Morgunblaðið - 13.05.2010, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Björn Jóhann Björnsson og
Guðrún Hálfdánardóttir
Skili Jón Ásgeir Jóhannesson ekki
lista um eignir sínar innan tveggja
sólarhringa frá því að honum hefur
verið birt stefna um kyrrsetningu
eigna, eða gefur upp rangar upp-
lýsingar, þá á hann yfir höfði sér
allt að þriggja ára fangelsi í Bret-
landi. Skili sú leið að óska eftir
kyrrsetningu eigna ekki tilætl-
uðum árangri kemur til greina að
slitastjórnin fari fram á gjald-
þrotaskipti yfir þeim ein-
staklingum sem hlut eiga að máli.
Þá gæti mögulega komið til rift-
unarkröfu á nýlegum gjörningum
viðkomandi í viðskiptum með eign-
ir og hlutabréf.
Þetta er meðal þess sem kom
fram á blaðamannafundi slita-
stjórnar Glitnis í tilefni málaferla
sem hafin eru fyrir dómstólum í
New York í Bandaríkjunum og
kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs
og fleiri tengdra Glitni, hér á landi
og í Bretlandi. Þannig hafa eignir
Lárusar Welding og Pálma Har-
aldssonar á Íslandi einnig verið
kyrrsettar. Þá hefur dómstóll í
London gefið út úrskurð, að kröfu
Glitnis, um kyrrsetningu eigna
Jóns Ásgeirs um víða veröld. Nær
kyrrsetningin til allra eigna við-
komandi upp að sex milljörðum
króna, samkvæmt upplýsingum
slitastjórnar, og einnig ráðstöfunar
á þeim eignum, hvort sem það eru
fasteignir, bílar, hlutabréf eða
bankainnistæður. Formaður slita-
stjórnar, Steinunn Guðbjartsdóttir
hrl., sagðist aðspurð á blaða-
mannafundinum ekki getað svarað
því hvort eignir væru til á móti
kröfum slitastjórnar.
Málaferlin í New York eru
höfðuð gegn Jóni Ásgeiri, áður
helsta hluthafa bankans, Lárusi
Welding, áður forstjóra Glitnis,
Þorsteini Jónssyni, áður stjórn-
arformanni, Jóni Sigurðssyni, áður
stjórnarmanni Glitnis og aðstoð-
arforstjóra FL Group, Pálma Har-
aldssyni, áður hluthafa í Glitni,
Hannesi Smárasyni, áður forstjóra
FL Group, Ingibjörgu Pálmadótt-
ur, eiginkonu Jóns Ásgeirs, og
PricewaterhousCoopers, áður end-
urskoðanda Glitnis.
Á sér enga hliðstæðu hér
Er þessum aðilum gefið að sök
að hafa „með sviksamlegum og
ólögmætum hætti haft fé af bank-
anum“, eins og það er orðað í
stefnu Glitnis. Segir slitastjórnin
gögn málsins sýna að Glitnir hafi
verið „rændur innan frá“. Draga á
fámennan hóp til ábyrgðar sem af
ásetningi og vanrækslu átti ríkan
þátt í falli bankans. Sagði Steinunn
þetta mál ekki eiga sér hliðstæðu
hér á landi. Verkefni stjórnarinnar
væri með öllum ráðum að reyna að
ná því fé til baka sem tapaðist með
falli bankans. Aðgerðirnar nú
væru fyrst og fremst byggðar á
niðurstöðum rannsóknar ráðgjaf-
arfyrirtækisins Kroll, sem hóf
rannsókn á falli bankans fyrir ári.
Sú rannsókn hefði afhjúpað óeðli-
legar ráðstafanir á fjármunum
bankans sem hefðu leitt til umtals-
verðs tjóns fyrir Glitni.
Fyrir dómstólnum í New York
er krafist bóta sem nemur meira
en tveimur milljörðum dollara, eða
nærri 260 milljörðum króna.
Kjarni þeirrar málsóknar er útboð
skuldabréfa upp á einn milljarð
dollara. Voru bréfin seld í sept-
ember árið 2007 til fjárfesta í New
York sem slitastjórn segir að hafi
verið blekktir varðandi fjárhags-
lega áhættu Glitnis. Bent er á að af
um níu þúsund kröfuhöfum bank-
ans eru nærri 90% frá öðrum lönd-
um en Íslandi.
Þegar blaðamannafundurinn
fór fram um miðjan dag í gær
hafði slitastjórn ekki tekist að
birta Jóni Ásgeiri stefnuna per-
sónulega þar sem ekki var vitað
hvar hann var niðurkominn og
hvert heimilisfang hann væri ná-
kvæmlega. Á sama tíma var Jón
Ásgeir hins vegar í símaviðtölum
við erlenda fjölmiðla.
6000
milljónir króna er þakið sem
sett er á verðmæti þeirra eigna
Jóns Ásgeirs sem slitastjórn
Glitnis hefur krafist kyrr-
setningar á um víða veröld.
260
milljarðar króna eða
2milljarðar dollara er upphæð
bótakröfu slitastjórnar Glitnis
á hendur Jóni Ásgeiri og fleiri
tengdum aðilum.
39%
var hlutur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, í
gegnum ýmsa aðila, í Glitni en hann er í
stefnu slitastjórnar talinn hafa náð valdi
á stjórn bankans í apríl 2007 þegar stjórn
Glitnis ogæðstu yfirmönnum var vikið frá.
48
klukkustundir er sá frestur sem
Jón Ásgeir Jóhannesson hefur frá
því að honum er birtur úrskurður
breskra dómstóla til að leggja fram
tæmandi lista yfir allar eignir sínar.
Reykjavík
Slitastjórn
Glitnis höfðar skaða-
bótamál fyrir dómstólum í
New York á hendur Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni, sex
öðrum og endurskoðunar-
fyrirtækinu Pricewater-
houseCoopers.
Eignir
Lárusar
Welding, Jóns
Ásgeirs og Pálma
Haraldssonar hafa
verið kyrrsettar á
Íslandi.
Í stefnu slita-
stjórnar Glitnis segir að
Jón Ásgeir hafi handstýrt
því að LárusWelding tók við
sem forstjóri Glitnis af Bjarna
Ármannssyni en Lárus var
áður yfir útbúi
Landsbankans í
London.
Breskur
dómstóll kyrrsetti
allar eigur Jóns
Ásgeirs hvar sem er í
heiminum að kröfu
slitastjórnar Glitnis.
London
Jón Ásgeir á
yfir höfði sér þriggja
ára fangelsi í Bretlandi
skili hann ekki eða gefi
rangar upplýsingar
um eignir sínar.
Jón Ásgeir
Jóhannesson og aðrir sem
stefnt er í málinu, hefðu aldrei
komið fram ráðagerðum sínum án
hlutdeildar PricewaterhouseCoopers að
mati slitastjórnarinnar. Endurskoðendur
PwC vissu um óeðlilega áhættu Glitnis
gagnvart tengdum aðilum, þeir fóru yfir og
kvittuðu upp á uppgjör Glitnis, þar sem
sú áhætta var gróflega rangfærð, og
stuðluðu að sviksamlegri
fjáröflun Glitnis í New
York.
Í september
árið 2007 seldi Glitnir
í útboði skuldabréf upp á
einn milljarð dollara
til fjárfesta í New York.
Þessi gjörningur er kjarni
málsóknar slita-
stjórnar Glitnis.
NewYork
Meðal eigna
Jóns Ásgeirs sem
dómstóll í London hefur
kyrrsett að kröfu Glitnis eru
tvær íbúðir í auðmanna-
hverfinu Gramercy Park
á Manhattan sem hann
keypti á u.þ.b. 25
milljónir dala.
Kyrrsett um allan heim
Slitastjórn Glitnis í málsókn gegn sjö einstaklingum sem taldir eru hafa átt stóran þátt í falli bankans
Sögð hafa rænt bankann innan frá Fangelsisdómur sé eignaupplýsingum ekki skilað innan 48 tíma
Samkvæmt því sem kemur fram í
stefnu slitastjórnar Glitnis, sem
hefur verið þingfest í New York,
notaði Jón Ásgeir Jóhannesson FL
Group til að ná yfirráðum í Glitni.
Nefndist áætlunin „Project-
Tornado“ eða „Skýstróksáætl-
unin“. Var stjórn bankans vikið frá
og ný stjórn skipuð einstaklingum
sem tengdust fyrirtækjum sem
Jón Ásgeir stjórnaði. Jafnframt á
hann að hafa handstýrt því að Lár-
us Welding tók við sem forstjóri
Glitnis í stað Bjarna Ármanns-
sonar. Í stefnunni kemur fram að
engu hafi skipt þó að Lárus hafi
ekki stýrt áður jafn viðamikilli
starfsemi og rekstur Glitnis var.
Stýrði Lárus áður útibúi Lands-
bankans í London. Starfsmenn
Glitnis á þessum tíma, í apríl
2007, voru um 1.900 talsins. Skv.
skjölum málsins hóf Jón Ásgeir
markvisst að vinna að því að ná
yfirráðum yfir Glitni árið 2006. Þá
fór FL Group fram á, er Jón Ásgeir
var þar stjórnarformaður, heimild
FME til að fara með virkan eign-
arhlut sem nam meira en 10%
hlutafjár í Glitni. Í lok janúar 2007
fékk FL Group heimild til að fara
með 33% hlut í bankanum. Eftir
það er Jón Ásgeir í stefnunni sagð-
ur hafa farið af stað með áætlun
um hvernig félagið gæti eignast
stærri hlut, í þeim tilgangi að ná
yfirráðum í bankanum. Í apríl 2007
átti net fyrirtækja, sem tengdust
Jóni Ásgeiri, tæplega 39% hlut í
Glitni, sem er talsvert meira en
heimild FME til handa FL Group
kvað á um. Slitastjórn telur hann í
raun þá hafa ráðið yfir bankanum.
Skýstróksáætl-
unin sett í gang
REYNDU MARKVISST AÐ NÁ YFIRRÁÐUM Í GLITNI
Glitnir Skýstróksáætlunin svo-
nefnda gekk næstum því upp.
Málferli Glitnis banka
MMeira á mbl.is