Morgunblaðið - 13.05.2010, Side 1
Önundur Páll Ragnarsson
og Björn Jóhann Björnsson
Ekki tókst í gær að birta Jóni Ás-
geiri Jóhannessyni sjálfum stefnu
breska dómstólsins, sem hefur kyrr-
sett eigur hans um víða veröld. Slita-
stjórn Glitnis reyndi að hafa uppi á
Jóni Ásgeiri í gær en hafði ekki er-
indi sem erfiði.
Slitastjórnin stefndi í gær Jóni
Ásgeiri og fleira fólki sem tengdist
Glitni og FL Group fyrir hrun, auk
PriceWaterhouseCoopers, áður end-
urskoðanda Glitnis, í New York, fyr-
ir að hafa með sviksamlegum og
ólögmætum hætti haft fé af bank-
anum sem nemur meira en tveimur
milljörðum Bandaríkjadala.
Athygli vakti þó í gær að Jón
Ásgeir tjáði sig við Bloomberg-
fréttastofuna, um úrskurðinn, eins
og hann hefði þegar kynnt sér efni
hans. Lögfræðingar sem rætt var við
í gær sögðu það fara eftir breskum
birtingarreglum hvort það væri nóg
til að telja stefnuna hafa verið birta
honum.
Varðar þriggja ára fangelsi
Tveimur sólarhringum eftir
birtinguna þarf Jón Ásgeir að skila
inn lista yfir allar eignir sínar. Geri
hann það ekki eða veiti hann rangar
upplýsingar á hann yfir höfði sér allt
að þriggja ára fangelsi í Bretlandi.
Í stefnu slitastjórnar er Jón Ás-
geir sakaður um að hafa í raun náð
valdi á stjórn bankans í apríl 2007 og
ásamt öðrum notað yfirráð sín yfir
bankanum til að veita gríðarhá lán til
annarra fyrirtækja sem hann og við-
skiptafélagar hans réðu yfir.
Eignir frystar
Slitastjórn Glitnis segir að bankinn hafi verið rændur innan frá af klíku fólks
Krafist kyrrsetningar eigna þriggja fyrrv. hluthafa og stjórnenda bankans
F I M M T U D A G U R 1 3. M A Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 110. tölublað 98. árgangur
–– Meira fyrir lesendur
fylgir m
eð
Morgun
blaðinu
í dag
NJÓLASTAPPA
OG ÖNNUR
KÓNGAFÆÐA
GÁLGA-
FRESTUR?
BOÐA ALGERA
UMBYLTINGU Í
STJÓRNARFARI
VIÐSKIPTABLAÐ 7 FRÉTTASKÝRING 16DAGLEGT LÍF 10
Fréttaskýring eftir
Örn Arnarson
Í klakaböndum
Jón Ásgeir
Tvær íbúðir í Gra-
mercy Park á Man-
hattan sem keyptar
voru á u.þ.b. 25
milljónir dollara
voru m.a. kyrrsettar.
Lárus
Krafist er kyrrsetn-
ingar eigna fyrrver-
andi forstjóra Glitn-
is banka og
formanns áhættu-
nefndar.
Pálmi
Krafist kyrrsetn-
ingar eigna á Ís-
landi. Hann á m.a.
flugfélögin
Astreus og Iceland
Express.
Yfir sextíu viðburðir eru á dagskrá Listahátíðar í
Reykjavík sem sett var í Hafnarhúsinu í gær. Malísku
hjónin Amadou og Mariam, sem spiluðu ásamt stórri
hljómsveit í Laugardalshöllinni í gærkvöldi, riðu á vað-
ið en hljómsveitin Retro Stefson hitaði upp.
Listahátíð í Reykjavík var fyrst haldin árið 1970 og
annað hvert ár frá þeim tíma til ársins 2004, en árlega
eftir það.
Morgunblaðið/Kristinn
Afrísk stemning á Listahátíð
Í Finnlandi hefur ver-
ið stofnað fyrirtæki
sem sérhæfir sig í
ferðum fyrir leik-
fangabangsa. Ferðin
kostar jafnvirði 18.000-28.000
króna. Bangsarnir fara m.a. í heim-
sókn til jólasveinsins og í hrein-
dýrabúgarð. Ferðin er tekin upp á
myndband en eigendurnir mega
ekki fara með böngsunum.
Þreyttir bangsar
geta nú farið í frí
Gögn liggja fyrir sem
styðja þá ályktun að Glitnir
banki hafi verið rændur inn-
an frá.
Gögn málsins leiða í
ljós … hvernig klíka fésýslu-
manna, undir forystu Jóns
Ásgeirs, tók sig saman um
að hafa með skipulegum
hætti fé af Glitni til að
styðja við sín eigin fyrirtæki
þegar þau riðuðu til falls.
Gögn málsins leiða í
ljós … hvernig Jón Ásgeir og
samsærismenn hans brut-
ust til valda í Glitni, losuðu
sig við reynda starfsmenn
bankans eða settu þá til
hliðar og misnotuðu þessa
valdastöðu til að tefla fjár-
hag bankans í bráðan voða.
… hvernig Jón Ásgeir,
Lárus Welding og aðrir, sem
stefnt er í málinu, sköpuðu
sér aðstöðu til að ná fé út úr
bankanum.
‹ ORÐRÉTT ÚR STEFNU GLITNIS ›
»
Glitnir stefnir Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og fleirum fyrir meint fjársvik og krefst 258 milljarða bóta
MKyrrsett um allan heim » 12-13
Skuld-
bindingar
vanmetnar
Það hvaða forsendur eru lagðar til
grundvallar útreikningi á lífeyris-
skuldbindingum lífeyrissjóðanna
gerir það að verkum að skuldbind-
ingarnar eru líklega stórlega van-
metnar.
Lífeyrisréttindi opinberra
starfsmanna miðast við laun og
þegar lífeyrisskuldbinding opin-
berra lífeyrissjóða er reiknuð er
gert ráð fyrir því að laun hækki
um 1,5 prósent á ári umfram
hækkun vísitölu neysluverðs.
Undanfarin ár hafa laun opinberra
starfsmanna hins vegar hækkað
töluvert meira en sem þessu nem-
ur og skuldbinding sjóðanna
sömuleiðis.
Þá hefur lenging meðalævinnar
áhrif á skuldbindingu sjóðanna
sem og fjölgun þeirra sem þiggja
örorkulífeyri.
Iðgjöld hækkuð?
Til lengri tíma litið er hugsan-
legt að hækka þurfi lífeyrisaldur
og hækka það hlutfall launa sem
rennur í lífeyrissjóðina í formi ið-
gjalda. Að öðrum kosti er ekki
hægt að ganga að því vísu að sjóð-
irnir geti staðið við skuldbindingar
sínar. »Viðskipti
Hugsanlegt að hækka
þurfi lífeyrisaldur