Morgunblaðið - 10.12.2010, Síða 15
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010
FRÉTTASKÝRING
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Skýrslur, sem unnar voru fyrir emb-
ætti sérstaks saksóknara um starfs-
hætti endurskoðunarfyrirtækisins
PricewaterhouseCoopers á Íslandi
(PwC) þegar kom að endurskoðun
árs- og árshlutareikninga Glitnis og
Landsbankans, geta haft slæm áhrif
á ímynd PwC alþjóðlega, að sögn
stjórnarmanna í slitastjórn Glitnis.
Sama á við um málshöfðun slit-
astjórnarinnar gegn PwC á Íslandi í
New York, einkum ef dómstóllinn
úrskurðar slitastjórninni í hag, að
sögn Steinunnar Guðbjartsdóttur,
formanns slitastjórnarinnar.
Hún segir í samtali við Morgun-
blaðið að slitastjórnin hafi skoðað
hugsanlega málsókn gegn PwC Glo-
bal, en niðurstaðan hafi hins vegar
verið sú að höfða málið gegn PwC á
Íslandi. „Málið hefur hins vegar
áhrif á orðspor PwC á alþjóðavísu,“
segir hún. Sama segir Páll Eiríks-
son, sem situr í slitastjórninni.
Vignir Rafn Gíslason, formaður
stjórnar PwC á Íslandi, segir fyrir-
tækið illa geta svarað því sem fram
hefur komið í fréttum um efni
skýrslnanna því PwC hafi ekki feng-
ið þær í hendur. „Enginn á okkar
vegum hefur verið kallaður til sér-
staks saksóknara vegna þessa, en
okkar gögn sýna að okkar vinna var
að öllu leyti í samræmi við lög og
reglur.“ Vignir segir jafnframt að
PwC Global standi þétt við íslenska
fyrirtækið. Hins vegar sé engin
spurning um ábyrgð samtakanna á
gjörðum einstakra meðlima. „PwC á
Íslandi er sjálfstætt fyrirtæki í eigu
starfsmanna þess, eins og öll önnur
fyrirtæki sem starfa undir merkjum
PwC. Hvert þeirra er að öllu leyti
sjálfstætt.“
Útilokar ekki frekari dómsmál
Vignir sagði jafnframt að þótt
áherslan væri nú á störf endurskoð-
enda bankanna lægi ábyrgðin á árs-
reikningum þeirra hjá viðkomandi
bankastjórnum.
Í skýrslunum, sem m.a. var sagt
frá í DV, sjónvarpsfréttum RÚV og í
Viðskiptablaðinu, segir að endur-
skoðendum hefði mátt vera ljóst við
skoðun ársreikninga fyrir árið 2007
að bæði Landsbankinn og Glitnir
væru mun verr staddir en endur-
skoðaðir reikningar gæfu til kynna. Í
tilviki Glitnis hefði eigið fé bankans
verið ofmetið allt frá árslokum 2006.
Samkvæmt frétt Viðskiptablaðs-
ins beinist gagnrýnin einkum að því
að endurskoðendur hafi samþykkt
skilgreiningar bankanna á því hverj-
ir ættu að teljast tengdir aðilar í
skilningi laga. Hefðu skilgreiningar
bankanna verið of þröngar og er sem
dæmi nefnt að í tilviki Glitnis hafi
Baugur, FL Group og Geysir Green
Energy ekki verið flokkuð sem
tengdir aðilar, þótt Jón Ásgeir Jó-
hannesson hafi ráðið yfir fyrirtækj-
unum öllum í árslok 2007.
Steinunn Guðbjartsdóttir segir að
málshöfðunin gegn PwC í New York
snúi aðeins að tiltekinni skuldabréfa-
útgáfu. Slitastjórnin útiloki hins veg-
ar alls ekki frekari málshöfðanir á
hendur endurskoðendum bankans,
hvort heldur hér á landi eða annars
staðar.
Slitastjórn Landsbankans hefur
gengið lengra í sínum yfirlýsingum,
en Herdís Hallmarsdóttir, sem situr
í slitastjórn bankans, sagði í upphafi
mánaðarins að bæði skilanefnd og
slitastjórn Landsbankans hefðu
framkvæmt ítarlega rannsókn á ytri
endurskoðendum og niðurstaðan
væri sú að um vanrækslu hefði verið
að ræða við endurskoðun á reikning-
um bankans fyrir árið 2007 og und-
irritun á árshlutareikningum 2008.
PricewaterhouseCoopers sá um end-
urskoðun á reikningum Landsbank-
ans líkt og hjá Glitni.
Slæm áhrif á alþjóð-
lega ímynd PwC
Morgunblaðið/Kristinn
Eigið fé Í skýrslunni um Glitni segir að strax um áramótin 2006/2007 hafi eigið fé bankans verið ofmetið. Hefði það
verið metið á réttan hátt hefði eiginfjárhlutfallið verið komið í 4,5 prósent í árslok 2007, sem er vel undir mörkum.
Slitastjórn Glitnis útilokar ekki að fleiri mál verði höfðuð
PwC á Íslandi segir ábyrgðina liggja hjá stjórnum banka
Hvorki slitastjórnir Glitnis og
Landsbanka né PwC á Íslandi hafa
fengið að sjá skýrslurnar sem vitn-
að var til í fréttum í gær og fyrra-
dag.
„Það er ekkert sem bendir til
þess að þær hafi komið frá okkur,“
segir Ólafur Þór Hauksson, sér-
stakur saksóknari, en skýrslurnar
voru unnar fyrir embætti hans.
Ólafur segist harma það að við-
kvæm gögn sem þessi séu komin í
umferð og staðfestir það að PwC á
Íslandi hafi óskað eftir að fá skýrsl-
urnar í hendur.
„Þau eru skiljanlega í erfiðri
stöðu þar sem erfitt er fyrir þau að
bera hönd fyrir
höfuð sér án
þess að hafa
skýrslurnar.“
Ólafur segir að
verið sé að
skoða það hvort
PwC geti fengið
þær í hendur, en
bendir á að
embættið sé
bundið reglum um trúnað hvað
þessi gögn varðar eins og önnur.
Eins sagði hann að hugsanlega
fengju slitastjórnirnar skýrslurnar í
hendur fyrr en ella fyrst þær væru á
annað borð komnar í umferð.
Slitastjórnir ekki með skýrslur
BER VIÐ TRÚNAÐARSKYLDU
Ólafur Þór
Hauksson
OG EIMSKIP FLYTJANDI
KEMUR JÓLAPÖKKUNUM
TIL SKILA
750
Ef þú getur borið pakkann kostar sendingin aðeins
750 krónur. Glimrandi hagstætt fyrir jólapakkana þína.
Upplýsingar um næsta afgreiðslustað á www.flytjandi.is
| www.flytjandi. is | sími 525 7700 |
Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,5 m og hámarksþyngd 45 kg.
Á ekki við kæli- og frystivöru. Verð fyrir heimakstur með jólapakka er 750 kr.
KR.
VIÐ STYÐJUM
MÆÐRASTYRKS-
NEFND!
80 ÁFANGASTAÐIR DAGLEGA UM LAND ALLT