Morgunblaðið - 19.04.2011, Page 2

Morgunblaðið - 19.04.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011 Audi Q7 Árgerð 2007, ekinn 95.000 km sjálfskiptur, dísel, ásett verð 7.990.00,- Tilboð 7.290.000,- HEKLA NOTAÐIR BÍLAR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Álftin fræga, Svandís, er ein þeirra sem eru allt árið á Íslandi. Hún er nú lögst á en hún og makinn halda sig í manngerða hólmanum á Bakkatjörn á Seltjarnarnesi. Þetta er 17. ár Svandísar og fjölskyldu á tjörninni. Morgunblaðið/Ómar Þolinmóð í hólmanum Svandís er staðráðin í að fjölga sér enn á ný Starfsmaður íhaldshóps Norð- urlandaráðs sem grunaður er um að hafa dregið sér mikið fé af reikningum ráðsins er kominn í leitirnar. Sagt hafði verið frá því að hann hefði horfið í New York og var utanríkisráðuneytið beðið að aðstoða við að hafa uppi á honum. Málið hefur verið kært til efna- hagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra. Starfsmaður íhalds- hóps kom í leitirnar Lögreglan á Egilsstöðum stöðvaði ökumann á hraðferð um Fellabæ síðdegis í gær. Var hann á 105 km hraða en hámarkshraði á þessum vegi er 50 km/klst. Var maðurinn sviptur ökuleyfi á staðnum og á yfir höfði sér háa sekt. Að sögn lögreglunnar var öku- maðurinn á miðjum aldri og gaf þær skýringar að hann hefði verið að flýta sér. Þurfti að flýta sér og ók á 105 km hraða Um 2.400 manns höfðu í gærkvöldi skráð sig á undirskriftalista á vef- síðunni fjolmidlalog.is, þar sem skorað er á forseta Íslands að vísa fyrirliggjandi fjölmiðlafrumvarpi til þjóðaratkvæðagreiðslu. Segir m.a. á síðunni að frum- varpið sé alvarleg atlaga gegn sjálfstæði frjálsra fjölmiðla á Ís- landi og gangi í berhögg við EES- samninginn. Fjölmiðlalögum verði vísað til þjóðarinnar Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is „Þetta er eiginlega bara sorgardag- ur, ef þetta verður samþykkt í borg- arstjórn,“ segir Björk Óttarsdóttir, leikskólastjóri og stjórnarmeðlimur Félags stjórnenda leikskóla, en í dag verður lögð fyrir borgarstjórn til um- ræðu og samþykktar tillaga borgar- stjóra um sameiningar leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila. Tillagan var samþykkt á fundi borgarráðs í gær en sameiningar- hugmyndirnar hafa mætt mikilli and- stöðu meðal foreldra, kennara og skólastjórnenda. „Það er engin fag- leg hugsun á bak við þetta, það er bara peningurinn sem talar,“ segir Björk. Hún gagnrýnir harðlega að ekkert samráð hafi verið haft við þá leik- skólastjórnendur sem nú missi vinn- una, þegar 24 leikskólar verða sam- einaðir í 11. „Það hefði átt að hafa samráð við þessa stjórnendur frá upphafi og gefa þeim kost á að segja sína skoðun á þessu,“ segir hún. Sum- ar hugmyndirnar séu ekki alslæmar en fleiri og betri hefðu fengist með samráði við foreldra og starfsfólk. Afleit tímasetning Samþykkt tillögunnar í borgarráði í gær vakti víða hörð viðbrögð en þó ekki síður að borgarráð samþykkti einnig að hefja undirbúning að sam- einingu leikskólasviðs og mennta- sviðs en yfir á nýtt svið munu einnig flytjast verkefni skrifstofu tóm- stundamála, sem nú tilheyra íþrótta- og tómstundasviði. „Nýr sviðsstjóri sameinaðs sviðs tekur til starfa 1. júlí, sama dag og sameina á 24 leikskóla í borginni,“ segir Rósa Steingrímsdóttir, formað- ur Barnanna okkar, samtaka for- eldra leikskólabarna. Hún segir engu líkara en það skorti skilning á því að sameiningarn- ar kalli á mikinn faglegan stuðning. „Við erum ekki að mótmæla stjórn- kerfisbreytingunni,“ segir hún, „en tímasetningin er afleit.“ Frekari niðurskurður 2012 Rósa segir það einnig áhyggjuefni að í umsögn menntaráðs hafi verið lagt til að fara í viðræður við foreldra og nærsamfélagið um frekari niður- skurð árið 2012; ekkert sé eftir til að skera niður í menntakerfinu. „En á sama tíma eru samþykkt fjárútlát í verkefni eins og sjópott í Laugardals- laug og gufubað á Ylströndinni,“ seg- ir hún. Bæði SAMFOK, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, og Börnin okkar sendu út tilkynningar til fjölmiðla í gær þar sem ákvarðanir borgarráðs voru harmaðar. Regnhlíf- arsamtökin Börn.is og stjórnendur þeirra leikskóla, sem stendur til að sameina, sendu einnig frá sér til- kynningar og leggja til að fallið verði frá sameiningaráformum. Segir m.a. í tilkynningu Börn.is að verði sameiningarnar sam- þykktar verði hugsanlega gripið til lagalegra úrræða. Óvinsælar sameiningar samþykktar  Borgarráð samþykkir að sameina leik- og grunnskóla  Leikskóla- og mennta- svið sameinuð  Skorið niður í menntamálum en gufubað reist á Ylströndinni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Breytingar Til stendur að sameina 24 leikskóla í Reykjavík af 76. „Við fögnum því að fallið hafi verið frá sameiningunum í Efra- Breiðholti og í Vesturbænum, og að það hafi verið sett í hend- ur foreldranna að koma með til- lögur,“ segir Guðrún Valdimars- dóttir, formaður SAMFOK. Hins vegar eigi að halda til- lögum er varða sameiningu Hvassaleitisskóla og Áltamýr- arskóla til streitu og tillögum er varða skólana í norðanverðum Grafarvogi; eðlilegt hefði verið að foreldrar þar hefðu fengið sömu tækifæri og í hinum hverfunum. Guðrún segir enn vanta rökstuðning fyrir ákvörð- ununum en foreldrar séu orðnir langþreyttir. „Fólk er orðið vonlaust og fallast hendur yfir þessu bákni,“ segir hún. Jafnræði milli hverfa GRUNNSKÓLARNIR Guðrún Valdimarsdóttir Laugardagurinn var viðburðaríkur dagur hjá Úlfari Andréssyni. Úlfar, sem er nýorðinn 23 ára, var þá heiðraður af heimabæ sínum Hvera- gerði og tók jafnframt á móti brons- verðlaunum með félögum sínum í ís- hokkílandsliðinu í 2. deild heims- meistaramótsins sem haldin var í Zagreb í Króatíu. Úlfar hlaut um- hverfisverðlaun Hveragerðisbæjar árið 2011 fyrir ferðaþjónustufyrir- tæki sitt Iceland Activities en þau voru afhent af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, við hátíðlega at- höfn í Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum. Í máli Helgu Sigurðardóttur, for- manns mannvirkja- og umhverfis- nefndar, kom m.a. fram að „fyrir- tækið leggur metnað sinn í að kynna náttúruperlur Hveragerðis og ná- grennis á heilsusamlegan og um- hverfisvænan hátt með skipulögðum göngu- og hjólreiðaferðum“. „Ég er mjög stoltur“ Úlfar tjáði Morgunblaðinu að við- urkenningin væri sér hvatning til góðra verka. „Ég er mjög stoltur af þessu og það er mikil viðurkenn- ing að fá þessi verðlaun. Ef ég spila rétt úr þess- um spilum get ég notfært mér hana til markaðs- setningar enda eru verðlaunin afhent af forseta Ís- lands. Þetta gefur fyrirtækinu viss- an gæðastimpil,“ sagði Úlfar og gat ekki neitað því að laugardagurinn hefði verið skemmtilegur dagur fyr- ir sig. Úlfar hefur æft íshokkí frá sex ára aldri og sótt æfingar í Reykja- vík. „Ég byrjaði hjá SR en hef spilað með Birninum síðustu sex árin og aldrei misst úr æfingu,“ sagði Úlfar en foreldrar hans skutluðu honum á æfingar þar til hann fékk bílpróf. Úlfar hyggst reyna fyrir sér erlendis í íþróttinni næsta vetur en segist þá koma heim á ný í apríl til að sinna ferðamennskunni. kris@mbl.is Íshokkí og leiðsögn  Úlfar fékk umhverfisverðlaun Hvera- gerðisbæjar og bronsverðlaun á HM Úlfar Andrésson Sígríður J. Frið- jónsdóttir, sak- sóknari Alþingis, mun ekki senda ákæru gegn Geir H. Haarde, fyrr- verandi forsætis- ráðherra, til landsdóms fyrr en eftir páska. Enn sé verið að vinna í rannsókn- argögnunum en vonandi muni sú vinna klárast fljótlega eftir páska. Kjörtímabil hluta dómara við landsdóm rennur út 9. maí. Málið fer til lands- dóms eftir páska Sigríður J. Friðjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.