Morgunblaðið - 13.05.2010, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
10 Daglegt líf
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g ætla að spila eins og
ég get af fingrum fram
eftir þeim heimildum
sem Örlygur Hálfdán-
arson, formaður Við-
eyjarfélagsins, lét mig hafa, en þar
segir frá mikilli hátíðarveislu sem
haldin var úti í Viðey árið 1809 til
heiðurs Jörundi hundadagakon-
ungi,“ segir Friðgeir Ingi Eiríksson,
matreiðslumeistari á Hótel Holti, en
hann ætlar í sumar ásamt fleiri snill-
ingum frá Holtinu að matreiða góm-
sæti úti í Viðey í líkingu við það sem
Jörundur hesthúsaði í boði Ólafs
Stephensen.
„Í heimildum er sagt frá því sem
borið var á borð og eitt og annað
kemur þar vissulega á óvart og
kannski ekki auðvelt að framkvæma
allt. En ég er mjög spenntur fyrir því
að prófa til dæmis að búa til njóla-
stöppu til að hafa með lambakjötinu,
rétt eins og gert var þarna fyrir 200
árum. Kríuegg voru líka borin á borð
höfðinglegra gesta og það væri gam-
an að prófa það en ég á eftir að kanna
hvort mér leyfist að ná í kríuegg úti í
eyju til matargerðar.“
Nota hráefni sem vex í Viðey
Einnig var á boðstólum sagó-
grjónagrautur með rúsínum og rauð-
víni út á, og Friðgeir segist að sjálf-
sögðu ætla að bjóða upp á slíkt.
„Kannski með jólakrydduðu rauð-
víni, því ég held að það fari vel sam-
an,“ segir hann og bætir við að hann
og hans hjálparkokkar ætli að stíla
inn á að nota sem mest hráefni sem
vex út í eyju og þar á meðal er kúm-
en.
„Við verðum til dæmis með
lauksúpu sem borin verður fram í
Viðeyjarbrauði sem við bökum en
það er mjög ríkt af kúmeni og gulrót-
um.“
Friðgeir tekur fram að þessir
tvö hundruð ára gæðaréttir verði
ekki á matseðlinum daglega í Viðey.
„Við ætlum að setja svona forn-
an kvöldverð upp í nokkur skipti og
þá þarf að panta fyrirfram, hvort
sem það eru ferðaskrifstofur með
hóp af erlendum ferðamönnum, ís-
lenskir fyrirtækjahópar eða jafnvel
íslenskir eldri borgarar, sem hafa
áhuga á að koma út í eyju og upplifa
gömlu gildin. Þetta verður svona
uppákoma þar sem í gegnum
skemmtiatriði verður sagt frá þess-
um tíma, Jörundarveislunni og fólk-
inu sem þarna bjó.“
Gestkvæmt hjá stórmennum
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir,
verkefnastjóri Viðeyjar, segir það
lengi hafa staðið til að vekja upp
gamla tíma með því að bjóða í Viðeyj-
arstofu upp á svipaðan mat og þann
sem borinn var þar á borð forðum
daga.
„Til eru heilmiklar heimildir um
stórar veislur í Viðey enda voru þeir
höfðingjar heim að sækja, stórmenn-
in sem sátu þar, hvort sem það var
Skúli Magnússon, Ólafur Stephensen
Njólastappa, kríuegg og
fleira að hætti höfðingja
Jörundur hundadagakonungur sat höfðinglega veislu úti í Viðey árið 1809 og nú
stendur til að leyfa bragðlaukum nútímamanna að smakka það góðgæti sem þá
var á borðum. Sumardagskráin í eyjunni fögru verður opnuð formlega á laugar-
daginn með djassveislu en fjölmargt verður þar í boði í allt sumar.
Þessi kjúklingur er undir japönskum
áhrifum þótt ekki sé hann hreinrækt-
aður japanskur, líklega nær því að
vera amerísk-japanskur. Slær yfirleitt
í gegn hjá öllum kynslóðum. Hefð-
bundin teriyaki-marínering byggist
að mestu á sake, sykri og sojasósu en
hér svindlum við aðeins.
Þetta er tilvalin marínering fyrir
grillaðan kjúkling en yaki-ið í teriyaki
vísar einmitt til grillaðra rétta.
Hægt er að nota annaðhvort heilan
kjúkling sem hefur verið bútaður nið-
ur í 8-10 bita, allt eftir því hvað
bringubeinið er stórt, eða þá úrbein-
aðar bringur og jafnvel enn frekar úr-
beinuð læri sem eru bragðmeiri en
bringurnar.
Þessi marinering á einnig mjög vel
við nautakjöt
Í löginn þarf eftirfarandi:
2 dl teriyaki-sósu
1 dl sojasósu
½ dl ólífuolíu
4-5 hvítlauksgeira
4-5 sm af engifer
límónu (lime)
Rífið niður engiferrót og hvítlauk á
fína hlutanum á rifjárninu. Bætið við
teriyaki-sósu, sojasósu og olíu. Písk-
ið vel saman með gaffli. Pressið saf-
ann úr límónunni út í löginn og pískið
aftur.
Leggið kjúklinginn í teriyaki-löginn
og látið hann liggja þar í lágmark
tvær til þrjár klukkustundir í ísskáp
og jafnvel yfir nótt.
Grillið kjúklinginn á álpappír eða í
álbakka og passið vel upp á að snúa
honum reglulega svo að hann brenni
ekki við. Veltið bitunum að minnsta
kosti einu sinni aftur upp úr afgang-
inum af kryddleginum á meðan grill-
að er og hellið honum síðan yfir bit-
ana í lokin og látið sjóða með síðustu
mínúturnar.
Berið fram með jasmin-hrís-
grjónum og salati með grænu blað-
salati og agúrkum.
Hvítvín á vel við þennan rétt, helst
frísklegt og ungt Chardonnay, t.d. hið
suðurítalska Pasqua Chardonnay.
Steingrímur Sigurgeirsson
Uppskriftin
Teriyaki-kjúklingur
Fleiri uppskriftir má finna á Matur
og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/
matur og á vinotek.is
Mamma sagði alltaf að það ætti að
þvo allt grænmeti og alla ávexti fyrir
notkun. Það er mikið til í því, þú veist
aldrei hverjir eru búnir að þukla eplið
í búðinni eða hvernig það var með-
höndlað hjá framleiðandanum. Auk
þess eru eiturefni mikið notuð í er-
lendri ræktun og vissara að reyna að
skola sem mest af þeim af. Það er
líka vissara að þvo salatið þó að það
standi á pokanum að það sé þvegið,
þú veist ekkert hvernig eða hvort það
var þvegið og miklar líkur eru á að þú
sért ekki fyrsta persónan til að með-
höndla það eftir þvott.
Það hreinasta og öruggasta í
grænmetisdeildinni er laukur sam-
kvæmt lista sem Environmental
Working Group gefur út árlega yfir
óhreinasta grænmetið og ávextina í
búðinni.
Það óhreinasta er:
1. Sellerí
2. Ferskjur
3. Jarðarber
4. Epli
5. Bláber
6. Nektarínur
7. Paprika
8. Spínat
9. Kál
10. Kirsuber
11. Kartöflur
12. Vínber
Neytendur
Vissara er að þvo selleríið sitt
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Grænmeti Þú veist ekki hvaða óhreinu puttar hafa meðhöndlað grænmetið.
Bónus
Gildir 12.-16. maí verð nú áður mælie. verð
My heimilisbrauð, 385 g ............ 129 147 335 kr. kg
Gouda ostur mildur .................... 972 1.227 972 kr. kg
KS frosið lambalæri ................... 998 1.139 998 kr. kg
KS frosið lambafilet ................... 2.698 2.998 2.698 kr. kg
KF ungnautaborgarar, 12x120 g . 1.359 1.698 1.132 kr. kg
Bónus xl hamb.brauð, 4 stk. ....... 139 159 35 kr. stk.
Pepsi og pepsi max, 2 ltr ............ 179 229 90 kr. ltr
My jólakaka, 420 g.................... 259 398 616 kr. kg
KS frosin lambasvið ................... 209 269 209 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 13.-15. maí verð nú áður mælie. verð
Svínalundir úr kjötborði .............. 1.398 2.198 1.398 kr. kg
Svínakótilettur úr kjötborði.......... 998 1.398 998 kr. kg
Svínahnakki úrb. úr kjötborði ...... 998 1.498 998 kr. kg
Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.498 1.898 1.498 kr. kg
Nautabuff úr kjötborði ................ 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Grillaður kjúklingur..................... 790 970 790 kr. stk.
FK kjúklingabringur .................... 1.781 2.375 1.781 kr. kg
FK ferskur kjúklingur................... 639 799 639 kr. kg
KF ísl. heiðarlamb ...................... 1.390 2.490 1.390 kr. kg
FK kindabjúgu ........................... 654 872 654 kr. kg
Hagkaup
Gildir 12.-16. maí verð nú áður mælie. verð
Holta indverskar kjúkl.lundir ....... 1.747 2.495 1.747 kr. kg
Holta hversdagst. m/sólþ. tóm.... 601 859 601 kr. kg
Holta kjúklingavængir ................ 318 398 318 kr. kg
Íslandsnaut nautafile ................. 2.447 3.495 2.447 kr. kg
New Orleans svínarif .................. 1.119 1.598 1.119 kr. kg
SS kryddlegnar lambatvírifjur ...... 1.874 2.498 1.874 kr. kg
Lambahr. fylltur að hætti Jóa Fel. 3.398 3.998 3.398 kr. kg
Myllu jólakaka nýbökuð.............. 359 529 359 kr. stk.
Myllu baguette gróft ................... 259 359 259 kr. stk.
Egils mix, 2 ltr............................ 179 299 179 kr. stk.
Kostur
Gildir 13.-17. maí verð nú áður mælie. verð
Lambalæri frosið /haust 2009.... 975 1.498 975 kr. kg
Goða grillborgarar 4 stk. + brauð. 499 698 499 kr. pk.
Kjöthornið hvítl.pipraðar lærissn.. 1.699 2.128 1.699 kr. kg
Kjöthornið þurrkr. lærissneiðar .... 1.699 2.128 1.699 kr. kg
Móar ferskur kjúklingur ............... 694 1.068 694 kr. kg
Goði Gourm meyrnuð piparsteik.. 2.494 2.935 2.494 kr. kg
BB rauðvíns grísakótilettur .......... 1.556 1.998 1.556 kr. kg
Goði kjötbúðingur ...................... 584 779 584 kr. pk.
Kostur heilhveitisamlokubrauð .... 178 198 178 kr. stk.
Ariel Traditionel, 5,5 kg............... 4.249 4.999 4.249 kr. pk.
Krónan
Gildir 12.-16. maí verð nú áður mælie. verð
Ungnauta piparsteik .................. 1.749 3.498 1.749 kr. kg
Ungnauta roast beef .................. 1.749 3.498 1.749 kr. kg
Ungnauta mínútusteik................ 1.749 3.498 1.749 kr. kg
Krónu kjúklingabringur texas....... 1.798 2.598 1.798 kr. kg
Thulip frankfurter/hot dog pylsur . 598 798 598 kr. pk.
Bökunarkartöflur í lausu ............. 69 119 69 kr. kg
A. mabel muffins súkkulaði ........ 169 189 169 kr. stk.
Fanta appelsín, 2 ltr. .................. 129 259 129 kr. stk.
Kjörís mjúkís vanillu, 1 ltr ........... 398 498 398 kr. ltr
Kjörís mjúkís súkkulaði, 1 ltr ....... 398 539 398 kr. ltr
Nóatún
Gildir 12.-16. maí verð nú áður mælie. verð
Nóatúns lærissneiðar salt/ pipar. 2.158 2.698 2.158 kr. kg
Nóatúns framhryggur salt/ pipar . 1.598 1.998 1.598 kr. kg
Grísalundir m/ sælkerafyllingu .... 2.249 2.998 2.249 kr. kg
Ísl. m. kjúklingabringur ............... 1.878 2.398 1.878 kr. kg
Ungnauta T-beinsteik ................. 2.799 3.998 2.799 kr. kg
Lambakóróna að hætti Grikkja .... 2.999 3.998 2.999 kr. kg
Dönsk herragarðsönd, 2,6 kg...... 1.998 3.998 1.998 kr. stk.
SS kryddlegnar lærissneiðar ....... 2.121 2.828 2.121 kr. kg
Capri sonne safari ..................... 299 404 299 kr. pk.
Þín verslun
Gildir 13.-16. maí verð nú áður mælie. verð
Nautahakk úr kjötborði............... 998 1.398 998 kr. kg
Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.498 3.198 2.498 kr. kg
Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.698 2.198 1.698 kr. kg
Ísfugls kjúklingur heill................. 682 975 682 kr. kg
Hatting frönsk smábrauð, 10 stk. 365 475 365 kr. pk.
Hatting hvítlauksbrauð, 2 stk. ..... 365 459 365 kr. pk.
Herrljunga perugos, 1 ltr. ............ 269 349 269 kr. ltr
Champion sveskjur steinl., 340 g 415 475 1.221 kr. kg
Tilda Basmati brún hrísgrjón ....... 698 798 698 kr. kg
Toblerone súkkulaði, 100 g......... 239 310 2.390 kr. kg
Helgartilboðin