Morgunblaðið - 25.09.2010, Page 12
SVIÐSLJÓS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bolvíkingar sjá ýmis tækifæri birtast
með tilkomu jarðganganna sem opn-
uð verða í dag. Markaðssvæði þjón-
ustufyrirtækja stækkar og þeir von-
ast til þess að nágrannar þeirra á
Vestfjörðum nýti
sér nú í auknum
mæli það sem
þeir hafa fram að
færa og fleiri
ferðamenn leggi
leið sína til Bol-
ungarvíkur. Mikil
hátíð verður í dag
vegna opnunar
Bolungarvíkur-
ganga.
Vegurinn um
Óshlíð er hættulegur vegna grjót-
skriða og snjóflóða og endurbætur á
síðustu áratugum hafa ekki dugað til
að tryggja öryggi vegfarenda. Ós-
hlíðin hefur þar til í dag verið eina
tenging Bolungarvíkur við þjóðvega-
kerfið. Með göngunum má því segja
að loksins sé orðið fært út í Bolung-
arvík.
Erfið setlög
Göngin komu ekki baráttulaust,
frekar en önnur stórvirki í sam-
göngumálum og hafa átt langan að-
draganda. Skiptar skoðanir voru um
það hvaða leið ætti að fara. Yfirvöld
samgöngumála ákváðu að grafa lið-
lega 5 kílómetra göng úr Bolungar-
vík í Hnífsdal. Samið var við Ósafl og
hafa framkvæmdir staðið yfir frá því
í maí 2008.
Rúnar Ágúst Jónsson, staðarstjóri
Ósafls, segir að verkið hafi gengið
vel. Þó hafi þeir lent í seinunnum set-
lögum. Þurfti að styrkja göngin sér-
staklega á köflum. Þetta tafði verkið
nokkuð.
Fjöldi Bolvíkinga ekur þessa leið
daglega, vegna vinnu á Ísafjörð og
flestir bæjarbúar aka oft þarna um til
að sækja þangað þjónustu. „Ég segi
fyrir mig að mesti léttirinn er að nú
þurfa börnin ekki að þvælast Óshlíð-
ina á leið í skóla og eða til að hitta fé-
lagana á Ísafirði,“ segir Elías Jón-
atansson bæjarstjóri. „Nú horfir
maður á eftir þeim fara inn í göngin í
byggð og veit af þeim í byggð inni í
Hnífsdal. Þetta er gríðarlegur léttir,“
segir Elías.
Markaðssvæðið stækkar
Tækifæri og ógnanir fylgja bætt-
um samgöngum. Sóknarfærin liggja í
stærri markaði fyrir þjónustufyrir-
tækin en fólk upplifir ógnanir í því að
þjónusta, ekki síst opinber, gæti
minnkað í bænum og færist í miðj-
una, inni á Ísafirði.
Bolvíkingar sækja nú þegar mikla
þjónustu til Ísafjarðar, til dæmis
verslun. Þrátt fyrir það eru tvær
verslanir á staðnum og önnur á sér
83 ára sögu. Stefanía Birgisdóttir í
Verslun Bjarna Eiríkssonar við
Hafnargötu á ekki von á að göngin
breyti verslunarvenjum Bolvíkinga,
þeir sæki nú þegar stíft í verslun á
Ísafirði. Hins vegar hafi Ísfirðingar
almennt verið hræddir við Óshlíðina
og lítið sótt til Bolungarvíkur. Telur
hún að göngin geti breytt því.
„Ég bind vonir við að þetta muni
lyfta aðeins undir reksturinn. Það
muni fleiri fara rúntinn hingað út eft-
ir,“ segir Ragna Magnúsdóttir sem
rekur veitingastaðinn Einarshús í
Bolungarvík. Þá telur hún að bættar
samgöngur lyfti undir ferðaþjónustu
og atvinnulíf við höfnina og það muni
skila einhverju í bæinn.
Hræddir við sameiningu
Elías bæjarstjóri telur að útgerð-
armenn frá öðrum stöðum kunni að
sjá sér hag í því gera út frá Bolung-
arvík, þar sem styttra er á miðin,
þegar þeir geti alltaf verið öruggir
um að komast heim til sín. Þá muni
atvinnumöguleikar fólks sem býr í
Bolungarvík aukast og verða fjöl-
breyttari við það að tengjast fjórum
sinnum fjölmennara svæði.
Miklar samgöngubætur hafa
gjarnan leitt til sameiningar sveitar-
félaga. Nefna má stóra sameiningu í
Ísafjarðarbæ vegna Vestfjarðaganga
og sameiningu sveitarfélaganna við
Héðinsfjarðargöng. Ríkið leggur
milljarða í þessi göng en Bolvíkingar
fara í vörn þegar þeir eru spurðir að
því hvort ekki séu nú komnar for-
sendur til hagræðingar í stjórnsýsl-
unni með sameiningu sveitarfélaga.
Elías bendir á að nýleg athugun
bendi til þess að skuldir á hvern íbúa
í Bolungarvík aukist við sameiningu,
minna fé verði til framkvæmda og
þjónustan muni ekki batna. Hann
spyr af hverju ætti að sameina þegar
staðan sé þessi.
Breytingar hafa orðið í heilsugæsl-
unni við sameiningu heilbrigðisstofn-
ana og íbúarnir telja sig ekki fá jafn
góða þjónustu og áður. Fleiri atriði
eru nefnd. Elías segir að þróunin
þurfi ekki að vera í aðra áttina. Ýmis
opinber þjónusta, sem fjöldinn þurfi
ekki að nota daglega, geti allt eins
verið í Bolungarvík og þjónað öllu
svæðinu. „Svæðið í heild þrífst best
með því að allar byggðirnar dafni.
Það er verst fyrir stóra kjarnann ef
jaðarbyggðirnar veikjast,“ segir Elí-
as.
Fært til Bolungarvíkur
Bolungarvíkurgöng taka af hættulegan veg um Óshlíð Íbúarnir vonast eftir auknum viðskiptum
Þeir óttast um leið að missa opinbera þjónustu og sjá ekki hag í að sameina sveitarfélögin
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Frágangur Starfsmenn Ósafls og undirverktaka eru að ljúka frágangi í göngunum þannig að hægt verði að opna
þau. Vígsluathöfn verður við gangamunnana eftir hádegið og umferð hleypt á í báðar áttir upp úr klukkan tvö.
Elías
Jónatansson
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
„Nafnið virðist heitt mál hjá Ísfirð-
ingum en það skiptir okkur Bolvík-
inga engu máli. Aðalmálið er að fá
göngin,“ sagði Bæring Freyr Gunn-
arsson útgerðarmaður sem var að
landa úr bátnum sínum þegar spurn-
ingin var borin upp.
Jarðgöngin milli Hnífsdals og Bol-
ungarvíkur voru í upphafi nefnd Ós-
hlíðargöng og báru það heiti í opin-
berum plöggum, þar til Kristján L.
Möller ráðherra ákvað að nota heitið
Bolungarvíkurgöng. Það hefur
mælst misjafnlega fyrir. „Ég hefði
viljað halda mig við Óshlíðarnafnið.
Göngin eru við hliðina á leið sem bor-
ið hefur þetta nafn í aldir, þótt menn
hafi lengst af farið þar gangandi um.
Ég mun aldrei taka mér þetta orð í
munn. Ætli venjan verði ekki sú að
tala um Göngin, eins og menn tala nú
um Hlíðina?“ segir Valdimar L.
Gíslason rútubílstjóri sem ekur oft á
dag um Óshlíðina.
„Hér eru hin einu sönnu Bolung-
arvíkurgöng,“ segir Þorleifur Ei-
ríksson, forstöðumaður Náttúru-
gripasafns Bolungarvíkur. Í göngum
sem verið er að útbúa á safninu
verða sýndir steinar sem starfsmenn
Ósafls hafa safnað við jarðganga-
gerðina. Þau verða líka opnuð í dag.
Mun aldrei segja þetta nafn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Hin göngin Starfsmenn setja upp sýningu í Náttúrugripasafninu.
„Þetta er alger bylt-
ing. Við erum búnir að
þrá þetta í þrjátíu ár,“
segir Valdimar Lúðvík
Gíslason sem annast
hefur fólksflutninga á
milli Bolungarvíkur og
Ísafjarðar í áratugi.
Hann ekur nú fjórtán
sinnum á dag um Ós-
hlíðina. Valdimar segir
að það hafi auðveldað
aksturinn að ekki hafi komið alvöru snjóavetur í
meira en áratug.
Skiptar skoðanir voru um göngin. Sumir vildu
fara inn úr Syðri-Dal og koma út í Tungudal í Skut-
ulsfirði, eða tengja göngin við Vestfjarðagöng.
Valdimar segir að það hefði verið óráð að beina
umferðinni inn í þá snjóakistu. „Þetta er eins góð
staðsetning fyrir jarðgöng og hægt er að hugsa
sér,“ segir hann um legu ganganna.
„Við erum búnir að
þrá þetta í þrjátíu ár“
VALDIMAR LÚÐVÍK GÍSLASON ER ÁNÆGÐUR
Valdimar Lúðvík Gíslason bíð-
ur eftir farþegum.
Haraldur Ringsted
rafeindavirki er einn
þeirra sem fara Ós-
hlíðina oft á dag
vegna starfs síns hjá
Netheimum Hann
fagnar göngunum en
viðurkennir um leið
að hann muni sakna
útsýnisins af Ós-
hlíð. Haraldur og
Ylfa Mist Helgadótt-
ir, kona hans, hafa búið í Bolungarvík í átta ár.
„Við höfum aldrei upplifað neinar hörmungar á
Óshlíð og fannst ekki tiltökumál að keyra á milli.
Það er sennilega af því að við höfum ekki vitað bet-
ur,“ segir Ylfa Mist og bætir við: „Göngin eru sjálf-
sögð samgöngubót og fáránlegt að þau skuli ekki
hafa komið fyrr.“ Ylfa Mist segir mikilvægt að
standa vörð um þjónustuna. Samgöngubætur komi
ekki að notum ef þjónustan hverfi og íbúarnir með.
Göngin hefðu átt að
vera komin fyrir löngu
HARALDUR RINGSTED FER OFT UM ÓSHLÍÐ
Haraldur Ringsted, Ylfa Mist
Helgadóttir og Birnir Ringsted.
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16, sunnud. 14–16
Næsta listmunauppboð 4. október
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband í síma
551-0400, 896-6511 (Tryggvi),
845-0450 (Jóhann)
Erum að taka á móti verkum núna í
Galleríi Fold við Rauðarárstíg