Morgunblaðið - 13.05.2010, Qupperneq 32
32 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2010
Páll Óskar Hjálmtýsson, Hjaltalín,
KK og Ellen, Vilborg Dagbjarts-
dóttir, RASS, Ari Eldjárn, félagar
úr Hjálmum, Parabólurnar, Jón
Atli Jónasson, Varsjárbandalagið
o.fl. munu taka þátt í uppákomu á
Austurvelli á laugardaginn, 15.
maí, kl. 14, til stuðnings nímenning-
unum sem ákærðir eru fyrir árás á
Alþingi 20. janúar í fyrra.
Sigtryggur Baldvinsson tónlist-
armaður er einn þeirra sem standa
að þessari uppákomu til stuðnings
og styrktar nímenningunum, en
þeir sem vilja styrkja þá fjárhags-
lega verða beðnir um að leggja inn
á sérstakan söfnunarreikning
vegna lögfræðikostnaðar. Allar
upplýsingar um hann má finna á
vefnum rostur.org.
– Ykkur blöskrar framganga
dómskerfisins?
„Já, okkur finnst þetta vera svo-
lítið að eyða miklu púðri í vitlaus
mál. Ég held að eiginlega allir sem
ég hef talað við um þetta mál séu
sammála því,“ segir Sigtryggur. Að
auki sé verið að beita 100. grein
hegningarlaganna á nímenningana,
en henni hafi ekki verið beitt síðan í
Gúttóslagnum árið 1932. Sig-
tryggur segist aðspurður ekki líta
svo á að þarna hafi verið framið al-
varlegt lögbrot, a.m.k. ekki jafn-
alvarlegt og að setja landið á haus-
inn. En verður þetta gott partí?
„Þetta á að verða gott partí en partí
með tilgang.“ helgisnaer@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
RASS Ein þeirra sveita sem leika munu á Austurvelli.
Halda partí fyrir
mótmælendur
Nímenningar studdir á Austurvelli
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Pétur Þór Benediktsson og Einar
Tönsberg gáfu nýverið út lagið
„Come on come over“ sem margir
þekkja úr auglýsingaherferð Nova.
Þeir vinna nú saman að plötu. „Það
er nú ekki alveg hægt að segja til um
hvort platan er í takt við „Come on
come over“. Hún er á svo opnu stigi,
en hún er aðgengilegri en við lögð-
um upp með í upphafi. Án þess að
geta sagt til um hvernig hún verður
á endanum. Hún er ekki jafnpoppuð
og „Come on come over“, en hún er
léttari en þessi tónlist sem ég hef
verið að gera sjálfur,“ segir Pétur
Ben í samtali. Hann gaf út plötuna
Wine for my weakness árið 2006 og
hefur haft í nógu að snúast síðan.
Hann hefur samið tónlist fyrir Ís-
lenska dansflokkinn, spilað með fjöl-
mörgum tónlistarmönnum og stýrt
upptökum.
Einar Tönsberg, einnig þekktur
sem Eberg, hefur gefið út þrjár plöt-
ur. Hann er einnig meðlimur í hljóm-
sveitinni Feldberg sem gaf út plöt-
una Don’t be a stranger, en titillag
hennar varð einnig þekkt sem lag úr
auglýsingaherferð Nova. „Hann er
eftirsóttur auglýsingalagahöfundur,
hann er samt ekki með neinn samn-
ing við Nova,“ segir Pétur háðslega
og bætir við: „Platan er unnin í full-
komnu bróðerni. Samstarfið gengur
mjög vel og við höfum skemmtileg
áhrif hvor á annan. Þetta er til dæm-
is mun léttari tónlist en ég bý oftast
til.“
„Sumir fara út að hlaupa, við
gerum svona“
Pétur segist lengi hafa átt hug-
mynd að þessu samstarfi í kollinum,
en aldrei látið til skarar skríða. „Það
var ekki fyrr en ég var beðinn að
gera lag í samstarfi við einhvern fyr-
ir bíómynd að ég hafði samband við
Eberg og við spjölluðum um þetta.
Oft ræðir maður hlutina og gerir svo
ekki neitt. En í þetta sinn ákváðum
við bara að kýla á að gera eitt lag.
Nýta þetta tækifæri. Myndin kom að
vísu aldrei út; ég veit ekkert hvernig
hún stendur í dag, ég held hún sé
komin af dagskrá. En þetta var mjög
gaman svo við héldum bara áfram.
Svo hefur þetta bara þróast svona
skemmtilega eins og annað. Sumir
fara út að hlaupa eða í pool, en við
gerum svona. Þetta er dálítið eins og
saumaklúbbur, nema okkar efni
vinnst mun hraðar,“ segir Pétur og
hlær.
Platan er enn nafnlaus en þeir
stefna að útgáfu öðru hvoru megin
við áramót. Hann segir þá vinna
plötuna að mestu leyti heima við.
„Við erum báðir með aðstöðu heima.
En svo má vel vera að við förum í
Sundlaugina, sem er stúdíó í Mos-
fellsbæ, til að leggja lokahönd á
verkið. Þar tók ég upp Wine for my
weakness, en reyndar líka heima og í
sumarbústöðum og eiginlega bara út
um allt.“
Pétur og Eberg eru báðir þaul-
vanir upptökustjórar, enda starfa
þeir báðir sem slíkir. „Við sjáum um
upptökustjórn sjálfir. Ég hef starfað
með Bubba Morthens og Ellen
Kristjáns, fyrir utan mig sjálfan.
Eberg hefur svo verið með Feld-
berg, sjálfan sig og allt milli himins
og jarðar. Hann hefur líka starfað
mikið erlendis.“
Gestagangur á plötunni
Pétur segir marga tónlistar-
menn taka þátt í gerð plötunnar,
fólk úr öllum áttum hafi lagt þeim lið
og margir íslenskir tónlistarmenn
spili með þeim í hljóðverinu. „Í
„Come on come over“ eru tveir
trommuleikarar, Sigtryggur Bald-
ursson og Nói Steinn í Leaves. Svo
er Gísli Galdur líka með í því lagi.
Við köllum eflaust eftir þeirra hjálp
og annarra, svo ég held að það verði
töluverður gestagangur á þessari
plötu.“
Sjálfur vinnur Pétur að nýrri
breiðskífu en hann segist hafa gam-
an af samstarfinu við Eberg og von-
ast til þess að því ljúki ekki eftir út-
gáfu plötunnar. „Það er aldrei að
vita, ég vona það. Við eigum vonandi
eftir að halda verkefninu gangandi,
gera jafnvel aðra plötu eftir einhver
ár. En ég er að vinna í minni eigin
plötu. Ég veit ekki hvenær hún kem-
ur út. Það er verið að rífast um hvor
platan eigi að koma fyrr,“ segir Pét-
ur hreykinn.
Aðspurður segir Pétur þá fé-
laga stefna að því að halda útgáfu-
tónleika en annað er óráðið. „Við
reiknum með að halda útgáfu-
tónleika þegar platan kemur út. Ég
veit ekki hvar, það verður bara að
ráðast af því hvaða skemmtistaðir
verða á lífi þá. Við byrjum bara þar.“
Félagar Pétur Ben og Eberg hafa lengi rætt um að starfa saman. Nú vinna þeir að sinni fyrstu plötu í sameiningu.
„Dálítið eins og
saumaklúbbur“
Pétur Ben og Eberg gefa út plötu
Starfa í „fullkomnu bróðerni“
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Þann 22.maí gefur Morgunblaðið út
sérblað tileinkað Eurovision.
Undankeppnin verður 25. og 27.maí.
Aðalkeppnin er
laugardaginn 29.maí.
Þetta er blaðið sem
lesendur hafa við höndina þegar
Eurovision verður sýnt í sjónvarpinu.
MEÐAL EFNIS:
Allt um Eurovision
Stiklað á stóru í sögu Eurovision
Páll Óskar spáir í spilin
Kynning á keppendum
Rætt við Örlyg Smára og Heru Björk
Dansspor og tíska í Eurovision
Íslensku lögin í gegnum tíðina
Atkvæðaseðill fyrir aðalkeppnin
Myndasyrpur af keppendum
Ásamt fullt af spennandi efni
um Eurovision
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, þriðjudaginn 18. maí.
Eurovision 2010