Morgunblaðið - 19.04.2011, Síða 15
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Útlit er fyrir mjög erfiðar viðræður
um myndun næstu ríkisstjórnar
Finnlands eftir stórsigur Sannra
Finna sem nær fimmfölduðu fylgi
sitt í þingkosningunum á sunnudag-
inn var. Í kosningabaráttunni lögðu
Sannir Finnar áherslu á andstöðu
sína við þátttöku Finnlands í efna-
hagsaðstoð við Portúgal til að bjarga
evrunni og sigur flokksins skapar því
mikla óvissu um frekari aðstoð við
evruríki sem leita eftir neyðarlánum
frá Evrópusambandinu.
Sannir Finnar fengu aðeins 4% at-
kvæðanna árið 2007 en juku fylgi sitt
í 19% í kosningunum á sunnudag og
urðu þriðji stærsti flokkurinn, með
39 þingsæti.
Sameiningarflokkurinn, sem er
hægriflokkur, missti sex þingsæti en
varð samt stærsti flokkur landsins í
fyrsta skipti í sögunni. Jafnaðar-
mannaflokkurinn, sem er í stjórnar-
andstöðu, missti þrjú sæti, fékk 42.
Miðflokkurinn galt hins vegar af-
hroð, missti 16 þingsæti og er nú
fjórði stærsti flokkurinn, en var
stærstur í síðustu kosningum.
Enginn einn flokkur hefur haft
mikla yfirburði í finnskum stjórn-
málum og Jafnaðarmannaflokkur-
inn, Miðflokkurinn og Sameiningar-
flokkurinn hafa yfirleitt fengið um
það bil fimmtung atkvæðanna.
Venjulega hafa tveir þeirra myndað
ríkisstjórn eftir kosningar með ein-
um eða fleiri smáflokkum. Þetta
„þriggja turna kerfi“ hefur nú riðlast
með stórsigri Sannra Finna og
fréttaskýrendur finnskra blaða telja
að stjórnarmyndunarviðræðurnar
verði óvenju erfiðar.
Þurfa að gefa eftir
Dagblaðið Helsingin Sanomat tel-
ur líklegt að Sameiningarflokkurinn
og Jafnaðarmannaflokkurinn taki
höndum saman eftir kosningarnar.
Báðir flokkarnir eru hlynntir Evr-
ópusambandinu og evrunni. Í kosn-
ingabaráttunni varði Sameiningar-
flokkurinn þátttöku Finnlands í
aðstoðinni til að bjarga evrunni en
jafnaðarmenn hvöttu til breytinga á
neyðarlánunum. Sannir Finnar vilja
hins vegar leggja niður evruna og
eru algerlega andvígir því að pen-
ingar finnskra skattborgara verði
notaðir til að bjarga „eyðsluseggj-
um“ á evru-svæðinu.
Timo Soini, leiðtogi Sannra Finna,
ítrekaði þetta í gær og sagði að kosn-
ingarnar hefðu verið „þjóðaratkvæði
um stefnuna í ESB-málum“. „Ég tel
að finnska kýrin eigi að vera mjólkuð
í Finnlandi og við eigum ekki að
senda mjólkina í góðgerðarskyni til
annarra landa.“
Helsingin Sanomot sagði að sem
sigurvegarar kosninganna ættu
Sannir Finnar eflaust rétt á því að
eiga aðild að næstu ríkisstjórn en
deila þeirra við Sameiningarflokkinn
um aðstoðina við Portúgal gæti orðið
til þess að Sannir Finnar yrðu utan
stjórnar.
Blaðið Turun Sanomat sagði að
mjög erfitt yrði að mynda starfhæfa
meirihlutastjórn ef allir flokkarnir
stæðu við það sem þeir sögðu í kosn-
ingabaráttunni, a.m.k. einn þeirra
yrði að ganga á bak orða sinna. Blað-
ið Ilta-Sanomat telur að erfitt verði
fyrir Soini að halda flokki sínum
saman ef hann gefur of mikið eftir í
stjórnarmyndunarviðræðunum.
Blaðið Aamulehti sagði að til að
hægt yrði að mynda ríkisstjórn
þyrftu leiðtogar Sameiningarflokks-
ins, jafnaðarmanna og Sannra Finna
að semja um málamiðlunarlausn í
deilunni. Blaðið varpar einnig fram
þeirri spurningu hvort jafnaðar-
menn og Sannir Finnar myndu
reyna að mynda ríkisstjórn með ein-
hverjum öðrum flokkum ef Samein-
ingarflokkurinn gefur ekki eftir.
Finnska blaðið Kaleva segir að til að
mynda meirihlutastjórn þurfi allir
flokkarnir að gefa eitthvað eftir.
Getur hindrað aðstoðina
Ólíkt öðrum aðildarríkjum ESB er
það ekki aðeins ríkisstjórnin sem
ákveður stefnu Finnlands í málefn-
um Evrópusambandsins, heldur
einnig þjóðþingið. Finnska þingið
samþykkti neyðarlánin til Grikk-
lands og Írlands fyrir kosningarnar
en þingið sem kosið var á sunnudag
getur hindrað aðstoð við Portúgal og
hugsanlega fleiri lönd á evrusvæð-
inu.
Ilkka Ruostetsaari, prófessor í
stjórnmálafræði við Tampere-há-
skóla, segir að sigur Sannra Finna
stefni aðstoð ESB við evruríki í
mikla hættu og mjög erfitt verði fyr-
ir flokkinn að vinna með ESB-sinn-
unum í Sameiningarflokknum.
Einn forystumanna Sameiningar-
flokksins, Jan Vapavuori húsnæðis-
málaráðherra, kvaðst í gær telja að
Sannir Finnar myndu samþykkja að
hindra ekki aðstoðina við Portúgal,
t.a.m. með því að greiða ekki atkvæði
gegn henni á þinginu. Jyrki Katai-
nen, leiðtogi Sameiningarflokksins,
sagði að Finnar myndu ekki valda
vandræðum á evrusvæðinu. „Finn-
land hefur alltaf leitast við að leysa
vandamálin með ábyrgum hætti,
ekki valdið vandamálum.“
Fari svo að Sannir Finnar gefi eft-
ir í deilunni væri það ekki í fyrsta
skipti sem stjórnarandstöðuflokkur
breytti stefnu sinni þegar hann
kæmist í stjórn. Þegar Finnland tók
upp evruna var Miðflokkurinn í
stjórnarandstöðu og andvígur evr-
unni. Þegar flokkurinn komst til
valda söðlaði hann um og barðist fyr-
ir þátttöku Finna í aðgerðum til að
bjarga evrunni. Sú afstaða mætti
mikilli andstöðu meðal almennings
og kom Miðflokknum í koll í kosning-
unum.
Líkur á erfiðri stjórnarmyndun
Lehtikuva
Sigurvegarinn Timo Soini, leiðtogi Sannra Finna, fagnar sigri flokksins í þingkosningunum á sunnudaginn var.
Stórsigur Sannra
Finna skapar óvissu
um aðstoð ESB
við Portúgal
„Firnamikill hvellur“
» Stjórnmálaskýrendur í Finn-
landi telja að stjórnarmynd-
unarviðræðurnar taki nokkrar
vikur og verði mjög erfiðar
vegna stórsigurs Sannra Finna.
» „Það varð firnamikill hvellur
í finnskum stjórnmálum,“
sagði Jan Sundberg, prófessor
við Helsinki-háskóla, um úrslit
kosninganna. „Þetta er mikil
breyting. Þetta breytir inntaki
finnskra stjórnmála.“
» Fréttaveitan AFP hefur eftir
sérfræðingum að það geti haft
mjög víðtækar afleiðingar fyrir
evrusvæðið ef finnska þingið
hafnar aðstoð Evrópusam-
bandsins við Portúgal.
ÚRSLIT KOSNINGANNA Í FINNLANDI
Sænski þjóðarflokkurinn
Græni flokkurinn
Miðflokkurinn
Sameiningarflokkurinn
Jafnaðarmannaflokkurinn
Sannir Finnar
Vinstrabandalagið
Kristilegir demókratar
Aðrir
Heimildir: Reuters, YLE
2011 ÞINGSÆTI FLOKKANNA 2007
200
9
15
51
50
45
17
7
1
5
StjórnarandstaðanStjórnarflokkarnir
200
9 6
10
35
44 42
39
14
1
StjórnarandstaðanStjórnarflokkarnir
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011
islandsstofa.is
Borgartún 35 | 105 Reykjavík
Viðskipta-
heimsókn
frá Slóveníu
Forseti Slóveníu
kemur til Íslands ásamt
viðskiptasendinefnd
Forseti Slóveníu, Dr. Danilo Türk, heimsækir Ísland 3. maí nk.
og með forsetanum í för er fjölmenn sendinefnd 25 slóvenskra
fyrirtækja. Í tilefni af heimsókninni boðar Íslandsstofa, í samvinnu
við utanríkisráðuneyti Slóveníu, til fundar á Radisson Blu Hótel Sögu,
miðvikudaginn 4. maí kl. 8:20–11:30.
Meginmarkmið fundarins er að bjóða fulltrúum fyrirtækja á Íslandi til
fundar við fulltrúa slóvensku fyrirtækjanna til að ræða mögulega sam-
starfsfleti. Í upphafi fundar munu forseti Slóveníu og forseti Íslands,
hr. Ólafur Ragnar Grímsson, flytja erindi. Þá verða kynningar á viðskipt-
um og viðskiptaumhverfi í löndunum tveimur. Að því loknu gefst
fyrirtækjunum tækifæri til að hittast og ræða mögulegt samstarf.
Stór hluti sendinefndarinnar er hingað kominn til að kynna sér orkumál
og nýtingu Íslendinga á endurnýjanlegum orkugjöfum. Einnig eru með í
för fyrirtæki úr öðrum greinum, s.s. bankastarfsemi, heilbrigðisþjónustu,
upplýsingatækni, málmtækni og fjarskiptum. Dagskrá og nánari
upplýsingar um fyrirtækin eru á vef Íslandsstofu, www.islandsstofa.is.
Þeir sem hafa áhuga á að sækja fundinn og/eða bóka fundi með full-
trúum einstakra fyrirtækja eru vinsamlegast beðnir að hafa samband
sem allra fyrst.
Skráning fer fram í síma 511 4000 eða með tölvupósti,
islandsstofa@islandsstofa.is.
Nánari upplýsingar veita Brynja Bjarkadóttir, brynja@islandsstofa.is
og Þorleifur Þór Jónsson, thorleifur@islandsstofa.is.Aðstoð til árangurs
Búist er við að Jyrki Katainen, leiðtogi Sameiningarflokks-
ins, verði næsti forsætisráðherra Finnlands eftir þing-
kosningarnar á sunnudaginn var þegar hægriflokkurinn
varð stærsti flokkur landsins í fyrsta skipti.
Katainen er nú fjármálaráðherra og Financial Times
lýsti honum sem besta fjármálaráðherra Evrópu árið
2008. Hann er 39 ára og varð leiðtogi Sameiningar-
flokksins árið 2004, þegar hann var 33 ára. Finnskir fjöl-
miðlar kölluðu hann þá „Jyrki-piltinn“ vegna
aldurs hans og unglegs útlits.
Sagður besti fjármálaráðherrann
KATAINEN LÍKLEGUR FORSÆTISRÁÐHERRA
Jyrki
Katainen