Morgunblaðið - 08.01.2011, Síða 56

Morgunblaðið - 08.01.2011, Síða 56
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 8. DAGUR ÁRSINS 2011 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Myndir af nauðgun á Facebook 2. Betlarinn skildi börnin eftir 3. Veskisþjófurinn fundinn 4. Borgi 50.000 á mánuði ...  Um jólin sameinast vinir og fjöl- skyldumeðlimir gjarnan og taka í eitt borðspil eða svo. Birta Björnsdóttir greinir frá einu slíku í pistli en það kallast Dixit. »52 Borðspilin blífa  Skandinavísk kvikmyndahátíð hefst í Los Angel- es í dag. Fyrsta myndin sem verð- ur sýnd er mynd Dags Kára, The Good Heart. Mamma Gógó Friðriks Þórs verður einnig sýnd en þetta er í tólfta sinn sem þessi hátíð er haldin, þar sem norrænar, klakabundnar myndir fá að kúra í sólbakaðri Kaliforníu af öllum stöðum. The Good Heart opnar hátíð í LA  Hið virta tónlistartímarit Paste Ma- gazine verðlaunar bestu tónleika síð- asta árs í nýlegu hefti. Jónsi okkar hafnar þar í þriðja sæti en fyrir ofan hann eru Janelle Monáe og Atoms for Peace. Þar segir að tón- leikar hans séu allt öðruvísi en tónleikar Sigur Rósar og útlit þeirra sé 85% Pet- er Pan og 15% Cindy Lau- per! Tónleikar Jónsa mærðir mjög FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-13 og él NA-lands á morgun, en annars léttskýjað. Frostlaust með S- og A-ströndinni í dag, en frost annars 1 til 7 stig. Á sunnudag, mánudag og þriðjudag Norðaustan og norðan 8-13 m/s og víða él eða dálítil snjókoma, en lengst af bjart V-lands. Frost 2 til 14 stig, kaldast inn til landsins. Á miðvikudag og fimmtudag Ákveðin norðaustanátt og éljagangur N- og A-lands, en annars bjartviðri. Áfram kalt í veðri. „Það sem stendur upp úr eftir þenn- an leik er frábær varnarleikur og mjög góð markvarsla,“ sagði Guð- mundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, við Morgunblaðið eftir sigurinn á Þjóð- verjum í gærkvöld, 27:23. „Ég er mjög sáttur við þá staðreynd að við héld- um Þjóðverjum í 23 mörkum, það er glæsilegt.“ »1-3 Glæsilegt að halda þeim í 23 mörkum Íslensk félög sem eiga leik- menn í landsliðum karla og kvenna fá nú nokkurs konar „afnotagjöld“ fyrir þá eftir stórmótin. Fram, Valur, Stjarnan og Fylkir fá greiðslur frá Handknattleiks- sambandi Evrópu vegna EM kvenna í desember og Al- þjóðahandknattleiks- sambandið greiðir þeim fé- lögum sem eiga leikmenn á HM karla í Svíþjóð. »4 Íslensku félögin fá „afnotagjöld“ Þorgerður Anna Atladóttir, landsliðs- konan unga í handknattleik úr Stjörn- unni, hefur samið við sænska úrvals- deildarfélagið H 43/Lundagård um að leika með því næstu fjóra mán- uðina. Hún fer til Svíþjóðar eftir helgina og gæti byrjað að spila um næstu helgi. „Þetta tækifæri til þess að spila erlendis í sterkari deild var of gott til að hafna því,“ sagði Þorgerður Anna við Morgun- blaðið. »4 Þetta var of gott tæki- færi til að hafna því Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Einn aðdáandi með arnarauga hef- ur grafið upp lag sem gæti verið fyrsta stuðningsmannalag sögunnar, samið fyrir meira en 100 árum.“ Eitthvað á þessa leið hefst frétt á vefsíðu enska stórliðsins Liverpool í vikunni, þar sem greint er frá fundi á laginu Hurrah for the Reds, eða Húrra fyrir Rauða hernum, sem samið var árið 1907. Fréttin hefur vakið nokkra athygli í Liverpool en það var Íslendingurinn Arngrímur Baldursson sem fann lagið á bóka- safni þar í borg á síðasta ári. Þar var hann sem ritstjóri vefsíðunnar lfc- history.net að skoða gömul eintök staðarblaðsins Liverpool Echo. Síð- unni er stýrt héðan frá Íslandi og vefstjóri er félagi Arngríms, Guð- mundur Magnússon. Hún fór fyrst í loftið árið 2003 sem áhugamál þeirra félaga en er nú orðin að opinberri tölfræði félagsins samkvæmt samn- ingi sem þeir gerðu við félagið fyrir tveimur árum. Spurður nánar út í lagið sagði Arngrímur að hörðustu stuðnings- menn og sérfræðingar Liverpool hefðu ekki vitað um neina sönghefð svona snemma, eða 15 árum eftir stofnun félagsins árið 1892. Hið þekkta lag, You’ll never walk alone, hefur verið opinbert stuðnings- mannalag félagsins frá árinu 1963. Vakið mikla athygli „Þetta kom mönnum í opna skjöldu,“ segir Arngrímur, sem fékk síðan tónlistarmann í Liverpool, Paul Wilkes, til að taka lagið upp í hljóðveri. Fylgdi sú upptaka með á opinberum vef Liv- erpool í vikunni og hefur vakið mikla athygli meðal stjórnenda og aðdáenda fé- lagsins. „Ég hef verið pantaður í viðtal á sjónvarpsstöð Liverpool næst þegar ég fer út,“ segir hann en nú þegar er farið að kyrja gamla lagið á krám í nágrenni Anfield, m.a. á þeirri helstu meðal stuðningsmanna fé- lagsins, The Park. Arngrímur segir að kynnirinn á Anfield ætli að spila lagið reglulega á vellinum og vonar að það hljómi hátt frá Kop-stúkunni frægu. Arngrímur hefur ásamt Guð- mundi verið viðloðandi Liverpool- klúbbinn á Íslandi og sat í fyrstu stjórn hans árið 1994. Skrifaði lengi vel fréttir inn á vefinn og Guð- mundur hefur verið vefstjóri liver- pool.is, vefsíðu klúbbsins, frá upp- hafi 1999. Árið 2002 byrjuðu þeir svo að safna tölfræði um Liverpool og vefurinn lfchistory.net fór í loftið ár- ið 2003. Enginn sambærilegur gagnagrunnur var þá til um úrslit og ýmsa aðra tölfræði félagsins. „Þetta var hálfgerð geðveiki að tína allt til um félagið allt frá 1892 og við erum enn að safna saman fróð- leik og uppfæra tölfræðina,“ segir Arngrímur en þeir Guðmundur hafa fengið dygga aðstoð við verkið frá stuðningsmönnum félagsins hér á landi og á Englandi. Fyrir tveimur árum varð tölfræðin á lfchistory.net síðan að opinberri tölfræði Liver- pool. „Þegar við þurfum að breyta tölfræðinni erum við um leið að breyta sögu félagsins. Okkur óraði ekki fyrir því í upphafi að þetta áhugamál okkar myndi enda svona,“ segir Arngrímur sem starfar dags- daglega sem þýðandi á Stöð 2. Svo hefur annað stórt verkefni bæst við hjá þeim Guðmundi, þ.e. að skrifa bók um sögu Liverpool sem forlag í London fékk þá til að taka saman. Á bókin að koma út í haust og byggist að stórum hluta á töl- fræðinni á vef þeirra félaga, auk söguágrips þar sem hver áratugur er tekinn fyrir sig. Bókinni verður dreift á Bretlandseyjum og jafnvel víðar um heim. Fann Liverpool-lag frá 1907  Ritstýrir töl- fræðivef félagsins og bók í smíðum Morgunblaðið/Kristinn-Golli Aðdáandi Leon Bjartur í fangi Arngríms sem er heitur stuðningsmaður Liverpool og skráir sögu félagsins nánast daglega gegnum vefinn lfchistory.net. Grúsk á bókasafni í Liverpool varð til þess að gamalt lag frá 1907 fannst þar. „Menn orna sér við fortíðina á meðan allt er í rugli í nútíðinni,“ segir Arngrímur um slæmt gengi Liverpool þessa dagana. Hann segir tapið gegn botnliði Úlfanna á dögunum hafa fyllt mælinn hjá sér. Varla sé orðið þorandi að sjá liðið spila og seg- ist Arngrímur bíða eftir frétt um að Roy Hodgson, stjóri Liverpool, verði lát- inn fara. Hann er stöðugt að uppfæra helstu frétta- vefi um stöðu mála en vonar að fari að rætast úr á Anfield. Menn orna sér við fortíðina SLÆMT GENGI LIVERPOOL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.