Morgunblaðið - 31.01.2011, Blaðsíða 6
FRÉTTASKÝRING
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Meðal þess sem Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu hefur rannsakað, í
sambandi við fundinn á tölvunni dul-
arfullu í húsakynnum Alþingis í Aust-
urstræti 8-10 í febrúarbyrjun í fyrra,
sem talið er að hafi verið komið þar
fyrir hinn 28. desember 2009, eru
tengsl á milli kærðs, kornungs pilts
og Inga Freys Vilhjálmssonar, blaða-
manns hjá DV, sem vitni hefur borið
um að hafi gert drenginn út af örkinni
í þeim ólögmæta tilgangi að brjótast
inn í tölvur og stela gögnum. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
hefur Ingi Freyr stöðu grunaðs
manns í rannsóknum lögreglu.
Jafnframt kannar lögreglan tengsl
drengsins við uppljóstrunarvefinn
WikiLeaks og störf sem hann hafi
unnið á vegum vefjarins.
Tölvan sem fannst í húsakynnum
Alþingis, og Morgunblaðið greindi frá
hinn 20. janúar sl., var af gerðinni
Asus Eee PC, er samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins, sömu gerðar
og tölva, sem ungi maðurinn sem
handtekinn var og kærður fyrir réttu
ári, fyrir stuld á trúnaðargögnum úr
tölvu lögmanns þekktra einstaklinga
á borð við Karl Wernersson hjá Mile-
stone hf. og Eið Smára Guðjohnsen
knattspyrnumann hafði í fórum sín-
um. Pilturinn var jafnframt kærður
fyrir innbrot í fyrirtæki.
Ungi maðurinn, var ekki orðinn 18
ára gamall þegar hann var kærður
fyrir brotin. Hann er talinn hafa selt,
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins, Inga Frey Vilhjálmssyni,
blaðamanni DV, gögn, sem hann
hafði hlaðið niður úr tölvu lögmanns-
ins, trúnaðargögn, sem lögreglunni í
Reykjavík hefur ekki enn tekist að
rannsaka.
Vitni að „viðskiptunum“
Vitnisburður um viðskiptin á milli
blaðamanns DV og unga piltsins ligg-
ur fyrir hjá lögreglunni, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins. Jafn-
framt hefur Morgunblaðið upplýsing-
ar um það að vitni hafi greint lögregl-
unni frá því að pilturinn hafi lagt
stund á tölvuinnbrot, að undirlagi
blaðamannsins.
Enn er lögreglurannsókn á meint-
um gagnastuldi unga mannsins frá
því í fyrra ekki lokið, m.a. vegna þess
lögreglan hefur ekki getað staðreynt
hvaða gögn eru í tölvunni.
Lögreglan handtók unga manninn
í febrúar í fyrra, um svipað leyti og
WikiLeaks vann hér á landi, í sam-
vinnu við innlenda aðila, að lokafrá-
gangi myndbands um árásir banda-
rískra hermanna á óbreytta borgara í
Bagdad í Írak, og gert var opinbert í
apríl í fyrra.
Upplýsingar bárust um svipað leyti
um að drengurinn hefði ekki einvörð-
ungu átt í viðskiptasambandi við
blaðamann DV, heldur einnig við
WikiLeaks. Hann starfar nú á vegum
WikiLeaks í London, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins, en
mun vera væntanlegur til Íslands á
næstunni, vegna lögreglurannsókn-
arinnar. Fullyrt er af heimildamönn-
um Morgunblaðsins að ungi maður-
inn hafi reynt að selja tölvugögn til
annarra aðila, en DV.
Töldu tölvuna vera þýfi
Við handtöku í fyrirtæki sem pilt-
urinn fór inn í með ólögmætum hætti,
með því að nota kóðun föður síns, var
lagt hald á tölvuna sem pilturinn var
með í fórum sínum, þar sem lögreglan
taldi þá að um þýfi væri að ræða.
Hann var, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, á leið úr fyrirtæki
því sem faðir hans starfaði hjá, með
fleiri tölvur, en þá sem hald var lagt á.
Um sömu tölvu var að ræða og
drengurinn hafði notað til þess að
hlaða gögnum niður á, af tölvu lög-
mannsins, og á síðan að hafa selt gögn
úr henni til Inga Freys Vilhjálmsson-
ar, blaðamanns á DV, samkvæmt
vitni sem kveðst hafa verið viðstatt
þegar „viðskiptin“ áttu sér stað.
Fréttavefurinn Vísir.is greindi frá
því fyrir tæplega ári að pilturinn hefði
reynt að selja fréttastofu Stöðvar 2
hin illa fengnu gögn en fréttastofan
hefði neitað að greiða fyrir gögnin.
Vísir hélt því jafnframt fram að í
gögnunum væri að finna upplýsingar
um Sjóvá, eignarhaldsfélögin Vafn-
ing, Þátt, Svartháf og Skeggja ehf.
Í Fréttablaðinu 2. febrúar í fyrra,
sama dag og tölvan grunsamlega
fannst á Alþingi, kom fram að ungur
piltur, sem starfaði við uppsetningu
öryggiskerfis fyrir tölvur hjá fyrrver-
andi lögfræðingi Milestone, væri
grunaður um gagnastuld. Fram kom
að hann hefði notað öryggiskóða frá
fyrrverandi starfsmönnum Milestone
til að komast inn í höfuðstöðvar fé-
lagsins. Þannig hefði hann ítrekað
brotist inn í fyrirtækið og fyrir það
var hann einnig kærður.
Guðmundur Ólason, framkvæmda-
stjóri Milestone ehf. á þessum tíma,
staðfesti að gagnastuldur hefði verið
kærður til lögreglunnar, en ljóst þótti
að DV hefði nýtt sér gögnin í frétta-
flutningi sínum.
Morgunblaðið fékk það staðfest nú
um helgina að umrædd tölva, þ.e.
tölva unga piltsins, væri í vörslu lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu og
hún væri sömu gerðar og tölvan sem
fannst í húsakynnum Alþingis. Lög-
reglan teldi líklegt að tölvan sem
fannst hjá Alþingi, hefði verið seld hjá
fyrirtækinu Tölvutek, en þar sem hún
hefði verið staðgreidd, lægi ekkert
fyrir um hver kaupandinn var.
Jafnframt hefur Morgunblaðið
upplýsingar um að Ingi Freyr Vil-
hjálmsson, blaðamaður DV, sem
skrifað hefur mikið við málefni tengd
Milestone, Vafningi, Þætti og fleiri
aðilum, er talinn hafa keypt umrædd
gögn af unga manninum. Í skrifum
Inga Freys komu fram ýmsar upplýs-
ingar sem útilokað var talið að hefði
verið aflað með lögmætum hætti.
Komast ekki inn í tölvuna
Tölvan er, eins og áður segir, sömu
gerðar og tölvan sem fannst á fimmtu
hæð Austurstrætis 8-10 hinn 2. febr-
úar í fyrra og hafði verið komið þar
fyrir og tengd tölvukerfi Alþingis, að
líkindum í þeim tilgangi að brjótast
inn í tölvur einstakra þingmanna og
tölvukerfi Alþingis.
Af þeim sökum er, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins, til rann-
sóknar hjá lögreglu, hvort þessi tvö
tölvumál tengist. Til grundvallar í
þeirri rannsókn eru, samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, tengsl
og viðskiptasambönd piltsins við DV
og WikiLeaks.
Eiríkur Tómasson, prófessor í lög-
fræði við Háskóla Íslands, sagði í
samtali við Morgunblaðið hinn 3.
febrúar í fyrra, að keyptu fjölmiðlar
stolin gögn og birtu þau, stæðu þeir
annars vegar frammi fyrir sjónarmiði
um friðhelgi einkalífsins og hins veg-
ar tjáningarfrelsinu, en meta þyrfti
hagsmuni þegar fjölmiðlar ættu í
hlut.
„Hagsmunamat á sér alltaf stað
þegar um fjölmiðla er að ræða,“ sagði
Eiríkur. Legðu fjölmiðlar á ráðin og
stuðluðu að stuldi væru þeir almennt
séð brotlegir, en sama ætti ekki endi-
lega við tækju þeir við upplýsingum,
jafnvel þó að þeir vissu að þær hefðu
fengist með ólögmætum hætti, og
birtu þær. Það færi eftir eðli upplýs-
inganna hverju sinni.
Álit lagaprófessorsins um að þeir
sem leggi á ráðin og stuðli að stuldi,
séu almennt séð brotlegir, er sagt
vera meginskýringin á kæru for-
svarsmanna Milestone, þ.e. að þeir
telja að DV og/eða blaðamaður þess,
hafi gert ólögráða dreng út af örkinni,
til þess að stela gögnum, en pilturinn
var einungis 17 ára gamall þegar
meint brot áttu sér stað.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
vill lítið tjá sig um rannsóknir sínar og
mögulega tengingu þessara tveggja
óupplýstu tölvumála. Staðfest fékkst
þó að báðar tölvurnar eru í vörslu lög-
reglunnar, en hvað varðar tölvuna
sem lögreglan lagði hald á, með ofan-
greindum gögnum um Milestone og
fleiri aðila, þá hefur Morgunblaðið
upplýsingar um það að tölvusérfræð-
ingum lögreglunnar hefur enn ekki
tekist að rannsaka þau gögn sem sú
tölva hefur að geyma.
Neitar að gefa upp lykilorð
Ungi pilturinn hefur neitað að upp-
lýsa lögregluna um lykilorð, hvernig
farið skuli inn í gagnagrunn hennar
og sérfræðingum lögreglunnar hefur
enn ekki tekist að brjótast í gegnum
þær hindranir sem hann hefur sett
upp.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur pilturinn haldið því
fram við yfirheyrslur að þýðingar-
mikil og fréttnæm gögn séu í tölv-
unni, en hann hefur neitað að veita að-
gang að þeim gögnum. Hann hefur
boðist til þess að opna tölvuna sjálfur
fyrir lögreglunni, en samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins hefur lög-
reglan ekki viljað þekkjast það boð,
þar sem allt eins er talið líklegt að
ungi maðurinn myndi gangsetja
gagnaeyðingarforrit, kæmist hann á
annað borð í tæri við tölvuna, sem
myndi draga úr líkum á sakfellingu
yfir honum vegna kæru um gagna-
stuld.
Því hefur lögreglan valið þann
kostinn að hleypa stráknum hvergi
nærri tölvunni og leitar enn leiða til
þess að brjóta sér leið inn í hana.
Þar sem öll auðkenni höfðu verið af-
máð af tölvunni sem fannst í húsa-
kynnum Alþingis í febrúar í fyrra og
engin fingraför fundust á henni, eins
og greint var frá hér í Morgunblaðinu
fyrir tíu dögum er rannsókn málsins í
einskonar sjálfheldu. Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu segir þó að rann-
sókn málsins sé hvergi lokið og það
eina sem skrifstofustjóra Alþingis hafi
verið greint frá hinn 9. febrúar í fyrra
hafi verið það að fingrafararannsókn á
tölvunni hefði ekki skilað neinni nið-
urstöðu. Margvíslegar yfirheyrslur og
rannsóknir hafi síðan átt sér stað, án
þess að nokkur niðurstaða hafi fengist.
Stór hluti alþingismanna lítur það
mjög alvarlegum augum að tölvu skuli
hafa verið komið fyrir í húsakynnum
Alþingis í þeim tilgangi að njósna um
þingmenn og þeirra tölvugögn. Hafa
þeir gagnrýnt það harðlega í samtöl-
um við Morgunblaðið að málið sé
óupplýst ári eftir að tölvan fannst. Sú
gagnrýni kemur ekki hvað síst frá
þingmönnum Hreyfingarinnar og
Sjálfstæðisflokksins, sem eru allir
með tölu með skrifstofur sínar í Aust-
urstræti 8-10, en einnig frá öðrum
þingmönnum, óháð því hvort um
stjórnar- eða stjórnarandstöðuþing-
menn ræðir.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, var gagnrýnin á það
í viðtali við Sunnudagsmoggann nú
um helgina, að hafa ekki verið upplýst
um það fyrir ári að tölvan hefði fund-
ist. Hún hefði augljóslega legið undir
grun, vegna tengsla sinna við Wiki-
Leaks, án þess að hafa nokkurn tíma
geta varið sig. Hún og aðrir þingmenn
hefðu vitanlega viljað vita af tölvu-
fundinum, til þess að geta brugðist við
og þar af leiðandi telur hún að yfir-
stjórn Alþingis hafi brugðist.
Þingmenn sem rætt var við um
helgina eru svipaðrar skoðunar og
Birgitta. Þeir telja að það sé með ólík-
indum að heilu ári eftir tölvufundinn
skuli ekkert hafa verið upplýst um
hver eigi tölvuna, hvers vegna henni
hafi verið komið fyrir í auðu herbergi
varaþingmanns Hreyfingarinnar eða í
hvaða tilgangi.
„Ef þetta er rétt sem þú segir mér
um tölvutegundina og viðskiptasam-
bönd unga mannsins, bæði við DV og
WikiLeaks, þá tel ég einfaldlega að
um reginhneyksli sé að ræða,“ sagði
þingmaður. Aðrir þingmenn taka í
sama streng. Þeir spyrja m.a. hvort
rannsakað hafi verið hvort ungi pilt-
urinn hafi verið með öðrum starfs-
mönnum WikiLeaks í heimsóknum
hjá Birgittu Jónsdóttur á fimmtu hæð-
inni í Austurstræti 8-10 um það leyti
sem tölvunni var komið fyrir. Heim-
ildir Morgunblaðsins herma að það
hafi verið rannsakað; lögreglan telji
miklar líkur á að svo hafi verið, en enn
hefur ekki tekist að færa sönnur á það.
Lögreglan telur að sér sé þröngur
stakkur sniðinn til rannsókna og yf-
irheyrslna, vegna þess að lögreglan
hafi engar lagalegar heimildir til for-
virkra rannsóknaraðgerða, eins og
það er nefnt, heldur verði ávallt að
liggja fyrir rökstuddur grunur um til-
tekið brot.
Viðmælendur úr lögreglunni benda
á að í öðrum löndum, t.d. Danmörku
og Noregi, sem Íslendingar bæru sig
gjarnan saman við, gilti annað, þegar
um væri að ræða njósnir, skipulagða
glæpastarfsemi og hryðjuverk. Þá
hefðu lögregluyfirvöld forvirkar heim-
ildir til þess að grípa til, en Alþingi
hefði hafnað því að lögregluyfirvöld
hér á landi fengju slíkar lagalegar
heimildir.
Blaðamaður DV með rétt-
arstöðu grunaðs manns
Ingi Freyr Vilhjálmsson, blaðamaður DV, talinn hafa keypt stolin gögn af ungum pilti sem stal gögn-
um úr tölvu lögmanns Tölva piltsins sömu gerðar og „njósnatölvan“ svokallaða sem fannst í húsa-
kynnum Alþingis fyrir ári Bæði málin uppgötvuðust á nokkurn veginn sama tíma og talin geta tengst
Asus Eee PC
» Það allra nýjasta í fartölvum
í dag. Ótrúlega nett og fyr-
irferðarlítil fartölva með inn-
byggðu þráðlaustu neti, fjölda
forrita, kortalesara o.fl. …“
» Þannig er Asus Eee fartölv-
unni lýst á heimasíðu Tölvu-
teks, sem selur slíkar tölvur.
» Þar kemur jafnframt fram
að hún hafi einungis 7 tomma
skjá og vegi aðeins 0,9 kíló.
Sem sagt, mjög nett og fyr-
irferðarlítil.
» Auðvelt sé að komast á net-
ið með innbyggðu WiFi 802.11
b/g sem finni og tengist heit-
um reitum og netkerfum.
» Asus Eee PC komi með upp-
settum hugbúnaði fyrir t.d
tölvupóst og ritvinnslu.
Morgunblaðið/Júlíus
„Njósnatölvan“ Er í vörslu lögreglunnar en hún er af gerðinni Asus Eee PC.
Morgunblaðið/Júlíus
Máð af botninum Búið var að afmá númer og önnur auðkenni af tölvunni.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2011