Morgunblaðið - 13.05.2010, Page 22
22 UmræðanKOSNINGAR 2010
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Rekstur Mosfellsbæjar hefur gengið vel
á undanförnum árum. Á síðustu tveimur
kjörtímabilum eða síðan árið 2002 hefur
samanlagður afgangur af rekstri verið
rúmur milljarður króna. Þetta er einmitt
sá tími sem við sjálfstæðismenn höfum
verið í meirihluta í bæjarstjórn og á þessu
kjörtímabili í góðu samstarfi við VG.
Mikil uppbygging
Fjárfestingar á þessu tímabili hafa verið
rúmir þrír milljarðar og þar af hafa tveir
af þessum þremur milljörðum verið fjár-
magnaðir með eigin fé, eða fé sem reksturinn sjálfur
hefur skilað. Einn af þessum rúmum þremur millj-
örðum sem fjárfest hefur verið fyrir hefur verið tek-
inn að láni. Í margar stórframkvæmdir hefur verið
ráðist á þessu tímabili og má þar nefna m.a. að
byggðir hafa verið 2. og 3 áfangi Lágafellsskóla,
Íþróttamiðstöðin Lágafell, gervigrasvöllur á Varmá,
Brúarland gert upp og Krikaskóli byggður.
Fjárhagsstaðan traust
Þrátt fyrir þessa miklu uppbyggingu og þann
tekjumissi sem orðið hefur að undanförnu er fjár-
hagsstaða sveitarfélagsins traust. Mosfellsbær er
meðal þeirra sveitarfélaga sem ber hvað lægstar
skuldir á íbúa. Ástæða þessa er einföld, hér hefur
verið unnið ábyrgt og gott verk á undanförnum ár-
um. Mosfellsbær fór aðrar leiðir en önnur sveit-
arfélög við uppbyggingu sveitarfélagsins. Ekki var
ráðist í uppkaup á landi og dýrar fram-
kvæmdir. Þess í stað var samið við landeig-
endur um að þeir stæðu sjálfir að uppbygg-
ingunni og seldu byggingarrétt, auk þess
sem þeir greiða bæjarfélaginu ákveðna
upphæð á hverja íbúðareiningu. Vegna
þessa gat Mosfellsbær grynnkað á skuldum
í góðærinu.
Samstillt átak
Því er ekki að leyna að rekstur sveitarfé-
laga er erfiður um þessar mundir. Tekjur
hafa dregist mjög saman og hækkun verð-
lags orðið mikil. En með samstilltu átaki
hefur tekist að ná fram nauðsynlegri hag-
ræðingu og sparnaði til að endar nái saman. Á árinu
2009 var afgangur af rekstri 367 m.kr. fyrir fjár-
magnsliði. Tekist hefur að standa vörð um þá góðu
þjónustu sem sveitarfélagið veitir og er það afar mik-
ilvægt á þeim tímum sem við lifum nú á. Þetta er
ekki síst starfsfólki Mosfellsbæjar að þakka sem lagt
hefur sig fram um að sýna ráðdeild í rekstri og tekið
breyttum verkefnum með jákvæðni og umhyggju. Á
síðasta ári og á þessu þarf sveitarfélagið að sækja
framkvæmdafé á lánsfjármarkaði. Staða sveitarfé-
lagsins og sú ábyrgð sem það hefur sýnt í rekstri
hefur orðið til þess að lánskjörin sem því hafa hlotn-
ast eru með því allra besta sem sveitarfélögum hefur
boðist. Mosfellsbær nýtur trausts.
Hvers vegna nýtur
Mosfellsbær trausts?
Eftir Harald Sverrisson
Haraldur Sverr-
isson
Höfundur er bæjarstóri
Mosfellsbæjar.
Frjálslyndi flokk-
urinn býður fram í
Reykjavík til borg-
arstjórnarkosninga.
Þetta er í fyrsta skiptið
sem Frjálslyndir bjóða
einir fram í Reykjavík
og er því í raun um nýtt
framboð að ræða. Mikil
endurnýjun hefur átt
sér stað innan flokksins,
ný stjórn kosin í mars og margir
komið til liðs við flokkinn á síðustu
mánuðum. Nú bregður svo við að
kona er oddviti og konur eru í meiri-
hluta á framboðslistanum.
Frjálslyndir telja að almenningur
eigi að geti skotið málum í almennar
kosningar svo hægt sé að taka fram
fyrir hendurnar á kjörnum fulltrúum
þegar þeir fara út af sporinu.
Reykjavík mun þurfa að
kljást við afleiðingar
kreppunnar. Vænta má
uppgjörs fjármálastofnana
við lántakendur í haust. Ef
ríkisstjórnin fylgir fyr-
irmælum Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins, eins og hingað
til, stefnir í fjölda nauð-
ungaruppboða. Þá mun
álag aukast verulega á vel-
ferðarkerfi borgarinnar.
Frjálslyndi flokkurinn
hafnar aðferðum AGS og
telur nærveru hans ógna íslenskum
velferðarmálum. Við teljum mjög
nauðsynlegt að hemja athafnir sjóðs-
ins. Innan borgarinnar verðum við að
forgangsraða í þágu velferðar. Lág-
markskrafa er að afkoma borgaranna
sé tryggð.
Nýtt framboð –
Frjálslyndir
Eftir Helgu
Þórðardóttur
Helga Þórðardóttir
Höfundur er oddviti Frjálslynda
flokksins í Reykjavík.
Tveir stærstu flokk-
arnir í Kópavogi hafa
báðir brúarsmíði á
stefnuskrá sinni. Þessar
brýr eru þó ólíkar bæði
að gerð og eðli. Samfylk-
ingin kallar tillögu sína í
atvinnu- og húsnæðis-
málum Kópavogsbrú.
Um 400 íbúðir standa
nú hálfbyggðar í bænum.
Kópavogsbær hefur að-
gang að hagstæðum lánum og getur
haft frumkvæði að því að ljúka bygg-
ingu þessara íbúða með því að koma
á samstarfi ólíkra aðila og boðið þær
til leigu eða kaupleigu. Það er eft-
irspurn eftir leiguhúsnæði og örugg
langtímaleiga ætti að vera valkostur
þeirra sem ekki kjósa að leggja allt
sitt sparifé í fasteignakaup. Miðað
við íbúaþróun á höfuðborgarsvæðinu
þurfa að koma á markað um 1500
íbúðir á ári til að svara eftirspurn.
Það liggur fyrir að lántaka vegna
þessa verkefnis mun ekki hafa áhrif á
rekstur bæjarins, þar sem leigu-
tekjur munu standa undir gjöldum
og fjármagnskostnaði. Kópavogsbrú
er tillaga Samfylkingarinnar á tím-
um þegar markaðurinn er strand og
þá er aðkoma hins opinbera ekki að-
eins réttlætanleg, heldur
nauðsynleg.
Tillaga Sjálfstæð-
isflokksins felur í sér að
byggja göngubrú frá Kárs-
nesi yfir í Vatnsmýrina.
Góð hugmynd sem við í
Samfylkingunni höfum oft
orðað, en hún er einfald-
lega ekki réttlætanleg eins
og staðan er í dag. Brúar-
smíð Sjálfstæðisflokksins
mun krefjast lántöku bæj-
arsjóðs upp á hundruð
milljóna, en öfugt við
Kópavogsbrúna mun hún ekki skila
bænum neinum tekjum og því hafa
neikvæð áhrif á bæjarsjóð. Stefnu-
skrá flokkanna í aðdraganda kosn-
inga er samningur þeirra við kjós-
endur næstu fjögur árin. Þar teljum
við í Samfylkingunni brýnasta verk-
efnið að gæta aðhalds í rekstri bæj-
arins og forgangsraða í þágu bæj-
arbúa. Kópavogsbrúin okkar mun
skapa störf, leggja grunn að lang-
tíma leigumarkaði og skila bænum
auknum tekjum í formi fasteigna-
gjalda og útsvars. Nú er það kjós-
enda í Kópavogi að forgangsraða,
brú yfir til framtíðar eða brú yfir í
Vatnsmýri.
Brúarsmíð í Kópavogi
Eftir Guðríði
Arnardóttur
Guðríður
Arnardóttir
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Kópavogi.
Undanfarin ár hafa
skipulagsmál sveitarfé-
laganna á höfuðborg-
arsvæðinu einkennst af
gegndarlausri útþenslu
og samkeppni í lóðasölu.
Ummerkin blasa við.
Hálfkláruð hús, ófrá-
gengin hverfi og verk-
efnalausir kranar. Þó að
sveitarfélögin átta á
svæðinu liggi hlið við hlið hefur skort á
samstarf þar á milli. Bitist hefur verið
um íbúa og keppst við að selja lóðir,
barist um útsvarstekjurnar. Íbúum í
Kópavogi hefur fjölgað gríðarlega
mikið undanfarin ár og hefur þeirri
staðreynd verið hampað á tyllidögum.
Uppbygging hröð, mest og best! Það
var svo gott að búa í Kópavogi. Sem
það reyndar er – en ekki vegna fyr-
irgangsins undanfarin þar.
Vinstrihreyfingin – grænt framboð
vill beita sér fyrir því að sett verði á
laggirnar sameiginleg skipulagsnefnd
á höfuðborgarsvæðinu skipuð fulltrú-
um allra sveitarfélaganna. Samkeppni
af því tagi sem að ofan er lýst er ein-
kenni gamalla tíma og endar í stefnu-
leysi. Sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu þurfa að vinna
miklu nánar saman og
skipuleggja byggð í sam-
ráði við íbúa og þeirra þarf-
ir. Þar þarf Kópavogur að
hafa forystu af mörgum
ástæðum en meðal annars
þeirri að bæjarfélagið er
miðlægt á höfuðborg-
arsvæðinu. Samstarf þarf
að nást í skipulagsmálum
sérstaklega en einnig á öðr-
um sviðum eins og í sam-
göngumálum, bæði varð-
andi vegakerfi, almenningssamgöngur
og framtíðarsýn í sorphirðumálum.
Það er áfram út í hött að loka sveit-
arfélögin á höfðuborgarsvæðinu innan
þröngra marka þegar íbúarnir líta á
svæðið sem eitt svæði í samgöngum,
skipulagi, atvinnumálum, íþróttum,
menntamálum. Um leið og samstarf er
aukið þarf að efla myndugleika sveit-
arfélaganna því nútíminn kallar síðan
á virkt íbúalýðræði, gagnsæja stjórn-
sýslu og heiðarleika. Tími vinavæð-
ingar er liðinn. Vinavæðingin sem
kristallaðist einna helst í lóðaúthlut-
unum og skipulagsslysum þarf að vera
liðin tíð.
Höfuðborgar-
svæðið ein heild
Eftir Guðnýju Dóru
Gestsdóttur
Guðný Dóra
Gestsdóttir
Höfundur skipar 2. sæti á
framboðslista VG í Kópavogi.
Íslenska þjóðin hefur upplifað rússíban-
areið undanfarin tvö ár. Afleiðingarnar fyrir
sálartetrið eru miklar, vantraustið algjört og
skotgrafirnar svo djúpar að þær ná næstum
því til Kína.
Þjóðin kallar á breytingar við þessar að-
stæður. Stjórnlagaþing, þjóðaratkvæða-
greiðslur, beinna lýðræði, gagnsæi og síðast
en ekki síst heiðarleiki eru á allra vörum.
Krafan er að stjórnmálamenn vinni að mál-
efnum fremur en þrætubókarlist; starfi fyrir
fólkið fremur en sjálft sig; og gæti almanna-
hagsmuna fremur en sérhagsmuna. Krafan er að fólkið
hafi aðkomu að ákvörðunum stjórnmálanna og hafi
þannig eitthvað um framtíð sína og umhverfi að segja.
Krafan er um breytingar.
Jafnaðarstefnan í hnotskurn
Kröfur þjóðarinnar um breytingar eru í fullu sam-
ræmi við stefnu jafnaðarmanna, sem byggist á frelsi og
lýðræði, kvenfrelsi, jafnrétti og samábyrgð. Krafan er
um samtal á milli stjórnmála og þjóðfélags, samráð í
sem flestum málaflokkum og gagnsæi við ákvarð-
anatöku. Krafan er um lýðræðislegar umræður og lýð-
ræðislega ákvarðanatöku. Krafan er um samræðu-
stjórnmál sem verða ekki hædd út af borðinu eins og
reynt var þegar Ísland var best í heimi.
Trúverðugleiki
Nú er það orðið svo að allir vilja Lilju kveð-
ið hafa. Flokkar og einstaklingar sem þekktir
eru fyrir digurbarkalegar yfirlýsingar, reyk-
fyllt bakherbergi, einhliða ákvarðanir og það
sem oft hefur virst einræðislega tilburði,
stíga nú fram og hyggjast leiða fram nýjar
áherslur, ný vinnubrögð og opnari umræðu
með aukinni aðkomu íbúa.
Er það sannfærandi?
Skoðum stöðuna í Kópavogi: Trúum við því
þegar aðili sem í 12 ár greiddi atkvæði með
oddvita sínum og leiðtoga og felldi þar með
ítrekaðar tilraunir minnihlutans til lýðræðisumbóta,
stígur nú fram sem fulltrúi nýrra vinnubragða? Er hann
líklegur til þess að leiða fram raunverulegar breytingar?
Meirihluti íbúa vill breytingar
Aðspurður segir meirihluti Kópavogsbúa að hann vilji
breytingar á stjórn bæjarins eftir næstu sveitarstjórn-
arkosningar, að nýr meirihluti taki við að liðnum kosn-
ingum. Samfylkingin í Kópavogi er eini raunhæfi kost-
urinn til þess að leiða þær breytingar. Til þess að svo
verði þurfa kjósendur að gefa Samfylkingunni öflugt
umboð í komandi kosningum.
Frasar stjórnmálamannsins eða
raunverulegur valkostur?
Eftir Elfi Logadóttur
Elfur Logadóttir
Höfundur er lögfræðingur og skipar 4. sætið
á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi.
Það skiptir okkur máli hverjir veljast til
þess að stjórna bænum okkar. Það vita
Mosfellingar manna best. Sjálfstæðismenn
hafa verið við stjórnvölinn undanfarin átta
ár í Mosfellsbæ og fjögur síðustu ár ásamt
Vinstri grænum. Lögð hefur verið rík
áhersla á ábyrgð í fjárreiðum bæjarins og í
dag er staðan góð. Við sjálfstæðismenn
ætlum að halda áfram uppbyggingu þess
góða samfélags sem hér hefur verið skap-
að.
Snerpa og hugmyndaauðgi
Mosfellsbær er bær tækifæranna. Við ætlum að
stuðla að öflugu samráði á milli atvinnurekenda m.a.
með reglulegum samráðsfundum atvinnulífsins. Við
viljum nýta þá snerpu og hugmyndaauðgi sem í okk-
ar mannauði býr til frekari landvinninga í atvinnu-
málum. Við ætlum að fjölga störfum í sveitarfélaginu
m.a. með því að markaðssetja Mosfellsbæ enn frekar
sem heilsu- og menningarbæ. Við ætlum að styðja við
stofnun heilsuklasa í Mosfellsbæ. Gert er ráð fyrir að
allt að eitt þúsund störf geti skapast í bæjarfélaginu
með nýju sjúkrahúsi sem PrimaCare hyggst reisa í
bænum. Það verður gríðarleg lyftistöng fyrir bæinn.
Það er því fyrirsjáanlegt að Mosfellsbær
verður ekki lengur svefnbær þar sem fólk
sækir vinnu til annarra bæjarfélaga.
Heilsubær með einstakri náttúru
Þegar þetta verður raunin munu allra
augu beinast að Mosfellsbæ sem heilsubæ.
Hér hefur lengi verið eitt þekktasta
endurhæfingarsjúkrahús á landinu og fjöl-
margir Íslendingar hafa fengið bót sinna
meina þar. Nýja sjúkrahúsið felur í sér
mörg tækifæri fyrir Mosfellinga um alls
kyns heilsutengda og afleidda þjónustu. Í
Mosfellsbæ er frjór jarðvegur fyrir heilsu-
tengda þjónustu, í bæ með mikilli náttúrufegurð, góð-
um útivistarsvæðum, fjölda sérfræðinga í heilsu-
málum, framhaldsskóla tengdum lýðheilsu og
umhverfisfræðum og öflugu íþrótta- og tómstunda-
starfi. Við ætlum að gera Mosfellsbæ að miðstöð
heilsueflingar og heilsutengdrar ferðaþjónustu. Mos-
fellsbær verður ekki lengur svefnbær í útjaðri
Reykjavíkur heldur vaxandi og hraust bæjarfélag
sem á bjarta framtíð fyrir sér.
Mosfellsbær er bær tækifæranna
Eftir Evu Magnúsdóttur
Eva Magnúsdóttir
Höfundur er varaþingmaður í framboði fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn í sveitarstjórnarkosningunum í Mosfellsbæ.