi.
Prjónahefð Íslendingar er rík og felur
í sér fleiri spennandi þætti en lopa-
peysuna góðu sem hefur þó verið
verðugur boðberi íslensks prjóns og
ullar síðustu áratugina, segir í frétta-
tilkynningu frá Knitting Iceland.
Hverri prjónauppskrift fylgir saga
og lesandinn kynnist því hvernig
gamla hefðin, fjölskyldur, sögur og
minningar veita innblástur til hönn-
unar fallegra og notadrjúgra flíka.
Vefrit Knitting Iceland er gefið út á
íslensku, ensku og frönsku, prjóna-
uppskriftir eru seldar stakar sem
PDF-skjöl og garn í hverja uppskrift
fæst sent gegnum vefverslun hvar
sem viðtakandinn er í heiminum.
Hélène Magnússon og Ragnheiður
Eiríksdóttir stofnuðu Knitting Ice-
land árið 2009 með það fyrir augum
að halda íslenska prjónahefð í heiðri.
Hannyrðir
Íslenskt prjónavefrit komið út
Knitting Iceland Hélène Magnússon
og Ragnheiður Eiríksdóttir.
Slóðin á vefritið er
www.knittingiceland.com.
Gestir Björgvin G. Sigurðsson og vinur hans ásamt Bryndísi Schram og
Jóni Baldvini Hannibalssyni, þau voru öll mætt á frumsýninguna.
Kvennalið Ilmur og Sólveig vita margt um
íslenskt mál og skemmtu sér vel.
Leikhússtjórinn Magnús og
Guðmundur Steingrímsson.
Þátturinn fjallar um
íslenskt mál og er
sýndur vikulega á
Litla sviðinu.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Meðferð fyrir fyrirbura sem kölluð
er „kengúra“, eða húð við húð, hefur
notið vaxandi vinsælda hjá heilbrigð-
isstofnunum undanfarin ár. Þá er
barnið, aðeins klætt í bleiu, lagt á
bert brjóst foreldra sinna.
Rakel Björg Jónsdóttir, sér-
fræðingur í hjúkrun nýbura á vöku-
deild Barnaspítala Hringsins, ætlar
á mánudag að flytja erindi á Mál-
stofu í Eirbergi og kynna sam-
norræna rannsókn á þessari með-
ferð.
„Fjöldamargar rannsóknir hafa
verið gerðar um víða veröld á keng-
úrumeðferðinni og yfirleitt hafa
komið í ljós jákvæð áhrif, m.a. áhrif á
lífeðlisfræðilega þætti eins og hjart-
slátt og öndun barnsins. Einnig bæt-
ir þessi meðferð svefn barnsins,
brjóstagjöfina og fleira. Og snert-
ingin bætir tengslamyndun milli for-
eldra og barns.
En það er líka verið að rannsaka
hvort þetta geti haft neikvæð áhrif, í
hvaða tilfellum ætti ekki að beita
þessari meðferð og fleira í þeim dúr.
Það hafa verið ýmsar hindranir sem
hafa komið í veg fyrir slíka meðferð,
en þar ber helst að nefna þekking-
arleysi, þegar fólk hefur einfaldlega
ekki kynnt sér þetta nógu vel. Sums
staðar hefur skortur á hjúkr-
unarfræðingum einnig hindrað með-
ferð, til dæmis þarf stundum tvo
hjúkrunarfræðinga til að flytja barn-
ið í fang foreldranna. Stundum geta
aðstæðurnar, eða skortur á þeim,
hindrað meðferð, því það þarf vissu-
lega góðar aðstæður, til dæmis góða
stóla, einrúm og ró og næði til að
meðferðin virki sem skyldi.
Einnig hefur komið í ljós að
starfsfólk með meiri reynslu en
minni er líklegra til að beita þessari
meðferð.
Veikindi fyrirburans geta líka
verið hindrun í meðferð, því fyr-
irburar eru oft tengdir við alls konar
snúrur, tæki, öndunarvél og fleira.
Þessi börn eru stundum það mikið
veik og óstöðug að þeim er ekki
treystandi til að hreyfa sig mikið.“
Rakel segir að kengúrumeð-
ferðinni sé töluvert beitt á vökudeild-
inni á Barnaspítala Hringsins.
„Þetta er ekki stundað sem markviss
meðferð, sem mætti gjarnan bæta
úr, en við reynum að leggja okkur
fram í þessum málum, þegar því
verður við komið.“
Rakel segir að það geti verið
mjög erfitt fyrir foreldra að þurfa að
bíða eftir því að fá barnið í fangið.
„Oft líður mjög langur tími þar til
foreldrar geta fengið að halda á
barninu sínu, en við reynum alltaf að
gera það eins fljótt og ástand barns
og móður leyfir.“
Húð við húð skiptir máli
Reuters
Málstofan er öllum opin og
verður á mánudag kl. 12.10-12.50 í
stofu 201 í Eirbergi, Eiríksgötu 34.
www.rsh.hi.is