Morgunblaðið - 10.12.2010, Page 36

Morgunblaðið - 10.12.2010, Page 36
FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 344. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Icesave greiðslur hefjast í júlí 2. Barist í Netheimum 3. Hún hélt ég væri hommi 4. Erfitt að stilla af framleiðsluna »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sigrún Eldjárn er tilnefnd af Ís- lands hálfu til sænsku Alma-verð- launanna í ár sem stofnað var til í minningu Astridar Lindgren. Verð- launaupphæðin er fimm milljónir sænskra króna. Sigrún er tilnefnd fyrir höfundarverk sitt sem rithöf- undur og myndskreytir. 175 listamenn frá 62 löndum eru tilnefndir og verður tilkynnt um verð- launahafa 29. mars 2011. Morgunblaðið/Kristinn Sigrún tilnefnd til Alma-verðlaunanna  Logi Geirsson handknattleiks- maður og íþrótta- fréttamaðurinn Henry Birgir Gunnarsson sækja heim Ísfirð- inga í dag og kynna bókina 10.10.10 – at- vinnumannasaga Loga Geirssonar, sem Henry skráði. Logi og Henry ætla að lesa upp úr bókinni í grunnskól- anum í hádeginu og í bókabúð Ey- mundssonar á Ísafirði kl. 14.30. Logi og Henry með upplestur á Ísafirði  Sunnudaginn nk., kl. 14-17, verður haldið Molakaffi í Brúarlandi í Mos- fellsbæ í tilefni af endurútgáfu bók- anna um Mola flugustrák eftir Ragn- ar Lár heitinn. Djús og kex verð- ur í boði fyr- ir smáfólkið, kaffi og mol- ar fyrir full- orðna. Endurútgáfu bóka um Mola fagnað Á laugardag Vestlæg átt, 8-15 m/s, en lægir síðdegis. Skýjað og þurrt að kalla en létt- skýjað austan til. Hiti 0 til 6 stig en vægt frost til landsins, einkum austan til. Á sunnudag og mánudag Suðlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en skýjað og úrkomulítið vestan til. Frost 0 til 5 stig til landsins en hiti 0 til 5 stig við ströndina. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og vestan 10-18 og rigning en styttir víða upp eftir há- degi. Hiti 0 til 8 stig. VEÐUR Danska knattspyrnufélagið FC Köbenhavn hefur þénað fjóra milljarða íslenskra króna á frábærri frammi- stöðu sinni í Meistaradeild Evrópu í vetur. Leikmenn liðsins fá fyrir vikið flottan jólabónus en Sölvi Geir Ottesen og samherjar hans í danska meistaraliðinu fá hver um sig allt að 17 millj- ónum íslenskra króna í aukagreiðslu fyrir jólahá- tíðina. »1 Sölvi og félagar fá flottan jólabónus Gylfi Þór Sigurðsson gerir ráð fyrir að fá tækifæri á ný í byrjunarliði Hof- fenheim í þýska fótboltanum um næstu helgi. „Auðvitað er maður aldrei ánægður með að vera vara- maður en svona er þetta í fótboltanum og nú er bara að grípa tækifærið og standa sig,“ sagði Gylfi við Morg- unblaðið. »2 Nú er bara að grípa tækifærið og standa sig Gamla góða íslenska baráttugleðin var í fyrirrúmi þegar Ísland stríddi sterku liði Svartfjallalands á Evr- ópumóti kvenna í handknattleik í gærkvöld. Það mátti ekki miklu muna að drambið yrði Svartfellingum að falli því Ísland hélt í við andstæð- ingana þrátt fyrir mikið mótlæti. Ít- arleg umfjöllun um leikinn og lið Ís- lands í íþróttablaðinu. »1-3 Drambið nærri orðið Svartfellingum að falli ÍÞRÓTTIR Andri Karl andri@mbl.is Skemmtilegar umræður sköpuðust um hefðina á bak við laufabrauð og útskurð þess á dvalar- og hjúkrunar- heimilinu Hrafnistu í Reykjavík. Þá fór fram árlegur laufabrauðsút- skurður og fékk blaðamaður að munda hnífinn um stund. Í ljós kom að laufabrauð var ekki á allra borð- um og þekktist frekar hjá íbúum að vestan og norðan en af Suðurland- inu. Af þeim sökum voru í bland út- skurðarmeistarar með áratuga reynslu og nýliðar í faginu. Útskurðurinn hófst að morgni og þegar um hádegi þurfti að kaupa fleiri kökur til að skera út, slíkur var áhuginn. „Lagt var upp með 250 kökur en svo er búið að bætast mikið við,“ sagði Dagbjört Guðmunds- dóttir, verkstjóri iðjuþjálfunar. Hún áætlaði að um miðjan dag væru kök- urnar orðnar á milli fjögur og fimm hundruð. Og enn var skorið út. Dag- björt tók þó fram að ekki veitti af enda væri verið að skera út fyrir allt heimilið. Jólalög úr hverjum krók Þátttakan í útskurðinum er ætíð góð og var með mesta móti í gær. „Þeir koma sem vilja og stoppa mis- jafnlega lengi við. Sumir komu í morgun og aftur eftir hádegið. Aðrir koma einungis til að upplifa stemn- inguna, fá sér smásérrí og konfekt og svona.“ En þátttakan er ekki að- eins mikil á vinnustofunni því jafn- framt er farið með laufabrauð út á deildir þar sem fer fram félags- starf, og þar er fólki einnig boðið að skera út. Meðan á heimsókn blaða- manns stóð varð ýmislegt fleira á vegi hans og víst að aðventudagskráin á Hrafnistu er með ein- dæmum þétt. Kaffi- klúbburinn var í einum sal auk þess sem starfandi eru leik- hópar, kórar og ýmislegt fleira. Og alls staðar hljómuðu jólalög, úr skemmtara, útvörpum og stórum flatskjám. Piparkökubakstur í næstu viku Í vinnustofunni verður svo í næstu viku tekið til við að baka piparkökur. Er jafnan mikil þátttaka þá einnig en til viðbótar kemur, að piparkök- urnar eru bakaðar í vinnustofunni og leggst þá jólailmurinn yfir heim- ilið. Degi síðar, eða á fimmtudaginn eftir viku, verður hægt að gæða sér á piparkökunum og jólaglöggi. Stundin sem flestir íbúar bíða svo eftir er jólaballið 17. desember en þá treður sjálfur Ragnar Bjarnason upp. Skera út fyrir allt heimilið  Góð þátttaka í laufabrauðsút- skurði á Hrafnistu Morgunblaðið/Ernir Útskurðurinn Mikil ánægja er meðal íbúa á Hrafnistu með fjölbreytta dagskrána á aðventunni. „Ég er að gera þetta í fyrsta skipti og víst tími til kominn,“ sagði Kristján Einarsson, íbúi á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, en hann var á meðal þeirra sem skáru út laufabrauð í gær. Kristján segir að laufa- brauð hafi ekki tíðkast á sínu heimili. Hann er fæddur á Ísafirði en bjó lengst af í Vog- um á Vatnsleysu- strönd. Og þó svo að hann væri ný- liði gekk skurðurinn vel. „Ég hugsa að það verði alveg sama bragð af þessum og hinum, þó svo að útlitið verði kannski aðeins öðruvísi.“ Kristján sagðist bara hafa nokk- uð gaman af útskurðinum, félags- skapurinn væri góður og því væri víst að hann kæmi aftur að ári. Hvað varðar aðra viðburði sagðist Kristján einnig ætla í pipar- kökubaksturinn. „Sama bragð af þessum“ KRISTJÁN EINARSSON SKAR ÚT Í FYRSTA SKIPTI Kristján Einarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.