Morgunblaðið - 10.12.2010, Side 18

Morgunblaðið - 10.12.2010, Side 18
Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 2010 Því hefur aldrei og hvergi verið haldið fram af hálfu Akureyr- inga, að vitað sé, hvernig kirkjurúðan fræga í miðglugga kórs Akureyrarkirkju hafi borist frá Coventry til London. Það hefur hins vegar oft verið sagt og skrifað, að sá þáttur ferils hennar sé ókunnur. Hins vegar hefur Hjálmtýr V. Heiðdal staðhæft víða, m.a. í Mbl. 2. des., að henni hafi verið stolið úr geymslustað og síðan hafi hún (ásamt fleiri rúðum) verið flutt í listmunaverslun í London. Þó hefur hann varist allra frétta um, hvernig hann veit það og hverjir önnuðust flutninginn. Ekki hefur hann heldur mér vitanlega lagt fram nein sönnunargögn fyrir þessari fullyrðingu. Hún er hins vegar upp- haf þeirrar leynilögreglusögu, sem þeir Karl Smári Hreinsson kalla rangnefninu „heimildarkvikmynd“ og þeir spinna síðan eins og kóngulóarvef um Akureyri og ýmsa íbúa hennar og bendla nokkra þeirra við alvarlegar ávirðingar. Nú síðast spyrðir hann okkur sr. Svavar Al- freð Jónsson saman og bregður um lygar. Þar syndga ég í góðum fé- lagsskap og má vel við una. Lítið dæmi um áreiðanleika „heimildarkvikmyndarinnar“ skal nefnt hér: Tvisvar (að mig minnir) er minnst á „Brekkuskóla“ vegna at- viks, sem gerðist 1963 eða 1964. Tápmiklir drengir úr 2-3 hverfum höfðu það að leik þetta góðviðra- haust að mynda hópa, sem lumbruðu hver á öðrum með birkigreinum eft- ir að skyggja tók. Eitt kvöldið höfðu tvær sveitir tekist á í nánd við kirkj- una, einhver gripið upp stein, skotið honum af teygjubyssu, en hæft litla rúðu í steinda glugganum af klaufa- skap eða óheppni. Morguninn eftir talaði skólastjórinn við nemendur og bað foringjana að láta af þessum leik, svo að ekki hlytust af meiðsl á fólki eða frekara eignatjón. Tók svo fyrir þessi læti, enda brá nú til verra tíðarfars. Gert var við rúðuna, og málið gleymdist. En viti menn! Ekki var annað að heyra á texta „heimildarkvikmynd- arinnar“ en að með þessum slettirekuskap hefði skólastjórinn sýnt af sér óhæfilega afskiptasemi af ótta við Jakob Frímannsson og frímúrara! – Því er við að bæta, að „Brekku- skóli“ var ekki stofn- aður fyrr en haustið 1997 eða um ald- arþriðjungi síðar. Vönduð vinnu- brögð? Varla hefur nokkurn Íslending grunað, að myndarúðan fræga væri ránsfengur eða þýfi, þar sem hún var til sölu í London árið 1942 eða 1943. Eðlilegt var að álykta, að hún væri venjuleg verslunarvara og ætti ekki afturkvæmt í kirkjuna sína, því að hún var brunnin, hrunin og rústir einar. Andvirðið gæti komið sér vel við byggingu nýrrar kirkju síðar. Átti Helgi H. Zoëga að biðja um að fá að sjá kvittanir og innkaupaskrár verslunarinnar? Er venjan sú, þegar fólk fer í búðir? Átti Jakob að krefja Helga um tollskýrslur, reikninga og kvittanir, þegar hann sá rúðuna í búðinni við Aðalstræti í Reykjavík? Var það eða er það venja, þegar fólk kemur inn í sölubúðir í Reykjavík? Stóð toll- gæslan ekki í stykkinu sínu? Versl- un Helga var meira að segja nærri því undir nefinu á embætti toll- stjóra. Krefst Hjálmar V. Heiðdal þess að fá að sjá tollskýrslur, þegar hann fer í búðir? Tortryggja menn hver annan, þegar þeir eiga við- skipti? Umgangast þeir hver annan sem sennilega afbrotamenn og lög- brjóta? En þá erum við komin að mikil- vægustu röksemdunum fyrir því, að hjónin Borghildur Jónsdóttir og Jakob Frímannsson hafi talið sig hafa vissu fyrir því, að myndarúðan væri vel fengin: 1) Þau gáfu hana, aukna og upp- setta, hinum nýja helgidómi Akur- eyringa, kirkjunni, sem þeim þótti vænt um. 2) Þau gáfu hana í minningu for- eldra sinna, annars vegar Bjargar Ísaksdóttur og Jóns Finnbogasonar, bankastarfsmanns, og hins vegar Sigríðar Björnsdóttur og Frímanns Jakobssonar, trésmiðs. Enginn, sem þekkti til Borghildar og Jakobs, hefði látið sér til hugar koma, að þau hefðu viljað bendla nöfn foreldra sinna og minningu þeirra um aldur og ævi við hlut, sem þau hefðu minnsta grun um, að væri illa fenginn. Slík hugmynd væri fá- ránleg fjarstæða, gersamlega óhugsandi, afsannar sig sjálf. Mér þykir illa fara á því og ómak- legt að bregða prestum Akureyrar- kirkju um vanrækslu og skort á skyldurækni. Ólatara fólk er vand- fundið og hefur unnið verk sín langt fram yfir skyldu. Sumir prestarnir unnu ótrúleg þrekvirki í þágu safn- aðarins, ekki síst unga fólksins, enda virtir og dáðir. Þeir eru nú flestir látnir og ættu að fá að hvíla í friði. Til eru lítil dýr með loðinn belg og langt skott, skær augu og umfram allt: hvassar tennur. Mörgum finnst þessi dýr snotur, og þau eru dugleg að bjarga sér. Gallinn er sá, að þau eru líka miklir skemmdarvargar, naga og naga með beittu tönnunum sínum, sem vaxa jafnóðum og þær slitna af brúkun. Þau geta ekkert að þessu háttalagi gert, þetta er eðli þeirra, yndi og æðsta köllun. Naga og naga. Og himinn þeirra er ekki hótinu hærri en þak holunnar, sem þau búa í. Þess vegna fyrirgefst þeim, – þangað til þau fara að naga mannorð þeirra, sem horfnir eru. Þá er það skylda okkar hinna að sker- ast í leikinn. Ofsögur Eftir Sverri Pálsson »Krefst Hjálmar V. Heiðdal þess að fá að sjá tollskýrslur, þeg- ar hann fer í búðir? Tor- tryggja menn hver ann- an, þegar þeir eiga viðskipti? Sverrir Pálsson Höfundur er fv. skólastjóri og var fréttaritari Morgunblaðsins á Akur- eyri 1962-1982. Mér hefur oft sárn- að þegar ég heyri tal- að niðrandi um ís- lenska grunnskóla og störf þeirra. Iðulega er bent á hversu dýr fræðslumálin eru og á stundum er óbeint vegið að kennurum þegar rætt er um fjár- mál sveitarfélaganna einkum nú þegar þrengir að. En nú get ég ekki orða bundist. Klifað hefur verið á rekstrartölum, fjölgun starfsmanna o.s.frv. en oftar en ekki eru engar raunhæfar skýr- ingar nefndar. Námsárangur ís- lenskra barna talinn svo og svo slakur og jafnvel mætustu „gáfu- menn“ voru farnir að tala um í ræðu og riti að nú myndi aldeilis ekki verða betri út- koma úr síðustu Pisa- könnun. Ég hugsaði með mér; hvar er nú bjartsýnin sem við eig- um svo mikið af Ís- lendingar? Hvar er já- kvæðnin gagnvart menntun barnanna okkar? Og svo komu Pisa- niðurstöður. Þær voru sannarlega gleðiefni, námsárangur á uppleið og við svo sem í hópi ann- arra vestrænna þjóða, jafnvel þó við sinnum verk- og listgreinum miklu meira heldur en almennt gerist hjá nágrannþjóðum og hlýtur að rýra þann tíma sem fer í bóklegt nám. Og þá er að finna ástæðuna fyrir þessari góðu útkomu. Jú, háttvirtur menntamálaráðherra taldi – hafi ég heyrt rétt í kvöldfréttum Sjónvarps 7. des. – að lesskilningur sem væri svo miklu betri núna væri því að þakka að foreldrar hefðu haft betri tíma með börnum sínum eftir hrun! Vissulega hafa margir betri tíma og nýta hann vonandi með börnum sínum en að halda því fram að tím- inn frá hruni haustið 2008 og til þess tíma er Pisa var lagt fyrir í mars 2009 hafi skipt þar sköpum er auðvitað í besta falli vitleysa. Af hverju ekki að segja eins og er að íslenskir grunnskólakennarar eru metnaðarfull stétt sem leggur allt að veði til þess að koma nemendum sínum til þroska á öllum sviðum? Af hverju virðist svona erfitt að segja jákvæða hluti um kennara? Hvers eiga þeir að gjalda? Hvers eiga íslenskir grunn- skólakennarar að gjalda? Eftir Hönnu Hjartardóttur » Af hverju ekki að segja eins og er að íslenskir grunnskóla- kennarar eru metn- aðarfull stétt sem legg- ur allt að veði til þess að koma nemendum sínum til þroska á öllum svið- um? Hanna Hjartardóttir Höfundur er skólastjóri og amma grunnskólanemenda. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá les- endum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ of- arlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Munið að slökkva á kertunum Slökkvilið höfuborgasvæðisins Kertakveikur á ekki að vera lengri en 1 cm. Klippið af kveiknum svo að ekki sé hætta á að logandi kveikur detti af og brenni út frá sér

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.