Morgunblaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 08.01.2011, Blaðsíða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2011 ✝ Kjartan Sölvi Ein-arsson fæddist á Siglufirði 13. sept- ember 1933. Hann andaðist á Heilbrigð- isstofnun Fjalla- byggðar á Siglufirði sunnudaginn 2. jan- úar 2011. Foreldrar hans voru Ólöf Herdís Kjartansdóttir hús- móðir og vökukona á Sjúkrahúsi Siglu- fjarðar til margra ára, f. 18.10. 1893 að Skálá í Sléttuhlíð, d. 5.11. 1978 og Einar Ásmundsson, bátaformaður og síðar fisksali á Siglufirði, f. 25.11. 1878 að Þverá í Svarfaðadal, d. 12.10. 1979. Systkini Kjartans Sölva voru Fel- ix Einarsson, sjómaður og verka- maður, f. 14.1. 1918, d. 7.7. 1979 og Ása Sigríður Einarsdóttir, deild- arstjóri og aðalféhirðir Sparisjóðs Kópavogs um langt skeið, f. 12.5. 1925, gift Hólmsteini Steingríms- syni, deildarstjóra í Landsbank- anum til margra ára, f. 4.12.1923. Þau eiga þrjú börn. Eftirlifandi eiginkona Kjartans Sölva er Brynja Stefánsdóttir, en þau gengu í hjónaband 17. júní 1957. Hún fæddist á Siglufirði 27.8. 1939. Hún var dóttir hjónanna Stef- áns Stefánssonar, skrifstofustjóra frá Móskógum f. 5.12. 1905, d. 24.1.1984 og Kristrúnar Friðriku Jóhannsdóttur, húsmóður frá Siglufirði f. 15.3. 1912, d. 30.8. 1982. Börn Kjartans Sölva og Brynju eru: 1) Herdís, hjúkrunarfræð- ingur, f. 15.9. 1957, gift Guðmundi Þór Axelssyni, lækni, f. 25.5. 1954. Eiga þau tvö börn, Brynju Þóru, f. 17.5. 1980 og Axel Kjartan f. 10.2. 1986, og tvo dóttursyni. 2) Krist- rún, hjúkrunarfræð- ingur og ljósmóðir, f. 22.7. 1959, gift Inga Má Aðalsteinssyni, viðskiptafræðingi, f. 9.12. 1960. Eiga þau tvo syni, Aron Sölva, f. 29.6. 1988 og Andra Má, f. 18.10. 1990. 3) Ása Fríða, hjúkrunar- og lýðheilsufræð- ingur, f. 20.7. 1972, gift Víglundi Péturssyni, iðnrekstrarfræðingi, f. 12.6. 1968. Eiga þau þrjú börn, Guðrúnu Brynju, f. 10.4. 1998, Kjartan Pétur, f. 17.6. 2004 og Arn- ór, f. 5.5. 2010. Kjartan Sölvi ólst upp á Siglu- firði. Eftir gagnfræðapróf frá Gagnfræðaskóla Siglufjarðar stundaði hann alls konar störf, bæði til sjós og lands til ársins 1955. Þá gerðist hann starfsmaður ríkisins við tollgæsluna á Siglufirði þar sem hann starfaði til ársins 1974. Hóf eftir það störf við skatteftirlit við Skattstofu Norðurlandsumdæmis vestra á Siglufirði sem skattend- urskoðandi og síðar deildarstjóri og lauk þar starfsferli sínum við 70 ára aldur. Kjartan Sölvi sinnti ýms- um félagsstörfum í gegnum tíðina, einkum fyrir Framsóknarflokkinn, Rótarý, A.A. samtökin og S.Á.Á., þar sem hann var trúnaðarmaður til margra ára. Kjartan Sölvi var einnig virkur félagi í Frímúr- arareglunni á Íslandi. Útför Kjartans Sölva verður gerð frá Siglufjarðarkirkju í dag, 8. jan- úar 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Elsku besti Kjartan. Mér er þungt um hjartarætur er ég skrifa þér þessi orð. Þú varst ekki bara maðurinn minn í meira en hálfa öld, heldur líka minn besti vinur. Við giftum okkur ung, ég aðeins 17 ára og þurfti sér- stakt leyfi til þess. Elsku Kjartan, ég sá aldrei neinn annan en þig. Þú vannst þá í tollgæslunni, varst hár og grannur og svo flottur og fínn í þínu úníformi. Við eignuðumst þrjár dæt- ur og þrír tengdasynir fylgdu í kjöl- farið. Seinna komu barnabörnin og núna í janúar eignumst við þriðja barnabarnið. Við eigum barnaláni að fagna, erum heppin með fjársjóðinn okkar allan. Þú varst vakinn og sof- inn yfir velferð þeirra og fylgdist vel með þeim öllum. Minningarnar eru svo ótalmargar og af svo mörgu að taka en þær geymi ég bara fyrir mig. Mér er orða vant, enda ekki margt hægt að segja á þessari stundu, söknuðurinn hellist yfir mig. Þú tókst þátt í ýmiskonar félagsstarfi hér í Siglufirði, varst framsóknarmaður mikill, alveg grænn í gegn. Frímúrari varstu líka og hefur þú sagt að aldrei hafir þú séð eftir að ganga í Regluna. A.A. samtökin voru þér einnig kær. Þú sóttir vel A.A. fundi, þótt þú hafir ekki bragðað vín í yfir 30 ár. Sann- kallaður afi samtakanna eins og sagt hefur verið við mig. Það er sárt að horfa á eftir góðum manni, en síðustu mánuðir hafa verið þér erfiðir. Þrátt fyrir mikil veikindi þín var oft stutt í brosið. Þú kvartaðir ekki, vissir hvað var framundan og biði þín. Þú huggaðir okkur frekar, varst svo hlýr og vildir öllum vel. Nú er komið að leiðarlokum hér á jörð og þú færð að hvíla milli fjallanna í firð- inum okkar fallega. Þakkir eru mér efstar í huga fyrir að hafa fengið þennan tíma með þér og óskir um góða heimkomu á nýrri strönd. Hvíl í friði, elsku Kjartan. Þín eiginkona, Brynja. Elsku hjartans pabbi minn. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur og ég muni aldrei sjá þig eða tala við þig framar. Ég hef verið svo óendanlega leið og sorg- mædd síðan þú greindist með ólækn- anlegt krabbamein núna í september síðastliðnum og aldrei hefði ég trúað því að aðeins rúmum þremur mán- uðum síðar yrðir þú farinn frá okkur. Þú barðist í þínum veikindum til síðasta dags og það var ótrúlegt hvað þú varst sterkur. Enda ætlaðir þú aldrei að gefast upp. En um sumt fáum við engu ráðið og að lokum varðstu að lúta í lægra haldi. Þú tókst á við sjúkdóminn af miklu æðruleysi og notaðir mikið Æðruleysisbænina til að hjálpa þér að takast á við þessi erfiðu veikindi. Þú kenndir mér þessa bæn fyrir mörgum árum. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt. Kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. Ég á þér margt að þakka. Þú varst alltaf tilbúinn að hjálpa mér og leið- beina og hefur kennt mér svo margt. Ég veit hvað þú varst góður maður og varst alltaf tilbúinn að hjálpa og aðstoða aðra. Núna síðustu daga hef ég heyrt svo margt um það hvað þú hefur hjálpað mörgum í gegnum tíð- ina sem hafa leitað til þín í sínum erf- iðleikum, en aldrei vildir þú tala um þessa hluti eða sagðir frá öllu því góða sem þú komst til leiðar. Þú ert besti pabbi sem ég hefði getað hugs- að mér og ég er þér óendanlega þakklát fyrir allt og allt. Guð gefi mömmu styrk til að tak- ast á við sorgina og einmanaleikann sem hún finnur fyrir núna eftir að þú ert farinn. Þetta verður erfitt fyrir okkur öll en erfiðast verður þetta fyr- ir hana mömmu sem var svo stór hluti af þér í meira en hálfa öld. Þið voruð sem eitt í flestu sem þið tókuð ykkur fyrir hendur. Elsku pabbi, ég kveð þig í bili með söknuð í hjarta og trúi því að núna séu ekki veikindi eða verkir að hrjá þig. Hvíl í friði, elsku besti pabbi minn. Þín dóttir, Ása Fríða. Afi minn var sú manngerð sem ég mat best og leit mest upp til í lífi mínu. Tryggð hans, þolinmæði og já- kvæð sýn á lífið hafa haft mikil áhrif á mig. Hann gat alltaf komið mér í betra skap og fengið mig til að sjá hinar björtu hliðar lífsins. Ég hef búið í Svíþjóð frá fjögurra ára aldri og hef því ekki getað hitt afa og ömmu eins mikið og ég hefði ósk- að, en ég var nokkur sumur hjá þeim á ástríku heimili þeirra á Siglufirði. Bestu kveðjur frá pabba, mömmu, Axel Kjartani, Mariana, ásamt mér og minni fjölskyldu. Takk fyrir allt, elsku afi minn. Ég sakna þín mikið. Þín afastelpa Brynja Þóra Guðmundsdóttir. Að morgni annars dags janúar hringdi síminn og mér var tilkynnt að Kjartan Einarsson, mágur minn væri látinn. Hann hafði sem sagt haft vistaskipti eins og okkur flestum er tamt að segja og viljum trúa um framhaldslífið. Glímunni við illvígan sjúkdóm var lokið. Ég kynntist Kjartani sem ungum manni fyrir tæpum 60 árum. Hann kom mér fyrir sjónir sem geðfelldur ungur maður sem bauð af sér góðan þokka. Viðhorf okkar til landsmál- anna var ekki alltaf það sama en um þau ræddum við oft okkur til gam- ans. Þegar ég kom fyrst til Siglufjarðar ásamt konu minni, Ásu Einarsdóttur, systur Kjartans, í heimsókn til tengdaforeldra minna, Einars Ás- mundssonar og Herdísar Kjartans- dóttur, kom mér allur bæjarbragur og lífsviðhorf þar nokkuð framandi fyrir sjónir. Fylgst var með komu veiðiskipa, aflabrögðum, atvinnulífi við höfnina og atburðum sem því tengdust. Glaðst var þegar vel aflað- ist þó engin væru þar eigna- eða at- vinnutengsl. Mér virtist samræður manna um daginn og veginn bera vott um óvenjulega samhygð bæjar- búa. Kjartan var þá og alla tíð stoltur af heimabæ sínum Siglufirði, eins og títt er um flesta þá Siglfirðinga sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Starfsferill Kjartans var fjöl- breyttur: ungur stundaði hann sjóinn á trillum og togurum, vann sem toll- vörður og svo lengst af við endur- skoðun á Skattstofunni á Siglufirði Kjartan stofnaði til hjúskapar ungur að árum. Konuefni hans var Brynja Stefánsdóttir, sem vann þá á síman- um. Þau hjón eignuðust tvær dætur á fyrstu hjúskaparárum sínum. Sú þriðja bættist í hópinn eftir nokkurt hlé. Allar hafa þær menntast vel, gifst og eiga mannvænleg börn. Kjartan tók snemma virkan þátt í fé- lagslífi á Siglufirði. Meðal annars söng hann í landsþekktum karlakór. Kjartan var listfengur og náttúru- unnandi að eðlisfari sem birtist með- al annars í því að hann fékkst við að mála myndir í frístundum og flesta morgna skoðaði hann fugla og fjöll frammi í firði áður en hann hélt til vinnu á Skattstofunni. Á seinni hluta ævinnar vann hann mikilsverð störf í þágu AA-samtakanna bæði á Siglu- firði og á landsvísu. Kjartan var þá ávallt reiðubúinn að hjálpa þeim sem áttu við vandamál áfengissýkinnar að stríða. Margir eru honum þakklátir fyrir þann stuðning sem hann veitti þeim í krappri baráttu. Við Ása og fjölskylda okkar minnumst Kjartans með söknuði og sendum Brynju, dætrum, tengdasonum og afkomend- um þeirra innilegar samúðarkveðjur. Hólmsteinn Steingrímsson. Kær vinur frá Siglufirði, Kjartan Einarsson, er látinn. Við Kjartan giftumst „fallegustu og bestu“ stelp- unum á Siglufirði, en Brynja kona Kjartans og mín eiginkona hafa verið óaðskiljanlegar frá barnæsku. Við fórum á Siglufjörð einu sinni til tvisv- ar á ári til að njóta veðurs og vina, sem bjuggu víðsvegar á Siglufirði. Við þökkum fyrir ánægjulegar kaffistundir og matarboðin á Hóla- vegi 39. Þarna kom Kjartan mér á óvart. Hann kunni margt í eldhúsinu og hafði fallegt handbragð. Brúnu kartöflurnar hans voru einstakar. Á yngri árum var Kjartan á sjón- um og var um tíma tollgæslumaður, en lengst af starfaði hann hjá skatt- stjóranum á Siglufirði. Kjartan sagði mér sögu fyrir nokkrum árum sem mér fannst bæði sérstæð og skemmtileg. Hann dvaldi vestanhafs um hríð ásamt hópi manna. Einn úr hópnum, sem var kunnugur staðháttum, varaði hann við því að vera einn á ferð um skóginn þar sem þar væri að finna grimman hund sem væri líklegur til alls. Þetta var nú ekki mjög merkilegt, hugsaði Kjartan; einn hundur. Síðan gekk hann skógarstíginn einsamall. Eftir dágóða stund heyrðist djúpt hunds- gelt og hausinn á hundinum sýndi sig á milli trjánna. Kjartan lét sem hann sæi ekki hundinn og hægði á göngu sinni og talaði í hálfum hljóðum. Eftir andartak fann hann að hundurinn sleikti á honum höndina. Kjartan spjallaði við hundinn af sinni ein- stöku ró og strauk honum. Þeir urðu mestu mátar og gengu oft einir um skóginn eftir þennan dag. Við enduðum oft ferðina á Siglu- firði með því að keyra við á Hólavegi 39 og fá kveðjusopann hjá þeim ágætu hjónum áður en við keyrðum suður. Kveðjur frá svölunum eða við útidyrnar voru alltaf hlýlegar. Við biðjum Brynju, börnunum og allri fjölskyldunni Guðs blessunar á þessum erfiðu tímum. Gísli Holgersson. Mig langar að kveðja vin minn Kjartan með nokkrum orðum. Við kynntumst og bundumst sterkum vináttuböndum vorið 1979, þegar við vorum herbergisfélagar á Rhinebeck Lodge, sem var eftirmeðferðarstað- ur fyrir Freeportspítalann, en þar hafði okkur báðum skolað á land úr lífsins ólgu sjó. Kjartan hafði mjög góða nærveru og fórum við oft í lang- ar gönguferðir og þá bar margt á góma. Honum var kappsmál að ná bata til að geta verið til staðar fyrir stelpurnar sínar heima á Siglufirði, hana Brynju sína og dæturnar, Her- dísi, Kristrúnu og Ásu Fríðu. Hann var líka mikill Siglfirðingur og dreif- býlismaður og hefði átt erfitt með að festa rætur hér á mölinni. Mér er enn í minni að þegar hann frétti að hafís væri að leggjast að Norðurlandi, þá flýtti hann för sinni heim eins og hann gat til að vera hjá stelpunum sínum ef hafísinn yrði nærgöngull. Hann vissi að fundar- sókn var lykillinn að góðum bata og eitt af hans fyrstu verkum þegar hann kom heim var að endurvekja deild á Siglufirði. Þegar leið að lokum meðferðar þá ræddum við oft, hvern- ig yrði að koma heim og takast á við lífið án áfengis. Auðvitað vorum við kvíðnir en um leið fullir tilhlökkunar því að við fundum að líf án áfengis var mögulegt og meira segja frábær kostur. Við höfum haldið sambandi allar götur síðan, höfum mikið notað sím- ann og sjaldan held ég að Kjartan hafi komið til Reykjavíkur öðruvísi en að koma á fund með mér. Stund- um þegar mikil læti hafa orðið í mínu lífi hef ég farið til Kjartans og Brynju á Siglufirði. Það brást ekki að um leið og ég var kominn á heimili þeirra hjóna og farinn að skynja hina góðu nærveru þeirra fór mér að líða betur. Ég fór að skilja ást Kjartans á staðn- um og að meta staðinn að verðleikum hvort sem það var að fara í gönguferð í Hvanneyrarskálina á sólbjörtum sumarmorgni eða þá að labba á gönguskíðum inn á Hólsdal og njóta kyrrðarinnar og náttúrunnar. Alltaf fór ég frá þeim endurnærður á sál og líkama. Það hefur verið sárt að fylgjast með veikindum Kjartans en um leið gefandi að sjá hvernig Brynja og stelpurnar þeirra hafa gert allt sem í þeirra valdi stóð að létta honum dauðastríðið. Nú skiljast leiðir en ég er viss um að Kjartan mun halda áfram að hugsa til og fylgjast með stelpunum sínum eins og hann gerði fyrir bráðum 32 árum þegar hann var úti á Rhinebeck Lodge. Við Dunna þökkum samfylgdina og vináttuna öll þessi ár og sendum Brynju, Herdís, Kristrúnu og Ásu Fríðu og þeirra fjölskyldum okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Rúnar Guðbjartsson. Kæri vinur, nú skiljast leiðir um sinn. Við erum búnir að eiga samleið um langa tíð á lífsins vegi. Fyrst kynntust við í sambandi við pólitík og vorum samherjar á þeim vettvangi en urðum svo viðskila á þeirri braut. Svo urðu kynnin djúpstæðari er leið- ir okkar lágu saman inn til AA-sam- takanna, það var árið 1979. Innan þeirra mannræktarsamtaka áttum við samleið alla tíð síðan þá. Þegar ég kom heim úr minni fyrstu meðferð hjá SÁÁ, snemma vors 1979 hafðir þú ásamt fleirum stofnað AA-deild hér heima og þú tókst á móti mér og hvattir mig til dáða á erfiðum tíma. AA-samtökin gáfu mér og ekki síður fjölskyldu minni betra og heilbrigð- ara líf, en ég var orðinn illa farinn af sjúkdómnum alkóhólisma. Svo seinna meir þá leiðbeindir þú mér, ásamt félaga okkar, sem einnig er í AA-samtökunum, inn í Frímúraregl- una og þar hef ég lært og þroskast og eignast góða og trausta vini. Það er búið að vera erfitt að horfa á þig berjast hetjulegri baráttu við illvígan sjúkdóm sem að lokum hafði betur. En þú verður alltaf til í minn- ingu minni sem góður vinur og sam- ferðamaður um lífsins ólgusjó. Hér á eftir set ég nokkrar línur sem ég held mikið upp á. Þessi speki er okkur sem þurfa leiðbeiningu í lífinu mikils virði að hugsa um og fara eftir. Dagurinn í dag Horfum ekki um öxl í reiði eða fram á veg með kvíða, horfum heldur kringum okkur hér og nú í árvekni. Að síðustu, kæri vinur, kveð ég þig í þeirri vissu að við munum hittast aftur á æðri stigum. Berta og ég biðjum Brynju, dætr- um hennar og þeirra fjölskyldum Guðs blessunar; megi hann gefa þeim styrk í sorg þeirra. Sveinn Þorsteinsson. Það er komið að kveðjustund. Kjartan Sölvi hefur verið mér eins og afi í rúm 30 ár. Betri nágranna var ekki hægt að hafa, alltaf opið hús hjá þeim hjónum ef mann vantaði eitthvað að láni nú eða bara til þess að kíkja í smáspjall og aðeins í nammiskálina. Síðustu mánuðir hafa verið þér erfiðir, en þú barðist hetjulega fram á síðustu stundu með Brynju þína þér við hlið. Ég er þakklát fyrir að hafa komið nánast daglega til ykkar á síðustu mánuðum, rétt ykkur hjálparhönd og átt með ykkur góðar stundir og fyrir það er ég þakklát. Það er erfitt fyrir Isabellu mína að skilja að þú sért farinn frá okkur, en hún veit að nú ertu fallegur engill á himnum sem fylgist vel með okkur. Við höldum áfram að hugsa eins vel og við getum um Brynju þína á þessum erfiðu stundum. Elsku Brynja, Herdís, Kristrún, Ása Fríða og fjölskylda, hugur minn er hjá ykkur. Eva Björk og Isabella Ósk. Við upphaf nýs árs barst okkur sú frétt frá Siglufirði að Kjartan Ein- arsson vinur okkar væri ekki lengur á meðal okkar. Hann hafði hin síð- ustu misseri háð hetjulega baráttu við sjúkdóm sinn af miklu æðruleysi og með ró hugans. Það var fyrir um 34 árum að við Elín kynntumst þeim heiðurshjón- um, Brynju Stefánsdóttur og Kjart- ani er við fluttumst til Siglufjarðar eftir að ég hafði verið valinn til að gegna þar embætti sóknarprests. Brynja var þá og er reyndar enn mjög virk í öllu kirkjulegu starfi á Siglufirði og hefur verið um langa tíð formaður Systrafélags Siglufjarðar- kirkju. Mikil vinátta tókst strax með fjölskyldum okkar og áttum við þau ávallt að í lífi og starfi. Kjartan háði sína lífsbaráttu í lif- anda lífi. Eftir að hann lagði leið sína vestur um haf og dvaldi um tíma á hinu þekkta meðferðarheimili Free- port tók við nýr kafli í lífi hans. Af miklu innsæi og næmum skilningi má segja að Kjartan hafi leitt allt vímuvarnarstarf á Siglufirði, hvort sem það var fyrir SÁÁ eða AA-sam- tökin. Í þeim samtökum er að vísu enginn einn kjörinn leiðtogi til stað- ar, allir jafningar, en einhvern veg- inn varð það svo að Kjartan var þar fremstur á meðal jafningja, svo ekki sé meira sagt. Veitti hann mörgum hjálp á erf- iðum stundum í lífinu og byggði sjálf- Kjartan Sölvi Einarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.