Morgunblaðið - 21.01.2011, Síða 32

Morgunblaðið - 21.01.2011, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JANÚAR 2011 ✝ Þórir Örn Jónssonfæddist í Reykja- vík 11. ágúst 1983. Hann lést 9. janúar 2011. Foreldrar hans eru Jón Magnús Sigurðs- son verkstjóri, f. 29. júlí 1951, og Erna Harðardóttir sjúkra- liði, f. 24. ágúst 1959. Systkini Þóris Arnar eru Hörður Ingi, f. 19. desember 1988, og María Björk, f. 26. júlí 1993. Foreldrar Jóns eru Sigurður Magnússon, f. 26. febrúar 1904, d. 17. desember 1984, og Fjóla Jónsdóttir, f. 29. júlí 1921, d. 27. janúar 2000. Foreldrar Ernu eru Hörður Adolp- hsson, f. 4. september 1933, og Halldóra Pálsdóttir, f. 16. nóv- ember 1935. Unnusta Þóris er Alisha Þorsteins- dóttir, f. 11. mars 1983. Þórir Örn ólst upp í Grafarvoginum frá eins árs aldri. Hann lauk grunnskóla í Foldaskóla og fór svo í Iðnskólann að læra rafvirkjun. Þórir Örn vann við ýmis störf um ævina. Útför Þóris Arnar fer fram í Fossvogskirkju í dag, 21. janúar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. Sólargeislinn minn, hann Þórir Örn, kom í heiminn stór og mynd- arlegur hinn 11. ágúst 1983. Þú dafn- aðir vel en einn hængur var á. Þú greindist með sykursýki aðeins átta ára gamall og við tók mikil vinna fyr- ir okkur öll að meðhöndla hana. Það voru ófáar ferðir farnar upp á sjúkrahús, en Þórir minn var fljótur að ná sér og sagði: „Mamma mín, þetta lagast.“ Öllu var tekið með jafnaðargeði enda óvenju geðgóður drengur á ferð. Þú óxt úr grasi og stóðst þig eins og hetja, enda var ég stolt af stráknum mínum. Við áttum margar stundir saman, en hugur minn er svo tómur núna. Ég sit hér og pára eitthvað á blað og tárin streyma stöðugt niður kinnar mínar. Handlaginn varstu og mikill grúskari. Þú tókst allt í sundur sem hægt var og raðaðir því svo saman aftur, því þú þurftir alltaf að skilja hvernig hlutirnir virkuðu. Hvað þú gast dundað þér við að hnýta flugur klukkustundum saman. Þú fórst á námskeið í fluguhnýtingum, glerlist og í golf. Þú fékkst golfsett í afmæl- isgjöf þegar þú varst tvítugur. Golfið var þér mikið áhugamál; þú gast slegið kúlur klukkustundunum sam- an. Þú varst mikið náttúrubarn og naust þess að vera eins mikið úti og hægt var. Þú elskaðir alla tónlist hvað sem hún hét og kunnir alla texta. Tónlistin fylgdi þér hvert sem þú fórst. Ég hringdi oft til þín og spurði: „Hvað ertu að gera?“ „Hlusta á tónlist mamma mín“ var svarið. Barngóður varstu, ekki málið að setjast niður að lita, púsla, teikna með litlu frænkunum þínum sem dýrkuðu þig. Alltaf spurðu þær um þig ef þú varst ekki frammi, en hlupu og föðmuðu þig um leið og þær sáu þig. Og göngutúrarnir sem við fórum saman hringinn í kringum Grafarvoginn, þar var talað um heima og geima. Þórir Örn kynntist unnustu sinni Alishu í mars á síðast- liðnu ári og ánægjan skein úr augum þeirra. Það eru erfið spor framund- an að þurfa að kveðja þig í blóma lífsins. Allar yndislegar minningar sem við eigum um þig munum við varðveita hver á sinn hátt. Guð blessi þig og varðveiti þig yndislegi sonur minn. Ég veit að englarnir taka á móti þér og leiða þig áfram inn í ljós heimsins. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Þín mamma. Elsku drengurinn minn Þórir Örn. Þú varst einstakur, prúður, hugulsamur og hjálplegur. Það voru þín einkunnarorð gegnum lífið. Þú varst alltaf tilbúinn og réttir fram hjálparhönd fyrir aðra en kvartaðir aldrei. „Mér líður vel, get ég gert eitthvað fyrir þig?“ voru svörin þín. Þú varst ekki nema sex ára þegar við fórum saman að veiða niðri á bryggju. Ákafur og spenntur varstu svo ég hélt í beltið á buxunum þínum svo þú færir ekki í sjóinn. Fiskum var landað og nú varðst þú að sjá í magann á fiskunum. „Pabbi, maður verður að vita hvað fiskarnir éta til að vita hvaða beitu á að nota.“ Við bjuggum í sveit í borginni þegar Grafarvogur var að byggjast 1986. Þú varst náttúrubarn og ófáar ferðir með nesti voru farnar í skóg- inn og lækinn sem rann frá Laxa- lóni. Þar var krækt í nokkra flótta- silunga sem komust í lækinn. Stoltur komstu heim með góðan feng. Fing- ur þínir voru næmir til handverks, fluguhnýtinga og járnsmíði. Þig langaði í gullsmíði en erfitt var að komast að svo þú fórst í rafvirkjun. Alltaf komst þú í bílskúrinn og spurðir hvort þú gætir ekki hjálpað. Stoltur faðir hafði ánægju af að hafa þig með. Bensinn var draumur þinn og þú dekraðir við hann. Það var gott að leita til pabba þegar bíllinn bilaði. Komstu þá til mín og sagðir: „Getum við ekki reddað þessu bara?“ Þú vildir alltaf fá að gera allt sjálfur og ég stóð til hliðar og leiðbeindi. Unn- usta þín, Alisha, vinnur við umönn- un. Þú varst mikið þar hjá henni og áttir góðar stundir. Hjálpsemi þinni var með opnum örmum tekið við að tengja og lagfæra fyrir alla. Skólafélagi þinn kom til okkar eft- ir andlát þitt og sagði: „Þórir Örn var höfðingi og hann var vinur vina sinna.“ Hér er honum rétt lýst. Öll börn heilluðust af Þóri Erni. Í heim- sóknum spurðu börnin: „Hvar er Þórir?“ Hann spilaði og lék við börn- in og kenndi þeim tölvuleiki. Við höf- um staðið þétt saman á lífsleiðinni; þótt margar hindranir hafi verið á leiðinni höfum við tekist á við þær. Minningu þína og allar góðu stundirnar geymi ég í hjarta mínu. Ég vil þakka öllum sem hafa verið okkur á lífsleiðinni til halds og trausts, veitt okkur stuðning og styrk, sem er og hefur verið okkur ómetanlegur. Kveðja, pabbi. Yndislegi drengurinn okkar allra, hann Þórir Örn, er látinn. Hann var lengi búinn að þjást af sykursýki sem hann fékk aðeins átta ára gam- all. Margar voru ferðirnar með sjúkrabíl á sjúkrahús og alltaf stóðu foreldrar hans og systkini með hon- um með ástúð og styrk. Hann fædd- ist 11. ágúst 1983. Hann var listfeng- ur og átti mikla sköpunargleði, var ljúfur og skapgóður. Þórir Örn var sannarlega sumarbarn. Þóri Örn langaði mikið til að læra gullsmíði, en það var erfitt að komast í nám. Ói var gælunafn sem María Björk syst- ir hans gaf honum þegar hún var lítil og erfitt var að segja hörðu stafina. Þetta mátti kalla hann einstaka sinnum. Gælunafnið var svo einlægt og ljúft alveg eins og hann sjálfur. Systkinin voru sérstaklega sam- rýnd, þau María Björk og Hörður Ingi. Unnusta Þóris Arnar er Alisha sem unni honum mjög. Elsku Erna, Jón, María Björk, Hörður Ingi, Al- isha og aðrir ættingjar og vinir. Guð styrki ykkur í ykkar miklu sorg. Líf- ið og kærleikurinn umvefji ykkur öll. Megi lífsins friðarljós, lýsa þér bjartan veginn. Verndi þig drottinn og englar með rós, í kærleika, hinum megin. (H.P.) Þín amma og afi, Halldóra og Hörður. Þórir, svo fallegur og góður. Ég er enn að bíða eftir því að þú komir til mín og það er bara þú sem ég vil fá. Ég vil fá meiri tíma með þér. Þegar við sögðum „ég elska þig“ vissum við að það var beint frá hjartanu. Eng- inn kemst í hálfkvisti við þig. Hugur minn leitar ávallt til þín, elsku Þórir minn. Ég man þegar ég sagði við þig: „Þórir, þú ert fullkominn“ og það fékk þig til að brosa. Ég vildi að ég hefði sagt þér fyrir löngu að ég hugsaði ekki um neinn annan. Ég er hamingjusöm að hafa átt með þér morgnana, kvöldin og næturnar, en ég græt því þú fórst svo skyndilega og ég á ekki möguleika á að faðma þig aftur. Ég vil hafa þig hjá mér. Dauði þinn er ekki sanngjarn og ég vildi að þetta væri ekki satt. Hvað er það sem læknar hjartasorg? Ég mun halda í hverja minningu um þig Þór- ir minn til að hugga mig í minni sorg. Ég elskaði þig þegar þú varst þögull, ég elskaði þig þegar þú tal- aðir, ég elskaði þig þegar þú söngst, ég elskaði þig þegar þú dansaðir. Þú fékkst mig til að trúa að þér liði vel með mér, ég var svo hamingjusöm að þú vildir vera með mér. Ég vona að þú hafir það gott á þeim stað sem þú fórst á, þú átt það svo sannarlega skilið. Allir sem þig hafa hitt geta staðfest það að þú varst frábær strákur. Kveðja, Alisha. Elsku Þórir, bróðir og besti vinur minn. Ég sit hérna alveg í rusli og trúi þessu ekki. Þú varst mér svo kær og stóðst alltaf með mér í gegn- um súrt og sætt. Við vorum búnir að upplifa svo mikið saman og áttum eftir að gera svo margt. Þú varst svo góður við alla sem stóðu þér næst og hafðir svo hlýja og góða nærveru. Alltaf tilbúinn að gera allt fyrir alla og baðst aldrei um neitt í staðinn. Það þurfti nú ekki mikið til að gleðja þig – tónlist og pepsi max og þú varst sáttur! Og þú veist ekki hvað mig langar að taka upp símann og heyra í þér aftur, sársaukinn er óbærilegur og ég veit ekki hvernig ég kemst í gegnum þetta. Ég gat alltaf leitað styrks hjá þér og nú ertu farinn. Þú varst alltaf svo mikill grúskari, varðst alltaf að vita hvernig hlutirnir virkuðu og hafa allar reglur á hreinu. Ég minnist þess þegar ég fékk bíl- prófið 17 ára og þú varst 14 ára, þá héldum við bræður út í eyjuna í Gufunesi og þú tókst við stýrinu. Þá var bara sett góð tónlist á og brunað fram og til baka þar til tankurinn var tómur. Það eru þessir litlu hlutir sem eru mér ofarlega í huga, hvort sem við vorum að spila tölvuleiki eða taka bíómaraþon langt fram á nætur. Ég kveð þig með þessum orðum, eins og mamma sagði alltaf við okk- ur þegar við vorum litlir: Guð geymi þig elsku bróðir minn, þín verður sárt saknað. Kveðja, Hörður Ingi. Elsku Þórir Örn, bróðir minn, eða Ói eins og ég fékk alltaf að kalla þig þegar ég var lítil. Það er sárt að þurfa að kveðja þig og það svona snemma en ég held í allar þær góðu minningar sem ég á um okkur sam- an. Mér fannst alltaf gaman að vera með þér og við áttum margar góðar stundir saman. Ég man þegar ég var lítil og var alltaf að kalla þig tóta tölvukall sem þú þoldir ekki svo að þú gafst mér uppáhaldskörfubolta- spjaldið þitt og 500 kr. svo ég myndi hætta að kalla þig tóta tölvukall. Við gerðum margt yndislegt sam- an eins og þegar við fórum til Mall- orca öll fjölskyldan og seinna fórum við til Danmerkur í Legoland sem hafði lengi verið draumurinn þinn. Ég á margar góðar minningar um þig en ég held mest upp á þegar þú stakkst upp á því að fara með mér í Bláa lónið, bara við tvö, til að fá smá næði og slökun. Við smurðum sam- lokur til að borða á leiðinni og þegar við vorum búin að slaka vel á fórum við heim á leið og þú splæstir í pulsu og svala. Við systkinin vorum öll góðir vinir og gerðum margt saman og ég fékk oft að vera með þótt ég væri lítil. Mér þótti alltaf rosa vænt um þegar þú kallaðir mig litla snillinginn þinn og ég á eftir að sakna þín sárt. Þú varst alltaf svo hjartahlýr og góður og passaðir vel upp á mig eins og sannur stór bróðir gerir. Hvíldu í friði elsku bróðir minn, minning þín lifir í ljósi mínu og ég kveiki á kert- um fyrir þig. Þín litla systir, María Björk. Vegir lífsins eru órannsakanlegir. Í dag kveðjum við einstaklega ljúfan og góðan dreng, systurson minn hann Þóri Örn. Minningarnar streyma fram í hugann. Minningar frá bernsku hans, allt frá fyrsta ári, er hann lá á stofugólfinu hjá okkur, hjalaði og brosti sínu sérstaka fallega brosi sem einkenndi hann allt lífið. Minningar frá sumarfríum sem við eyddum með foreldrum hans og systkinum. Þá var oft kátt á hjalla og frændsystkinin skemmtu sér konunglega saman. Þórir Örn var rólegur, hlýr og geðgóður strákur. Hann kippti sér ekki upp að óþörfu, var lúmskt fynd- inn og gat ég oft hlegið dögum sam- an að hnyttnum athugasemdum hans. Hann vildi öllum vel og var einstaklega barngóður. Óþrjótandi þolinmæði hafði hann fyrir litlu frændsystkini sín, sem sneru honum um hvern sinn fingur. Nú er hann horfinn og þau of ung til að skilja lífsins ráðgátur. Systkinin þrjú voru afar samrýnd og er missir þeirra Harðar Inga og Maríu Bjarkar mikill og sár. Sama má segja um unnustu hans Alishu, sem misst hefur þennan ljúfa mann. Enginn getur fyllt í skarðið hans, sem alltaf var tilbúinn með út- rétta hjálparhönd. Erna og Jón. Engin orð geta lýst dugnaði ykkar og þrautseigju í bar- áttunni við sjúkdóminn sem Þórir fékk aðeins átta ára gamall. Það vit- um við fjölskyldan sem höfum orðið vitni að því. Þið studduð son ykkar af lífi og sál. Elsku systir mín, mágur, Hörður Ingi, María Björk, Alisha og aðrir aðstandendur. Megi Drottinn um- vefja ykkur og gefa ykkur huggun og styrk í sorginni. Blessuð veri minning Þóris Arnar. Sigríður frænka. Elsku Þórir. Erfitt var að fá frétt- ir af andláti frænda okkar Þóris Jónssonar. Við trúðum varla að þetta gæti verið satt, ungur dreng- ur, rétt að hefja lífið með kærustu sinni, en Þórir hafði flutt að heiman fyrir átta mánuðum og var að hefja sambúð. Sykursýkin hafði fylgt Þóri frænda frá unga aldri en sjúkdóm- urinn ekki tekinn eins alvarlega og ætla mætti. Þórir var alltaf elskuleg- ur og stutt í brosið hjá honum, einn- ig var hann alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd ef beðið var um aðstoð af einhverju tagi. Við munum eftir þegar Þórir keypti sér Benz af stærri gerðinni, hann hafði lagt fyrir til að geta keypt bíl og leið eins og greifa við að keyra um götur bæj- arins, stoltur með sína fyrstu eign. Sviplegt er að sjá á eftir ungum dreng og er enn ekki hægt að trúa því að þetta hafi gerst með engum fyrirvara. Við vottum fjölskyldu Þóris fyllstu samúð og sendum þeim allan þann styrk sem mannlegt er að senda frá sér og biðjum æðri máttarvöld að aðstoða Ernu og Jón foreldra, Hörð Inga og Maríu systkini hans ásamt kærustu í þeirra miklu sorg. Ívar Harðarson. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson) Kveðja frá ljósunni þinni. Guðrún. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn elsku vinur. En þegar við hugsum um allar stundirnar sem við áttum saman kemur ekkert nema gleði í huga. Hvað það var allt- af stutt í húmorinn og hvernig þú gast alltaf glatt alla í kringum þig. Einnig hvað þú varst einstaklega hjartahlýr og vildir alltaf öllum vel. Þegar við lítum til baka koma ótal skemmtilegar minningar fram. Það sem stendur upp úr þeim flestum var þinn yndislegi hlátur og hvernig þú gast fengið alla til að hlæja með þér. Við vottum Jóni, Ernu, Herði og Maríu samúð okkar. Hugur okkar er hjá ykkur. Þökkum allar góðu stundirnar. Þínir vinir, Magnús, Ragnar, Axel og Andri Fr. Elsku fallegi frændi minn er far- inn og það allt of fljótt. Yndislegi Þórir, kallið þitt kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Eft- ir símtal frá bróður mínum sat ég dofin með kökk í hálsi og tárin í aug- unum í öðru landi. Hugsanir mínar heim voru sterkar. Er ég leiði hug- ann til þín, þá varstu alltaf svo yfir- vegaður og góður í alla staði. Stelp- urnar mínar elskuðu þig og sérstak- lega hún Thelma Rut mín, sem alltaf rauk beint inn í herbergið þitt til að spila við þig. Þú varst alltaf svo barngóður, elsku Þórir, og um- hyggjusamur. Kærleikurinn umvefji þig elsku frændi minn. Við töluðum oft um að spila golf saman og gerð- um það einu sinni. Þakklát er ég fyr- ir þá stund. Kveð ég þig með miklum söknuði en fæ að halda utan um allar góðu minningarnar um þig. Sykur- sýkina fékkstu aðeins átta ára gam- all og reyndist hún þér oft erfið. Ófá skiptin sem ég borðaði með fjöl- skyldunni þinni horfði ég á þig sprauta þig fyrir matinn. Guð blessi fjölskyldu þína, mömmu, pabba, systkini þín og unn- ustu. Guð geymi þig, elsku Þórir. Sólin er ljósið, og ljósið ert þú. Láttu það skína, á veginn þinn nú. Stundin er komin, og kallið til þín. Bið ég þig Jesú, blessunar til þín. Verndi þig englar, himninum á. Því fallegri sál, þeir varla munu fá. (Höf. Svava Björg) Þín frænka, Svava Björg. Einn sunnudagsmorgun var hringt til mín. Var það systir mín í öngum sínum. Enn og aftur þurfti hún að taka á stóra sínum, kyngja sorginni, treganum, tárunum og ör- væntingunni. Eftir nokkrar sekúnd- ur sagði hún mér, Þórir minn er dá- inn, hann er dáinn. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum og get það varla enn. Þvílík sorg sem berst um í hjarta okkar. Grátkirtlarnir hafa haft nóg að gera við að reyna að koma út sorginni sem gagntekur huga okkar. Af hverju? Af hverju núna eftir alla þessa baráttu? Ég býst enn við að þú komir, brosir þínu glaðværa brosi og segir, ég er mætt- ur. Því marga sigra vannst þú á lífs- Þórir Örn Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.