Ný saga - 01.01.1999, Blaðsíða 99
Er Oddaverjaþætti treystandi?
staðir í hans vald gefnir í Austfirðinga-
fjórðúngi.
En eptir kirkjuvígslu ok messu skipaði
byskup Sigurði staðinn í lén, ok af þessu
tiltæki biskups hófz sá vanði at höfðingjar í
Austfjörðum skipuðu staði með byskups
ráði eða samþykkt allt til Arna byskups.
En af því at hann tók öll kirkna forráð af
hverjum sem áðr höfðu undir sik vóru
margir tregir til at segja sér af hent þat
áhald sem þeir þóttuz áðr eiga.44
Þessi lýsing er svo samhljóða þeirri sem er í
Oddaverjaþætti að líklegt má teljast að þær
séu ættaðar úr sörnu smiðju.45 Sérstaka at-
hygli vekur að Arni er í raun að endurtaka
verk Þorláks, Þorlákur fékk vald yfir sörnu
kirkjustöðum og í báðum tilvikum eru Þvottá
og Hallormsstaðir undan skilin. Síðan fer
Árni til Odda sem er prófmálið, nákvæmlega
eins og í Oddaverjaþætti, en í þetta sinn fer
kirkjan með sigur af hólmi.
Það má kallast merkilegt að Árni og Þor-
lákur skuli fara nákvæmlega eins að og kem-
ur aðeins tvennt til. Annað hvort hefur Árni
fylgt fordæmi Þorláks eða búið það til, þ.e.
hegðun Þorláks í Oddaverjaþætti er mótuð af
hegðun Árna en ekki öfugt. Hvað sem því líð-
ur má ljóst vera að árangur Þorláks í staða-
málurn er svo lítill að hann mun vart hafa
fylgt þeim eftir nema með hálfurn huga. í
Oddaverjaþætti er hann sagður láta undan og
þessi skýring gefin á: „því hyggja menn að
Þorlákur byskup mælti þessi orð að hann fann
að alþýðan fylgdi Jóni um kirkjumálin, vægði
hann því að sinni að hann sá engan ávöxt á
vera þótt hann héldi fram en rnikinn skaða á
marga vega og ætlaði síðar með erkibyskups
fulltingi að kirkjan myndi fá sín réttindi.“46
Það þarf að útskýra sérstaklega hvers vegna
staðamál fyrri breytlu kirkjueign landsmanna
lítið sem ekkert og bætt er við að þegar Ey-
steinn flæmdist úr landi hafi rnálið verið von-
laust. En að sjálfsögðu er Þorlákur sjálfur
gerður sama sinnis og eftirmaður hans, Árni
Þorláksson, sem stendur að rituninni.
Á undan hafa aftur á rnóti farið miklar
deilur sem óhikað eru mestu stórtíðindi síns
tíma, ef rétt væri frá sagt í Oddaverjaþætti.
Þeirra er þó hvergi getið annarstaðar. Þó að
hér hafi verið færð rök fyrir því að ekki sé við
því að búast að A-gerð Þorlákssögu þegði yfir
svo miklum atburðum sem þessum má láta
hana liggja milli hluta hér. En þar að auki er
átaka Þorláks og Jóns Loftssonar um staði að
engu getið í Sturlungu. í Prestssögu Guð-
mundar Arasonar er Þorlákur ítrekað nefnd-
ur og þar er sagt frá Bæjar-Högnamálum sem
miklurn tíðindum. Einnig er þar getið um vin-
áttu Þorláks við Gissur Hallsson og sonu hans
og við systursonu sína, Orm og Pál, sonu
Ragnheiðar og Jóns Loftssonar. Sú rnynd sem
þar er dregin upp af samskiptum Þorláks við
valdaklíku Oddaverja og Haukdæla kemur
því mjög heim við það sem lýst er í A-gerð
Þorlákssögu og víðar en er á skjön við lýsingu
Oddaverjaþáttar á átökum Þorláks og Odda-
verja.47 Einnig eru þeir Þorlákur og Jón Lofts-
son samherjar í stuðningi við Pál Sölvason í
deilum hans við Hvamm-Sturlu sem frá er
greint í Sturluþætti. Þar er Þorlákur látinn
Mynd 4.
Oddi á
Rangárvöllum.
Hvað sem því
líður má Ijóst
vera að árangur
Þorláks í staða-
málum er svo
lítill að hann
mun vart hafa
fylgt þeim eftir
nema með
hálfum huga
97