Morgunblaðið - 13.05.2010, Blaðsíða 16
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Líbýsk stjórnvöld segja að ekki hafi
verið um að ræða hryðjuverk þegar
nýleg líbýsk farþegaþota Afriqiyah-
félagsins af gerðinni Airbus 330
brotlenti rétt við flugvöllinn hjá
höfuðborginni Trípólí í gærmorgun.
„Flugvélin sprakk og sundraðist
gersamlega í lendingunni,“ sagði
talsmaður líbýskra yfirvalda. Veður
var gott og var ekki vitað hvað olli
slysinu er síðast fréttist. 104 voru í
vélinni og komst einn af, átta ára
gamall hollenskur drengur. Hann
slasaðist talsvert en er ekki í lífs-
hættu.
Alls var 61 Hollendingur um borð
en hinir voru frá Líbýu, öðrum
Afríkuríkjum og Evrópu. 93 farþeg-
ar og 11 manna áhöfn voru í vélinni,
sem átti að halda áfram til Gatwick-
flugvallar í Bretlandi eftir millilend-
ingu í Trípólí á leið frá Jóhann-
esarborg í Suður-Afríku.
Aðeins
einn lifði
af flugslys
Reuters
Ljóst er að hinn fimmtugi öldunga-
deildarþingmaður Benigno Aquino
verður næsti forseti Filippseyja.
Hann er með um 40% stuðning þeg-
ar búið er að telja megnið af atkvæð-
um í forsetakjörinu á mánudag, búist
er við lokatölum fyrir helgi. Aquino,
sem tekur við völdum 1. júlí, hét því
að beita sér hart gegn spillingu sem
er þjóðarböl í landinu.
„Ég vil stjórna með því að sýna
gott fordæmi,“ sagði Aquino í viðtali
við AFP-fréttastofuna í gær. „Við
tölum um spillingu. Ég hef gefið lof-
orð opinberlega, ég mun aldrei
stela.“ Aquino er úr einni af nokkr-
um tugum auðugra valdaætta sem að
jafnaði skipta með sér völdum á
Filippseyjum. Efnahagsmálin eru í
ólestri og fátækt meiri en í flestum
öðrum A-Asíulöndum.
Fráfarandi forseti, Gloria
Macapagal, er einnig af gamalli
valdaætt. Hún gat ekki boðið sig aft-
ur fram; forseti má aðeins sitja tvö
kjörtímabil í röð. Macapagal hefur
verið sökuð um kosningasvindl en
Aquino gagnrýndi hana einnig fyrir
að skipa nýjan forseta hæstaréttar í
stað þess að láta væntanlegan for-
seta annast valið.
kjon@mbl.is
Aquino heitir
baráttu gegn
spillingunni
Stjórnar með því að sýna gott fordæmi
Reuters
Tekur við Væntanlegur forseti
Filippseyja, Benigno Aquino.
Corazon Aquino
» Móðir hins nýja forseta,
Corazon Aquino, sem var fyrr-
verandi forseti, lést í fyrra.
» Hún varð þjóðhetja þegar
hún var í forystu fyrir víðtækri
uppreisn sem hrakti hinn ger-
spillta Ferdinand Marcos frá
völdum árið 1986.
» Sonurinn ákvað eftir lát
móður sinnar að gefa kost á
sér í forsetakosningunum.
Stjórnvöld í Taí-
landi hótuðu í gær
að loka fyrir raf-
magn, vatn og síma-
þjónustu við stjórn-
arandstæðinga,
Rauðskyrturnar
svonefndu, sem haf-
ast við í búðum í
höfuðborginni
Bangkok. Abhisit Vejjajiva forsætis-
ráðherra sagði að hyrfi fólkið ekki á
braut yrði hætt við þingkosningar
sem hann hafði lofað í haust.
Stjórnarandstæðingar styðja
Thaksin Shinawatra, fyrrverandi
forsætisráðherra. Þeir fengu frest
þar til á miðnætti sl. til að hafa sig á
brott. En enginn bilbugur var á
þeim. „Við höfum tekið ákvörðun
um að halda áfram að fara fram á
réttlæti fyrir fólkið okkar,“ sagði
einn leiðtoganna, Nattawut Saikuar.
„Ef ríkisstjórnin vill láta drepa
fleira fólk getur hún fundið það
hér.“ kjon@mbl.is
Abhisit hótar taí-
lensku Rauðskyrt-
unum valdbeitingu
Abhisit Vejjajiva
TAÍLAND
Norski sagnfræðingurinn Synne Corell segir að sagnfræðingar hafi reynt að
fela með alls kyns orðhengilshætti raunverulega þátttöku innlendra lög-
reglumanna í að ofsækja gyðinga þegar landið
var hernumið af Þjóðverjum í seinni
heimsstyrjöld, að sögn Aftenposten.
Mörg hundruð norskir gyðingar voru
fluttir til Þýskalands og létu þar lífið í
útrýmingarbúðum. Corell segir að í
skrifum fræðimanna hafi m.a. verið
notað orðalagið „voru handteknir“ án
þess að taka fram hverjir önnuðust
handtökuna. Oft voru það norskir
lögreglumenn. Einnig sé mikið gert
úr því að lögreglumenn hafi „oft“
hjálpað gyðingum að flýja yfir
landamærin til Svíþjóðar en ekki
tilgreint hve mörg dæmi hafi verið
um slíkar aðgerðir. kjon@mbl.is
Þöggun í Noregi?
Sendu gyðinga til Þýskalands Hitlers
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
David Cameron, leiðtogi Íhalds-
flokksins breska og nýr forsætisráð-
herra, hét því í gær að samsteypu-
stjórn íhaldsmanna og Frjálslyndra
demókrata myndi leiða Bretland á
nýjar brautir en sagði baráttuna við
gríðarlegan fjárlagahallann
langmikilvægasta verkefnið. Á sam-
eiginlegum blaðamannafundi hans
með leiðtoga Frjálslyndra demó-
krata, Nick Clegg, hétu þeir „algerri
umbyltingu“ í stjórnarfarinu. Þeir
myndu standa saman og ekki láta
þrönga flokkshagsmuni leiða sig af-
vega. „Þetta er ríkisstjórn sem mun
endast vel,“ sagði Clegg.
Stjórnin tók formlega við í gær
en Cameron fékk umboð til stjórnar-
myndunar á þriðjudagskvöld eftir að
Gordon Brown sagði af sér. Cameron,
sem er aðeins 43 ára gamall, verður
yngsti forsætisráðherrann sem setið
hefur að völdum í Bretlandi síðan
1812 og Nick Clegg, leiðtogi Frjáls-
lyndra og aðstoðarforsætisráðherra,
er einnig ungur, aðeins 44 ára. Frjáls-
lyndir áttu síðast sæti í ríkisstjórn
1945.
Þjóðaratkvæði um breytt
kosningakerfi
Fram kemur m.a. í samstarfs-
sáttmála flokkanna að borin verður
undir þjóðina tillaga um breytt kosn-
ingakerfi sem tryggi betur þingsæta-
fjölda í samræmi við fylgi. En flokk-
arnir mega hvor fyrir sig reka áróður
fyrir tillögunni eða gegn henni.
Flokkarnir ætla að koma á fyrir-
komulagi sem tryggi að þingið sitji
ekki skemur en fimm ár samfleytt.
Verður því tekinn af forsætisráðherra
forn réttur hans til að rjúfa þing og
efna til kosninga hvenær sem er.
Athygli vekur að þvert á stefnu
Frjálslyndra verður haldið áfram
undirbúningi að endurnýjun kjarn-
orkukafbátaflotans en Clegg hefur
sagt að um leifar af hugsunarhætti
kalda stríðsins sé að ræða. Hann vill
verja fénu í að styrkja hefðbundinn
herafla Breta. En Frjálslyndir hafa
leyfi til að „benda á“ aðrar leiðir en
boðaðar eru í sáttmálanum varðandi
kafbátana.
Umdeild áform um að leggja
þriðju flugbrautina á Heathrow-flug-
velli verða lögð til hliðar. Þá segir að
Bretar muni ekki undirbúa aðild að
evrusvæðinu á kjörtímabilinu. Íhalds-
menn eru margir andvígir ESB og
vilja sumir jafnvel að Bretar segir sig
úr því. Heimildarmenn í Brussel
segja að þar á bæ vonist menn til að
Clegg og liðsmenn hans, einarðir
stuðningsmenn ESB, hafi hemil á efa-
semdastefnu Camerons.
Frjálslyndir fá fimm ráðherra-
embætti, hin 18 verða í höndum
íhaldsmanna. Clegg verður í reynd
staðgengill Camerons og því með
aðra höndina á stjórnvelinum. Willi-
am Hague verður nýr utanríkisráð-
herra, George Osborne fjármálaráð-
herra, Liam Fox
varnarmálaráðherra, þeir eru allir
íhaldsmenn. Úr röðum frjálslyndra
koma m.a. Chris Huhne orku -og
loftslagsmálaráðherra og Vince
Cable, ráðherra viðskiptalífs og
bankamála.
Reuters
Ánægð David Cameron og eiginkona hans, Samantha Cameron, við dyrnar
að embættisbústað ráðherrans, Downingstræti 10, í fyrrakvöld.
„Ríkisstjórn sem
mun endast vel“
Cameron og Clegg heita að berjast gegn fjárlagahallanum
Vel fór á með leiðtogunum
tveim á blaðamannafundinum.
Cameron viðurkenndi að hafa
eitt sinn svarað „Nick Clegg“
þegar spurt var hvaða pólitísk-
ur brandari honum þætti
fyndnastur. Clegg þóttist
móðgast og ætla að fara en lét
sér segjast. Einnig sagðist
Cameron hlakka til að ferðast
mikið erlendis; þá yrði Clegg
að taka að sér að svara í fyrir-
spurnatíma forsætisráðherra á
þinginu.
Fínn brandari
DAVE OG NICK