Morgunblaðið - 19.04.2011, Side 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011
✝ GuðmundurHöskuldsson
fæddist á Halls-
stöðum í Naut-
eyrarhreppi við
Ísafjarðardjúp 18.
júní 1919. Hann
lést á Landspít-
alanum við Foss-
vog 9. apríl 2011.
Foreldrar hans
voru Höskuldur
Kristinn Jónsson,
f. 24.12. 1888, d. 14. 7. 1936,
bóndi á Hallsstöðum og í
Tungu í Nauteyrarhreppi, og
Petra Guðmundsdóttir, f. 9.6.
1888, d. 7.6. 1958, húsfreyja
og ljósmóðir. Systkini Guð-
mundar eru: Ásgeir Höskulds-
son, f.4.10. 1916, d. 21.8. 2002,
maki Ingileif Guðbjörg Mark-
úsdóttir, f. 23.4. 1918, d. 8.8.
1976; Jón Kristinn Höskulds-
son, f. 24.3. 1918, d. 1.1. 1996,
maki Kristrún Magnúsdóttir;
Aðalsteinn Höskuldsson, f.
23.8. 1920, d. 17.4. 1987, fyrri
Ríkisspítölunum, búsettur í
Reykjavík, en kona hans er
Hlíf Heiðarsdóttir og eiga þau
tvö börn; Ásgeir Guðmunds-
son, f. 11.1. 1954, kennari og
tæknifræðingur við Vélskóla
Íslands, búsettur í Reykjavík,
en kona hans er Gróa Frið-
geirsdóttir og eiga þau tvö
börn auk þess sem Ásgeir á
dóttur frá því áður; Ingibjörg
Guðmundsdóttir, f. 10.5. 1962,
tækniteiknari og grafískur
hönnuður, búsett í Reykjavík,
en maður hennar er Magnús
Garðarsson og eiga þau einn
son.
Guðmundur flutti til
Reykjavíkur 1939 og stundaði
þar ýmis störf, m.a. við gerð
Reykjavíkurflugvallar í
Vatnsmýrinni. Hann var vagn-
stjóri hjá SVR á árunum1941-
66 og stundaði auk þess öku-
kennslu um árabil. Þá fór
hann á síld árin 1946, 1947 og
1954. Guðmundur hóf störf
hjá Samvinnutryggingum
1966 og starfaði þar í tuttugu
ár. Hann var þar lengst af við
tjónaskoðun og uppgjör á
tjónum.
Útför Guðmundar fer fram
frá Árbæjarkirkju í dag, 19.
apríl, og hefst athöfnin kl. 15.
maki Karólína
Sigríður Jónas-
dóttir, seinni
maki Björk Frið-
riksdóttir; Níels-
ína Steinunn
Höskuldsdóttir, f.
10.1. 1926, d.
29.5. 1928.
Eftirlifandi eig-
inkona Guð-
mundar er Guðný
Ásgeirsdóttir, f.
17.9. 1923, húsmóðir. Hún er
dóttir Ásgeirs Andréssonar
smiðs og Ingibjargar Jóns-
dóttur, húsmóður. Börn Guð-
mundar og Guðnýjar eru
Höskuldur Guðmundsson, f.
27.11. 1944, forstjóri Hag-
verks, búsettur í Reykjavík en
kona hans er Margrét Jó-
hannsdóttir og eiga þau þrjú
börn: Bragi Guðmundsson, f.
23.1. 1948, húsasmiður í
Kópavogi og á hann tvo syni;
Guðmundur Guðmundsson, f.
30.12. 1952, verkstjóri hjá
Afi Guðmundur var merkileg-
ur maður. Hann kunni fleiri ljóð
en nokkur annar sem ég hef
kynnst. Ég man að einu sinni
var ég að reyna að segja honum
frá fallegu ljóði sem ég hafði
lært í menntaskóla. Ég mundi
þó ekki mikið úr því og minnir
að ég hafi sagt þessa línu úr
ljóðinu: Háa skilur hnetti him-
ingeimur. Afi var sko ekki lengi
að grípa setninguna og byrjaði
ljóðið frá upphafi og hætti ekki
fyrr en öll 11 erindin voru á
enda. Þetta var þá ljóð Jónasar
Hallgrímssonar, Ferðalok.
Afi var ótrúlegur og jafn
minnugan mann hef ég ekki hitt.
Hann mundi ennþá núna fyrir
jólin eftir atburðum sem höfðu
átt sér stað fyrir meira en 70 ár-
um. Hann var fyrir stuttu að
segja mér frá merkilegu ferða-
lagi sem hann fór í þegar hann
gekk á gönguskíðum yfir
Drangajökul, og þetta var
örugglega í kringum 1935. Afi
hafði ekki verið mörg ár í skóla
en það sem hann lærði í skól-
anum man hann. Hann mundi
t.a.m. öll ljóð bekkjarfélaga
sinna sem þau höfðu samið sem
verkefni í skólanum. Þá var
hann líklega í kringum 15 ára
aldurinn. Íslendingasögurnar
held ég að hann hafi kunnað all-
ar og ljóðin flest. Honum þótti
ekki leiðinlegt að segja frá Ís-
lendingasögunum eða að þylja
upp ljóð og voru aðstæður oftar
en ekki þær að afi fór með ljóð
meðan ég og amma spjölluðum.
Það verður skrítið í framtíðinni
að spjalla við ömmu og enginn
afi í bakgrunni að fara með ljóð.
Afa fannst gaman að ferðast
og áður en ég lagði upp í heims-
reisu fyrir ekki svo löngu var afi
yfir sig spenntur að segja mér
sögur frá ferðum sínum um
heiminn. Og þar voru öll smáat-
riði með, meira að segja stein-
unum í garði einhvers gestgjaf-
ans í Englandi var lýst.
Síðustu ár var afi óvenju upp-
tekinn af holdafari okkar systk-
ina. Hann spurði oftar en ekki
hvort það væri svona gott að
borða þar sem við værum eða
hvort enga líkamsrækt væri að
finna. Hann var nú örugglega
bara að hugsa um heilsu okkar
systkina og fór semsagt mjög
pent í þetta.
Afa verður minnst sem minn-
ugasta manns fyrr og síðar. Ef
hann væri af minni kynslóð er
ég viss um að hann væri í ein-
hverju stórkostlega merkilegu
háskólanámi á góðri leið með að
sigra heiminn. Ég veit allavega
að ljóðið Ferðalok mun alltaf
minna mig á hann og er ég ótrú-
lega þakklát fyrir að hafa fengið
að kynnast honum og að hann
hafi verið svona lengi á meðal
vor.
Hvíl í friði, elsku afi.
Þín sonardóttir,
Guðný Ásgeirsdóttir.
Guðmundur
Höskuldsson
✝ GuðmundurBjörn Sveins-
son fæddist í Nes-
kaupstað 11. jan-
úar 1930. Hann
lést 25. mars 2011.
Foreldrar hans
voru Sigurður
Sveinn Sveinsson,
f. 16. september
1900, d. 27. apríl
1941, og Herborg
Anna Guðmunds-
dóttir, f. 7. október 1896, d.
11. október 1979.
Systkini Guðmundar eru:
Sammæðra: Kristjana Ágústs-
dóttir, f. 1920, hún er látin.
Alsystkini: Sveinn Sverrir, f.
1924, dáinn, Arthúr, f. 1926,
Inga Kristín, f. 1927, Guð-
björg, f. 1928, dáin, Már, f.
1933, María, f. 1935, dáin,
Sveina María, f. 1938.
Guðmundur Björn kvæntist
27 janúar 1956 eftirlifandi
konu sinni Esther Ósk Karls-
dóttur, f. 5. janúar 1928. Börn
þeirra eru: 1. Sævar Sveinn, f.
4. júní 1946, maki Chiraba
Gudmundsson, f. 1945, þau
skildu. Þeirra börn eru a)
Siegfried, f. 1971, b) Sabina, f.
1973, c) Sarah, f. 1988. 2. El-
ísabet Anna, f. 25. mars 1951,
maki Bengt Wallin, f. 1950.
Þeirra börn eru. a) Belinda, f.
1973, maki Nicklas Tolf, f.
1971. Þeirra dæt-
ur eru Isabelle, f.
1998, Patricia, f.
2001, b) Nathalie,
f. 1979, var í sam-
búð með Trent
Wilson, f. 1976.
Þeirra sonur er
Ozzy, f. 2009. c)
Bengt Patric, f.
12. nóvember
1985, d. 13. febr-
úar 1986, d) Phil-
ip, f. 1987. 3. Auður Björk, f.
13. ágúst 1959.
Guðmundur fór ungur að
vinna sem messagutti á Esj-
unni. Hann var lengi kokkur á
togurunum Mars og Júpíter
og á togaranum Karlsefni.
Guðmundur var með og sótti
Björgunarskipið Goðann frá
Noregi og var þá kokkur á
Goðanum í nokkur ár. Síðan
bjó fjölskyldan í Svíþjóð og
Bandaríkjunum til margra
ára, þar til þau fluttu til Ís-
lands 1994. Eftir að Guð-
mundur kom heim var hann í
Kolaportinu þar til hann
veiktist um áramótin. Guð-
mundur var mjög listrænn og
eru margar myndir til eftir
hann.
Útför Guðmundar fer fram í
Laugarneskirkju í dag, 19.
apríl 2011, og hefst athöfnin
kl. 15.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hinsta kveðja frá eiginkonu.
Esther.
Hann stendur í fjörunni horfir á
hafið,
himinn tær og fagurblár.
Allt er lífskrafti vorsins vafið,
vonin í brjóstinu hrein og klár,
vetrarins þunglyndi gleymt og
grafið,
geislandi fegurð um enni og brár.
Minningar að honum stöðugt
streyma,
stormsöm ævi um hugann fer.
Um liðna daga hann lætur sig
dreyma
þó líf’ans hafi nú borist á sker.
Hann þráði og elskaði hafsins
heima.
Í hillingum allt þetta finnur og sér.
Hér vildi hann ljúka langri ævi,
leggjast til hvílu við sjávarnið.
Bað þess hljóður að guð sér gæfi
af gæsku sinni eilífan frið.
Að mætti hann róa á sólgullnum
sævi
og sækja á gjöful fiskimið.
(Valdimar Lárusson)
Hvíldu í friði pabbi minn.
Elísabet
og fjölskylda.
Elsku pabbi minn. Þá er kom-
ið að kveðjustund, þú varst bú-
inn að vera svo mikið veikur en
samt hélt ég ekki að þú færir
svona fljótt.
Minningarnar eru margar og
ég sakna þín mikið.
Hvíldu í friði pabbi minn.
Þín dóttir,
Auður Björk.
Við minnumst þín sem ein-
staklings sem bar mikla orku
og lífskraft með sér, með
ákveðnar skoðanir á lífinu og
gildi þess sem þér þótti verð-
mætt. Þú varst einnig búinn
kímnigáfu, oft bros á vör, þó
einbeittur og viljasterkur og
sást alltaf hið jákvæða í staðinn
fyrir að einblína á það nei-
kvæða. Alltaf að sjá ljósu hlið-
ina var þinn persónulegi eigin-
leiki gegnum lífið. Þrátt fyrir
erfiðleika og vandamál sem aðr-
ir hefðu látið aftra sér hélstu
ótrauður áfram með þín mark-
mið og hugsjónir, að gera það
sem þú hafðir ásett þér. Þú
varst einnig listrænn og næmur
fyrir fegurð sem kom fram í
myndum sem þú málaðir,
fékkst áhrif frá þínu dulmagn-
aða föðurlandi Íslandi, gjarnan
þema frá goðsögunum, Óðinn
og Þór, þú dvaldist í Vestur-
heimi í mörg ár sem setti sitt
mark á þig, stíl, klæðnað og bif-
reiðar. Þú fékkst einnig inn-
blástur frá menningu frum-
byggja Bandaríkjanna, málaðir
gjarnan töfratákn þeirra.
Fyrir mér varst þú afi, faðir
föður míns, og gafst mér örygg-
istilfinningu þegar þú hélst á
mér sem smástrák sem var rétt
kominn í heiminn og til lífsins,
minnist skeggbroddanna mót
kinninni, við þekktumst í næst-
um 40 ár, hittumst og töluðum
saman mörgum sinnum en þó
ekki nógu oft. Ég er þakklátur
að hafa komið með föður mín-
um, Sævari, og hitt þig í hinsta
sinn því 14 dögum seinna varst
þú allur. Á hátíðarstund þegar
frænka mín, Elisabeth, varð 60
ára barst okkur fréttin um frá-
fall þitt. Mér er minnisstætt að
til hins hinsta andartaks varstu
eins og alltaf, stoltur, sterkur
eins og hetja sem nær sínum
endaákvörðunarstað, hvíldu í
friði í þinni Valhöll.
Gleymi þér aldrei, afi minn
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Far í friði Guðmundur,
Siegfried Christian
Björn Guðmundsson.
Guðmundur
Björn Sveinsson
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við andlát og útför
EBERHARDTS MARTEINSSONAR,
Hvassaleiti 17,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
Skógarbæjar fyrir góða umönnun.
Marteinn Eberhardtsson, Steinunn Ragna Hauksdóttir,
Einar Eberhardtsson, Hellen S. Helgadóttir,
Karen Eberhardtsdóttir,
Hilmar Eberhardtsson,
barnabörn og langafabörn.
✝
Minn elskaði sonur, eiginmaður, faðir, tengda-
faðir, afi og bróðir,
RAGNAR J. RAGNARSSON,
lést laugardaginn 9. apríl.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni miðviku-
daginn 20. apríl kl. 13.00.
Stasía Jóhannesson,
Steinunn Magnúsdóttir,
Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Birgir Ragnarsson, Hlíf Þorgeirsdóttir,
Eyþór Ragnarsson, Torfhildur Sigurðardóttir,
Dennis D. Jóhannesson, Hjördís Sigurgísladóttir,
Linda Ragnarsd. Jóhannesson,
Jónbjörn, Ragnar, Þórey, Irja, Rakel,
Daníel Snær og Dagur Steinn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
FINNBOGA HAFSTEINS ÓLAFSSONAR
frá Kirkjuhól,
síðast til heimilis Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir hlýja og góða
umönnun.
Guðrún Sigríður Þorsteinsdóttir,
Lilja Guðrún Finnbogadóttir, Gunnar M. Sveinbjörnsson,
Þorsteinn Finnbogason, Hulda B. Skarphéðinsdóttir,
Ingibjörg Finnbogadóttir, Jón Pétursson,
barnabörn og langafabarn.
✝
Þökkum allar þær fallegu og hlýlegu kveðjur
sem okkur bárust vegna andláts
THORS VILHJÁLMSSONAR
rithöfundar.
Margrét Indriðadóttir,
Örnólfur Thorsson, Margrét Þóra Gunnarsdóttir,
Guðmundur Andri Thorsson, Ingibjörg Eyþórsdóttir,
Margrét Edda Örnólfsdóttir,
Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir,
Gunnar Thor Örnólfsson,
Svandís Roshni Guðmundsdóttir,
Sólrún Liza Guðmundsdóttir.
Það er undarlegt þetta líf.
Elskulegur frændi okkar, Bogi
Eymundsson, er látinn, eftir
hetjulega baráttu.
Bogi var ljúfur maður, svo
sterkur, svo bjartsýnn, svo æðru-
laus, svo fallegur, svo ákveðinn í
að sigra sjúkdóminn.
Hann var hlaðinn jákvæðum
eiginleikum.
Við andlátsfregn þína,
allt stöðvast í tímans ranni.
Og sorgin mig grípur,
en segja ég vil með sanni,
að ósk mín um bata þinn,
tjáð var í bænunum mínum,
en Guð vildi fá þig,
og hafa með englunum sínum.
Við getum ei breytt því
sem frelsarinn hefur að segja.
Um hver fær að lifa,
og hver á svo næstur að deyja.
Bogi
Eymundsson
✝ Bogi Eymunds-son fæddist á
Akureyri 14. apríl
1963. Hann lést á
Karolinska sjúkra-
húsinu í Huddinge,
Stokkhólmi, 30.
mars 2011.
Útför Boga fór
fram frá Árbæj-
arkirkju 12. apríl
2011.
Þau örlög sem við
höfum hlotið,
það verður að skilja.
Svo auðmjúk og hljóð,
við lútum að
frelsarans vilja.
Þó sorgin sé sár,
og erfitt er við hana
að una.
Við verðum að skilja,
og alltaf við verðum
að muna,
að Guð hann er góður,
og veit hvað er best fyrir sína.
Því treysti ég nú,
að hann geymi vel sálina þína.
Þótt farin þú sért,
og horfin ert burt þessum heimi.
Ég minningu þína,
þá ávallt í hjarta mér geymi.
Ástvini þína, ég bið síðan
Guð minn að styðja,
og þerra burt tárin,
ég ætíð skal fyrir þeim biðja.
(Bryndís Halldóra Jónsdóttir)
Elsku Magga, Mundi, Ey-
mundur Þór, Sigurjón, Katrín,
Eydi, Lára, Eydís og fjölskyldur,
innilegar samúðarkveðjur, Guð
gefi ykkur styrk og huggun í
þessari miklu sorg.
Með kærleikskveðju,
Friðbjörg og synir.