Morgunblaðið - 13.05.2010, Page 14
Veðurstofan spáir austan- og
norðaustanátt á föstudag, laug-
ardag og sunnudag. Það þýðir að
öskumökkurinn úr Eyjafjallajökli
fer vestar en áður. Er því spáð að
aska geti fallið í vesturhluta Eyja-
fjallasveitar og jafnvel náð inn í
Landeyjar.
Ekki hefur fallið mikil aska á
þessu svæði. Þar er mikil búvöru-
framleiðsla og þótt fjölda hrossa
hafi verið ekið í burtu eru enn
hundruð hrossa á útigangi í
Landeyjum. Verði mikið öskufall á
þessu svæði mun það valda mikl-
um vandræðum. Aska úr gos-
mekkinum féll í Skaftártungu í
fyrrinótt, í Álftaveri og á Mýrdals-
sandi í gær og eftir hádegið fór
að falla aska í Mýrdal.
Borgar Páll Bragason sem fór
fyrir hópi ráðunauta sem farið
hafa um allt öskufallssvæðið seg-
ir að ástandið sé langverst undir
Eyjafjöllunum vegna þess hversu
lengi aska hafi fallið þar. Þá séu
að verða vandræði hjá fjár-
bændum í Mýrdal og Álftaveri,
þeir þurfi að geta sett fé út.
Spá öskufalli
vestar en áður
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Gosið er enn í fullum gangi og sagan
sýnir okkur að ekki er víst að því fari
að ljúka. Við vitum því ekki hvað við
fáum. Það er verst,“ segir Þórarinn
Eggertsson, bóndi í Hraungerði í
Álftaveri. Þar var öskufall í gær þeg-
ar blaðamenn Morgunblaðsins voru á
ferð.
Þórarinn segir að mikið ösku-
mistur hafi verið þar daginn áður og
aska byrjað að falla um kvöldið.
Smáhlé varð í gærmorgun en ballið
byrjaði fljótt aftur. Sérkennileg birta
var í Álftaveri í gær. Sólin náði undir
gjóskustrókinn en kindur voru gráar
af ösku og ryk þyrlaðist undan fótum
fólks og á eftir ökutækjum og aska
var á þökum og ökutækjum.
Beint úr fabrikkunni
„Þetta er sama gátan og verið
hefur. Það er ekki mikið mál að fóðra
nokkrar rollur lengur en vanalega, ef
þetta fer yfir afmarkað svæði,“ segir
Gísli Halldór Magnússon, bóndi í
Ytri-Ásum í Skaftártungu. Þar varð
mikið öskufall í fyrrinótt með rign-
ingu.
Hann segir að hrinan hafi byrjað
með öskumóðu í fyrradag og síðan
hafi farið að falla aska. „Þetta var
magnað klukkan fimm í morgun.
Askan hlóðst með bleytunni á rúð-
urnar á traktornum. Ég smúlaði af
honum og þegar ég renndi upp hæð-
ina til að sækja heyrúllu hlóðst hún
aftur á rúðuna svo ég sá ekki út þótt
ég væri með rúðuþurrkurnar á
fullu,“ sagði Halldór í gær. Þá var
öskufallið hætt en eftir sátu gráar og
klepraðar ær sem hafðar voru úti um
nóttina og öskuskán yfir öllu.
Askan virðist aðeins hafa fallið á
tvo bæi í Skaftártungu í þessari um-
ferð, eins og raunar fyrstu daga eld-
gossins. Þá segir Halldór að Skaft-
árafréttur hafi að mestu sloppið fram
til þessa. Það skiptir miklu máli fyrir
bændur að geta nýtt afréttinn en
vitaskuld er ekki útséð með það á
meðan eldfjallið gýs.
Bændur í Skaftártungu eru ekki
óvanir foki úr farvegi Skaftár. „Áin
er þó búin að þvo þá ösku. Núna
fáum við það óþvegið, askan kemur
beint úr fabrikkunni,“ segir Halldór.
Elstu lömbin komin á tíma
Sauðburður er víða langt kom-
inn á öskufallssvæðinu í Rangárþingi
eystra og Vestur-Skaftafellssýslu og
bændur í vandræðum með pláss til að
hýsa lambféð. Þá valda elstu lömbin
vandræðum í fjárhúsunum og nauð-
synlegt fyrir þau að komast í gróður.
„Við erum að setja fyrsta lamb-
féð út núna, við heldur lakari skilyrði
en við vildum. Elstu lömbin eru kom-
in á tíma með að fara út,“ segir Þór-
arinn bóndi í Hraungerði. „Túnin eru
þokkalega gróin þar sem við höfum
fengið hlýja daga í maí,“ segir Þór-
arinn. Hann segir að töluverð aska sé
í grassverðinum auk þess sem aska
sé enn að falla og viðurkennir að
hann sé ekki alveg laus við hræðslu
við flúormengun og að gaddur fari
þess vegna að vaxa á tennur lamb-
anna. Ráðunautar og dýralæknar
hafa heimsótt Hraungerði eins og
marga aðra bæi á öskufallssvæðinu
og Þórarinn segist hafa skilið þá
þannig að það ætti að vera í lagi að
setja út fé eftir úrkomu. „Við höldum
fénu eins lengi inni og hægt er en
getum ekki haldið lömbunum inni
mikið lengur en tvær til þrjár vikur,“
segir hann.
Hann vonast eftir meiri úrkomu
til þess að hægt verði að setja fleira
út.
Óvissan er allra verst
Morgunblaðið/RAX
Undir öskuskýi Mökkurinn frá Eyjafjallajökli færðist vestar eftir hádegið í gær og lá beint yfir Vík í Mýrdal. Þar var askan grófari, buldi eins og sandur á fólki og mannvirkjum.
( Aska féll í gær á bæjum austan við Mýrdalssand ( Ekki er hægt að halda fé mikið lengur inni
( Bændur standa frammi fyrir erfiðum ákvörðunum ( Ástandið er verst undir Eyjafjöllum
Annir í sauðburði Systkinin frá Hraungerði skiptast á um að hjálpa foreldrum sínum við sauðburðinn. Eggert átti
vaktina í gær og gengur með föður sínum, Þórarni Eggertssyni, á móti öskunni til fjárhúsanna.
Spá um öskufall
Spá fyrir hádegi
14. maí.
Mýrdalsjökull
Torfajökull
Vík
Hvolsvöllur
Hella
Vestmanna-
eyjar
Grunnkort: LMÍ Heimild: vedur.is
Sjálfboðaliðar klárir
» Um 15 sjálfboðaliðar eru
við störf á vegum fjöldahjálp-
armiðstöðvarinnar í Vík.
» Nú eru 70-80 menn á skrá
og bíða óþreyjufullir eftir að
taka til hendinni. Kallað verður
í fólkið þegar öskufalli linnir og
hægt verður að hefja hreinsun
á ný.