Morgunblaðið - 13.05.2010, Síða 8
Andri Karl
andri@mbl.is
Ónotakennd ríkti í dómsal 101 þegar fyrirtaka fór
fram í máli ákæruvaldsins gegn níu einstaklingum
sem ákærðir eru fyrir brot gegn Alþingi, brot gegn
valdstjórninni, almannafriði og allsherjarreglu
vegna atburða í desember 2008. Fyrir utan reyndu
æstir „stuðningsmenn“ að brjóta sér leið inn með
því að þrýsta á lokaða hurð dómsalarins svo í henni
hrikti en við hana stóðu tveir óeinkennisklæddir
lögreglumenn sem bjuggust við hinu versta. Tveir
sakborningar æstust þá mjög og kröfðust þess að
dyrnar yrðu opnaðar. Í kjölfarið kom til stimpinga
milli þeirra og lögreglumannanna. Þinghaldinu lauk
fyrirvaralaust.
Fjöldi fólks safnaðist saman í Héraðsdómi
Reykjavíkur áður en dómþing var sett. Röð tók að
myndast utan við dómsalinn 45 mínútum fyrr og þó
svo að fólk flykktist að hélst röðin og fengu þeir sæti
í salnum sem fyrst komu.
Stemningin var afslöppuð framan af. Sóley
Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna í borginni,
ræddi um þann möguleika að færa réttarhaldið í
Laugardalshöllina og fékk hugmynd hennar góðan
hljómgrunn. Dómstjóri staðfesti það síðar við
blaðamann, að ekki kæmi til greina að flytja málið
annars staðar enda lögum samkvæmt aðeins leyfi-
legt í algjörum undantekningartilvikum, og þá til
dæmis á sjúkrahúsi eða í fangelsi.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingar-
innar, var einnig á staðnum og velti fyrir sér hvort
takmarkað aðgengi almennings að dómsalnum væri
brot á stjórnarskránni. Svo er ekki. Síðar um dag-
inn lagði Björn Valur Gíslason, þingmaður VG,
fram á Alþingi þingsályktunartillögu þar sem
mælst er til þess að skrifstofustjóra Alþingis verði
falið að fara þess á leit við ríkissaksóknara að ákæra
á hendur mótmælendunum níu verði dregin til baka
og einnig ákæra um húsbrot.
Sakborningar neituðu að setjast
Hiti færðist í mannskapinn í dómsaln-
um þegar lögreglumenn mættu á vettvang.
Kallað var eftir aðstoð lögreglu og henni
falið að sjá til, að ekki færu fleiri inn í
dómsal en sæti eru fyrir. Það gekk eft-
ir. Auðsjáanlegt var þó að „stuðnings-
menn“ nímenninganna voru ekki alls
kostar ánægðir með veru lögreglu-
manna og skipuðu þeim ítrekað með
öskrum að yfirgefa húsið. Eftir að öll
sæti voru setin – fyrir utan sæti sak-
borninga, en þeir neituðu að setjast – hófst dóm-
þingið. Sjö af níu sakborningum voru viðstaddir.
Ragnar Aðalsteinsson, verjandi eins sakborn-
inga, fór í fyrstu fram á að tveir óeinkennisklæddir
lögreglumenn sem gættu dyra salarins yfirgæfu
salinn. Þegar ekki var orðið við því lagði hann fram
bókun og mótmælti í henni „lokun réttarhaldsins“
auk þess sem hann sagðist sem verjandi ekki geta
setið réttarhald undir lögreglustjórn. Blaðamaður
spurði Ragnar síðar hvort ekki væri réttast að þing-
hald færi fram fyrir luktum dyrum, til að tryggja
þingfrið; sagði hann það bannað. Helgi I. Jónsson,
dómstjóri, staðfesti hins vegar að næsta skref yrði
skoðað vandlega og til álita kæmi að loka þinghald-
inu, enda heimild fyrir því í lögum, bæði til að halda
þingfrið og til hlífðar fyrir vitni sem annars ættu
vafalaust erfitt með að koma fyrir dóm, þ.e. þegar
til aðalmeðferðar kemur.
Auk þess sem bókunin var skráð spurði dómari
einn sakborninga um afstöðu hans til ákærunnar.
Sá sagði hana með öllu ranga. Fleira var ekki gert
þó það hafi verið ætlunin.
Þinghaldi var slitið án fyrirvara og óljóst er
hvenær málið verður tekið fyrir að nýju.
Upplausn í dómsal 101
Mikill fjöldi ósáttra „stuðningsmanna“ reyndi að brjóta sér leið inn í dómsal
Til álita kemur að beita heimild í lögum og loka þinghaldinu til að tryggja frið
Morgunblaðið/Ómar
Fyrir utan Hundruð manns mættu í héraðsdóm og kom til stimpinga milli þeirra og lögreglumanna
sem vörnuðu fólkinu inngöngu í dómsal. Einn var handtekinn eftir að fólkið lagðist á hurðina.
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Fréttaritstjóri Stöðvar 2 hefur ver-ið látinn hætta. Ekkert hefur
ennþá frést af viðbrögðum af skrif-
stofum norrænu blaðamanna-
samtakanna. Enginn getur efast um
að pöntun á yfirlýsingum hafi þegar
verið lögð fram.
Það er þakkarefni hvað frétta-menn eru umburðarlyndir þeg-
ar aðrir fréttamenn svara ekki
spurningum þeirra, eða eru aug-
ljóslega ekki að segja allan sannleik-
ann í svörum sínum.
ÍKastljósi í gærvarð ekki annað
ráðið en spyrjand-
inn væri ekki svo
grænn að trúa hin-
um opinberu skýr-
ingum á brottför
Óskars Þorvalds-
sonar. Og hún
spurði því viðmælanda sinn um
hvaða greiðslur hann hefði fengið
frá manninum sem nýlega á að hafa
boðið Þórhalli þá kastljósmanni 200
milljónir fyrir að færa sig yfir á 365.
Óskar Hrafn svaraði efnislega að
hann hefði ekki fengið það sama fyr-
ir að hætta (þegjandi) og Ragnhildur
Geirsdóttir! Hann tók spurninguna
bersýnilega þannig að verið væri að
spyrja um kaupverð þagnar hans.
Greiðslan til Ragnhildar hefurekki verið framreiknuð, en ekki
er ósennilegt að hún gæti verið svo
sem 365 milljónir á núvirði. Í staðinn
fyrir tugi eða hundruð milljóna lét
fréttastjórinn hanga í loftinu að
hann hefði farið með fárra mánaða
laun í vasanum. Augljóst var af lík-
amstjáningu hans er hann svaraði að
sannleikurinn var bersýnilega víðs-
fjarri, í það minnsta í öðrum heims-
hluta ef ekki í öðru sólkerfi.
Það var svo augljóst að fréttakon-unni þótti rétt að láta kyrrt
liggja.
Það var í rauninni flott hjá henni.
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
Gull í munn
Veður víða um heim 12.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 5 alskýjað
Akureyri 9 skýjað
Egilsstaðir 8 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað
Nuuk 1 léttskýjað
Þórshöfn 5 súld
Ósló 11 heiðskírt
Kaupmannahöfn 8 súld
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 9 léttskýjað
Glasgow 11 skýjað
London 11 léttskýjað
París 9 skýjað
Amsterdam 7 alskýjað
Hamborg 9 skýjað
Berlín 15 skýjað
Vín 16 alskýjað
Moskva 24 heiðskírt
Algarve 19 léttskýjað
Madríd 12 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 18 skýjað
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 12 skýjað
Montreal 12 alskýjað
New York 8 þoka
Chicago 10 alskýjað
Orlando 26 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
13. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:19 22:30
ÍSAFJÖRÐUR 4:01 22:58
SIGLUFJÖRÐUR 3:43 22:42
DJÚPIVOGUR 3:43 22:05
Í lögum um meðferð sakamála er skýrt kveðið
á um það að þinghald skuli háð í heyranda
hljóði. Jafnskýrt er hins vegar kveðið á um að
dómara sé rétt að takmarka fjölda áheyrenda
við þá sem rúmast á þingstað með góðu móti,
og sé ekki þingfriður geti hann að eigin frum-
kvæði ákveðið að þinghald fari fram fyrir lukt-
um dyrum. Ákvörðun hans er þó kæranleg til
Hæstaréttar.
Verði áfram truflun á þingfriði
eftir lokun, s.s. vegna óvið-
eigandi framkomu sak-
borninga, má víkja
mönnum úr þing-
haldi, og með
lögregluvaldi ef
með þarf.
Loka má þinghaldinu
LÖG UM MEÐFERÐ SAKAMÁLA