Morgunblaðið - 13.05.2010, Side 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
Gæðagarðsláttur
Garðsláttur fyrir húsfélög og ein-
staklinga. Vönduð vinnubrögð og
persónuleg þjónusta, ekkert fúsk.
Fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu.
ENGI ehf. Sími: 615-1605.
Húsnæði í boði
Íbúðir til leigu
Menorca, Mahon, Barcelona, Costa Brava
Sumarhús í Flóahreppi.
www.starplus.is og starplus.info
Sími 899 5863.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis fullbúin hús og einnig
á hinum ýmsu byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Rotþrær frá 2300 l, siturlagnir,
leiðbeiningar, heildarlausnir.
Vatnsgeymar staðlaðar stærðir.
Jarðgerðarílát/moltukassar.
www.borgarplast.is
Mosfellsbæ,
s. 561 2211.
Glæsilegar sumarhúsalóðir
til sölu í Fjallalandi við Leirubakka.
Veðursæld og rómuð náttúru-
fegurð við Ytri-Rangá, 100 km frá
Reykjavík. Mosa- og kjarrivaxið
hraun. Uppl. í síma 893 5046 og á
fjallaland.is
Netfang: fjallaland@fjallaland.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Ódýr blekhylki og tónerar í
HP, Dell, Brother, Canon og Epson.
Send samdægurs beint heim að
dyrum eða í vinnuna. S. 517 0150.
Sjá nánar á blekhylki.is
Victoria's Secret. Bath &
Bodyworks
Vorum að taka upp nýja sendingu af
Victoria´s Secret og Bath & Body-
works. Allir nýju ilmirnir og hinar
geysivinsælu handsápur frá Bath &
Bodyworks.
Allar uppl. hjá Snót.is og
í síma 897 2902.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
C.P. þjónusta. Veiti bókhalds-,
eftirlits- og rannsóknarvinnu
ýmiskonar. Hafið samband í síma
893 7733.
Bókhald - framtöl
Skattaframtöl fyrir einstaklinga og
rekstraraðila og bókhald fyrir fyrir-
tæki, stofnun EHF., VSK-uppgjör,
erfðarfjárskýrslur o.fl. Framtöl og
bókhald s. 517-3977, framtal@visir.is
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Málarar
Málningarvinna
Þaulvanur málari óskar eftir verk-
efnum. Vönduð og öguð vinnubrögð.
Byrjaður að bóka sumarið. Sanngjarnt
verð. Upplýsingar í síma 897 2318.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið - Skokkar, Vesti.
Litir, grátt, svart, hvítt.
St. S-XXL, Verð kr. 10.900,-
Vesti, ljósblá, st. 42-56
Verð kr. 13.990,-
Sími 588 8050
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið - Röndótt Tunica
litir grátt/hvítt,
lila/hvítt,bleikt/hvítt, svart/hvítt
St. S-XXL, Verð kr. 6.990,-
Sími 588 8050
Tilboð
Flottir dömuskór úr leðri með
skinnfóðri. Litir rautt og svart
Verð 3500,-
Sími: 551 2070,
opið: mán.- fös. 10 - 18,
lau. 10 -14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Heitir pottar
Sími 565 8899
GSM 863 9742
www.normx.is
normx@normx.is
...þegar þú vilt þægindi
Softshell fyrir dömur og herra
Kr. 14.500.-
St. XS-3XL Jakki fyrir bæði kyn
sem andar, vind og vatnsfrá-
hrindandi, rennilás á innaná-
vösum.
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- fimmtud kl.
11.00 - 17.00
föstudaga kl. 11.00 -15.00
www.praxis.is
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Ford-felgur
Vantar felgur, 4 stykki á Ford
Econaline 8 gata 16”.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Fellihýsi
Palomino Yearling 103 10fet 2008
árg. Til sölu Palomino Yearling 103
10fet 2008 með geymslukassa,
fortjaldi, sólarsellu, grjótgrind og
svefntjöldum. Lítið notaður vagn sem
er eins og nýr. Uppl. í s. 891-6858.
Húsviðhald
Þó í okkar feðrafold
falli allt sem lifir
enginn getur mokað
mold
minningarnar yfir.
(Bjarni Jónsson frá Gröf)
Í dag, hinn 13. maí, hefði frændi
okkar orðið 83 ára. Nonni var ein-
stök persóna, hnyttinn í svörum og
eigum við margar skemmtilegar
minningar um hann. Hann bjó á
næsta bæ við okkur og fylgdumst við
systkinin oft undrandi með ferðum
hans sem okkur þóttu einstakar að
því leyti að Nonni fór iðulega sinna
ferða bakkandi á bílnum sínum,
keyrði á áfangastað og bakkaði svo
til baka. Í gegnum tíðina þróaði
Nonni með sér hæfileika sem margir
hafa reynt að leika eftir en fáum tek-
ist; hann braut molasykur í lófanum í
fjóra parta án þess að hafa nokkuð
Kristjón Pálmarsson
✝ Kristjón Pálm-arsson fæddist á
Unhóli í Þykkvabæ
13. maí 1927. Hann
lést á Dvalarheimilinu
Lundi á Hellu 24. apr-
íl sl.
Útför Kristjóns fór
fram frá Þykkva-
bæjarkirkju 8. maí
2010.
fyrir því.
Fyrir nokkru gat
Nonni ekki lengur
verið heima fyrir og
fluttist hann á Lund á
Hellu og leið honum
afar vel þar. Erum við
því einstaka fólki sem
þar vinnur mjög þakk-
lát fyrir góða umönn-
un og einstakt viðmót
við okkur öll og ekki
síst hann elskulega
frænda okkar.
Við kveðjum þig
með söknuði en þakk-
læti fyrir allar góðu minningarnar.
Þú gengin ert hugglöð á frelsarans
fund
og fagnar með útvaldra skara,
þar gleðin er eilíf, þar grær sérhver
und.
Hve gott og sælt við hinn hinsta blund
í útbreiddan faðm Guðs að fara.
Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá
því komin er skilnaðarstundin.
Hve indælt það verður þig aftur að sjá
í alsælu og fögnuði himnum á,
er sofnum vér síðasta blundinn.
(Hugrún)
Hvíldu í friði elsku Nonni okkar.
Sigmar, Sverrir, Sig-
urfinna og Aldís Harpa
Pálmarsbörn.
Við hjónin viljum
minnast góðs vinar
okkar, Arnar Forberg, sem fjöl-
skylda hans kvaddi hinstu kveðju 26.
mars. Örn var skólastjóri við grunn-
skólann í Grundarfirði.
Þar lágu leiðir okkar fyrst saman
er ég byrjaði minn starfsferil, fyrst
sem kennaranemi og síðar kennari
við skólann. Þar starfaði ég undir
stjórn Arnar í ellefu ár þar til hann
þurfti að yfirgefa staðinn að ósekju
og flutti til Svíþjóðar.
Örn stjórnaði sínum vinnustað af
röggsemi og mikilli samviskusemi
og hafði konu sína, Guðrúnu Ágústu
Guðmundsdóttur, sem sína hægri
hönd, en hún er einnig kennari. Ófá-
ir sérkennslutímar fóru fram í eld-
húsinu og stofunni heima hjá þeim
sökum húsnæðisskorts skólans.
Seinna byrjaði Hjördís einnig að
Örn Forberg
✝ Örn Forbergfæddist í Reykja-
vík 15. október 1933.
Hann lést 12. mars
2010 á heimili sínu
Rosenvegen 6, 232 54
Akarp, Suður-
Svíþjóð.
Kveðjuathöfn og
bálför fór fram í
Lundi, Svíþjóð, 26.
mars 2010.
kenna með þeim hjón-
um.
Örn var mjög
heilsuhraustur þótt
hann hafi ekki stund-
að mikla heilsurækt í
seinni tíð, en hann var
natinn við að ganga á
fjöll og veiða rjúpur í
jólamatinn. Við mætt-
um saman til vinnu á
hverjum morgni í ell-
efu ár og minnist ég
ekki að Örn hafi vant-
að nema einn dag til
vinnu sökum veikinda.
Frekar mætti hann lasinn til vinnu,
eins og samviskusamir kennarar
gera, en að láta börnin í skólanum
missa kennslu.
Strákseðlið var til staðar hjá Erni.
Hann átti gamlan Willys-jeppa, ár-
gerð ’47 held ég, og hafði hann gam-
an af torfæruakstri og á veturna
þegar snjóaði mikið var hann fljótur
að setja keðjur á öll hjól og keppa
þannig búinn við náttúruöflin. Þegar
Örn flutti af landinu reisti hann sér
sumarhús í Húnavatnssýslu því
hann vildi ekki slíta rætur sínar til
landsins og vildi eiga hér samastað
þegar hann kæmi í heimsókn. Þenn-
an stað skírði hann Brekkuborg og
undi sér hvergi betur. Hann eigin-
lega steig út úr flugstöðinni og í
einni sveiflu beint norður. Fast í
dagskrá okkar hjóna var að heim-
sækja hjónin í Brekkuborg á hverju
sumri.
Einnig áttum við nokkrar heim-
sóknir á heimili hjónanna í Svíþjóð
og tvær eftirminnilegar Evrópuferð-
ir saman. Tjaldferð um Þýskaland
og Austurríki með börnin og óskipu-
lögð heimagistingaferð sem endaði í
fyrrum Júgóslavíu. Margt skemmti-
legt gerðist á þessum ferðum eins og
t.d. þegar Örn fann veikleika í pen-
ingaspilakassa í Austurríki og spil-
aði í honum þar til starfsfólkið tók af
honum rafstrauminn. Þá labbaði
hann út með uppbretta peysuna
fulla af smápeningum þar sem ekki
var pláss í vösunum. Kvöldin í þess-
um ferðum enduðu svo alltaf með
spilavist og voru úrslitin geymd á
spjaldi sem framhald milli ára.
Örn meiddist á fæti sem takmark-
aði hreyfingu og versnaði með ár-
unum. Hann vissi því sín takmörk
sem sást vel þegar hann gaf mér all-
an veiðibúnað sinn, bát með öllu.
Það var okkur mikils virði að Örn
skyldi koma í heimsókn til okkar í
Grundarfjörð síðastliðið sumar.
Örn lést á heimili sínu í Åkarp og í
faðmi ástkærrar eiginkonu. Er hægt
að óska sér fallegri kveðjustund
þegar kallið kemur?
Við sendum Guðrúnu og fjöl-
skyldu þeirra Arnar allri okkar inni-
legustu samúðarkveðjur. Megi Guð
styrkja þau í sorginni, en gleðja þau
í minningunni um yndislegan félaga
og fjölskylduföður.
Guðráð og Hjördís.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn