Morgunblaðið - 19.04.2011, Síða 11
Evgenia er fædd í Rússlandi árið
1983 en flutti hingað til lands
þegar hún var tíu ára og á ís-
lenskan stjúpföður. Að loknu
doktorsnámi í eldfjallafræði
fékk Evgenia vinnu sem eld-
fjallafræðingur á Veðurstofu Ís-
lands þar sem hún hefur starfað
síðan í febrúar. Eftir sjö ár í
Bretlandi segir hún gott að vera
komin heim og finnst frábært
að búa rétt hjá Fossvoginum þar
sem hún geti hlaupið og hjólað
laus við umferð.
Gott að vera
komin heim
EVGENIA
Alvara Úrvals róðraliðin æfa mörgum sinnum í viku og keppni milli háskólanna í Oxford og Cambridge er þekkt.
skrifast og það var ekki fyrr en í
kringum 1960 að hlutirnir fóru að
breytast bæði í náminu og íþrótt-
unum. Konurnar fóru þá að keppa
fyrir alvöru og gátu farið úr kjól-
unum og reynt á sig. Áður fyrr
þótti ekki kvenlegt að reyna á sig á
þennan hátt.
Á leið í Járnkarlinn
Evgenia játar því að hafa kom-
ist í gott form á þessum tíma og
eins segist hún búa að því að vera
vön að hreyfa sig. Henni finnist
hún verða að gera eitthvað á
hverjum degi. Hún hjólar
nú og syndir og þjálf-
ar sig þannig fyrir
hálfan Járnkarl
sem keppt verður í
í sumar. „Margir
sem hafa æft róður
fara að hjóla og síð-
an kannski að stunda
þríþraut. Ég fór ein-
mitt þá leið og byrj-
aði að hjóla.
Síðan langaði
mig að prófa þrí-
þraut svo ég ákvað að
nýta mér góða sundaðstöðu hér til
að læra að synda vel og hratt og
verða keppnishæf í því. Ég stefni á
það í sumar að taka þátt í hálfum
járnkarli og dreymir um að taka
þátt í heilum Járnkarli á næstu ár-
um. Þetta krefst mikils tíma og
undirbúnings og ég stefni á að
klára þetta á innan við sex tímum.
Helsta breytingin eftir að ég kom
hingað aftur er sú að nú æfi ég ekki
í liði og er ekki í jafn nánum hópi
og ég var úti. Það eru góðar og
slæmar hliðar á því. Það góða við
hóp er að maður veit að maður
heldur sig frekar við efnið en mér
finnst líka ágætt að vera ekki undir
þannig pressu og geta stjórnað mér
meira sjálf. Gera þetta á mínum
eigin tíma og setja mér mín eigin
takmörk,“ segir Evgenia.
Sigur Mikilvægt er að vera andlega
sterkur þegar sigur hefst ekki.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011
Powerademótaröðin 2011 er nú að
hefjast. Þetta er þriðja árið í röð sem
frjálsíþróttafélögin í Reykjavík,
Reykjavíkurmaraþon og Powerade
standa saman að mótaröð sumar-
hlaupa í Reykjavík.
Fyrsta hlaupið á mótaröðinni, Víða-
vangshlaup ÍR, fer fram á sumardag-
inn fyrsta 21. apríl og verður ræst kl.
12:00. Hlaupið er 5 km langt en það
hefst fyrir framan Ráðhúsið í Reykja-
vík. Forskráning fer fram á hlaup.is
og er opin til kl. 23:30 miðvikudaginn
20. apríl. Einnig verður hægt að skrá
sig í Iðnó frá kl. 10:30 á hlaupdag.
Þátttökugjald er kr. 1.500 fyrir full-
orðna og 500 kr. fyrir börn 15 ára og
yngri. Hlaupin fimm sem mynda
Powerademótaröðina 2011 eru: Víða-
vangshlaup ÍR sumardaginn fyrsta
hinn 21. apríl, Fjölnishlaupið 19. maí,
Miðnæturhlaup Powerade 23. júní,
Ármannshlaupið 12. júlí og loks
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
hinn 20. ágúst. Til mikils er að vinna
en gjafabréf í flug með ferðaskrif-
stofunni VITA er í boði fyrir flest stig
samanlagt í hlaupunum fimm í karla-
og kvennaflokki. Auk þess eru veitt
verðlaun fyrir bestan árangur í fimm
aldursflokkum karla og kvenna. Í öll-
um hlaupunum verða Powerade-
drykkjarstöðvar, verðlaun og að-
göngumiðar í sund.
Hlaup
Hlaup Mótaröðinni lýkur með Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst.
Powerade-mótaröðin hefst
Stofnfundur Geit-
fjársseturs mun fara
fram klukkan 17:30 í
dag í Friðarhúsinu,
Njálsgötu.
Setrinu er ætlað að
skapa tekjur í kring-
um geitina og hug-
sjónakonuna Jó-
hönnu. á Háafelli.
Hún hefur staðið
að mestu ein í að
varðveita og efla
geitastofninn á
landinu sem er sá
elsti sem finnst í Evr-
ópu. Slow Food skráði á sínum tíma
íslensku geitina í Bragðaörkina (Ark
of Taste) til að vekja athygli á henni
og hefur það að einhverju leyti
heppnast því stofninn hefur þó
eflst. En betur má ef duga skal og
standa nú nokkrir einstaklingar að
stofnun setursins til að tryggja
geitunum og Jóhönnu örugga fram-
tíð.
Matvæli
Morgunblaðið/Ómar
Fjör Geitunum á Háafelli skal nú
tryggð örugg framtíð.
Geitunum tryggð
örugg framtíð
Ljósmynd/Þór Gíslason
Hópmynd Alls hlupu 118 kepp-
endur lengstu vegalengdina frá
Dettifossi, 32,7 km.
Skemmtilegar hugmyndir fyrir fermingar-
veisluborðið á www.gottimatinn.is
fermingar