Morgunblaðið - 25.09.2010, Side 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2010
Þetta er mín fyrsta
sýning á Rocky Hor-
ror, þessum fræga og
ótrúlega vinsæla söng-
leik, þó svo að ég
þekki tónlistina að ein-
hverju leyti. Verkið er
súrrealískt og showið
dásamlega fullkomið.
Sýning LA á Rocky
Horror er eins og
svert partí sem ein-
hverjir hræðast, en
eru innst inni spenntir fyrir og eng-
inn vill missa af. Það er ljóst að það
er búið að nostra við litríka, draum-
kennda og næstum fullkomna bún-
inga, gervi, hárkollur og förðun.
Þessir þættir undirstrika
rokkshowstemninguna. Dansarnir,
fimleikarnir og lýsingin/ljósashowið
fá hæstu einkunn og bara það eitt
er ástæða til að koma aftur og
njóta. Leikmyndin stendur fyrir
sínu, einföld en samt ekki. Ég hefði
viljað sjá þetta glæsilega 200 fer-
metra svið notað betur og hafa
sviðsmyndina örlítið
viðameiri en þykist
samt gera mér grein
fyrir því að hraðinn,
tólin, tæknibrellurnar,
fimleikarnir og fleira
óvænt sem ég ætla
ekki að telja upp hamli
því.
Með fullri virðingu
fyrir öðrum hópum
sem hafa stigið á svið
hjá LA þá ætla ég að
leyfa mér að fullyrða
að hópurinn í kringum
þessa sýningu er einn
sá allra kraftmesti. Allir skemmta
sér og leikgleðin er mikil. Það eitt
er ástæða til að tryggja sér miða
strax, bæði til að missa alls ekki af
og einnig til þess að geta farið aft-
ur. Ég hef það á tilfinningunni að
Jón Gunnar, sá frábæri leikstjóri,
hafi gefið sig allan í þessa sýningu
og að hann hafi náð að koma til
skila mynd sem hann hefur haft í
huga í upphafi, mynd af „showi ald-
arinnar“.
Það eru nokkur atriði sem máttu
njóta sín betur og hafa kannski með
staðsetningar að gera. Ég ég er
þess fullviss að þetta skrifast á ör-
lítið frumsýningarstress, þetta slíp-
ast fljótt og leikarar setjast betur í
hlutverkin og aðstæður. Tónlistin í
verkinu er í aðalhlutverki, flott,
kraftmikil og eftirminnileg. Andrea
Gylfadóttir sér um tónlistarstjórn
og ég get ekki annað en gefið henni
„high five“. Hljómsveitin er frábær,
þétt spilamennska og spilagleðin
mikil. LA hefur á að skipa góðum
og reynslumiklum hljóðmanni og
gerir hann vel og í raun betur en
húsið og aðstæður bjóða upp á að
sinni. Þó að hljóðið hafi ekki verið
fullkomið og ég hefði viljað meiri
styrk í sumum lögunum þá skrifa
ég það allt saman á fyrstu skrefin í
nýju húsi með nýjar græjur.
Leikhópurinn er vel samsettur
og það er nánast eins og að hver
einasti þátttakandi sé sérsniðinn
fyrir sitt hlutverk. Þetta eru flottir
og kynþokkafullir leikarar/
söngvarar sem gera allir mjög vel
og sumir betur en hlutverkin bjóða
upp á. Danshópurinn/kórinn er
kröftugur og hefur greinilega gam-
an af hlutunum, syngur vel og leik-
ur listir sem hrein unun er að horfa
á. Hið snúna, eftirsótta og áhuga-
verða hlutverk Frank N. Furters
er í höndum Magnúsar Jónssonar
og á köflum náði hann að gera
dásamlega vel og það á bara eftir
að verða betra. Eyþór Ingi sem
leikur Riff Raff syngur og leikur af
svo mikilli snilld að það hálfa væri
nóg, í nokkur skipti tók salurinn
dýfur yfir frábærum töktum hans.
Atli Þór og Jana María sem Brad
og Janet eru sæt og saklaus að
mestu. Þau skila sínu mjög vel og
syngja eins og englar, Jana er frá-
bær og sexí söng/leikkona og Atli
kom mér á óvart með sínum söng.
Bryndís og Andrea sem Magenta
og Columbia eru eins og sniðnar í
sín hlutverk sem hafa kannski ekki
mikið upp á að bjóða í leik, en söng-
ur þeirra og raddir eru eins og sér-
pantaðar fyrir „showið“. Matti Matt
leikur Eddie og er virkilega flottur,
syngur og leikur eins og hann hafi
aldrei gert annað. Það er eins og
Guðmundur Ólafsson sögumaður
hafi fylgt með handritinu að utan,
það er bara eins og að hann hafi
alltaf verið þarna og aldrei gert
neitt annað. Rocky leikur ungur og
áhugaverður leikari, Hjalti Rúnar
Jónsson, flottur á sviði og gaman
verður að fylgjast með honum í
framtíðinni.
Það eru nokkur atriði sem hægt
er að setja út á. Flest ef ekki allt
skrifa ég á frumsýninguna, örlítils
óöryggis gætti á nokkrum stöðum,
en allt á það eftir að slípast. Örlítið
vantaði upp á að texti væri nógu
skýr aðallega þegar sungið var,
hugsanlega skrifast það á hljóð-
nemana sem notaðir eru. Mig grun-
ar að æfingatíminn í Hofi hafi ekki
verið nógu langur en eftir nokkrar
sýningar verður hljómburðurinn í
húsinu orðinn enn betri og sýningin
farin að rúlla og ég ætla mér að
fara aftur og ég hlakka til. Frum-
sýningargestir voru afar ánægðir
með sýninguna miðað við við-
brögðin í lokin, klappinu, hróp-
unum, blístrinu og gleðinni ætlaði
aldrei að linna.
Til hamingju allir þátttakendur í
Rocky Horror, til hamingju LA, til
hamingju María leikhússtjóri í leik-
húsinu með stóra hjartað og leik-
húsinu sem þorir, til hamingju
ágæti áhorfandi, þú átt kost að að
vera með … drífðu þig á eitt
stærsta og kynþokkafyllsta „sjó“
sem lengi hefur sést, þig gæti
nefnilega langað aftur.
Kynþokki, rokk og ról –
Leikfélag Akureyrar þorir
Eftir Júlíus
Júlíusson » Sýning LA á Rocky
Horror er eins og
svert partí sem ein-
hverjir hræðast, en eru
innst inni spenntir fyrir
og enginn vill missa af.
Júlíus
Júlíusson
Höfundur er frkvstj. og er
áhugamaður um mat og menningu.
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL SÖLU
Hlíðasmári 19
Um er að ræða hluta fasteignarin-
nar nr. 19 við Hlíðasmára í
Kópavogi sem er verslunar-/þjó-
nustu- og skrifstofuhúsnæði á 1.,
3. og 4. hæð samtals að gólffleti
1.599,7 m².
Eignarhlutarnir eru í góðu ásig-
komulagi hið innra og ytra. Dúkur
er á flestum gólfum. Flísar eru á
forstofu sameignar og á stigagangi
og snyrtingum
Skemmuvegur 34
Um er að ræða 252 m² iðnaðarhúsnæði í þekktu iðnaðarhveri
sem skiptist í stóran sal með innkeyrsludyrum, snyrtingu,
skrifstofu, og geymslur. Staðsetning er mjög góð.
Síðumúli 10
Um að ræða fasteignina nr. 10 við Síðumúla í Reykjavík sem
er verslunar- og iðnaðarhúsnæði á jarðhæð auk íbúðaher-
bergja á efri hæð samtals að flatarmáli 478,5 m². Efri hæðin
hentar einnig sem skrifstofur.
Fyrir liggur samþykkt að stækkun hússins, þ.e. að byggt verði
við suðurenda hússins á tveimur hæðum, sett verði milliloft í
hluta annarrar hæðar og byggð verði að hluta þriðja hæð ofan
á hluta byggingarinnar. Heildarstærð eignarinnar eftir stæk-
kun yrði því 966,6 m².
Eignin þarfnast endurnýjunar hið innra og ytra.
Eignirnar eru í útleigu og nánari upplýsingar um leigutekjur fást hjá söluaðilum
Hlíðarsmári 17
Um er að ræða einn eignarhluta í fasteigninni nr. 17 við
Hlíðasmára í Kópavogi, sem er verslunar-/þjónustuhúsnæði
á götuhæð að gólffleti 192,5 m².
Dúkar eru á gólfum. Tveir inngangar eru í eignarhlutann og er
hann í góðu ásigkomulagi hið innra og ytra.
Reykjavík
Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. - OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. - Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.