Ný saga - 01.01.1999, Side 21

Ný saga - 01.01.1999, Side 21
Qonfcssto turpíssima gjald fyrir koma þá þeim þætti verst við koma, ber- andi með mér svo sára samvisku bæði innan kirkju og utan og ei síður þann tíma sent eg tók að mér hold og blóð drottins míns jesú christi þótt ómak- legt væri. Hér nteð fór það sem enn var háskasam- •egra að þá er sá gekk að mér með lítillæti sem mér misbauð og bæði mig fyrirgefningar og eg sýndist hann meðtaka með blíðum orðum og hryggilegri ásjónu var eg í leyndum míns hjarta með angur- •egri úlfúðar rót, klæðandi svo falska blíðu andlits- ins með órækilegri reitni hugskotsins að þegar skyldi hann því mæta sem mér þótti verr ef hann kynni mig síðar styggja. Þessa synd hefi eg, kæri faðir, ómannlegast fram haft á þann rnann sem mér stendur verst því að minn eigin bóndi verður oft- sinnis fyrir þeim áruna af mér og gengur sú grein til þess að einn tíma sem við töluöum okkar í milli kom það í hans orðræðu að hann hefði nálægur verið minni frændkonu með holdlegri sambúð, og þótt hann birti mér þetta með einum samt heimu- leik og án nokkurri minni atspurn þá hel'ir þessi hlutur svo mikinn grundvöll í mínu brjósti til styggðar við hann að nteð orðum og einkanlega nteð þungum þykkjudrætti sjálfrar minnar hugar, rennandi löngum af minni hendi sú dyggileg og auðveld ást og skyldug elska sem eg átti honum að veita með réttinum þegar eg leiddi til umhugsanar fyrr sagðan hlut. Hér með hefi eg hann oftsinnis grun- að urn sama efni til annarra kvenna mér skyldra þótt eg hefði þar yfir enga kynning framar en ein- fellt hugarboð sjálfrar minnar og þó allt eins hefir það þungan máta míns lundernis lil ýfingar við hann svo að nálega hélt eg það fyrir satt í rnínu hjarta, nú með sagðri grein mér kunnugri fyrir hans framburð og eigi sfður fyrir mína grunsemd hefi eg iðulega með hann búið, bæði með óbrigð- anlegu hjúskaparbandi og líkamlegri náveru þó tíðlega með lítilli alvöru eður skyldulegri undir- vorpning. Og hver og hvílík mín sekt meiri <og> minni er stendur saman í þessu efni legg eg hana með sínum greinum undir miskunnarvald drottins míns jesú christi og yðar föðurlegt heilræði. Hér með hefi eg misgert, andlegur faðir, í ofmikilli gleyming um það góss sem eg á eða hefi átt í öðr- um sveitum eður landsfjórðungum, hvílíkar ölmus- ur þar af gerast guðs fátækum mönnum og þar unt haft litla atfrétt þá eg hefi sjálf til komið hverjar af- veislur orðið hafa í minni brottveru, og þótt eg hafi grun að smærri hafi orðið en heyrilegt væri þá hefi eg litla eður enga skipan á gerl til umbótar áður en eg riði í burt og ei heldur eftirhugsað þann tíma sem eg kom heim að gefa fleiri ölmusur af því góssi sem þá hefi eg milli handa eður aðrir með minni skipan. Því má eg hrædd um vera í guðs augliti. að guðs veslingar þoli og þolað hafi sakir þessa míns guðhræðsluleysis margfalt þrot bæði matar og drykkjar, klæða og herbergja láns, lífsfirring eins- hverja eður heilsutjón að þeir hafa mátt fá fyrr og síðar l'yrir mitt ofntikið manndómsleysi um þetta efni. Vil eg feginsamlega það allt samt gefa upp undir miskunnardóm drottins rníns jesú christi. Misgert hefi eg, andlegur faðir, í háskalegri van- rækt minnar hæstu sáluhjálpar því að eg hefi sjald- an með guðhræðslu eður kristilegri fýst og girnd bergt drottinlegum líkam og stundum eigi hirt hvort eg hefði bergl eður eigi hold og blóð míns sæta lausnara, heldur svo sem nokkuð misgrunandi með eíasemd hjartans ófalsaða sannleiksins undir- slöðu til fullrar syndalausnar í því guðlega stór- merki, eilíflega ríkjandi undir ásjónu brauðs og víns að rnína sál mundi það mega tálma fram á ei- lífa lífs braut þó að eg bergði eigi, og í aðra grein duldist eg við að mér mundi þungt og ábyrgðarfullt í guðs augliti með hvílíkum viðbúnaði eg leiddi að mínu hjarta helgastan líkama og dýran dreyra lif- anda guðs, það heimsklega hugsandi að ógurleg reiði hins réttlátasta dómara myndi mig eigi nálg- ast mega eður maklega slá ef eg ein stæði í milli ntargra annarra rnanna þeirra sem hreinlega vaktaði sínar samviskur. Með þessum hætti firrðist og fjarlægðist mitt hjarta lifanda brauð englanna og burt skýfðist af fagnaðarfullri nálægð og sam- vistu heimsins gtæðara en fyllti fúlan falsaradóm djöfulsins og hans eiturlegum teygingum svo ráð- lauslega reikandi í fyrrgreindu trausti dular og óvisku stað af stað að sjá og heyra margfaldan óvinarins vondskap, það til leggjandi af minni mannillsku sem aðrir kunnu eða vildu eigi gera, seðjandist aldrei af lausungarfullri flöktan hug- skots og líkama sem það himintungl er að þremleg- um árum liðnum fyllir sína rás og nýjar hana þegar án dvöl eður hvíld. Nú veit eg að ómildur dauði verður endalykt á fyrr sagðri minni reikan. Mun eg þá byrja aðra rás 4 Fornbréfasafn hefur relega.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Ný saga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.