Morgunblaðið - 25.09.2010, Qupperneq 18
Ragna Freyja Karlsdóttir sérkenn-
ari hlaut í fyrradag viðurkenningu
ADHD samtakanna í tilefni af vit-
undarviku samtakanna dagana 20.-
24. september sl. Ragna Freyja
starfaði um árabil sem skólastjóri
Dalbrautarskóla. Útgáfa hennar á
ofvirknibókinni var frum-
kvöðulsstarf sem sjálfsagt hefur
aukið skilning margra foreldra og
kennara á orsökum og afleiðingum
ADHD, segir í tilkynningu. Ragna
starfaði lengi með Eirð sem var
fræðslu- og ráðgjafarþjónusta um
uppeldi og geðheilsu barna- og
unglinga. Hún starfar nú sjálfstætt
að kennsluráðgjöf í skólum. Aðrir
þeir sem heiðraðir voru eru Jó-
hanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra, Matthías Kristiansen þýð-
andi og kona hans Heidi Strand.
ADHD samtökin hafa starfað síð-
an árið 1988. Tilgangur samtak-
anna er m.a. að auka skilning á
þeim vaxandi fjölda sem glímir við
ADHD, en samkvæmt rannsókn hjá
Íslenskri erfðagreiningu glíma um
7,5% barna hérlendis við ADHD.
Ljósmynd/hag
Frumkvöðull Ragna Freyja starfaði lengi sem skólastjóri Dalbrautarskóla. Mörg börn sem
greind voru misþroska þá öðluðust nýja reynslu af skólagöngunni undir handarjaðri hennar.
Fjórir einstaklingar hlutu viðurkenningu
á vitundarviku ADHD samtakanna
Í haust munu Hjólafærni og
Landssamtök hjólreiðamanna
standa fyrir hjólreiðaferðum frá
Hlemmi á laugardagsmorgnum.
Árni Davíðsson hjólafærnikennari
og formaður Landssamtaka hjól-
reiðamanna mun fara fyrir hjól-
reiðinni flesta dagana.
Fyrsta ferðin verður farin í dag,
laugardag. Mæting er frá kl. 10:00
þar til lagt verður á stað kl. 10:15.
Hjólaðar verða mismunandi leiðir
um borgina eftir rólegum götum í
1-2 tíma. Markmiðið er að hittast
og sjá og læra af öðrum hjólreiða-
mönnum hversu auðvelt er að
hjóla í borginni. Þeir sem vilja
geta endað ferðina á kaffihúsi.
Ferðin er ókeypis og eru allir
velkomnir. Allir sem kunna að
hjóla eiga að geta tekið þátt. Með-
alhraði fer eftir hægasta manni en
ætti oftast að vera á bilinu 10-20
km/klst.
Hægt er að óska eftir kennslu á
öðrum tímum ef menn eru ekki í
æfingu. Hjólafærni veitir margs-
konar þjónustu á vefnum sem sjá
má á vefnum www.hjólafærni.is.
Morgunblaðið/Ómar
Hjólaferðir á laugar-
dögum í haust
Styrktarfélagi krabbameinssjúkra
barna voru í vikunni afhentar
135.500 krónur sem söfnuðust á
styrktartónleikum fyrir samtökin.
Skipuleggjari tónleikanna var Ást-
þór Óðinn Ólafsson. Tónleikarnir
voru haldnir 9. og 10. september
sl. í Frumleikhúsinu í Reykja-
nesbæ. Tónleikarnir voru haldnir
til minningar um tvo unga pilta
sem létust nýlega eftir baráttu við
krabbamein. Piltarnir tveir hétu
Guðmundur Þór Jóhannesson og
Sigfinnur Pálsson, báðir búsettir í
Reykjanesbæ. Hljómsveitirnar sem
komu fram á tónleikunum voru:
Of Monsters and Man, Valdimar,
Sky Reports, Ástþór Óðinn, Klass-
art, Lifun, Reason 2 Believe og
Hreiðar.
Söfnunarfé afhent
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
ÚR BÆJARLÍFINU
Andrés Skúlason
Djúpivogur
Ferðaþjónusta var í góðu með-
allagi á Djúpavogi á liðnu sumri
þrátt fyrir ýmsa ytri óáran og þrátt
fyrir að veðurfar hafi ekki verið hag-
stætt, en óvenju þokugjarnt og úr-
komusamt var á svæðinu þetta sum-
arið. Aðilum í ferðaþjónustu hefur
vaxið ásmegin á síðustu árum og
með nýjum aðilum sem komið hafa
inn á markaðinn hefur þessi unga at-
vinnugrein enn styrkt stöðu sína á
svæðinu.
Mikið líf var við Djúpavogshöfn í
sumar sem leið en smábátum fjölg-
aði umtalsvert í tengslum við strand-
veiðikerfið og öfluðu þeir með ágæt-
um. Smábátar hafa gjarnan mikið
aðdráttarafl og því má segja að höfn-
in á Djúpavogi sé einn mest sótti
ferðamannastaðurinn á svæðinu.
Þegar skammdegið færist yfir,
lauf taka að falla og haustlitirnir
ómótstæðilegu heilsa leggja bændur
og búalið á fjöll eftir fé sínu. Á sama
tíma taka aðrir íbúar Djúpavogs-
hrepps þátt í heilsuræktarátaki und-
ir nafninu „Búinn“ og er þátttaka
mjög góð og má nú sjá íbúa á öllum
aldri ýmist úti að ganga, skokka eða
hjóla eða þá stunda aðra líkamsrækt
í Íþróttamiðstöðinni, en þar er m.a.
leikið í brennibolta, blaki og fleira
meðan aðrir taka sundsprett. Mark-
miðið með átakinu er meðal annars
að beina sem flestum íbúum á þá
braut að gera heilsurækt að lífsstíl.
Átakið stendur yfir í þrjá mánuði og
verða sérstök verðlaun veitt að tíma-
bilinu loknu fyrir góða ástundun og
árangur á einstökum sviðum.
Framundan eru ýmsir árvissir
og skemmtilegir menningartengdir
viðburðir á Djúpavogi. Meðal við-
burða má nefna hina séraustfirsku
Daga myrkurs sem eru haldnir há-
tíðlegir með ýmsum og fjölbreyttum
uppátækjum um allt Austurland.
Hápunktur dagskrár Daga myrkurs
á Djúpavogi er hin svokallaða Sviða-
messa sem notið hefur mikilla vin-
sælda og er ávallt vel sótt en messan
verður að þessu sinni hinn 13. nóv-
ember næstkomandi.
Á Sviðamessu eru etin svið og
lappir með rófustöppu undir fjöl-
breyttum uppákomum þar sem
heimamenn stíga á svið og skemmta
sjálfum sér og öðrum.
Hauststemning á Djúpavogi
Morgunblaðið/ Andrés Skúlason
Mikið líf Höfnin er einn mest sótti ferðamannastaðurinn á svæðinu.
Fjölskylduhjálp Íslands greip til
þess ráðs í vor að leigja stórt svæði
í Skammadal til kartöfluræktar og
spara þannig stórfé.
Á sunnudaginn kemur, þann 26.
september kl. 13.00 er áformað að
taka kartöflur upp. „Þeir sem geta
hjálpað okkur eru beðnir að mæta
upp í Skammadal á sunnudaginn
kemur með eigin áhöld. Margar
hendur vinna létt verk,“ segir í til-
kynningu frá Fjölskylduhjálpinni.
Leita sjálfboðaliða
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, var í
fyrradag gerður að heiðursfélaga í Rússneska
landfræðifélaginu við hátíðlega athöfn á Al-
þjóðaþingi um norðurslóðir sem haldið er í
Moskvu.
Forsætisráðherra Rússlands, Vladimir Putin,
afhenti forseta heiðursskjal og sérstakt innsigli
úr bronsi þessu til staðfestingar.
Í ávarpi sem formaður Rússneska landfræði-
félagsins, Sergei Shoigu, flutti við þetta tilefni
vísaði hann til margþætts framlags forseta Ís-
lands til málefna norðurslóða, en forsetinn hefði
um árabil verið virkur þátttakandi í samvinnu og
samræðum um málefni norðurslóða og stuðlað að
auknum tengslum rannsóknastofnana, háskóla
og fræðimanna.
Forseti Íslands gerður
að heiðursfélaga
STUTT
Í dag, laugardag kl. 11, heldur Joe
Borg erindi í Háskólanum í Reykja-
vík. Erindið nefnist: Samninga-
viðræður Íslands við ESB – hvað
má læra af reynslu Möltu?
Joe Borg var utanríkisráðherra
Möltu 1999-2004 og leiddi aðildar-
viðræður Möltu við ESB. Um leið og
Malta varð aðili að Evrópusam-
bandinu 2004 tók hann sæti í fram-
kvæmdastjórn ESB og tók við starfi
sem yfirmaður sjávarútvegsmála
hjá ESB. Fundurinn er öllum opinn.
Að erindinu loknu verða fyr-
irspurnir og umræður.
Fundarstjóri er Svanborg Sig-
marsdóttir stjórnmálafræðingur.
Ræðir um
aðild Möltu
LAGERHREINS
UNA
ðeins í
BYKO Breidd
Enn í fullum g
angi!
afsláttur
Mikill
Á súpufundi Kvenréttindafélags Ís-
lands á Hallveigarstöðum kl. 12
mánudaginn 27. september verða
kynja- og staðalímyndir í auglýs-
ingum ræddar. Katrín Anna Guð-
mundsdóttir mun fjalla um nið-
urstöður MA-ritgerðar sinnar í
kynjafræði við Háskóla Íslands frá í
vor, þar sem hún tekur fyrir aug-
lýsinga- og markaðsmál. Í ritgerð-
inni skoðaði hún kyn- og staðal-
ímyndir í auglýsingum.
Halldóra Guðrún Ísleifsdóttir,
lektor í grafískri hönnun, mun
fjalla um ríkjandi hugmyndir í sam-
félaginu og hvernig þær endur-
speglast í auglýsingum.
Súpufundur um
staðalímyndir
Hagsmunasamtök heimilanna vilja
að höfuðstóll verðtryggðra lána
verði stilltur á stöðu höfuðstóls lán-
anna eins og hann var í árslok 2007.
Frá þeim tíma verði sett þak á árleg-
ar verðbætur sem geti hæst jafngilt
efri vikmörkum verðbólgumarkmiða
Seðlabanka Íslands, eins og þau
voru frá apríl 2001, það er 4,0% á ári.
Þannig leiðrétt lán ættu að mati
samtakanna að vera viðráðanleg fyr-
ir flesta lántaka. Það sem eftir
standi verði afskrifað án þess að
skattur sé lagður á afskriftir.
Taki mið af lægstu vöxtum
Samtökin krefjast þess að höfuð-
stól gengisbundinna húsnæðislána
verði breytt í verðtryggt krónulán
miðað við stöðu þeirra í lok árs 2007.
Skilmálar lánanna taki mið af lægstu
vöxtum Seðlabankans af verð-
tryggðum lánum eða lægstu vöxtum
viðkomandi lánveitanda.
Samtökin vilja einnig gera veiga-
miklar breytingar á húsnæðiskerf-
inu. Þau vilja að 4% þak verði sett á
árlegar verðbætur verðtryggðra
húsnæðislána, sem lækki þar til
verðtrygging húsnæðislána verður
afnumin. 5-6% hámark verði sett á
óverðtryggða vexti húsnæðislána og
samið verði í þrjú til fimm ár í senn.
Þak verði sett á verðbætur
Hagsmunasamtök heimilanna krefjast aðgerða Gengis-
bundnum húsnæðislánum verði breytt í verðtryggð krónulán