Morgunblaðið - 19.04.2011, Side 29
Það var sérkennileg stemn-ing í Háskólabíói sl.fimmtudagskvöld á síð-ustu tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar á
bæ áður en haldið yrði í Hörpuna.
Eftirvæntingin lá í loftinu, ef til vill
blandin örlitlum trega í hugum
margra en fyrst og fremst ríkti
mikil gleði yfir því að langþráður
draumur skyldi vera að rætast.
Heiti tónleika kvöldsins hjá
Sinfóníuhljómsveitinni var „Mozart
og Brahms“ en sveitin hóf samt
sem áður með forleiknum úr óp-
erunni Oberon eftir Carl Maria
von Weber og var það ef til vill
lýsandi fyrir vægi tónlistar hans í
þessu samhengi. Verkið getur ekki
talist átakamikil tónsmíð, óperan
sjálf hefur þótt gallagripur en
þessi flétta fjörugra og ljóðrænna
stefja verksins hefur notið mun
meiri vinsælda í tónleikasölum
heims. Hljómsveitin skilaði verkinu
með sóma og bjó sig þannig undir
tónlist stórmeistaranna, sem á eftir
fylgdu.
Fiðlukonsert kvöldsins var sá
fimmti sem Mozart samdi á aðeins
átta mánaða tímabili árið 1775 og
mega það teljast ótrúleg afköst af
nítján ár pilti. Mozart er einnig
nýjungagjarn og kryddar tónlist
sína með þvi að fara á svig við
hefðirnar af og til. Svokölluð
Tyrkjatónlist var í tísku í Vín-
arborg á þessum árum og þau
áhrif stinga upp kollinum á
skemmtilegan máta í lokakafla
konsertsins.
Gréta Guðnadóttir, einleikari
kvöldsins, er leiðari annarrar fiðlu
sveitarinnar og þrautreyndur fiðlu-
leikari til fjölda ára. Þó gætti nokk-
urrar spennu í flutningi hennar
framan af, sem kom niður á „in-
tónasjón“ og hendingamótun en
Gréta spilaði úr sér hrollinn. Tónn-
inn var nokkuð grannur en hlýr,
hendingar fallega mótaðar og loka-
kaflinn var fluttur af glæsileik.
Hljómsveitin spilaði prýðilega en
þó fannst mér vanta upp á þá
snerpu og glitrandi tærleika, sem
einkennir tónlist Mozart. Hljóm-
sveitin er að vísu mjög fáliðuð í
þessu verki frá hendi Mozart, ef til
vill var Dworzynski of varfærinn í
hraðavali sínu og túlkun eða var
það kannski hljómun hússins, sem
dempaði stemninguna? Sem betur
fer reynir ekki frekar á slíkt eftir
vistaskiptin langþráðu.
Eftir hlé var síðan komið fyrstu
sinfóníu Brahms, sem gefin var út
árið 1876, þegar tónskáldið var 43
ára að aldri og hafði verkið þá ver-
ið í smíðum í hartnær 15 ár.
Brahms var sporgöngumaður sjálfs
Beethovens og sú ábyrgð að halda
uppi sinfóníuhefðinni í skugga slíks
risa hefur verið þrúgandi en sin-
fónía kvöldsins hlaut þó frá upphafi
glæsilegar viðtökur. Brahms spegl-
ar sig hér í fimmtu sinfóníu
Beethovens en þó á nýstárlegan og
frumlegan máta. Flutningur
kvöldsins var stórglæsilegur undir
styrkri stjórn Dworsynski. Hvergi
var veikan blett að finna og öllum
hinum breiða tilfinningaskala
Brahms komið óaðfinnanlega til
skila. Dásamleg kvöldstund sem
lofar góðu um framhaldið á nýjum
slóðum.
Háskólabíó kvatt
Háskólabíó
Sinfóníuhljómsveit Íslandsbbbnn
Carl Maria von Weber: Oberon forleikur
(1826), W.A. Mozart: Fiðlukonsert nr. 5 í
A-dúr K. 219 (1775), Johannes Brahms:
Sinfónía nr. 1 í c-moll op. 68. Gréta
Guðnadóttir fiðla; Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Stjórnandi: Michal Dworzynski.
Fimmtudaginn 14. apríl kl. 19.30.
SNORRI VALSSON
TÓNLIST
Morgunblaðið/Ómar
Fiðluleikarinn Gréta Guðnadóttir á æfingu með S.Í. degi fyrir tónleikana.
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 2011
Græna ljósið sýnir nú nýsjá-lenska fjölskyldumyndungs og efnilegs kvik-myndagerðarmanns,
Taika Waititi. Boy er önnur frásagn-
armynd hans í fullri lengd en hún
segir af ellefu ára maori-strák sem
reynir að henda reiður á brota-
kenndri tilveru sinni og takast á við
óvænta heimkomu óábyrgs föður
eftir dágóða fangelsisvist. Myndin
byggist á stuttmynd Waititi frá
árinu 2003 sem tilnefnd var til Ósk-
arsverðlauna. Boy var tekin upp á
æskuslóðum leikstjórans á austur-
strönd Nýja-Sjálands en hún er í
senn áhugaverð þroskasaga og æv-
intýraleg barnamynd. Myndin var
útnefnd best í sínum flokki á kvik-
myndahátíðinni í Berlín í fyrra og
var sömuleiðis tilnefnd til að-
alverðlauna á Sundance sama ár.
Heima fyrir hefur hún slegið öll að-
sóknarmet í kvikmyndahúsum og er
orðin arðbærasta innlenda mynd
allra tíma.
Myndin gerist árið 1984 þegar
frægðarsól Michael Jacksons skein
einna skærast, jafnvel í smábæ á
Nýja-Sjálandi. Boy býr á hrörlegum
sveitabæ ásamt ömmu sinni, yngri
bróður, nokkrum frændsystkinum
og eftirminnilegri geit. Amman yf-
irgefur býlið til að vera viðstödd
jarðarför í nærliggjandi borg og fel-
ur Boy að hafa umsjón með yngri
börnunum. Skömmu síðar skýtur
faðir Boys upp kollinum og Boy þarf
að horfast í augu við að faðir hans er
allt annað en sú hetja sem hann
hafði gert sér í hugarlund.
Hinn ellefu ára gamli James
Rolleston fer á kostum í aðal-
hlutverkinu og nær að túlka jafnt
barnslega einlægni persónu sinnar
og óvenjuþroskaða ábyrgðartilfinn-
ingu. Kvikmyndagerðarmaðurinn
Waititi fer með hlutverk aumk-
unarverðs föðurins. Á undraverðan
hátt nær hann að bjarga persónunni
frá því að vera fyrirlitleg með því að
gæða föðurinn hrífandi persónutöfr-
um sem villa jafnt áhorfendum sem
sonum hans sýn. Te Aho Aho Eke-
tone-Whitu stelur svo næstum sen-
unni í hlutverki yngri bróðurins,
Rockys, sem telur sig vera gæddan
yfirskilvitlegum kröftum. Hann er
harmi sleginn enda sannfærður um
að ofurkraftar hans hafi valdið því að
móðir þeirra bræðra lést við fæð-
ingu hans. Myndin er hæfileg blanda
af gamni og trega en hún er einnig
skreytt með áhugaverðri fantasíu. Á
hrífandi máta fléttast dagdraumar
og fjörugt ímyndunarafl bræðranna
inn í frásögnina. Áhorfendur hörfa
til dæmis með Boy inn í draumóra í
hvert sinn sem faðir hans bregst
væntingum eða hegðar sér ósæmi-
lega. Þá birtist faðirinn á tjaldinu í
vel útsettum og íburðarmikilum
Michael Jackson-dansatriðum eða
sem fim samúræ stríðshetja en
þannig forðast Boy að horfast í augu
við að faðir hans er ekki sá ómót-
stæðilegi töffari og góða fyrirmynd
sem hann hafði alla tíð ímyndað sér.
Sjónræn umgjörð myndarinnar er
í alla staði mjög falleg og flæðandi
en frásögnin gefur einnig örlitla inn-
sýn í maori-menningu. Hún er bund-
in í tíma og sterklega lituð af áhrif-
um af innrásar vestrænnar
menningar á heimsbyggðina. Mic-
heal Jackson er augljóslega átrún-
aðargoð Boys en fleiri vísanir kitla
hláturtaugar áhorfenda. Amerískur
neysluvarningur lætur á sér kræla.
Til dæmis skýtur hinn framandlegi
örbylgjuofn skökku við og sömuleið-
is hjólaskautar í sveit þar sem ekk-
ert malbik fyrirfinnst. Bróðir Boys
heitir enn fremur Rocky og frænd-
systur hans nefnast Dallas og
Dynasty.
Myndin er áhugaverð og hugljúf
þroskasaga sem ætti að höfða jafnt
til barna og foreldra. Hún nær aldrei
að verða tilfinnanlega átakanleg þar
sem iðulega er dregið úr drama-
tískum þunga með fantasíu og glensi
þannig að áhorfið verður helst til
áreynslulaust þó hrífandi sé.
Boy segir af ellefu ára maori-
strák sem reynir að henda reiður á
brotakennda tilveru sína og takast á
við óvænta heimkomu óábyrgs föður
eftir dágóða fangelsisvist.
Skýjaborgir umkomulausra bræðra
Bíó Paradís
Boy bbbbn
Leikstjórn og handrit: Taika Waititi. Að-
alhlutverk: James Rolleston, Taika Wai-
titi, Te Aho Aho Eketone-Whitu, Cohen
Holloway og Pana Hema Taylor. 88 mín.
Nýja-Sjáland, 2010.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Drengur Boy segir af ellefu ára maori-strák sem reynir að henda reiður á brotakenndri tilveru sinni og takast á við
óvænta heimkomu óábyrgs föður eftir dágóða fangelsisvist.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
551 1200 / leikhusid.is
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið)
Fös 29/4 kl. 19:00 Sun 8/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00
Fös 29/4 kl. 22:00 aukasýn Fös 13/5 kl. 19:00 Fös 3/6 kl. 20:00
Lau 30/4 kl. 19:00 Fös 13/5 kl. 22:00 aukasýn Lau 4/6 kl. 20:00
Lau 30/4 kl. 22:00 Sun 15/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00
Fim 5/5 kl. 20:00 Fim 19/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Fös 6/5 kl. 19:00 aukasýn Fös 20/5 kl. 19:00
Lau 7/5 kl. 19:00 Lau 28/5 kl. 19:00
Tveggja tíma hláturskast...með hléi
Strýhærði Pétur (Litla sviðið)
Fim 28/4 kl. 20:00 8.k Lau 30/4 kl. 20:00 10.k Fös 6/5 kl. 20:00
Fös 29/4 kl. 20:00 9.k Fim 5/5 kl. 20:00 Lau 7/5 kl. 20:00
Krassandi ruslópera. Áhorfendur standa á sýningunni. Ekki við hæfi ungra barna.
Húsmóðirin (Nýja sviðið)
Mið 20/4 kl. 20:00 forsýn Sun 8/5 kl. 20:00 8.k Sun 29/5 kl. 20:00 17.k
Þri 26/4 kl. 20:00 forsýn Fös 13/5 kl. 20:00 9.k Þri 31/5 kl. 20:00 18.k
Mið 27/4 kl. 20:00 frumsýn Sun 15/5 kl. 20:00 10.k Mið 1/6 kl. 20:00 19.k
Fim 28/4 kl. 20:00 2.k Þri 17/5 kl. 20:00 11.k Fim 2/6 kl. 20:00 20.k
Fös 29/4 kl. 20:00 aukasýn Mið 18/5 kl. 20:00 12.k Fös 3/6 kl. 20:00 21.k
Lau 30/4 kl. 20:00 3.k Fim 19/5 kl. 20:00 aukasýn Lau 4/6 kl. 20:00 22.k
Þri 3/5 kl. 20:00 4.k Fös 20/5 kl. 20:00 13.k Sun 5/6 kl. 20:00
Mið 4/5 kl. 20:00 5.k Sun 22/5 kl. 20:00 14.k Þri 7/6 kl. 20:00
Fim 5/5 kl. 20:00 aukasýn Þri 24/5 kl. 20:00 15.k Mið 8/6 kl. 20:00
Fös 6/5 kl. 20:00 6.k Mið 25/5 kl. 20:00 16.k
Lau 7/5 kl. 20:00 7.k Lau 28/5 kl. 20:00 aukasýn
Samvinnuverkefni Borgarleikhússins og Vesturports
Afinn (Stóra sviðið)
Fim 28/4 kl. 20:00
Óumflýjanlegt framhald Pabbans
Eldfærin (Stóra sviðið)
Lau 30/4 kl. 13:00 Lau 7/5 kl. 13:00 Lau 14/5 kl. 13:00
Lau 30/4 kl. 14:30 Lau 7/5 kl. 14:30 Lau 14/5 kl. 14:30
Sun 1/5 kl. 13:00 Sun 8/5 kl. 13:00
Sun 1/5 kl. 14:30 Sun 8/5 kl. 14:30
Sögustund með öllum töfrum leikhússins
Strýhærði Pétur – „Dásamleg upplifun“– S.A. TMM